Morgunblaðið - 15.06.1986, Side 13
1
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. JÚNÍ 1986
B 13
I
Hádegisverðinum gerð góð skil.
Strákarnir keppa ekki
bara í spretthlanpi á
íþrótta vellinum, heldur
einnig á tölvnnni í frjálaa
tímanum.
Steinunn Helgadóttir ald-
ursforsetinn i hópnum.
inni hér fyrir neðan og svo er hér
nýleg og góð sundlaug sem er mikið
notuð. Ef veðrið er vont getum við
stundað íþróttir innan húss í nýleg-
um íþróttasal við sundlaugina. Hér
eru líka góðar gönguleiðir allt í
kringum okkur. Þetta er því eins
og best verður á kosið."
— Hvemig á það saman að
kenna til skiptis á tölvur og íþróttir?
„Við sáum strax fram á að bömin
þyrftu líka að fá að reyna á sig lík-
amlega. Það var ekki hægt að láta
þau sitja inni allan daginn. Því var
ákveðið að ráða hingað íþróttakenn-
ara til þess að sjá um þessa hlið
málsins. Þótt áhugi á íþróttum og
tölvum fari ekki alltaf saman hjá
bömunum hefur það reynst mjög
vel að skipta deginum á þennan
hátt. Hér hafa verið böm sem hafa
ekki kynnst íþróttum fyrr en fengið
brennandi áhuga á þeim á meðan
á dvölinni í sumarbúðunum stóð. Ég
tel alveg nauðsynlegt að þetta
tvennt sé stundað jöfnum höndum."
Flestir sem koma í sumarbúðim-
ar hafa eitthvað fengist við tölvur,
en þó ekki allir. Áhuginn á tölvum
virðist þó vera sameiginlegur. Eirík-
ur sagði að bömin væra ótrúlega
fljót að grípa það sem þeim er
kennt.
í fyrra stóð hvert námskeið í
heila viku. Þessu var breytt vegna
þess að bömin vora stundum orðin
útkeyrð þegar þau fóra heim. Nú
koma þau á mánudagsmorgni og
era komin aftur heim á föstudags-
kvöldi og sagði Eiríkur að sér sýnd-
ist það vera nægilega langur tími.
Orðinn leiður á tölvuleikjum
Á meðan beðið var eftir hádegis-
verðinum vora nokkrir krakkar inni
í tölvuherberginu að æfa sig í gerð
forrita. Guðjón Stefánsson 12 ára
gamall frá Sauðárkróki var einn
þeirra. Hann sagðist sjálfur eiga
tölvu. „En ég er orðinn svo leiður
á leikjunum," sagði Guðjón og undir
þessi orð tóku nokkrir strákar sem
sátu hjá honum.
— Hefur þú lært margt nýtt í
sambandi við tölvumar héma?
„Já, ég hef lært ýmislegt, aðal-
lega í sambandi við forritun," sagði
hann og lét ekki trafla sig meira.
Hinir krakkamir vora ósparir á að
ráðleggja Guðjóni. Greinilegt var
að í þessum hópi vora strákar í
miklum meirihluta.
Eiríkur sagði að á þessu fyrsta
námskeiði væra aðeins 8 stelpur,
en 22 strákar. Hann sagði að yfir-
leitt væri þó hlutur stúlknanna
heldur betri, en samt sem áður
væra stúlkumar alltaf mun færri
en strákar.
„Þetta er í rauninni alveg furðu-
legt," sagði hann. „Tölvur og allt
sem að þeim snýr ætti að höfða
alveg jafnt til stelpna. Samt sem
áður eiga mun fleiri strákar tölvur,
og hafa aðgang að þeim, en stelpur.
Ég held að þetta geti verið foreldr-
unum að kenna að einhveiju leyti.
Mér sýnist að tölvur séu frekar
„Við fóram í fjallgöngu um
daginn og voram að drepast úr
hita,“ sagði Inga. „Þegar við kom-
um til baka þá hámuðum við í okkur
matinn. Svo voram við alitaf að
festast í dýi.“
»Og ég datt í drallu 1 læknum,"
sagði Regína.
Að þessum orðum sögðum þutu
þær af stað því nú var röðin komin
að þeim í hástökkinu.
Kunni ekkert á tölvur
áður enégkom
Sú sem náði besta árangrinum í
hástökki var Steinunn Helgadóttir
frá Stykkishólmi. Hún er jafnframt
elst í hópnum, á 15. ári. Steinunn
sagðist hafa komið á sumarbúðimar
til þess að læra á tölvur.
„Ég vissi eiginlega ekkert um
sumarbúðimar áður en ég kom og
vissi til dæmis ekkert um að hér
yrðu einnig íþróttir. Mér finnst það
ágætt. Ég verð að segja að ég bjóst
við að hér yrðu eldri krakkar og
mér brá svolítið þegar ég sá að hér
vora svona ungir krakkar innanum.
En svo hefur það verið allt í lagi.
Mér fínnst líka ailtof fáar stelpur
hér. Þessar sumarbúðir era alveg
eins fyrir stelpur."
— Langar þig til að fara í tölvu-
sumarbúðir aftur?
„Já, ef þar væra fleiri krakkar á
mfnum aldri. Annars held ég að ég
fari frekar á venjulegt tölvunám-
skeið."
— Kunnir þú eitthvað á tölvur
áður en þú komst?
„Nei. Ekkert. Ég hafði aldrei
komið nálægt tölvum fyrr. Nú hef
ég fengið mikinn áhuga á þeim.
Það er alveg nóg að fara á eitt
námskeið til þess að fá áhuga,"
sagði Steinunn að lokum.
Um kaffileytið vora krakkamir
þijátíu og umsjónarmenn þeirra
kvaddir. Brátt héldu bömin heim á
leið eftir viðburðaríka dvöl, hraust
eftir mikla útivera og íþróttaiðkun
og með aukna þekkingu á tölvu-
tækninni í veganesti.
Texti og myndir:
Ásdís Haraldsdóttir
Þorkell Þorkelsson
að vera frá mánudegi til föstudags
í sumarbúðunum, en flestir vildu
þeir samt koma aftur einhvem tíma
seinna.
Nú var komið að íþróttakeppn-
inni. Krakkamir þustu niður á
fþróttavöllinn. Keppt var f sprett-
hlaupi, hástökki og langstökki. Allir
tóku þátt í keppninni og var hrópað
og kallað og menn hvattir til dáða.
Hrönn skráði niður árangurinn með
aðstoð Bjarka og nokkurra krakka.
Árangurinn var auðvitað misjafn,
enda vora bömin á aldrinum 9 til
14 ára.
Keppnin I hástökkl stendnr sem haest. Fyrir
miðri mynd eru íþróttahúsið og sundlaugin.
Lengst til hægri er heimavistin á Varmalandi.
keyptar handa strákum en stelpum.
Munurinn liggur ef til vill einnig í
því að strákar era fljótari að taka
við sér þegar svona nýjungar koma
á markaðinn. Þeir era forvitnari og
nýj u ngagj amari. “
Nú var komið að hádegisverðin-
um og krakkarnir þustu inn í mat-
salinn. Matarlystin var góð, enda
höfðu krakkamir haft nóg fyrir
stafni um morguninn. Nokkur
spenna ríkti þennan síðasta dag
námskeiðsins. Bæði var keppnin
framundan og þrátt fyrir að þeim
krökkum sem við röbbuðum við
hafi fundist skemmtilegt á sumar-
búðunum var ekki laust við að sumir
væra famir að hugsa heim. En
bömin vora fljót að gera matnum
góð skil.
Verðum svo svangar
eftir íþróttirnar
Þær stöllur Regína Óskarsdóttir
og Ama Björk Jónsdóttir vora
uppteknar við að senda hvor annarri
hvatningarorð. Þær féllust þó á að
setjast niður örlitla stund og rabba
við blaðamanninn. í hópinn bættust
svo Inga Þórðardóttir og Kristín
Gísladóttir.
„Það er ofsalega gaman héma,“
sögðu stelpumar í kór, eftir að þær
höfðu jafnað sig eftir svolítið hlát-
urskast. „Hér era bara alltof fáar
stelpur. Til dæmis þegar við eram
í sundi þá ná strákamir alltaf bolt-
anum af okkur af því að við eram
svo fáar.“
— En hvað er skemmtilegast?
Allar vora sammála um að tölv-
umar væra skemmtilegar.
„En það er líka gaman í íþróttun-
um,“ sagði Regína, „þær era bara
svo þreytandi.“
„Við verðum líka svo svangar
þegar við eram búnar að vera í
íþróttunum," bætti Ama við.
Ö^mundur
kuluvarp.
æfir
Tölvurnar skemmtilegastar
Eftir matinn gengu krakkamir
frá herbergjunum og pökkuðu niður
því nóg var að gera þennan síðasta
dag og ekki víst að tími gæfist til
að pakka síðar um daginn. Inni í
einu af strákaherbergjunum vora
þeir Ólafur Bjöm Svanbergsson,
Ólafur Haukur Atlason, Bjarki
Bragason og tvíburabræðumir
Stefán og Lúðvík Júlíussynir að
ljúka við að pakka. Þeir vora allir
sammála um að gaman væri í
sumarbúðunum. Skemmtilegast var
að læra á tölvumar. Stefán og Lúð-
vík sögðust hafa hafa fengið áhuga
á tölvum þegar pabbi vinar þeirra
fékk sér tölvu. Lúðvík sagði að
flugleikimir væra skemmtilegastir.
Strákunum fannst alveg nógu langt