Morgunblaðið - 31.08.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1986
þingis skiptir framkværadafé til
vegamála á landshluta (kjör-
dæmi). Þingmenn viðkomandi
kjördæmis skipta síðan „kjör-
dæmisfjármagni" á einstök verk
og verkþætti, að höfðu samráði
við fagaðila hjá Vegagerð ríkis-
ins.
Vegagerð ríkisins hefur ekki aðra
fjárlagafjárveitingu 1986 en svo-
kallaða „markaða tekjustofna“, þ.e.
benzínskatt (hluti benzínverðs) og
þungaskatt, sem greiddur er af
díselbifreiðum. Áætlaður benzín-
skattur sem fellur í hlut Vegagerðar
ríkisins er áætlaður 1.283 m. kr.
og áætlaður þungaskattur 675 m.
kr. Ráðstöfunaríjármagn Vega-
gerðar ríkisins 1986 verður því
samtals 1.985 m. kr., sem er innan
við 2% af vergri þjóðarframleiðslu.
Sjá nánar „í þinghléi",
bls. 48 í Morgunblaðinu
í dag þar sem fjallað er
um ákvarðanatöku og
fjármögnun vegafram-
kvæmda.
INNLENT
Kaupgengi víxla:
Stansaði til að taka upp farþega
iHorgunDiaoia/Júllus
HARÐUR árekstur varð á Kringlumýrarbraut
í Reykjavík, skammt frá Nesti í Fossvogi, laust
eftir kl. tvö í fyrrinótt. Þar var Mercedes Benz-
fólksbil ekið aftan á leigubil sömu gerðar.
Báðir bílamir skemmdust mikið og eftir því
sem næst verður komið mun farþegi úr leigu-
bilnum hafa verið fluttur í sjúkrahús. Ekki var
vitað um meiðsli hans þegar blaðið fór i loka-
vinnslu.
Áreksturinn mun hafa orðið þegar ökumaður
leigubílsins stansaði til að taka upp farþega.
Þá kom hinn bíllinn sunnan að og skipti engum
togum, að hann lenti aftan á leigubUnum með
afleiðingum, sem sjá má á myndinni hér að
ofan.
Nokkrir aðrir árekstrar urðu í borginni i
fyrrinótt. Alvarlegasta atvikið mun hafa verið
á Melatorgi laust eftir miðnættið, þegar bif-
reið og vélhjól skullu saman. Ökumaður og
farþegi vélhjólsins vom fluttir á slysadeild.
Um meiðsli þeirra var sömuleiðis ókunnugt.
Ávöxtun víxla til langs
tíma hefur hækkað
Vegagerð ríkisins:
Ráðstöfunarfé eingöngu
benzín- og þungaskattur
Kjördæmisþingmenn velja verkþætti
í LOK líðandi árs verða um 1.350
km íslenzkum þjóðvegum lagðir
bundnu slitlagi og hafa þá um
200 km bætzt i góðvegi landsins
á árinu. Stærstur hluti góðveg-
anna, eða hátt i þrír fjórðu, hefur
slitlag úr „klæðningu", þ.e. möl,
sem dreift er yfir oliuborinn veg.
Slitlög em ýmist úr klæðningu,
olíumöl, malbiki eða steinsteypu
og mun umferðarþungi einn
helzti áhrifaþáttur um val efnis
í slitlag. Fjárveitinganefnd Al-
Mj ólkurbikarinn:
Úrslit
í dag
ÚRSLITALEIKURINN í Mjólk;
urbikaraum — bikarkeppni KSI
— fer fram á Laugardalsvellinum
í dag og hefst klukkan 14.
Fram og ÍA leika til úrslita í
þessum stórleik íslenskrar knatt-
spymu, en frá 1973 hefur annað
þessara liða eða bæði leikið úrslita-
leikinn. Fram hefur orðið bikar-
meistari fimm sinnum en ÍA fjórum
sinnum.
Heiðursgestur á leiknum verður
Steingrímur Hermannsson, forsæt-
isráðherra, og mun hann afhenda
sigurlaunin að leik loknum
Sjá nánar á bls. 38 og 39.
Miðneshrepp-
ur 100 ára
Sandgerði.
— en lækkað á þeim sem eru til skemmri tíma
Miðneshreppur minnist hundr-
að ára afmælis síns um þessar
mundir.
Hátíðarhöldin hófust í gær með
hátíðarsamkomu við íþróttahúsið í
Sandgerði. Þar var flutt hátíðar-
ræða og kórsöngur og minnismerki
sjómanna afhjúpað. Þá var opnuð
sjóminjasýning í Björgunarstöð
Slysavamafélagsins. Síðan var
kaffisamsæti fyrir íbúa Miðnes-
hrepps og gesti í samkomuhúsinu.
í dag hefjast hátíðarhöldin kl.
8:00 með golfmóti á Vallarhúsa-
velli. Skrúðganga fer frá samkomu-
húsinu að íþróttahúsinu kl. 12:30
og kl. 13:00 verður hátíðarmessa í
íþróttahúsinu. Íþróttahátíð hefst kl.
15:00. Afmælisins verður minnst á
hverju kvöldi alla vikuna og lýkur
með fjölskylduskemmtun við
íþróttamiðstöðina nk. laugardag og
dansleik um kvöldið.
Jón
1 KJÖLFAR ákvörðunar Lands-
bankans og Búnaðarbankans um
að taka upp sérstakt kaupgengi
á viðskiptavíxla hefur óánægja
aðila í viðskiptalífinu vaxið.
Ávöxtun á víxlum hjá Lands-
bankanum er um 33% á ári
samkvæmt heimildum innan
bankans. Bankamir munu hafa
tekið upp kaupgengið vegna
þrýstings frá Seðlabankanum.
Iðnaðarbankinn varð fyrstur
banka til þess að taka upp sérstakt
kaupgengi á viðskiptavíxlum og
-skuldabréfum. Við þessa breytingu
hafa tekjumar, samkvæmt heimild-
um bankans, ekki aukist. Annar
banki sem tók fljótlega upp kaup-
gengi var Verzlunarbankinn og
Höskuldur Ólafsson bankastjóri
sagði að við það hefðu tekjur bank-
ans af víxlum aukist. Hann benti
hins vegar á að engar kvartanir
hefðu borist frá viðskiptamönnum
bankans.
Þó menn greini á um hvers vegna
bankamir tóku upp kaupgengið, þá
er ljóst að ósjálfstæði bankanna í
vaxtamálum og almenn afkoma
þeirra skipti þar miklu. Seðlabank-
inn ákveður útlánavexti og gjald-
skrá banka og sparisjóða hefur
verið haldið niðri, að sögn banka-
manna. Meginhluti tekna bankanna
eru af þessu tvennu. Samhliða
þessu hefur samkeppni um sparifé
aukist og til að geta boðið spariQár-
eigendum háa innlánsvexti og
stuðlað að betri afkomu hafa bank-
ar og sparisjóðir þurft að leita
annarra leiða. Þar eð okurlögin taka
ekki til þriðjamannsbréfa, eins og
viðskiptavíxla og -skuldabréfa, hafa
bankar getað ávaxtað fé sitt betur.
í þessu sambandi ber þess þó að
geta að hlutdeild viðskipta með
víxla í heildarútlánum er mismikil.
Þannig er þetta hlutfall hjá Lands-
bankanum um 12,7%, í Iðnaðar-
bankanum um 20% og í Verzlunar-
bankanum um 30% svo dæmi séu
tekin úr yflrliti Seðlabanka um inn-
og útlán viðskiptabanka og spari-
sjóða. í heild er þetta hlutfall hjá
innlánsstoftiunum 17,4% — hjá
sparisjóðum 21,4% og viðskipta-
bönkum 16,9%. Ætla má að hlut-
deild viðskiptavíxla í heildarvið-
skiptum með víxla sé um helmingur.
Þeir bankamenn sem rætt var
við bentu á að miðað við gamla
kerfíð hafi ávöxtun á skemmri
víxlum verið mun hærri en nú eftir
að kaupgengi var tekið upp. Ávöxt-
un á víxlum til lengri tíma, t.d. 69
daga, hefur hins vegar hækkað. Á
móti kemur að áður vildu bankar
og sparisjóðir síður kaupa víxla
fyir en líða tók að gjalddaga, þar
sem kostnaður sem þeir reiknuðu
með vó þá þyngra. Nú hefur þetta
breyst og ávöxtun er óháð tíma-
lengd.
Bjöm Ólafsson bygg-
ingameistari látinn
Ástæða til að fagna
nýju útvarpsrásinni
— segir Kjartan Gunnarsson formaður útvarpslaganefndar
„ÞAÐ er mikið ánægjuefni og ástæða til að fagna því að enn ein
útvarpsrás hefur bæst í hópinn," sagði Kjartan Gunnarsson for-
maður útvarpslaganefndar i tilefni opnunar „Bylgjunnar“, nýju
útvarpsstöðvarinnar, sem hóf útsendingar í Reykjavík í vikunni.
„Ég tek undir með forystugrein lega á. Ég hugsa þó að til þess
Morgunblaðsins að þetta séu mik-
il tímamót og merkileg," sagði
Kjartan. „Ég hef hlustað töluvert
á „Bylgjuna" frá því útsendingar
hófust og finnst dagskráin ágæt
og það sem ég hef heyrt af öðru
en tónlist hefur mér litist ágæt-
að stöðin nái fótfestu þurfi dag-
skrárgerðin að verða fjölbreyttari
og að því er stefnt. Það er sérstök
gleðitilfínning að geta valið um
fleiri en eina útvarpsstöð."
Kjartan taldi að áhugi manna
fyrir útvarps- og sjónvarpsrekstri
eftir að breyting varð á útvarps-
lögunum væri eins og við var
búist. Nú hefði bæst við útvarps-
stöð í Reykjavík en aðrir, sem
hafa útvarpsrekstur í huga eru
skemmra á veg komnir og á næst-
unni mun „Islenska sjónvarps-
félagið“ hefja útsendingar sínar.
Þá hafa nefndinni borist fyrir-
spumir frá öðrum landshlutum
um rekstur hljóð- og sjónvarps-
stöðva.
BJÖRN Ólafsson, bygginga-
meistari Hafnarfirði, lést á
fimmtudaginn. Bjöm var kunnur
í Hafnarfirði og víðar fyrir störf
sín og fyrirtækjarekstur, en
hann rak um árabil byggingafyr-
irtæki og trésmiðju.
Bjöm fæddist í Hafnarfírði 13.
desember árið 1924 og voru foreldr-
ar hans þaur Ólafur Þorleifsson og
Sigríður Ólafsdóttir. Ungur hóf
hann nám í byggingariðngreinum
og 19. apríl 1948, er hann fékk
meistarabréf, hóf hann rekstur eig-
in fyrirtækis og á árunum 1967-69
Vom um 80 manns starfandi hjá
honum.
Hann kvæntist árið 1947 eftirlif-
andi konu sinni, Sigríði Jakobs-
dóttur, og áttu þau einn son, Ólaf,
fæddan 8. október 1960.
Björn lét til sín taka á ýmsum
sviðum og var meðal annars í bygg-
ingamefnd Hafnarfjarðar á ámnum
1974-78 og 1982-86. Hann var fé-
lagi í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar og
gegndi þar formennsku eitt ár.
Hann rak trésmiðju B.Ó. til 1-
maí á þessu ári, er hún var seld,
og einnig verslaði hann með bygg',
ingavömr um skeið. Hann byggðl
mörg hús í Hafnarfirði.
Bjöm hafði átt við veikindi að
stríða um allnokkra hríð áður en
hann lést í Borgarspítalanum.