Morgunblaðið - 17.08.1986, Síða 1
120 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
182. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reykjavík 200 ára
Sovétríkin:
14 deyja vegna
nevslu frostlaerar
Moskvu. AP. V
FJÓRTÁN manns létust og tug-
ir manna voru lagðir í sjúkra-
hús í borginni Kaunas í
Lithaugalandi eftir að hafa
drukkið áfcngi, sem innihélt
frostlög, að því er segir í dag-
blaðinu Sovietskaya Litva.
Vínið hafði verið keypt á svört-
um markaði.
I annarri dagblaðsfrétt sagði
að drykkja tréspíritus hefði dregið
fimm manns til dauða í rússnesku
borginni Volgodonsk. Þar stendur
yfír „vika án áfengis" og er hún
liður stjómvalda í herferð gegn
drykkjuskap.
Þetta er mesti harmleikur af
völdum áfengis í Sovétríkjunum
SÍðan lög um áfengisvamir voru
hert í maí 1985. Strangari viður-
lög eru nú við ölvun á almanna-
færi, dregið hefur verið úr
áfengisframleiðslu og verð á
vodka hækkað svo um munar.
Mistök starfsmanna ollu kjarnorkuslysinu í Chernobyl:
Lokað var fyrir
öll öryggiskerfi
Geislavirknin mörgum sinnum meiri en í Hiroshima
Tókýó, AP.
ORSAKIR slyssins í Chernobyl- með framleiðslugetu versins fór
fram, samkvæmt sovéskri rann-
sóknarskýrslu, sem japanskt
dagblað hefur undir höndum.
Öryggiskerfunum var lokað til
kjarnorkuverinu voru röð mis-
taka starfsmanna versins, sem
lokuðu fyrir öll öryggiskerfi
kjarnakljúfsins meðan tilraun
þess að hægt væri að endurtaka
tilraunina, ef þörf væri á. Skýrsl-
an hefur verið send Alþjóða-
kjarnorkumálanefndinni í Vín og
verður rædd á fundi hennar siðar
í þessum mánuði.
Dagblaðið Asahi Shimbum segir
að í skýrslunni komi fram að kjarni
kljúfsins hafi ekki bráðnað. Hins
vegar hafi geislavirkni, sem jafn-
gildi 50 milljón „euries" komist út
í andrúmsloftið, en það var um 3,5%
af öllu geislavirku efni kjarnans.
Það er mörgum sinnum meiri
geislavirkni en varð þegar kjarn-
orkusprengjunni var varpað á
japönsku borgina Hiroshima.
í skýrslunni kemur fram að
starfsmönnunum hafi ekki verið
ljósar hætturnar, sem tilraunin
hafði í för með sér, né hafi þeir
fengið þjálfun til þess að glíma við
neyðarástand. í skýrslunni eru
nefndar sex grundvallarvillur sem
leiddu til slyssins, en það varð stuttu
áður en átti að loka kjarnakljúfnum
vegna viðhalds.
Ákvörðun Bandaríkjaþings þykir
áfall fyrir stefnu Ronalds Reag-
an,forseta.
Refsiaðgerðir
samþykktar
Jóhannesarborg, Washington. AP.
LÖGREGLA í Suður-Afríku hef-
ur fyrirskipað að fæði fanga,
sem í haldi eru vegna neyðar-
laga, verði bætt. Þetta gerðist
eftir að nefnd þriggja dómara
hafði hótað rannsókn á kosti
fanga vegna kvartana um sultar-
fæði í fangelsum. Öldungadeild
Bandaríkjaþings samþykkti á
föstudag að gripa til efnahags-
legra refsiaðgerða gegn Suður-
Afriku vegna kynþáttaaðskilnað-
arstefnunnar.
84 þingmenn greiddu atkvæði
með refsiaðgerðum og fjórtán á
móti. Refsiaðgerðirnar, seln sam-
þykkt var að grípa tii, felast m.a.
í banni á innflutningi suður-afrísks
stáls, vefnaðarvöru, úraníums, kola
og landbúnaðarvara.
Hollis njósnari Rússa?
Breska
stjórnin
margsaga
London, AP.
FULLTRÚI bresku stjórnarinnar
sagði fyrir rétti í Ástralíu að
ásakanir um að sir Roger Hollis,
fyrrum yfirmaður bresku gagn-
njósnastofnunarinnar MI5, hefði
njósnað fyrir Sovétmenn frá
1956 til 1965 væru sannar.
Breska stjómin dró þetta aftur á
móti til baka á föstudagskvöld og
sagði að þessi játning hefði aðeins
verið gerð til að fyrirbyggja að bera
þyrfti vitni um ýmsa starfsemi MI5.
Bresk stjómvöld eru að reyna að
koma í veg fyrir að bók eftir Peter
Wright, sem eitt sinn var háttsettur
embættismaður MI5, verði gefín út.
Lagði inn 20
milljónir með
sælgætisbréfi
Auckland, Nýja-Sjálandi, AP.
FJÓRTÁN ára gamall skóla-
strákur sneri á banka á Nýja-
Sjálandi með því að nota sælgæt-
isbréf til þess að leggja inn á
bankareikning sinn í sjálfvirkum
vélbúnaði, sem er ætlaður til
þeirra hluta. Upphæðin sem
drengurinn fékk inn á reikning
sinn nam einni milljón nýsjá-
lenskra dala, sem jafngildir
rúmum 20 milljónum islenskra
króna.
Drengurinn setti sælgætisbréf í
vélina og ritaði inn eina milljón
dala. Það tókst og í stað þess að
eiga 20 dali inni á bankareikningi
sínum átti hann rúma eina milljón.
Talsmaður bankans segir að starfs-
mönnum hans hafí láðst að bera
saman það sem drengurinn þóttist
leggja inn og það sem var í umslag-
inu með innlögn hans.
Drengurinn viðurkenndi glæpinn
fyrir kennara sínum þremur vikum
seinna og var þá búinn að taka út
1.500 dali. Þeir hafa nú verið endur-
greiddir og í yfírlýsingu frá
bankanum segir að ekki verði lögð
fram ákæra í málinu.