Morgunblaðið - 15.06.1986, Qupperneq 29
;MOiRGUNBÍiAÐIÐ/SUNNUDAQUR-1S; JÚNÍtl986
m m
SMÁSKÍFUR
VIKUNNAR
Toppurinn I dag
Hipsway — Ask the Lord
Ansi er þetta skemmtilega
útsett hjá strákunum í Hipsway.
Lagið er einfalt og dágott. Söng-
urinn er á lágu nótunum, en það
gefur laginu skemmtilega
drungalegt yfirbragð. Eftirtekt-
arverð sveit.
léttnetta jasstilfinning sem hef-
ur fyrirfundist í lögum þeirra síð-
ustu árin er fyrir bí. Nú á greini-
lega að selja sig.
Hands Across America —
Voice of America
Málstaðurinn góður en lagið
ekki.
Hálftíhvoru
á Hótel Borg
Hálft i hvoru: Gísli Helgason,
flautur og hljómborð. Guð-
mundur Benediktsson, gítar og
hljómborð, Hannes Jón Hann-
esson, gítar, Herdís Hallvarðs-
dóttir, bassi.
Hljómsveitin Hálft í hvoru
hélt tónleika á Hótel Borg
sl. fimmtudagskvöld. Tveimur
dögum áður höfðu fjórmenning-
arnir sent frá sér stóra plötu
með pomp og pragt, Götumynd,
og kynnt hana á eftirminnilegum
morgunverðarfundi á Gauki á
Stöng. Hljómleikarnir á Borginni
voru nk. upphitun fyrir hljóm-
leikaferð um landið íjúnímánuði.
Ekki tróðu tónleikagestir hver
öðrum um tær umrætt kvöld.
60 til 70 manns voru í salnum
og vel rúmt um alla. Þokkaleg
stemmning var meðal gesta,
einkum er líða tók á kvöldið.
Hálft í hvoru renndi í gegnum
nýju lögin af Götumynd og
kryddaði með þekktum eldri
lögum eins og Kvöldsiglingu,
Palla Hall, Vestmannaeyjum og
Fækkaðu fötum, sem Hannes
Jón söng við mikil fagnaðarlæti.
Annars báru tónleikarnir þess
merki að hljómsveitina skortir
meiri samæfingu. Of langur tími
leið á milli laga og notuðu
meðlimir þá tímann til að segja
vægast sagt misjafnar kímni-
sögur. Þá gekk erfiðlega að
koma Siggu „síkvenser“ í spilan-
legt stand og var gantast með
það á einhverju „lókal" plani við
kunningja úti í sal. Vissulega
getur verið heimilislegt og nota-
legt á tónleikum, þar sem lista-
mennirnir tala frjálslega sín á
milli og við áhorfendur, en þetta
er viss kúnst, sem Hálft í hvoru
hefur ekki enn fullkomlega á
valdi sínu. Þessi langi tími á
milli laga og málæðið sem hon-
um fylgdi gerði það að verkum
að seint og illa gekk að ná upp
ákjósanlegri stemmningu. Það
vantaði meiri keyrslu í pró-
grammið. M.ö.o. Hálft í hvoru
þarf að losna við viðvanings-
braginn og taka upp siði at-
vinnumanna í faginu, ekki skortir
reynsluna eða hæfileikana.
Af nýju lögunum sem flutt
voru þetta kvöld vöktu tvö sér-
staka athygli Popparans, Götu-
mynd eftir Herdísi við texta
Iðunnar Steinsdóttur, gullfallegt
lag og ágætlega sungið af höf-
undi, og Vísur Vatnsenda-Rósu,
lag Hannesar Jóns, einnig prýði-
lega sungið af Herdísi. Gísli stóð
fyrir sínu á flauturnar, en heyrt,
hefur maður í betri söngvurum.
Guðmundur Benediktsson er
glettilega góður gítarleikari en
Popparinn saknaði þess að
heyra hann ekki beita röddinni
meira.
Hálft í hvoru leggur í landreisu
innan tíðar. Með því að lagfæra
sviðsframkomu og búninga ætti
þeim að vegna vel, því tónlistin
svíkur engan. Hljóðstjórn um-
rætt fimmtudagskvöld var í
höndum Helga E. Kristjánssonar
= pottþétt.
K.S.
Hannes Jón Hannesson
söng Fækkaðu fötum og
brutust þá út mikil fagnað-
arlæti á Hótel Borg, að
sögn Kristjáns Sigurjóns-
sonar sem reit frásögnina
af hljómleikum Hálft í
hvoru.
Helgi E. Kristjánsson sá um hljóðstjórn og fórst það vel úr hendi.
Ekki toppurínn í dag
en næstum því
Phranc — The Lonesome
Death of Hattie Carroll
Frægt lag eftir Bob Dylan fær
hér Ijúfa meðferð hjá Phranc.
Undirleíkur er fólginn í einföld-
um gítarslætti og Ijúfur söngur
er vel við hæfi.
Fabulous Thunderbirds —
Tuff Enuff
Skemmtilega blátt þetta og
hljómurinn í góðu lagi. Stjórn-
andi upptöku er Dave Edmunds
og hann nær að gæða þetta
því lífi sem þarf.
Alveg örugglega
ekki toppurinn í dag
Level 42 — Lessons in
Love
Hvað eru drengirnir nú að
gera? Þetta gæti alveg eins
verið Kool and the Gang eða
einhver önnur diskósveit. Þessi
Nýjar hljómplötur:
Dúkkulísur
ogSveinn
Hauksson
• Hljómplata Dúkkulísanna er
loksins komin út eftir að hafa legið
í salti í marga mánuði. Á plötunni
eru 10 lög. Það var Tómas Tómas-
son sem stjórnaði upptökum eins
og á fyrri plötunni. Utgefandi er
Skífan.
• Sveinn Hauksson hefur sent
frá sér sína aðra hljómplötu. Sú
fyrri heitir Dropi í hafið og hlaut
misjafna dóma gagnrýnenda. Nýja
plata Sveins heitir Alíslenskt þjóð-
ráð, og er miklu mun betri en fyrri
hljómplatan. Bæði er flutningur
allur betri, svo og hljómurinn. Á
plötu Sveins er að finna 5 lög og
útgefandi er Sultardropinn.
■sfess
e,9' tveief
veTerhor«á
Þ**1 pangle*'
flokkur
*úlknM0\Ö9
-"iJS.
iratn1
virð
rr>eð a.Ukífu
P°0$-
•SSjtSS
lr$1983 09
£1*£ZZ
thu íiefeitt'
erbfJr% rárrl
- e^rokk
Þessimynd
erfrá
tónleikum
MickeyDean
andthe
Vunderfools
sem fóru
fram í Roxzý
á
fimmtudags-
kvöldið.
Þettaþótti
velheppnað
kvöld.
Morvunblaðið/Júlíuj
Listahátíðarpoppið:
Simply Red
Stranglers I
staðl
Því miður mun hljómsveitin Stranglers
ekki koma á Listahátíð eins og stóð til.
Þeir ku ekki vera búnir með breiðskífu sína
eins og þeir lofuðu svo þeir sviku okkur
íslendinga í staðinn. Fuss og svei. Popp-
arinn hefur ekki hlakkað jafnmikið til
tónleika í mörg árl! Svo er sjálfsagt um
fleiri. Hljómsveitin sem kemur í staðinn
er skozk og heitir Simply Red. Þykir
sú vera ein bjartasta vonin í popp-
heiminum í dag. Flytur hljómsveitin
léttdjassað stofupopp og skartarfirna
góðum hljóðfæraleikurum og sérdeil-
is frábærum söngvara.
myf
dina