Morgunblaðið - 08.08.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.08.1986, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1986 Varð fyrir hey- tætlu og brotn- aði á báðum hnjám TÓLF ára piltur úr Reykjavík, varð fyrir heytætlu og brotn- aði á báðum hnjám, þegar hann vann við heyskap í Borg- arfirðinum í gær. Pilturinn var fluttur með sjúkrabíl til Borgarness, þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hann og flutti á Borgarspítal- ann í Reykjavík. Slysið átti sér stað á fjórða tímanum í gærdag, þegar tveir vinnumenn á bænum Giljum í Hálsasveit unnu við heyskap. Að sögn lögreglunnar í Borgamesi var annar þeirra á dráttarvél með heytætlu í afturdragi. Ein teina- skífan var misvísandi og ætlaði pilturinn að reyna að rétta hana af. Sá á dráttarvélinni stöðvaði vélina, steig á kúplinguna og tók úr gír. Við það stöðvaðist drif- skaftið og mun pilturinn þá hafa verið kominn að vélinni til að athuga málið. Þegar ökumaður dráttarvélarinnar steig af kúpl- ingunni, fór drifskaftið aftur í gang og varð pilturinn þá fyrir heytætlunni. Ekki er vitað um líðan piltsins, að svo stöddu. Baldrige fyrir- ætlunum um refsiaðgerðir Nátturuverndarsamtök vonsvikin og ætla að móta sameiginlega stefnu Washington, frá Ómari Valdimarssyni, blaðamanni Morgunblaðains. MALCOLM BALDRIGE, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, hefur ákveðið að falla frá fyrirætlun sinni um að gefa út staðfestingar- ákæru á hendur íslendingum vegna hvalveiða í vísindaskyni. Þar með er ljóst að íslendingar eiga ekki lengur yfir höfði sér efnahags- legar refsiaðgerðir af hálfu Bandaríkjastjómar. „Lausn málsins felst í því aó ísienska ríkisstjómin hefur fallist á þrengri túlkun á ályktun ársfundar Alþjóða hvalveiðiráðsins um vísindaveiðarnar. Samkvæmt henni verður a.m.k. 51% allra afurða hvers hvals eftir á Islandi. Við munum því ekki gera neina tillögu til Japana eða Norðmanna um að þeir kaupi ekki hvalkjöt af íslend- ingum," sagði Dean Swanson, talsmaður fiskveiðideildar banda- ríska viðskiptaráðuneytisins í samtali við blaðamann Morgun- íslensku fisksölufyrír- tækin í Bandaríkjunum: Hvalveiði- deilan hefur engin áhrif á söluna ÍSLENSKU fisksölufyrirtækin í Bandaríkjunum hafa ekki lent í erfíðleikum vegna deilu íslenskra stjórnvalda við við- skiptaráðuneytið í Washington um hvalveiðar. „Þetta er við- kvæmt mál og best að segja sem minnst á þessu stigi. Viðskipta- menn okkar sýna okkur skilning og era mjög hlynntir þeirri ákvörðun rikisstjórnarinnar að leita lausnar á deilunni,“ sagði Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater Seafood Corporation. Magnús sagði að sér þætti fjöl- miðlar á Islandi gera of mikið úr málinu. „Mér fínnst rétt að vera ekki með hamagang og leyfa mönn- um að komast að niðurstöðu. Eg ber fullt traust til Halldórs Ás- grímssonar í þessu máli, enda veit hann hve mikilir viðskiptahagsmun- ir eru í húfi.“ Talsmaður Icelandic Seafood Corporation tók í sama streng. Viðskiptavinir hans hefðu ekki sýnt nein viðbrögð í kjölfar deilunnar. Nær ekkert hefði verið §allað um málið í §ölmiðlum og vissu því fæstir um „hvalamálið". blaðsins í gær, þegar lausn hafði verið fundin á deilu stjómvalda í Bandaríkjunum og á Islandi, um útflutning á hvalkjöti. Talsmenn náttúruverndarsam- taka hér í Washington lýstu í gær yfir undmn sinni og vonbrigðum með niðurstöðuna, sem fékkst eftir viðræður Halldórs Asgrímssonar, sjávarútvegsráðherra, og banda- rískra ráðamanna. „Það er hneykslanlegt að ætla að fara í kringum anda samþykktar hvalveiðiráðsins með því að láta refi eta helminginn af kjötinu og selja hinn helminginn úr landi,“ sagði Dean Wilkinson, talsmaður Greenpeace samtakanna hér, í sam- tali við Jón Ásgeir Sigurðsson, fréttaritara Morgunblaðsins í Bandaríkjunum. Wilkinson sagði að náttúruverndarsamtök myndu á næstunni fastmóta sameiginlega afstöðu sína til málsins. Háttsettir bandarískir embættis- menn vildu ekkert um málið segja í gær og ekki varð úr að viðskipta- ráðuneytið sendi frá sér yfírlýsingu sem boðuð hafði verið í gærmorg- un. Dean Swan^on sagði að það fælist í „lausn" málsins, eins og hann orðaði það, að íslendingar gætu haldið áfram hvalveiðum sínum eftir 20. ágúst — svo fremi sem þeir héldu sig við þá rannsókn- aráætlun, sem kynnt hefur verið og rædd í vísindanefnd Alþjóða hvalveiðiráðsins. Samkvæmt henni á eftir að veiða alls 45 hvali á þess- ari vertíð. Swanson sagði ennfrem- ur í samtali við blaðamann Morgunblaðsins að samkvæmt sínum upplýsingum hefði íslenska ríkisstjómin ákveðið að engar hrefnuveiðar verði stundaðar frá íslandi í ár, en samkvæmt rann- sóknaráætluninni hefur staðið til að veiða allt að 80 hrefnur á þessu ári og næstu þijú ár. Embættismenn hér segja að þótt ákveðið hafi verið að láta vísinda- veiðar íslendinga óátaldar, þýði það ekki að Suður-Kóreumenn verði afskiptalausir með sínar hvalveiðar í vísindaskyni. Ástæðan er sú að rannsóknaráætlun Suður-Kóreu- manna hefur ekki hlotið náð fyrir augum vísindanefndar Alþjóða hvalveiðiráðsins, eins og sú íslenska. Suður-Kóreumenn hættu sínum „vísindaveiðum" 25. júlí um leið og íslendingar og gert er ráð fyrir að viðræður um veiðar Kóreu- manna hefjist hér í Washington innan tveggja vikna. Mótið í Gausdal: Þröstur vann Wets ígær Gausdal í Noregi, frá Davíð Ólafssyni. ÞRÖSTUR Þórhallsson vann i gær Geert Wets frá Belgíu á heimsmeistaramóti ungl- inga í skák. Hann er því með tvo og hálfan vinning af fjór- um. Staðan í mótinu er að öðru leyti þannig að Anand (Ind- landi), Zuniga (Perú), Hellers (Svíþjóð), Piket (Hollandi) og Godena (Ítalíu) eru allir með þijá og hálfan vinning, en Wahl (Vestur-Þýskalandi) og Horvath (Ungvetjalandi) eru báðir með þijá. Þeir tefldu bið- skák í gærkvöld, en Horvath var peði yfír og þótti sigur- stranglegri. Ferðamannastraum- urinn nálgast metið Ferðamannastraumur hefur verið mikill innanlands í sumar og nálgast met, ekki síst á Norð- ur- og Austurlandi þar sem veður hefur verið gott i sumar. „Það hefur verið meiri ferða- mannstraumur hér í sumar en ég man eftir síðan ’74 þegar hringveg- urinn var opnaður," sagði Ámi Stefánsson hótelstjóri á Hótel Höfn, á Homafírði í samtali við Morgun- blaðið í gær. „Gistinýting á hótelinu hefur ver- ið 90% í júlí en umferðin fór seint af stað og segja sumir að þar hafí heimsmeistarakeppninni verið um að kenna. Ég held að mjög gott veður eigi hvað mestan þátt í þessu og svo ef til vill jöklaferðimar sem em boðnar héðan og notið hafa síaukinna vinsælda. Islenskir gestir hjá okkur hafa verið tveir af hveij- um fímm og er það mikil aukning og gjörólíkt því sem hefur verið. Allt gistipláss í bænum hefur verið yfírsetið, hótel, farfuglaheimili, bændagisting og tjaldstæði, allt verið alveg morandi." Á Hótel Reynihlíð á Mývatni hafði Amþór Bjömsson svipaða sögu að segja. „Það hefur aldrei verið fleira fólk á ferðinni í Mý- vatnssveit og er sérstaklega áber- andi aukning á íslensku ferðafólki. Gott tíðarfar, aukin ferðamanna- straumur útlendinga og auknar upplýsingar frá okkur tel ég að þama ráði mestu. Hjá okkur hefur aldrei verið meira að gera, við buð- um svefnpokapláss í fyrsta sinn 10. júlí og hefur það verið fullt síðan og á tjaldstæði hreppsins er 40% fleira en í fyrra.“ Verðlækkun á biki auðveld- ar framkvæmd vegaáætlunar VERÐ á biki hefur lækkað um rúmlega 30% á þessu ári og að sögn Jóns Birgis Jónssonar hjá Vegagerð ríkisins, hefur verið unnt að leggja rúmlega 200 km af nýju slitlagi vegna verðlækkun- arinnar, þrátt fyrir niðurskurð á fjárveitingum. Jón sagði að olíumöl væri nokkuð dýrari en klæðning, en bikið sem notað væri í bæði olíumöl og klæðn- ingu væri mjög svipað. Þess vegna hefði klæðning lækkað hlutfallslega jafn mikið í verði og olíumöl og væri því hagstæðara að notast við klæðningu. Sagði Jón Birgir að verðlækkunin á biki yrði nýtt til hins ýtrasta, þeg- ar vegaáætlun fyrir timabilið 1987 til 1989 verður gerð í janúar eða febrúar á næsta ári, eftir að gengið verður frá fjárlögum. Geri mér vonir um að við fá- um að veiða hval endalaust — segir Eyjólfur Konráð Jónsson „ÉG ER mjög ánægður með þessa lausn og tel hana vera gæfusamlega,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður ut- anrikismálanefndar, þegar Morgunblaðið innti hann álits á lausn hvalveiðideilu íslenskra stjóravalda og bandarískra. „Ég er að gera mér vonir um að þessi lausn sé til frambúðar og er að gera mér vonir um að við íslendingar fáum að veiða hval nokkum veginn óáreittir, kannski einir þjóða, vegna þess að við höfum haldið rétt á málun- um,“ sagði Eyjólfur Konráð. Hann sagðist ekki telja að nátt- úruvemdarsamtök gætu gert nokkuð til að hindra hvalveiðar íslendinga, þrátt fyrir mikla and- stöðu þeirra við niðurstöður viðræðna Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra, og Malcoms Baldrige, viðskiptaráð- herra Bandaríkjanna. „Ef við höldum áfram skyn- samlega á málum, ættum við að geta haldið veiðum áfram enda- laust," sagði Eyjólfur Konráð Jónsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.