Morgunblaðið - 17.08.1986, Qupperneq 21
MORGONBEAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986
21
Frá sýningunni í GaUery F15. TU vinstri verk eftir Hannes Lárusson, Clarification Jóns Óskars til hægri Maaretta Jaukkuri frá Sveaborg-menningarmiðstöðinni.
og verk eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur í forgrunni.
Miklatún-Manhattan:
Samsýning 11 íslenskra lista-
manna er dvalist hafa í New York
EUefu íslenskir listamenn
opnuðu annan ágúst sl. samsýn-
ingu í Gallery F15 í Moss í
Noregi. Sýningin er farandsýn-
ing og er ætlunin að ferðast með
hana um Norðurlöndin í eitt ár.
Listamennirnir sem sýna eiga
það allir sameiginlegt að hafa
dvalist í New York við nám eða
starf.
Það var Maaretta Jaukkuri,
framkvæmdastjóri norrænu menn-
ingarmiðstöðvarinnar Sveaborg í
Helsinki, sem stóð að undirbúningi
sýningarinnar. Upphaflega stóð til
að sýna verk listamanna frá öllum
Norðurlöndunum en endirinn var
sá að einungis íslenskir listamenn
sýna á þessari sýningu.
í formála að sýningarskrá segir
Maaretta Jaukkuri m.a.: „New
York hefur á undanfomum árum
laðað til sín fjölda íslenskra lista-
manna. Borgin býður ekki aðins
upp á góða listaskóla heldur ekki
síður reynslu af þeim stórborg-
arlífsmáta sem er talinn einn af
meginmótunarþáttum samtímalist-
ar á Vesturlöndum. Það hlýtur að
vera sérstök reynsla að draga fram
lífíð á íhlaupavinnu og naumt
skomum námslánum. Slíkur
lífsmáti hlýtur að líkjast mest frum-
skógarleiðangri þar sem reynir til
hins ýtrasta á líkamlegt og andlegt
atgervi manneskjunnar. Sú glans-
mynd sem við fáum af amerískum
lífsmáta úr kvikmyndum og sjón-
varpi er þá víðs fjarri.
Til að missa ekki af lestinni verð-
ur listamaðurinn að tileinka sér
hraða stórborgarinnar. E.t.v. er
það hluti hins margumrædda krafts
sem sagt er að borgin stafi frá sér.
Margir þeirra listamanna sem
eiga verk á þessari sýningu hafa
nú snúið aftur til íslands, en óhjá-
kvæmilega hlýtur hugurinn oft að
hvarfla til New York. Draumur
listamannsins er að geta búið hluta
árs á hvorum stað, en slíkur mun-
aður er ekki á allra færi.“
Listamennimir sem sýna á þess-
ari sýningu, sem hefur hlotið nafnið
„Miklatún-Manhattan", em: Sól-
veig Aðalsteinsdóttir, Valgarður
Gunnarsson, Hulda Hákonardóttir,
Vignir Jóh'annsson, Hannes Láms-
son, Kjartan Ólason, Jón Óskar
Hafsteinsson, Elín Rafnsdóttir,
Ásta Ríkharðsdóttir, Erla Þórarins-
dóttir og Brynhildur Þorgeirsdóttir.
Sýningunni Miklatún-Manhatt-
an fylgir önnur sýning, Gallery
Ymsir listamenn, íslenskir og er-
lendir, munu sýna verk sín á þessari
„sýningu innan sýningarinnar" og
verður skipt um verk í hvert skipti
sem aðalsýningin færist um set.
Úr Gallery F15 fer sýningin til
Finnlands, þar sem hún verður sett
upp í Joensuus Konstmuseum; það-
an í Kunstforeningen í Kaup-
mannahöfn, síðan til Umeá í
Svíþjóð, þar sem hún verður sett
upp í VAsterbottens Museum og
loks aftur til Finnlands, í Sveaborg
listamiðstöðina í Helsinki. Ekki
hefur enn verið ákveðið hvort sýn-
ingin kemur hingað til lands.
Þingvallavegur
úr Þrastarlundi:
Heflaður
um helgina
VEGURINN úr Þrastarlundi á
Þingvelli hefur þótt illur yfir-
ferðar að undanfömu. Umdæm-
isverkfræðingur vegagerðarinn-
ar, Steingrimur Ingvarsson,
sagði að unnin yrði bót á þessu
um helgina. Vegurinn verður
heflaður, og síðar hugað að
ofaní-
burði.
Mikil umferð síðustu vikumar og
úrkoma hafa unnið skemmdir á
malarvegum í umdæminu. Vegir í
Biskupstungum og Hrunamanna-
hreppi munu líka verða heflaðir á
næstu dögum. Ekki er í ráði að
leggja bundið slitlag á Þingvalla-
veginn - aðrir vegir ganga fyrir að
sögn Steingríms.
Kjartan Áraason Ijóðabókar-
höfundur.
Dagbók
Lasarusar
DAGBÓK Lasarusar nefnist ljóða-
bók eftir Kjartan Árnason sem út
er komin hjá bókaútgáf unni Orlag-
ið.
f bókinni, sem er tæpar 100 síður
og skiptist í 11 kafla, er Lasarusi,
þeim er Kristur reisti frá dauðum,
lagt ýmislegt í munn. Er þetta fyrsta
bók höfundar, sem er 27 ára gamall,
og fæst hún í Bókabúð Máls og rpenn-
ingar, hjá Eymúndasytuog í Uáxdals-
búð á Akureyri.
PHILIPS
am*ni
P«IUPS
Reynsla og þekking er undirstaða
framleiðslu Philips-myndbandstækja.
Philips-myndbönd eru sérhönnuð til
að standast öll gæðapróf og bjóða
aðeins það besta eins og Philips er
þekkt fyrir.
PHILIPS myndbandstæki
fullkomnun á mynd-
og hljóðgædum.
Nokkrar upplýsingar
um VR-6462-tækið:
Sjálfvirk bakspólun þegar bandið er á
enda
Tölvustýrð myndstilling
30 daga minni fyrir tvær upptökur
Hraðgeng myndskoðun fram og til
baka
Hæggeng myndskoðun? Skoða má
hverja einstaka kyrrmynd á bandinu
Þráðlaus fjarstýring
HAFNARSTRÆTI3 - 20455- SÆTg^|.$£l56§5.
'iifW.
~rn ir
L U■ i j '-/
iinijii V -»-x- w ,v> .
'• : isn f:'v í'