Morgunblaðið - 08.08.1986, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 08.08.1986, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1986 Ítalía: Áhyggjur vegua fárra ferðamanna Tórínó. Frá Brynju Tomer, fréttaritara Morgunblaðsins. „ÉG MYNDI ALDREI ráðleggja ítölum að hætta við eða takmarka ferðalög sín til útlanda. Þvert á móti hef ég ávallt verið þeim hlynnt- ur og verð það áfram,“ sagði Bettino Craxi, forsætisráðherra Ítalíu, í viðtali við ítalska dagblaðið II Messagiero nú fyrir skömmu. Ráð- herrann hefur gagnrýnt Bandaríkjastjórn fyrir afskipti sín af ferðalögum Bandaríkjamanna til Ítalíu. En ferðamannastraumur hingað til Italíu hefur minnkað svo um munar frá því í fyrra. Banda- rikjamenn eru fjörutíu til fimmtíu prósent færri í helstu ferðamanna- borgum landsins, Róm, Flórens og Feneyjum. í heild hefur bandarískum ferða- stjómarerindreka, og skapa meiri mönnum á Ítalíu fækkað um áttatíu prósent í júní miðað við sama tíma í fyrra. Hrýðjuverkastarfsemi á Ítalíu virðist ætla að verða dýrkeypt ítölum ef marka má niðurstöður samtaka hóteleigenda á Ítalíu og viðbrögð Craxis. Reagan Banda- ríkjaforseti varaði landa sína við ferðalögum á þessar slóðir í kjölfar síendurtekinna hryðjuverka í Evr- ópu og eru ítalir að vonum ósáttir við afleiðingarnar; umtalsverða fækkun ferðamanna til landsins. „Ég er þess fullviss að misskiln- ingur liggur hér að baki,“ segir Craxi, en hann hefur mótmælt af- skiptum Bandaríkjastjómar. „Án þess að vanmeta fjárhagshlið þessa máls hef ég áhyggjur af því að tengsl milli ítala og Bandaríkja- manna geti borið skaða af því hversu bandarískum ferðamönnum á Ítalíu hefur fækkað. Ferðamenn skilning en list og menning, sem flutt er milli landa og meiri menn- ingartengsi en bækur og kvikmynd- ir. Ég held í hreinskilni sagt,“ segir ráðherrann, „að hættan á hryðju- verkum hafi verið ofmetin. Hryðju- verk koma illa við alla, jafnt Itali sem Bandaríkjamenn. Þau koma engum að gagni, en hættan, sem stafar af hryðjuverkum í heiminum er aðeins hluti þeirrar hættu, sem fylgir því að búa í nútímaþjóðfé- lagi.“ Ráðherrann sagði að Italir hefðu sýnt og sannað að þeir gætu varið sig og unnið að vörnum gegn hryðjuverkum í alþjóðlegu sam- starfi, þar sem réttlætið væri sett ofar öllu. „Ég er þess fullviss að innan skamms kemst þessi hluti ferðamála í lag. Mikil virðing ríkir milli Itala og Bandaríkjamanna og vinátta og menning tengir þessi ríki,“ sagði Craxi að lokum. alíu nemur frá 50 til 80 prósentum miðað við í fyrra. Á hótelum í helstu ferðamannaborgunum, Róm Flór- ens og Feneyjum, er um að ræða 40 til 50 prósent fækkun. Samtök hóteleigenda á Ítalíu hafa staðfest að fækkun Bandaríkjamanna á bestu hótelum sé umtalsverð miðað við síðasta ár eða 55 til 60 pró- sent. Á undanfömum árum hafa Bandaríkjamenn verið stærsti við- skiptahópurinn á hótelum í hæsta gæðaflokki og eru að meðaltali um 60 prósent viðskiptavina. Er tap viðkomandi hótela því auðséð. Júlí kom illa út á Italíu hvað varðar straum bandarískra ferðamanna en miðað við síðasta ár nemur fækkun- in alls 80 prósentum. ERLENT Stoltír foreldrar Karólína, prinsessa af Mónakó og eiginmaður hennar Stefano Casiraghi, stolt á svip með litlu dótturina, Karlottu Maríu Pomel- ine, er fæddir sl. sunnudag. Fyrir áttu þau einn son. Kína: eru meiri friðarboðar en fundir Fækkun Bandaríkjamanna til ít- Geislavirkni í Oregon: Gorbachev send- ur reikningurinn Staðnað stjórnkerfi hemill á framfarir Portland, Oregon, Bandaríkjunum, AP. Heilbrigðisráðuneytið í Oreg- on-ríki í Bandaríkjunum hefur sent Gorbachev, Sovétleiðtoga, reikning yfir útlögðum kostnaði við geislamælingar og annað eft- irlit í kjölfar kjarnorkuslyssins. Nokkru eftir kjamorkuslysið barst geislavirkni með vestlægum vindi yfir Kyrrahaf og var þá strax gripið til mikils eftirlits í Oregon með lofti, regni, drykkjarvatni, grænmeti og mjólk og nam kostnað- urinn við það nærri þremur milljón- Albanía: Járnbraut- arsamband við um- heiminn Hani I Hotit, Albaníu, AP. ALBANSKIR og júgóslavn- eskir embættismenn fögnuðu í gær lagningu járnbrautar milli landanna, en hingað til hefur Albanía aðeins haft vegasamband við nágranna- ríki sín, Grikkland og Júgó- slavíu. Að sögn albansks embættis- manns, verður járnbrautin ein- ungis notuð til vöruflutninga. Blaðamenn og tiginmenni frá báð- um ríkjum ferðuðust milli ríkjanna með júgóslavneskri jámbrautar- lest, og vakti athygli að blaða- menn fengu að skyggnast um í Albaníu örstutta stund, án þess að vegabréf þeirra væru skoðuð. um ísl. kr. Ekki hafði verið gert ráð fyrir þessum útlátum á fjárlögum og varð því ráðuneytið að leita á náðir neyðarhjálparsjóðs Oregon- ríkis. Nam sú aðstoð rúmum helm- ingi kostnaðarins. Var ráðuneytið jafnframt hvatt til að senda allan reikninginn til þess, sem bæri að greiða hann, Mikhail Gorbachevs. Peking, AP. DENG Xiaoping, leiðtogi Kína- veldis, hefur hafist handa um að endurbæta staðnað stjórnkerfi landsins, svo það virki ekki sem hemill á þær efnahagslegu um- bætur, sem hann hefur hrint í framkvæmd. Gagnrýni á stjómkerfið og þátt kommúnistaflokksins í því hefur að undanfornu orðið æ meira áberandi í hinum opinberu fjölmiðlum í landinu og þar hafa menntamenn rökstutt þörfina fyrir virkara og lýðræðislegra stjómkerfí. Einn þessara menntamanna er Fei Xiao- tong, velþekktur félagsfræðingur, sem var eitt fómarlamba menning- arbyltingar Maós formanns á sjöunda áratugnum. Segir hann stjómkerfið í Kína ósveigjanlegt, staðnað og ófært um að gegna skyldum sínum sem stjómkerfi. „Þama er hópur fólks sem hefur elst bæði í hugsun og árum. Það Gervihjartaþegi látinn LouisvilJe, Kentucky, AP. WILLIAM Schroeder, sem hef- ur lifað lengst allra gervi- hjartaþega, lést á miðvikudag 54 ára að aldri. Gervihjarta af gerðinni „Jarvik-7“ var grætt í hann fyrir 20 mánuðum og hafði hann fengið þrjú hjartaá- föll frá þeim tíma. Fimm menn hafa fengið gervihjarta af þess- ari tegund en þeir eru allir látnir. Dr. William C. Devries, læknir við Humana-sjúkrahúsið í Louis- ville, græddi gervihjartað í Schroeder þann 25. nóvember 1984. Dr. Devries sagði á frétta- mannafundi að lát Schroeders yrði til að auka efasemdir manna varðandi hjartaígræðslur en kvaðst engu að síður staðráðinn að halda áfram. Hann hefur feng- ið leyfi stjómvalda til að græða gervihjörtu í þtjá sjúklinga til við- bótar. Við Stanford háskóla hafa vísindamenn einkum einbeitt sér að því að gera hinu náttúrlega hjarta sjúklinga sinna kleift að starfa. Þeir vonast til að geta William Schroeder á sjúkrabeði skömmu eftir að gervihjarta var grætt í hann. grætt sérstaka dælu í hjartasjúkl- inga, sem gera myndi hjartaí- græðslur óþarfar. Eftir að gervihjartað var grætt í William Schroeder ríkti mikil bjartsýni meðal vísindamanna um framtíð hjartaígræðslna. En að- eins 18 dögum eftir aðgerðina fékk hann hjartaáfall og vonir lækna um að unnt yrði að út- skrifa hann af sjúkrahúsinu urðu að engu. er vant því að fara með vald, en hefur þó hvorki raunverulega þekk- ingu né hæfileika til þess,“ segir hann meðal annars í grein. Þessi mikla gagnrýni á ríkisvald- ið kemur á óvart, þar sem litið hefur verið svo á til skamms tíma í Kína að málfrelsi menntamanna næði einungis til fræðilegra og listrænna efna, en ekki til gagnrýni á ríkis- valdið. Deng hefur þegar gert talsvert til þess að gera stjómkerfið skilvirk- ara. Ákvæði hafa verið sett um eftirlaunaaldur fulltrúa kommún- istaflokksins og yngri og hæfari menn, sem eru fylgjandi efnahags- stefnu Dengs hafa tekið við af eldri fulltrúum. Nú virðist Deng ákveð- inn í því að ganga skrefi lengra og gera stjómkerfið og ákvarðanatök- una lýðræðislegri. Hann ætlar að setja lagaákvæði, sem myndu minnka vald og persónuleg áhrif fulltrúa kommúnistaflokksins í stjómkerfinu, þar sem þeir hafa nú nánast alræðisvald. Gagniýnendur hafa haldið því fram að stjómendur og embættis- menn ríkisins ættu að hafa meira sjálfstæði gagnvart milljónum full- trúa kommúnistaflokksins, sem nú hafa eftirlit með sérhverju atriði í kínversku efnahags- og stjóm- málalífi. Stjómendum verksmiðja hefur þegar verið gerð grein fyrir því að þeir hafí rétt til þess að reka óhæft starfsfólk og ráða annað sem hæfari eru. Innan skamms gætu embættismenn ríkisins fengið sams konar vald í hendur. Almennt hefur verið talað um aukið lýðræði í Kínaveldi og aukna verkaskiptingu milli ríkisvalds og flokks, þar sem áhersla yrði lögð á valdajafnvægi þar á milli og eftir- litsskyldu hvors aðila fyrir sig með hinum. Hins vegar hafa hugmyndir um framkvæmd þessa í smáatriðum ennþá ekki litið dagsins Ijós.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.