Morgunblaðið - 15.06.1986, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15; JÚNÍ 1986
B 37
Lista-
hátíðir,
til hvers?
Kæri Velvakandi!
Versta plága sem hefur dunið
yfír þetta land á eftir svarta dauða
það er listahátíðir. Svarti dauði var
að einu leyti merkilegri en þá dóu
þó menn. Nú deyr enginn. Það eru
allir að japla upp eitthvað sem ná-
unginn hefur sagt. Til hvers er verið
að flytja inn allt þetta færibanda-
fólk þegar við eigum glitrandi lista-
menn nærri að segja á hvetju götu-
homi, og ekki endilega þá sem em
að veifa sjálfum sér í Qölmiðlum.
Fallegt fólk, hrifnæmt og gott, sem
bíður eftir orðinu eins og stendur
í Biblíunni. Ég skil þetta ekki. Það
dásamlega sem ég sé það er fyrir
neðan mig. Og þó stend ég ekki
hátt. Til hvers em allir menn að
horfa svona mikið upp? Af hveiju
horfa þeir ekki líka til hliðanna, til
dæmis.
Erlingur E. Halldórsson,
rithöfundur.
Styttan af Leifi heppna
fer vel á sínum stað
Velvakandi.
í Velvakandapistli á dögunum
var ónafngreindur bréfritari að
finna því eitthvað til foráttu, að
styttan af Leifi heppna skuli enn
standa framan við hina veglegu
Hallgrímskirkju.
Ég er á öndverðri skoðun. Þessi
fallega stytta og stöpullinn undir
henni er mikil listasmíð, hvort um
sig og á sér þama kjörinn stað við
enda Skólavörðustígs, þeirrar löngu
og háklassísku götu. Kirkjan að
baki er svo háreist, að engu spillir,
síður en svo þótt Leifúr heppni
standi þar hnarreistur góðan spöl
fyrir framan.
Svo er því við að bæta að Vín-
landsfundur Leifs og kristnitakan á
Alþingi verða á sama tíma í sög-
unni, og því þykir mér fara býsna
vel á því, að þama standi saman á
háholtinu minnisvarði um fremsta
kristniskáld okkar og styttan af
frægasta landskönnuðinum.
En nú þarf senn að taka til
hendinni við að gera kirkjuhlaðinu
góð skil og tengja það smekklega
tröppunum framundan Leifsstytt-
unni. Þær þurfa líka endumýjunar
við, því að vart verður því neitað
að þær em ólistrænar að gerð, enda
þótt ekki sé langt síðan þeim var
eitthvað hagrætt, og fara afar illa
við lit og lögun stöpulsins undir
styttunni. Raunar tei ég að við
hellulagningu á kirkjuhlaði og í
tröppum þurfi að taka mið af þrem-
ur litum, hinum ljósu litum kirkju
og kirkjustöpuls og hinum græna
lit líkneskjunnar.
Baldur Pálmason
Glæpur í strætó?
Blaðamannsraunir
„Svo lengi lærir sem lifir“, segir
gamalt máltæki. Þetta rifjaðist upp
fyrir einum af blaðamönnum Morg-
unblaðsins kvöld eitt nú í vikunni.
Þá varð hann alvarlega fyrir barð-
inu á vagnstjóra einum hjá SVR.
Því lauk með því að vagnstjórinn
rak blaðamanninn úr vagninum
eftir að hafa þmmað yfir honum
skammarræðu.
Nú var það ekki svo að blaðamað-
urinn hafi verið með drykkjulæti
eða haft sig eitthvað í frammi í
vagninum sem setti hinn skapstóra
vagnstjóra svo gjörsamlega úr jafn-
vægi. — Blaðamaðurinn hafði
komið hlaupandi að vagninum að
aftanverðu á viðkomustað. Aftur-
hurðin var þá opin. Taldi blaðamað-
urinn á harðahlaupum að vagninn
væri að skríða af stað! Gerði hann
(blaðamaðurinn) sér lítið fyrir og
stökk inn um opnar afturdjrr vagns-
ins, snaraði sér viðstöðulaust fram
í vagninn að peningabauknum til
að greiða fargjaldið. — Um leið og
fundum blaðamannsins og vagn-
stjórans bar saman setti vagnstjór-
inn þykka Iúkuna yfir baukinn og
lokaði honum. Hellti síðan úr skál-
um reiði sinnar yfir blaðamanninn,
sem ekki vissi hvaðan á hann stóð
veðrið í orðahríðinni sem á honum
dundi. Var engu líkara en blaða-
maðurinn hefði framið ódæðisverk
sem jafna mætti við hinn alvarleg-
asta glæp gagnvart samborgurun-
um. — Að ætla sér að veija glæpinn
sá blaðamaðurinn að væri vonlaust.
Svo óðamála var vagnstjórinn og
heitur orðinn að engu vömum var
við komið. — Hinn forógnanlegi
farþegi með leið 5, en um borð í
þeim vagni gerðust þessi ósköp,
yfirgaf vagninn í skyndi eftir ang-
istaróp vagnstjórans: Út með þig!
Út með þig!
Blaðamaðurinn velti því svo fyrir
sér er hann var kominn út í kvöld-
rigninguna og horfði á bláan
reykinn stíga til himins undan
vagninum, er hinn taugastrekkti
vagnstjóri setti allt í botn: Hvor
skyldi nú vera hættulegri sam-
borgurum og umhverfi: Hann sjálf-
ur (blaðamaðurinn) með strætó-
glæpinn á herðunum eða ökuljónið
á almenningsvagninum stóra?
Það vita fáir
afokkur
Já, að vísu kannast margir við
saumanámskeiðin okkar, en við seljum
líka barnaföt á allt of lágu verði og
sérsaumum eftir ykkar óskum á
allskonar fólk. Þá veitu það. Líttu inn!
St*or i rétta átt
saumaverkstæði.
Hafnarstræti 21.
Sími 15511.
Heimasímar: 21421,83069.
ó hagstceðu verði
Hvort sem er í þurru færi eða blautu
1 lausamöl eða á malbiki
á hálku eða í snjó eru:
MÝKT, GRIPFESTA OG GÓÐ ENDING
aðalsmerki Goodyear-hjólbarðans
LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞROUNNAR HJOLBARÐA
GOODfÝEAR
0
HEKIAHF
Laugawegit70 172 9imi 21240