Morgunblaðið - 08.08.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ,1 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1986
23
Kosninganefnd Hægrí flokksins í Svíþjóð;
Moskva:
Leynd hvílir
yf ir viðræð-
um PLO
Moskvu ÁP
PALESTÍNSKUR sendierindreki
sagði í gær að árangur hefði náðst
í viðræðum, sem haldnar voru í
Moskvu þessari viku til að koma
á einingu innan Frelsissamtaka
Palestínu (PLO).
Talsmaðurinn kvaðst vera einn
fimm erindreka PLO í umboðsskrif-
stofu samtakanna í Moskvu, en
neitaði að segja til nafns. Hann
greindi hvorki frá viðræðunum, sem
stóðu frá mánudegi til miðvikudags,
í smáatriðum né á hvern hátt sam-
skipti milli hinna ýmsu brota og
flokka innan PLO hefðu vcrið bætt.
Hann vildi ekki segja hverjir hefðu
tekið þátt í viðræðunum og þaðan
af síður hvaða hlutverki Sovétmenn
hefðu gegnt í þeim.
Viðræður þessar fóru fram í
Moskvu og því hefur verið haldið
fram að sovésk yfirvöld þrýsti nú á
um að ásáttar fylkingar innan PLO
snúi bökum saman til þess að undir-
búa mögulega friðarráðstefnu, sem
Sovétmenn vilji eiga aðild að.
Sendiherra Bandaríkjanna í Kaupmannahöfn:
Trúverðuga
stefnu vantar í
málum S-Afríku
Kaupmannahöfn, AP.
TERENCE A. Todman, sendiherra Bandaríkjanna í Dan-
mörku, hélt blaðamannafund í bandaríska sendiráðinu I
Kaupmannahöfn í gær og gerði þar næsta lítið úr vanga-
veltum um að hann yrði tiinefndur næsti sendiherra
Bandaríkjanna í Suður-Afríku.
Todman, sem er svartur, kvaðst
telja að ekki væri hægt að velja
sendiherra fyrr en Bandaríkja-
stjóm hefði mótað trúverðugri
stefnu gegn kynþáttaaðskilnaðar-
stefnu suður-afrískra stjómvalda.
„Þegar komin er stefna, sem Suð-
ur-Afríkumenn, íbúar suðurhluta
Afriku og allar þjóðir heims taka
mark á, má fara að huga að því
hver er best fallinn til að gegna
starfi sendiherra í Suður-Afríku
og framfylgja stefnu Bandaríkja-
manna,“ sagði Todman. Hann
kvaðst síður en svo vera hræddur
við að taka starfið að sér, en hann
vildi aftur á móti vita að hveiju
hann gengi.
Todman hefur verið sendiherra
í Kaupmannahöfn frá árinu 1983
og hefur oft verið nefndur næsta
sendiherraefni Bandaríkjastjómar
í Suður-Afríku eftir að svarti
kaupsýslumaðurinn Robert Brown
dró sig til baka.
Todman sagði á fundinum að
blaðamenn hefðu kreist einhver
orð út úr starfsmönnum í Hvíta
húsinu og slegið upp án þess að
hafa nóg fyrir sér um málið.
Boy George
Boy George
miður sín
London, AP.
Poppsöngvarinn Boy George
er „algjörlega miður sín“ vegna
andláts bandaríska tónlistar-
mannsins Michaels Rudetsky, að
sögn bróður söngvarans. Rudet-
sky fannst látinn í íbúð söngvar-
ans á miðvikudaginn og hefur
rannsókn leitt í Ijós að eiturlyfja-
neysla varð honum að aldurtila.
David O’Dowd, yngri bróðir Boy
George, sagði í sjónvarpsviðtali að
lát Rudetskys hefði fengið mjög á
söngvarann en taldi þó ólíklegt að
það leiddi hann aftur út í neyslu
heróíns. Að sögn David O’Dowd
gengur Boy George vel að yfirvinna
eiturlyfjafíknina en hann taldi þó
að langur tími myndi líða þar til
unnt yrði að telja söngvarann hafa
fengið varanlega lækningu.
Að sögn dagblaða í London vann
Boy George að upptökum ásamt
Michael Rudetsky í hljóðveri á
þriðjudagskvöldið en það hefur ekki
fengist staðfest.
Thatcher að ná sér
London, AP.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, er nú að ná
sér eftir klukkustundar langan
uppskurð, sem gerður var á
hægri hendi hennar á miðviku-
dag.
Bresk fréttastofa greindi frá því
í gær að Thatcher færi af sjúkra-
húsinu, sem kennt er við Játvarð
konung VII., í dag. Denis Thatch-
er, eiginmaður Margaretar, sagði
blaðamönnum að hún væri við góða
heilsu eftir uppskurðinn. Thatcher
gekkst undir þessa aðgerð vegna
þess að vefir í hendi hennar voru
famir að herpast saman.
Carl Bildt einróma út-
nefndur formannsefni
Stokkholmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunbiaðsins.
KOSNINGANEFND Hægri flokksins í Svíþjóð útnefndi á miðvikudag
einróma þingmanninn Carl Bildt til leiðtoga flokksins. Sérstök for-
mannskosning verður haldin 23. ágúst.
Að öllum líkindum tekur Bildt
þá við af Ulf Adelsohn, sem sagði
af sér í júní vegna slælegs gengis
flokksins í stjómarandstöðu. Bildt
er sérfræðingur í vamarmálum.
Hann sat í þingnefnd, sem rannsak-
aði ferðir sovéskra kafbáta í
sænskri landhelgi 1982. Vakti það
mikla reiði Olofs Palme, þáverandi
forsætisráðherra, er Bildt fór til
Washington og ræddi þar við emb-
ættismenn Bandaríkjastjómar.
Palme gmnaði Bildt um að hafa
rætt skýrslu, sem flokkaðist undir
ríkisleyndarmál, við Bandaríkja-
menn og þar með stefnt hlutleysi
Svía í hættu og mótmælti stjómin
opinberlega.
Bildt er 37 ára en hann hefur
tekið þátt í stjómmálum í tuttugu
ár. Hann er giftur Miu, dóttur Göst-
as Bohman, fyrrum leiðtoga Hægri
flokksins.
Carl Bildt, formannsefni sænska-
Hægri flokksins.
HUÐILMUR
Spermandi iimiequndir
sem qero bér lífiö léfta
MYKJANDI
ILMKVOÐA
Cög
Chaöji
Mýkjondi ilmkvoða
er nýjung í huósnyrtingu.
Auðveid i notkun og smýgur
íijóft inn t huóino
COOL CHARM
VOPN í BARÁTTU
Stifan
Thorarensen h