Morgunblaðið - 08.08.1986, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1986
45
Morgunblaðið/Bjami
Jón telur að kanna megi sálarástand Islendinga með því að labba út í næstu myndbandaleigu.
DruUuböð og
alkalískemmdir
Jón Sigurðsson skrifar:
„Okkur er kennt að Rómaveldi
hafi verið glæsilegt, stórt og sterkt,
knúið áfram af hreysti og her-
mennsku. En svo þegar við lesum
lengra segir sagan okkur, að með
tímanum hafi orðið hugarfarsbreyt-
ing. Munaðarlífíð festi rætur og
baðhúsin stækkuðu og afbrigðilegt
kynlíf fór að hasla sér völl. Þetta
mikla heimsveldi fór að skemmast
og rotna innan frá. Síðan voru það
ytri öfl sem komu og gerðu útslag-
ið og kláruðu þar með niðurrifsverk-
ið og með því var Rómaveldi hrunið.
En kemur þetta okkur við héma
langt uppi á Islandi? Við, sem loks
fengum sjálfstæði á þessari öld og
drifum okkur með krafti út úr mold-
arkofunum og byggðum stórt og
sterkt.
Jú, kannski kemur sagan okkur
við, því hún á það til að endurtaka
sig- ,
Ef Island vill vakna af svefninum
og opna augun, þá era þó nokkur
viðvöranarmerki, sem era þegar
farin að blikka.
Steypan okkar, sem átti að vera
svo sterk, er víða þversprangin,
alkalískemmdimar segja til sín. Við
gáðum víst ekki að því, að óæski-
legt salt blandaðist saman við
steypuna, svo við uppskeram nú í
dag það sem við sáðum. En miklu
alvarlegra þó er að þjóðfélagið okk-
ar er farið að bera merki um
samskonar sprangur, sem koma nú
fram á skýrari hátt en áður.
Orð sem láta kunnuglega í eyram
era: Nauðungarappboð, hjónaskiln-
aðir, áfengisvandi og uppflosnun
yfirleitt. Við tókum jú öll við stóra
hugarfarsbreytingunni þegar okkur
var kennt, að ekkert væri lengur
heilagt, heldur allt skyldi nú vera
ftjálst. Allir skyldu bara hugsa um
sjálfan sig. Límið fór að gliðna og
böndin að bresta. Þegar §ölskyldan
er sprangin standa einstaklingamir
gjaman eftir einangraðir. Og böm-
in, nú ef þau koma á óhentugum
tíma þá lætur ísland bara eyða
þeim. En ef þau vaxa úr grasi von-
um við bara, að þau verði ekki
dópinu að bráð.
Það er eins og við séum orðin
svo dofín fyrir því „alkalísalti" sem
verið er blanda saman við þjóð-
félagsmyndina, að ekkert yfírvald
tekur sér fyrir hendur að stöðva
þá klámbylgju sem nú á að flæða
yfír. Fólk segir bara að við verðum
að fylgjast með því, sem er að ger-
ast í skuggahverfum erlendra
stórborga. Hjálpartæki fyrir fatlað
kynlíf og drulluböð skulu það vera
næst. Og ísland er galopið, engin
fyrirstaða, bara blanda þessu sam-
an við og sjá hvort þetta sé ekki
gagnleg og nytsöm leið til að skapa
vændi hér.
Heyrst hefur að vændi hafí
reynst hentugasta leiðin til að
breiða út AIDS hjá nágrannaþjóð-
unum. Auk þess sem eiturlyfjasjúkl-
ingar þurfa á sinni atvinnugrein að
halda.
Einhver frægur maður sagði, að
þú gætir kannað sálarástand þjóðar
ef þú vissir hvaða bækur hún læsi.
I dag getur þú auðveldlega kannað
sálarástand íslands með því að
labba út í næstu myndbandaleigu.
Annað sem þú gætir líka gert
er að opna Bilbíuna þína. Því hún
hefur þann stórmerka eiginleika að
verka eins og spegill, sem sýnir
okkur raunveralega mynd af sjálf-
um okkur og þjóðinni. (Kannski er
það þess vegna, sem svo fáir opna
þá bók nú orðið?)
Dagsafli á eina stöng
I ,Ug veldduat 80 lu« á tv»r rtAapr.
I A myndinni eni Þorgeir Daniclason og
| Sverrir KrisUnMon, aem voni með aAra rtfing-
ifta, meó dagiveiðma, 81 lax. Þcir veiddu til
akiptia og Hildur SimonardfiUir, aem var þeim
félðgum til aðstoðar hafði ekki undan að rota
og plaata ftakana, aem komu Ul hennar eins
og i farribandi.
Hina 49 laxana veiddu þekktir veiðimenn,
ega I hverju kaati, llnan I
niði aldrei að rétta úr aðr, fyrr hafði lax I
gripið fluguna," aagði Þórarinn. Veiði þeirra I
félaganna cr met I Laxi á einum degi. r
Sji ninar „Kru þrir að fi 'ann" i bla 28. 1
Vísa vikunnar
Keyra, hlaupa, kasta í hyl
kippa, toga, landa.
Ánægjan fari fjandans til,
sem flestum skal nú granda.
Hákur
Þar stendur meðal annars:
„Heyrið orð Drottins, þér ísraels-
menn, því að Drottinn hefír mál að
kæra gegn íbúum landsins, því að
í landinu er engin trúfesta, né kær-
leikur, né þekking á Guði, Þeir
sveija og ljúga, myrða og stela og
hafa fram hjá. Þeir bijótast inn í
hús og hvert mannvígið tekur við
af öðra. Fyrir því drúpir landið og
allt visnar sem í því er, jafnvel dýr
merkurinnar og fuglar himinsins,
og enda fískamir í sjónum era hrifn-
ir burt.
Þó ávíti enginn og álasi enginn.
En á yður deili ég, þér prestar.
Lýður minn verður afmáður af
því að hann hefír enga þekking."
(Hósea 4:1 (4)6.
Er það ekki svo í raun og verki,
að við sem þjóð höfum hafnað þekk-
ingunni á Guði. Trúarlíf okkar rís
nú ekki hátt. Annaðhvort er nafn-
kristni og bamatrú látin duga eða
fólk villist út í andatrú og miðla-
kukl.
Onnur ritningargrein sem er þess
virði að skoða í ljósi samtímans er:
„Vita skalt þú þetta, að á síðustu
dögum munu koma örðugar tíðir.
Mennimir verða sérgóðir, fégjamir,
raupsamir, hrokafullir, iastmælend-
ur, foreldram óhlýðnir, vanþakklát-
ir, vanheilagir, kærleikslausir,
ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir,
grimmir, ekki elskandi það sem
gott er, sviksamir, framhleypnir,
ofmetnaðarfullir, elskandi munað-
arlífíð meira en Guð. Þeir hafa á
sér yfírskin guðhræðslunnar, en
afneita krafti hennar. Snú þér burt
fráslíkum." (2. Timóteus 3:1-6.)
Nei, Island vilt þú með sanni
byggja traust og sterkt og þvi skipt-
ir það miklu máli hveiju blandað
er saman við steypuna og hugarfar
þjóðarinnar.
Ef við uppskeram sprangur og
uppflosnun í þjóðfélaginu verðum
við að gefa gaum að því hveiju við
sáðum. Höfum það í huga, að ytri
öfl era sterk og virk í þessu jarð-
skjálfta landi og því allra síst þörf
á innri rotnun.
Guð segir í Orði sínu, að ef guð-
leysi haldi áfram leiði það til þess
að hann taki burt vemd sina og
blessun og innleiði dóm.
Hvað viljum við kalla yfír okkur,
blessun eða dóm? Viljum við snúa
frá myrkrinu til ljóssins? Jesús seg-
ir: Ég er vegurinn, sannleikurinn
og lífíð. Enginn kemur til föðurins
nema fyrir mig. Ef þér hafíð þekkt
mig munuð þér og þekkja föður
minn.“ (Jóhannes. 14:6.“)
VEITINGAHUSIÐ
í GLÆSIBÆ
simi:
686220
I KVOLD
tekur BIG BAND
úr SIRKUS ARENA lagid
og sirkuslistamenn sýna
listir sínar.
Hljómsveitin KÝPRUS KVARTETT
leikur fyrir dansi.
Opið frá kl. 22.00 - 03.00.
Snyrtilegur klæðnaður - aldurstakmark 20 ára.
Námsmenn erlendis
takið eftir
Sumarráðstefna SÍNE verður haldin á
morgun, laugardag, í Félagsstofnun
stúdenta kl. 14.00. Mætum öll.
Stjórnln.
Blaöburöarfólk
óskast!
ÚTHVERFI
Álfheimar
Skeiðarvogur
Kleppsvegur 3-38
Laugarásvegur 39-
Austurbrún 8-
AUSTURBÆR
KÓPAVOGUR
Nýbýlavegur
Laufbrekka
Þinghólsbraut 84-113
og
Kópavogsbraut 47-82
Njálsgata
Sjafnargata