Morgunblaðið - 01.07.1986, Side 34

Morgunblaðið - 01.07.1986, Side 34
34___________________ Tíbet Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson S Heinrich Harrer: Retum to Tibet. Translated from the German by Ewald Osers, Penguin Books 1985. Heinrich Harrer er Austurríkis- maður. Hann strauk úr breskum fangabúðum á Indlandi i síðari heimsstyrjöldinni og flúði til Tíbet, þar sem hann og samfangi hans, MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR1. JÚLÍ1986 Aufschnaiter, dvöldu næstu sjö árin og störfuðu að ýmsum verkefnum fyrir Tíbetstjóm. Þeir voru fyrstir vesturlandamanna á þeim árum til þess að vinna fullan trúnað íbúanna og stjórnvalda. Eftir innrás Kín- veija flúði Harrer land og settist að í Austurríki. Bók Harrers „Sjö ár í Tíbet“ kom fyrst út 1952 og var þegar þýdd á fjölmargar þjóð- tungur m.a. íslensku. „Sjö ár í Tíbet“ er mjög skemmtileg frásögn af dvölinni meðal þessara sérstæðu þjóðar, sem átti sér mjög sérstæða menningu og bjó við atvinnuhætti og í samfélagi sem vakti undrun og aðdáun því lengúr sem dvalið varíþessu landi. Eftir innrás Kínveija tók vita- skuld fyrir allar ferðir útlendinga til landsins. Dalai Lama flúði land og fréttir voru mjög takmarkaðar og allar ömurlegar. Kínveijar tóku þegar að útrýma þeim, sem þeir töldu sér og yfírráðum sínum hættulega, þeir stefndu að því að rústa menningu íbúanna, útþurrka þar með trúarbrögð þeirra og móta íbúana samkvæmt þeim kenningum sem hafa orðið kveikja að viðbjóðs- legustu stjómarháttum, sem sagan kann að greina frá. Aðferðir kín- verskra kommúnista í Tíbet vöktu í fyrstu nokkra athygli, en fréttir þaðan gerðust sttjálari þegar inn- rásarliðið hafði hert tökin og ógnar- stjómin náð algjörum yfírráðum. Meginhluti klaustra landsins var eyðilagður og aðrir helgistaðir þurrkaðir út, nema hvað fáein klaustur voru látin standa til að sýna þau ferðamönnum. Kínveijar mpluðu og rændu Tíbeta listmunum og dýrgripum og stálu öllu sem þar var að hafa. Gífurlegur fjöldi íbú- anna var myrtur eftir misheppnaða uppreisn 1959. Harrer fékk loks leyfí til þess að koma til Lhasa 1982. Kínveijar töldu sig þá hafa hreinsað svo til og tryggt yfírráð sín og heilaþvegið íbúana, að óhætt væri að opna viss svæði landsins fyrir ferðamenn. Frásögn Harrers er lýsing á kúgaðri Til afgreiðslufólks BANKAKORTA Ef viöskiptavinur greiðir fyrir vöru eða þjónustu með tékka skal hann útfylla tékkann í þinni viðurvist og framvísa bankakortinu ásamt tékkanum. SPARIBANKINN REIKNINGS -GaFini£LGFG.M. SPARIBANKINN lllb 0000 0034 1352 Pú athugar: O hvort bankakortið sé frá sama banka og tékkinn © að gildistími kortsins sé ekki útrunninn © fæðingarár með tilliti til aldurs korthafa o hvort undirskrift á tékka sé í samræmi við rithandarsýnishorn á bankakorti. Séu ofangreind atriði í lagi © skráir þú númer bankakortsins (6 síðustu tölurnar) neðan við undirskrift útgefanda tékkans. Þetta gildir um alla tékka, óháð upphæðinni. Bankakortið - tákn um traust tékkaviðskipti Alþýðubankinn - Búnaðarbankinn - Landsbankinn - Samvinnubankinn Utvegsbankinn - Verzlunarbankinn - Sparisjóðirnir þjóð, sem er að tortímast sem sér- stök þjóð fyrir tilverknað kínverskra kommúnista. Hinir nýju valdhafar telja sig hafa náð miklum árangri í því að kenna öllum að lesa og skrifa og þar með hafa þeir náð að staðla uppvaxandi kynslóð að þeim hugsunarhætti og mati, sem þeir telja sér henta og um leið eru þeir langt komnir í því að þurrka út þjóðlega menningu Tíbeta. Menn skyldu athuga það, að þjóðleg menning er ekki alltaf bundin því að geta stautað sig fram úr lesmáli eða klórað nafnið sitt á blað. Aftur á móti er auðvelt að þurrka út sér- stæða menningu eins og tíbeska, með því að kenna lestur, sem er nýttur til þess eins að móta komm- únískan hugmyndaheim. Hér á vesturlöndum er öll menning mjög bundin kunnáttu í lestri og skrift og vesturlandabúum hættir til að telja það vera upphaf allrar menn- ingar, en þar kemur margt fleira til í sérstæðum samfélögum vítt um heim. Því er það oft svo, að auglýs- ingar um aukna lestrarkunnáttu í ýmsum samfélögum, þar sem „framfarasinnuð öfl“ hafa náð völd- um þýðir einfaldlega innrætingu vissra pólitískra skoðana og stang- ast því í raun algjörlega á við þann tilgang, sem kunnátta í lestri og skrift hefur að vestrænu mati, að víkka meðvitundina. Það getur vart talist til þroska- vænlegs lestrarefnis að geta staut- að sig framúr ruglinu í kverum Maós eða lesið fábjánalega frasa kínverskra plakata, aftur á móti má móta einnar víddar pólitíska fáráðlinga með þeim aðferðum. Þess er vandlega gætt, að Tíbetar kynnist ekki tíbeskum spekiritum og hinum sérstæða Búddhisma sem iðkaður hefur verið í Tíbet frá því á 7. öld e.Kr. Bókasöfn klaustranna hafa verið rænd eða brennd. Kínverjar telja sig hafa bætt heilbrigðisástandið í Tíbet eftir innrásina og komið lifnaðarháttum þjóðarinnar í nútímalegra horf, en merking þessara staðhæfínga Kín- veija er bundin kínverskum skiln- ingi. Kínveijar geta stært sig af því að hafa myrt talsverðan hluta íbú- anna, brennt og lagt í rúst 98% allra klaustra landsins og stolið þeim gripum, sem Tíbetar töldu til helgigripa, auk þess að mergsjúga þjóðina efnahagslega. Tíbetum hefur tekist að móta tíbeskt sam- félag utan landamæranna á ind- verskri grund, svo tíbesk menning lifír þó enn, en innan landamæra Tíbets ríkir dauði og vonleysi. Ný plata með Bubba „Blús fyrir Rikkaí4 ÞANN 1. júlí næstkomandi er væntanleg á markaðinn ný plata með Bubba Morthens og nefnist hún „Blús fyrir Rikka“. Hér er um að ræða tvöfalt umslag sem inniheldur 25 lög. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Bubbi sendir frá sér plötu þar sem hann leikur einn á kassagítar og munnhörpu í öllum lögunum. A þessum tveimur plötum er að fínna hljóðritanir gerðar í Stúdíó Sýrlandi í aprít á þessu ári, svo og af tónleik- um, en Bubbi hefur komið fram á um 100 tónleikum frá því hann sendi frá sér plötuna „Kona" fyrir ári. í vor fór Bubbi ásamt Megasi í um 20 daga tónleikaferðalag og í þessu umslagi eru tvær hljóðritanir með þeim. Á plötunum er að fínna bæði gömul og ný lög eftir Bubba Morth- ens auk laga eftir Megas og Tolla. Hljómplötuútgáfan Gramm gefur plötuna út.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.