Morgunblaðið - 01.07.1986, Qupperneq 56
ÞRIÐJUDAGUR1. JÚLÍ1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Framkvæmdasj óður:
Selur hlut í tveim-
ur hlutafélögfum
^ „Ríkið ekki rétti aðilinn til að standa
í þessum rekstri“ - segir Þórður
Friðjónsson stj órnarformaður sjóðsins
STJÓRN Framkvæmdasjóðs hefur ákveðið að selja eignarhluta sína
í Álafossi og Norðurstjörnunni. Þar til nýir eigendur hafa tekið við
fyrirtækjunum er það stefna sjóðsins að þau verði rekin á „viðskipta-
legum grundvelli" að sögn Þórðar Friðjónssonar, stjórnarformanns.
„Oft á tíðum hafa verið gerðar kröfur til fyrirtækjanna að þau
hagi rekstrinum eftir öðrum sjónarmiðum. Við teljum hinsvegar
best fyrir fyrirtækin og atvinnugreinar þeirra að þau taki mið af
arðsemi í rekstrinum."
Stefnubreyting Framkvæmda-
sjóðs var kynnt á aðalfundi Álafoss
sl. laugardag. Þórður sagði að
stjómin hefði unnið að endurskoðun
á markmiðum sjóðsins í október sl.
Hefði hún ákveðið að það væri ekki
hlutverk hans að binda fé í fyrir-
tækjum til langs tíma. Ríkið væri
ekki rétti aðilinn til að standa í slík-
um rekstri. „Við gerum ráð fyrir
þvi að salan fari fram á löngu ára-
bili, samhliða Qárhagslegrí endur-
Hafísinn
hörfar
frá landi
VEÐURFRÆÐINGAR eru nú
vongóðir um að hafísinn láti það
vera þetta sumarið að heimsækja
landsmenn.
Vestur og norður af landinu eru
nú hægir austanvindar og standa
vonir til þess að þeir muni hamla
frekara reki hafíss að landinu, jafti-
framt því sem þeir taka nú óðum
að bráðna, að sögn Þórs Jakobs-
sonar veðurfræðings. Frá skipum
khafa borist tilkynningar um mjög
þétta ísspöng sem er um þijár til
fjórar sjómílur á breidd. Syðsti endi
hennar er á 66. gráðu og 40. mínútu
norðlægrar breiddar og 21. gráðu
og háifri mínútu vestlægrar lengd-
ar. Vart hefur orðið við aðra ísspöng
á svipuðum slóðum norður af Húna-
flóa, þéttleiki hennar er þó minni,
en hún þekur heldur stærra svæði
en hin eða um sex sjómflur. Auk
þessa eru stakir jakar á reki á
þessum slóðum.
skipulagningu. Við viljum jafnframt
að þetta valdi starfsfólkinu sem
minnstri röskun." Að sögn Þórðar
hyggst sjóðurinn ná sem mestum
hagnaði í rekstri fyrirtækjanna og
verða stjómir þeirra beðnar um
tillögur um hvemig ná má bestum
árangri. „Ég geri mér fyllstu vonir
um að hægt verði að selja fyrirtæk-
in fyrir gott verð. Þau eiga bæði
framtíð fyrir sér sem öflug hlutafé-
lög.“
Sjóðurinn á 98% af hlutafé Ála-
foss, og 60%-70% í Norðurstjöm-
unni. Ekki hefur enn verið ákveðið
hvort eða hvenær fyrirtækin verða
auglýst til sölu. Þórður sagði að það
yrði hinsvegar látið vitnast að þau
væru föl. Þegar er komið vilyrði
frá Iðnlánasjóðj um 30 milljóna
króna hlutafé I Álafossi, til skamms
tíma. „Unnið er að því að kanna
söluna gagnvart örðum aðilum,"
sagði Þórður.
Fyrsta „íslenzka “átta manna stjarnan
AknreyrL
FYRSTA átta manna stjaman þar sem einungis
íslendingar eru innanborðs var mynduð yfir
Akureyri á fallhlifarstökkmóti hér á sunnudag-
inn.
Þeir sem mynduðu stjörnuna voru Þór Jón
P. Pétursson, Hartmann Guðmundsson, Rúnar
Rúnarsson, Ómar Þór Eðvarðsson, Kristinn
Kristinsson, Birgir Siguijónsson, Sigurlín Bald-
ursdóttir og Snorri Hrafnkelsson. Sigurlín er
eina stúlkan sem stundar fallhlífarstökk á íslandi
f dag — en hún og Birgir tóku þarna í fyrsta
sinn þátt í myndun átta manna stjörnu. Hinir
hafa allir gert það áður, en þá ásamt erlendum
fallhlífarstökkvurum.
Það var Sigurður Baldursson, Fallhlffarklúbbi
Akureyrar, sem tók meðfylgjandi mynd á sunnu-
daginn, en eftir að hann gerði það kom hann inn
í stjörnuna sem nfundi maður.
Hraðfrystistöðin í Reykjavík:
Öllum starfsmönnum
var sagt upp í gær
**Hyggjumst hætta frystingu 1. október“,
segir Agúst Einarsson forstjóri fyrirtækisins
ÖLLUM starfsmönnum Hrað-
frystistöðvarinnar f Reylqavík
hf„ 80 að tölu, var sagt upp
störfum í gær, og er reiknað með
að uppsagnimar taki gildi frá
1. október nk. að sögn Ágústar
Einarssonar, forstjóra Hrað-
f rystistöð varinnar.
„Við gerum ráð fyrir því að hætta
frystingu um mánaðamótin sept-
ember/október, og því koma þessar
„Tími til kominn að
kona sitji í Hæstarétti“
- segir Guðrún Erlendsdóttir, sem fyrst kvenna
hér á landi er skipuð hæstaréttardómari
FORSETI íslands skipaði í gær Guðrúnu Erlendsdóttur hæstarétt-
ardómara og er hún fyrsta kona hér á landi sem í þá stöðu er
skipuð.
ann, en kvaðst eiga eftir að sakna
kennslunnar í lagadeild Háskóla
íslands. „Það verður þó óneitan-
lega Qölbreyttara verkefni sem ég
fæst við í Hæstarétti, því í laga-
deild hef ég kennt sifja- og erfða-
rétt og hef því óneitanlega ein-
angrast dálítið í þeim fögum.
Fyrir Hæstarétt koma hins vegar
mál af öllu tagi. Ég á þó eftir að
sakna nemendanna í lagadeild og
„Að vissu leyti finnst mér það
marka tímamót að kona skuli vera
skipuð hæstaréttardómari og það
var tími til kominn," sagði Guðrún
í spjalli við blaðamann í gær.
„Mér líst mjög vel á þetta og
byggi nú á reynslunni, því ég var
þarna í tæpa 10 mánuði á árunum
1982-1983.“
Guðrún neitaði því að það hefði
komið henni á óvart að fá starf-
samkennara minna þar,“ sagði
Guðrún.
Guðrún Erlendsdóttir lauk
lagaprófí frá Háskóla íslands árið
1961. Hún hefur rekið málflutn-
igsstofu í Reykjavík ásamt manni
sínum, Emi Clausen, frá því árið
1961, varð héraðsdómslögmaður
árið 1962 og hæstaréttarlög-
maður fímm árum síðar. Hún hóf
störf við Háskóla íslands sem
stundakennari árið 1970, varð
lektor árið 1976 og dósent þremur
árum síðar.
Aðrir umsækjendur um stöðu
hæstaréttardómara voru þeir
Guðrún Erlendsdóttir
hæstaréttardómari
Benedikt Blöndal, hæstaréttarlög-
maður, Gunnlaugur Briem, yfír-
sakadómari, Hrafn Bragason,
borgardómari og Jón A. Ólafsson,
sakadómari.
uppsagnir til nú. Þær ná til allra
starfsmanna fyrirtækisins, verka-
fólks, verkstjóra, skrifstofufólks og
bflstjóra," sagði Ágúst í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins. Ágúst
sagði að gripið væri til þessara ráð-
stafana nú, vegna þeirra aðstæðna
sem þessi grein, ftystingin, byggi
við og hefði búið við í mörg ár.
„Það hefur verið tap á fiystingunni
í mörg ár, og það er ekkert sem
bendir til þess að þetta lagist á
næstunni, þannig að við óbreyttar
aðstæður þá hættum við fiystingu
þann 1. október nk.,“ sagði Agúst.
Ágúst sagði að það hefði velkst
lengi í huga sínum til hvaða ráða
væri hægt að grípa. Svona ákvörð-
un væri ekki tekin að óyfírveguðu
máli. „Fyrir mig er þetta sárasta
ákvörðun sem ég hef nokkum tíma
tekið á mínum starfsferli, en ég sá
enga aðra leið. Ég hef sagt mínu
fólki að ég er ekki bjartsýnn á að
þessar aðstæður breytist," sagði
Ágúst.
Ágúst benti á að þetta væri bara
enn eitt dæmið um erfíðleika fryst-
ingarinnar á Suðvesturhominu.
„Við erum búnir að horfa upp á f
þessari grein gjaldþrot og nauðung-
arsölur hjá fjölmörgum' stórfyrir-
tækjum hér suðvestanlands," sagði
Ágúst Einarsson.