Morgunblaðið - 15.06.1986, Síða 31
LIKAMSRÆKT J.S.B.
SUÐURVERI
OG
áfram með
sumarnámskeiðín
23. júnítil 10. júlí
Suðurver—Breiðholt
Kerfi I. Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum
aldri. Flokkarsem hæfaöllum.
Kerfi II. Framhaldsflokkar, þyngri tímar fyrir aðeins
vanar.
Kerfi III. Rólegir tímar fyrir eldri konur eóa þær sem
þurfa að fara varlega með sig.
KerfilV. Megrunarflokkur fyrir þær sem þurfa og
vilja missa aukakílóin núna.
KerfiV. Eróbikk, okkar útfærsla af þrektímum með
góðum teygjum. Hörkupúl og svitatímar
fyrir ungar og hressar.
STURTUR — SAUNA — UÓS
Glæsileg ný aðstaða
Allir finna flokk
við sitt hæfi hjá
J.S.B.
»*»
SUMARNÁMSKEIÐ II.
16.—26. júní, 2ja vikna, 3 tímar í viku, 80
mín. tímar mán., miðv., fim.
Innritun is'ima ||
8 3730 Jazzballettskóli Báru W
Enginn skyldi þó halda að frægð-
ina hafi hún fengið áreynslulaust.
Síður er svo. Frá upphafí ferilsins
hefur ætíð verið stormasamt í
kringum stórstjömuna þá. „Bette
Davis hefur baráttuandann í blóð-
inu,“ er eindóma álit þeirra, sem
þekkja hana og hún harðneitar að
gefast upp.
Bette Davis, sem er nú orðin 77
ára gömui, hefur lifað æði skraut-
legu lífí, tekið út sinn skammt af
vonbrigðum jafnt sem velgengni.
Fjórum sinnum gekk hún í hjóna-
bönd, sem enduðu þó öll á einn
veg, með skilnaði. Hún sagði oft
hér í eina tíð, að bömin hennar
væru það eina sem gæfi lífi hennar
gildi, en siðan sneri dóttir hennar,
Barbara, við henni bakinu og gaf
út bók með hryllingslýsingum af
móður sinni, sem hún sagði
drykkjusjúka, ofbeidishneigða og
hið viðurstyggilegasta iilfygli á ali-
an hátt. Ásakanir þessar segir frú
Davis ekki svaraverðar, en bætir
því við að Barbara hafi ávallt verið
dálítið veik fyrir peningum og hafi
sennilega séð sér þama leik á borði
til að gera móður sína að féþúfu.
— En hvað sem því líður þá kunnu
gestir kvikmyndahúsanna vel að
meta litla, Ijóta andarungann — um
það vitna t.d. tvenn Óskarsverðlaun
hennar. Félagar hennar í Hollywood
bera einnig mikla virðingu fyrir
Bette Davis — f nútíð og fortfð.
þessari þrautseigu konu og segja
frama hennar fyrst og fremst
hæfíleikum hennar að þakka. Hún
hafði útlitið jafnan á móti sér en
sigraðist þó á þeirri hindrun með
ákveðni, orðheppni, gáfum og
gáskafullri kæti. Sjálf segir hún:
„Ég hef verið elskuð og hötuð, til-
beðin og fyrirlitin, allt (senn. En ég
hef aldrei nokkum tímann efast um
hæfileika mína sem ieikkona."
» Gódcin daginn!
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ1986
Þegar neyð-
in er stærst...
setf'
Hinn 51 árs gamli Lennart
Risberg hélt satt að segja
að vart gæti lífíð versnað mjög,
eftir að konan hans hafði skilið
við hann, fjárhagurinn var í rúst,
hann var skuldum vafínn upp fyrir
haus og átti í stöðugum etjum við
skattayfirvöld. Hann huggaði
sjálfan sig með því að öll él birti
upp um síðir og hélt sér þannig
gangandi, vann myrkranna á milli
og reyndi eftir fremsta megni að
sjá syni sínum, Janne, farborða.
— En þá bar svo við að það kvikn-
aði í húsi þeirra feðga eina nótt-
ina. Janne var bjargað á síðustu
stundu, en eignir sínar allar
misstu þeir í eldsvoðanum. „Þetta
var dropinn, sem fyllti mælinn,"
segir Lennart, „ég var niðurbrot-
inn maður, fannst ég ekki eiga
mér viðreisnar von. Reyndar hafði
ég nýlega komist að samkomulagi
við skattayfirvöldin og hafði verið
að vona að nú færi að birta til.
Þeirri von var ég skyndilega svipt-
ur og stóð eftir, að mér fannst,
einn og yfirgefinn." Eftir brunann
fengu feðgamir inni hjá góðum
vini Lennarts, en þar bjuggu þeir
skemur, en búist var við, því
kraftaverkið var rétt handan við
homið. „Einn daginn, þegar ég
náði í póstinn minn, tók ég eftir
bréfi einu, sem var öðmvísi en
öll hin, þ.e.a.s. það var ekki svona
ítrekun vegna ógreiddar skuldar.
Ég opnaði það og las: „Okkur er
það sönn ánægja að tilkynna að
þér hafið unnið fyrstu verðlaun í
íþróttagetraun okkar. Verðlaunin
em venjulega 250.000 sænskar
kronur ... (1.425.000 ísl. krón-
ur).“ Mér sortnaði fyrir augum,
svimaði og varð að setjast niður."
„Hann sat stjarfur," segir Janne,
„og ég varð skelfingu lostinn,
velti því fyrir mér hvaða ógæfutíð-
indi gætu hafa leynst í þessu
umslagi. Svo ég las bréfið — og
las það til enda. Pabbi hafði ekki
unnið 250.000 sænskar krónur,
Feðgamir Lennart og Janne Risberg með bréfið, sem boðaði
betri tíð.
heldur 1,3 milljónir, (ca. 7,4 millj-
ónir ísl. króna). ,Það tók pabba
hálftíma að jafna sig og það fyrsta
sem hann sagði van „Ég vissi
ekki að það væri svona auðvelt
að verða milljónamæringur.““
En hvemig ætlar Lennart Ris-
berg svo að verja þessum fjármun-
um?
„Eins og er em peningamir í
banka,“ svarar hann. „Eg ætla
að endurreisa húsið mitt, fara í
frí með bömin mín 6 og halda
síðan áfram að vinna hjá pípu-
iagningafyrirtækinu, eins og ég
hef gert undanfarin ár. En skatt-
ana hef ég þegar borgað og það
er ólýsanlegt hversu mikið mér
létti, þegar það mál var úr sög-
unni. Skuldum mun ég í það
minnsta ekki safna upp aftur.
Þetta óötyggi er nóg til að gera
út af við hvem meðalmann," segir
hann. — Já, þegar neyðin er
stærst er hjálpin næst.