Morgunblaðið - 08.08.1986, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1986
S'.i&V’ORf
Útsýni yfir sýningarsvæðið úr „skyrides'
rautt, blátt, bleikt, grænt og gult.
Öll handrið og möstur o.þ.h. eru
máluð í þessum litum til þess að
auðvelda sýningargestum að rata
um svæðið, sem er allstórt.
Fastir starfsmenn sýningarinnar
eru um 15.000 talsins, en auk þeirra
eru aðrir 15.000 sjálfboðaliðar sem
aðstoða.
Það er áætlað, að um 16 milljón-
ir manna heimsæki sýninguna og
að hver gestur eyði að meðaltali
3,5 dögum í að skoða hana, en sagt
er að það þurfí a.m.k. 3 daga til
að sjá hana alla. Af þessum 16
milljónum er áætlað, að 60% þeirra
verði frá Kanada, 30% frá USA og
10% frá Asíu, Evrópu og Ástralíu.
Til þess að auðvelda gestum að
ferðast milli litasvæða hefur verið
komið upp þremur möguleikum á
flutningi á svæðinu. í fyrsta lagi
er einteinungur, sem gengur í hring
um svæðið. Sporið er 5,4 km að
lengd og biðstöðvarnar eru 7 tals-
ins. Vagnamir eru 10 og geta flutt
um 70.000 manns daglega. í öðru
lagi eru á tveimur stöðum kláfar,
sem veita frábært útsýni yfir svæð-
ið og í þriðja lagi eru feijur, sem
ganga meðfram öllu sýningarsvæð-
inu, en það liggur allt að sjó. Allt
er þetta frítt og mega gestir nota
hvert tæki eins oft og þeir vilja.
Til þess að komast milli aðal
sýningarsvæðisins og þess
kanadíska má nota lest, sem er hluti
af nýja lestakerfi borgarinnar og
er það líka sýningargestum að
kostnaðarlausu.
Auk allra sýningarhallanna og
þess, sem getur að líta inni í þeim,
er fjöldinn allur af útisvæðum, þar
sem skemmtikraftar ýmiss konar
troða upp daglega. Á þeim 165
dögum, sem sýningin stendur yfir,
verða haldnar 43.000 sýningar á
dansi, tónlist, látbragðsleik og sjón-
hverfingum. Það gera um 260
sýningar á dag.
Til dæmis má nefna, að Kirov
ballettinn kemur fram í fyrsta skipti
í 20 ár í N-Ameríku og La Scala
óperan sýnir auk fyölda þekktra
popphljómsveita og tónlistarmanna.
Heimssýniiigin í Kanada
Sérstakar sýningar á ákveðnum
þáttum, sem tengjast þema sýning-
arinnar standa síðan í 5-14 daga.
Þar má nefna sýningar á leitar-
tækni, flutningum á heimskauta-
>
eftir Björgvin
Richardson
Seattie 8.7. 1986.
Heimssýningin 1986 (EXPO
86) er haldin í Vancouver í Kan-
ada, og stendur í fimm og hálfan
mánuð, frá 2. maí til 13. októ-
ber. Þetta er í áttugasta og sjötta
skiptið, sem heimssýning er hald-
in, en sú fyrsta var í Englandi
1851.
Þessi sýning er sú stærsta til
þessa af þeim heimssýningum sem
hafa ákveðið þema, sem nú er „sam-
göngur og samskipti", en undir-
þemað er „heimur á hreyfíngu —
heimur i snertingu."
Skipulagning þessarar sýningar
hófst 1979, þegar Kanada sótti um
að halda sýninguna til Alþjóða
heimssýningarráðsins í París.
Formlegt leyfí kom ári seinna og
síðan hefur verið unnið stöðugt að
uppbyggingu sýningarsvæðisins.
Stjómendur sýningarinnar hafa að
sjálfsögðu hagað skipulagningu
með tilliti til framtíðar uppbygging-
ar og nú þegar er búið að ákveða
alla þá byggð sem þama mun rísa.
Þátttakendur eru yfir 90 frá 54
þjóðlöndum, en öll héruð Kanada
(9) hafa sitt sýningarsvæði og auk
þeirra hafa 3 fylki Bandaríkjanna
sér svæði. Hver þjóð sýnir það
markverðasta úr sinni menningu
og sögu, sem tengist þema sýning-
arinnar. Þama getur að líta öll
hugsanleg farartæki, allt frá ein-
tijáningum, hjólbömm og loftbelgj-
um upp í risaolíuskip, flutningabíla
Space Tower. Hægt er að fara upp ( þennan 72 metra háa turn á
tvennan máta. Annars vegar með kringlóttri lyftu sem snýst einn
hring á leiðinni upp, eða 2ja farþega körfu sem fellur 16,15 metra
á sek. á leiðinni niður. Það má heyra öskrin i farþegunum langar
leiðir.
Highway ’86. Þetta er 4 akreina þjóðvegur með öllum hugsanlegum farartækjum á, allt frá skóm og
skútum upp í flutningabíla, þyrlur og kafbáta. Þess má geta að öllum bílunum var ekið á svæðið og
þyrlunni var flogið á staðinn. Síðan var allt málað grátt og þyrlan er ónýt á eftir.
og geimskutlur. Á svæðinu má líka
fínna sýnishom af flestu, sem lítur
að fjarskiptum, allt frá „bongo“-
trommum upp í gervitungl. Annars
ganga flestar sýningamar út á það
sama, að sýna uppbyggingu sam-
gangna og samskipta í hveiju landi
fyrir sig, en þetta er gert á afar
fjölbreyttan og oft á tíðum
skemmtilegan máta með hreyfílík-
önum og kvikmyndasýningum ýmis
konar, þar sem skipuleggjendur
hafa notfært sér nýjustu tækni til
hins ítrasta.
Sjálft sýningarsvæðið er 70 hekt-
arar að stærð, á tveimur stöðum
sitt hvorum megin við miðborg
Vancouver. Aðal svæðið er sunnan
við miðborgina og þar eru allar
sýningarhallimar nema ein, en það
er sú kanadíska, sem er norðan við
miðbæinn. Sýningarsvæðinu er
skipt í sex litasvæði, purpuralitt,
EXPO-
Center
Myndverk.