Morgunblaðið - 15.06.1986, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1986
B 19
^ Kökur á
þjóðhátíð
jóðhátíðarnefndir um land allt
hafa um þessar mundir nóg í að
horfa við að búa til dagskrá 17.
júní hátíðarhaldanna.
Líklega er það svo að flestir líta með til-
hlökkun til þessa dags og þá ekki síst
bömin og er það vel að þeirra hlutur sé sem
mestur og að þau öðlast skilning á því
hversu dýrmæt perla frelsið er og vandmeð-
farið.
Á þessum tímamótum hvarflar hugurinn
til baka til atburða, þar sem menn í fyrir-
svari báru gæfu til þess að hafa skynsemina
í för með viljanum. Þorgeir sá er reis undan
feldi á Þingvöllum árið 1000 hafði náð að
tengja saman þetta hvort tveggja og enn
þann dag í dag búum við að því. Njálssaga
er glöggt dæmi um það, þegar þessi tvö
öfl náðu ekki að eiga samleið og afleiðing-
amar létu ekki á sér standa. í nútímanum
eru þorskastríðin þau tímabil sem okkur
var hættast, en þeir sem þá voru í fyrirsvari
fyrir þjóðina bám gæfu til þess að hafa
skynsemina í för með viljanum og þess
vegna sitjum við íslendingar á friðarstóli.
En sá sem við metum mest og berum
hlýjastan hug til, Jón Sigurðsson, er lýsandi
dæmi þess, þegar kraftur skynseminnar er
samstíga krafti viljans og því höfum við
gefið honum sæmdarheitið: Sómi Islands,
sverð og skjöldur. Gleðilega þjóðhátíð!
Kaka með sultu og
kókosmjöli
100 g smjörlíki
lOOgsykur
2 eggjarauður
200 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
2 msk. súrmjólk
1 dl jarðarbeijasulta eða sú sulta
sem ykkur hentar
2 eggjahvítur
100 gflórsykur
lOOgkókosmjöl
1. Hrærið lint smjörlíkið með
sykri, setjið eina eggjarauðu í
senn út í. Setjið súrmjólk út í.
Hrærið vel saman.
2. Sigtið hveitið og lyftidúft út
í deigið, hrærið varlega saman.
3. Smyijið kringlótt kökumót,
u.þ.b. 25 sm í þvermál. Smyijið
deiginu í mótið.
4. Smyijið sultunni yfir deigið.
5. Þeytið eggjahvítumar með
flórsykrinum, setjið síðan kókos-
mjölið varlega út í. Smyijið þessu
jafnt yfir sultuna.
6. Hitið bakaraofninn í 190°C
og bakið kökuna neðarlega í ofn-
inum í 45—60 mínútur.
7. Kælið' kökuna örlítið, losið
hana síðan úr mótinu og setjið á
kökugrind. Kælið.
Sítrónukaka
125 gsmjörlíki
lOOgsykur
2 egg
rifinn börkur af V2 sítrónu
safi úr 1 sítrónu
lOOghveiti
50 g kartöflumjöl
l'/2 tsk. lyftiduft
4 msk. mjólk
1. Hrærið mjúkt smjörlíki með
sykri, hrærið síðan eitt egg í senn
útí.
2. Rífíð börkinn af sítrónunni
og setjið út í ásamt safanum.
3. Sigtið hveiti, kartöflumjöl og
lyftiduft, setjið út í ásamt mjólk
og hrærið saman. Hrærið ekki
mikið eftir að mjölið er komið í.
4. Smyijið kringlótt mót 20—25
sm í þvermál. Setjið deigið í mótið.
5. Hitið bakarofn í 190°C,
setjið kökuna í miðjan ofoninn og
bakið í 40 mínútur.
6. Losið kökuna úr mótinu og
kælið.
Krem:
Sítrónubörkur
2 msk. sítrónusafi
100 flórsykur
12msk. vatn
7. Hrærið saman flórsykur,
vatn og sítrónusafa. Smyijið yfir
kökuna.
8. Skerið þunnt börk af hluta
af sítrónunni, skerið síðan í örmjó-
ar ræmur og stráið yfir kremið.
Döðluterta
100 g smjörlíki
1 bolli púðursykur
2egg
IV2 bolli hveiti
1 tsk. natron
V2 tsk. kanill
V< tsk. salt
2 tsk. vanillusykur eða V2 tsk.
vanilludropar
V4 bolli volgt vatn
1 bolli döðlur
1 dl rabarbarasulta
1. Hrærið lint smjörlíki með
sykri þar til það er orðið vel
samfellt.
2. Hrærið eitt egg í senn út í.
3. Sigtið hveiti, natron, kanil,
salt og vanillusykur saman. Setjið
helming út í deigið, hrærið örlítið
saman, setjið síðan vatnið út í og
hrærið saman, og loks það sem
eftir er af mjölinu.
4. Saxið döðlumar og setjið út
í deigið.
5. Smyijið kringlótt mót, u.þ.b.
20 sm í þvermál, setjið deigið í
mótið.
6. Hitið bakaraofninn í 190°C,
V
ifcj
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
setjið kökuna neðarlega í ofninn
ogbakið í 40—50 mínútur.
7. Kælið kökuna örlítið, losið
hana síðan úr mótinu og setjið á
kökugrind og kælið alveg.
8. Skerið kökuna í sundur og
smyijið sultunni á milli.
Kryddkaka með kremi
(stór uppskrift)
400 g smjörlíki
500 g sykur
4-5 egg
1 kg hveiti
3 msk. kakó
1 tsk. natrón
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. negull
2 tsk. kanill
2 tsk. engifer
2 dl mjólk
1. Hrærið lint smjörlíki með
sykri, setjið eitt og eitt egg í senn
útí.
2. Sigtið hveiti ásamt kakói,
natroni, lyftidufti, negul, kanil og
engiferi. Setjið helming út í og
hrærið saman, setjið síðan mjólk-
ina út í og loks það sem eftir er
af mjölinu.
3. Setjið bökunarpappír á 3
plötur úr meðalstórum bakara-
ofni. Skiptið deiginu jafn í 3 hluta,
u.þ.b. 800 g í hvorum, og smyijið
á plötumar.
4. Hitið bakaraofninn í 200°C
og bakið þetta í miðjum ofni í
10—15 mínútur. Kælið síðan
kökumar.
Smjörkrem:
200 g jurtasmjörlíki
100 g smjör
5 dl flórsykur
legg
V2 tsk vanilludropar.
5. Hrærið saman jurtasmjörlíki,
smjör og flórsykur.
6. Setjið egg og vanilludropa út
í.
7. Smyijið kreminu í þunnt lag
milli botnanna. Skerið síðan kök-
una í tvennt og smyijið því sem
eftir er af kreminu yfír báðar
kökumar.
Athugið: Þið getið sleppt því
að smyija kreminu yfír kökuna
að lokum, en smurt öllu kreminu
á milli og skorið síðan kökuna
niður eins og lagtertu.
Kaka með kókosmjöli
2 egg
1 bolli sykur
2 msk. smjörlíki
V* bolli mjólk
1 bolli hveiti
1 tsk. ljrftiduft
5 msk. púðursykur
2 msk. mjólk
3 msk. smjör
V2 bolli kókosmjöli
1. Þeytið egg með sykri þar til
það er ljóst og létt.
2. Bræðið smjörlíki, setjið síðan
mjólkina út í það. Kælið örlítið.
3. Sigtið hveiti og lyftiduft,
setjið í deigið ásamt mjólkinni.
Hrærið lítið eftir að mjölilð er
komið í.
4. Setjið deigið á smurt kringl-
ótt bökunarmót, u.þ.b. 25 sm í
þvermál.
5. Hitið bakaraofn í 190°C,
setjið kökuna í miðjan ofninn og
1 bakið í 15 mínútur, hálfbakið.
6. Bræðið smjör ásamt púður-
sykri og mjólk, setjið kókosmjöl út
í.
7. Takið kökuna úr ofninum
og smyijið þessu jrfír hana.
8. Setjið kökuna aftur í ofninn
og fullbakið, það tekur um 15—20
mínútur.
9. Kælið kökuna örlítið og losið
úr mótinu, setjið á kökugrind og
látið kóina alveg.
Beckers
PÚAVARNAREFNIÁ GÚÐU VERDI
Allar víkur verða fegrunarvíkur með Beckers
©
Vörumarkaöurinn hf.
Ármúla 1a. Slml 91-686117.