Morgunblaðið - 31.08.1986, Side 20

Morgunblaðið - 31.08.1986, Side 20
20 MORGUNBI>ÐID, SUDlNUDAGyR 31- ÁGÚST 1986 Það vakti heimsathygli er rithöfundurinn Arthur Koestler og kona hans Cynthia frömdu sjálfsmorð saman árið 1983. Reyndar kom ekki á óvart að Arthur hafi gengið skrefið til fulls: hann var bæði háaldraður og haldinn ólæknandi sjúkdómi. Auk þess hafði hann áður lýst yfir því að hann hygð- ist svipta sig lífi og var varaformaður samtaka, sem berjast fyrir líknardrápi. Aðra sögu er að segja um Cynthiu: hún var í blóma lífsins og heilsuhraust að því er nánustu vinir hjónanna töldu. Því vaknaði fljótlega spurningin: Af hveiju ákvað Cynt- hia að fara að dæmi Koestlers? Af þessu spunnust harðvítugar deilur eftir sjálfsmorð Koestler-hjónanna. Að flestra dómi fyrirfór Cynthia sér vegna þess að hún taldi sig ekki geta lifað án Koestiers. Með öðrum orðum væri Koestier sjálfur saklaus, þar sem hann hefði ekki talið Cynthiu á að svipta sig lífi. Aðrir vildu þó ekki hvítþvo rithöfundinn af þessari ákvörðun og töldu að hann bæri siðferðilega ábyrgð á sjálfs- morði konu sinnar. Koestler hefði vitað að Cynthia væri háð sér i einu og öllu: samt hefði hann litið sem ekkert gert til að undir- búa hana undir sjálfsmorð sitt, ekki gefið henni tækifæri til að hefja nýtt lif án hans. Nýlega blossuðu þessar deilur upp að nýju í breska dagblaðinu The Observer þar sem þrír menn, er þekktu vel til Koestler-hjón- anna, lögðu orð i belg: George Mikes, Harold Harris og Stephen Vizinczey. Mikes hefur m.a. skrifað bók um vináttusamband sitt við Koestler. Harris hefur með höndum útgáfu- rétt á verkum Koestlers og Vizinczey er bókmenntagagnrýnandi og rithöfundur. Greinar þeirra birtast hér nær óstyttar í þýðingu og endursögn. - VI Harold Harris: Arthur Koestler á einskis að gjalda VINUR minn George Mikes gekk sjálfsagt vel til í grein sinni Hvers vegna fyrirfór Cynthia Koestler sér, en hann gerði minningu henn- ar engan greiða með því að gefa þá skýringu á sjálfsmorði hennar að hún hafi átt við ólæknandi sjúkdóm að stríða. Það er unnt að hrekja þessa skröksögu á margan hátt. Cynthia hefði aldrei látið undir höfuð leggj- ast að minnast á sjúkdóm sinn í sjálfsmorðsyfirlýsingunni. í annan stað hefði hún átt að bera þess merki að hún væri sjúk síðustu mánuðina fyrir sjálfsmorðið, en að sögn vina hennar var hún við hesta- heilsu. í þriðja lagi er hvergi minnst á krabbamein í skýrslu læknisins sem krufði lík hennar. Og í fjórða lagi bar heimilislæknir Koestler- hjónanna að Cynthia hefði verið við góða heilsu frá árinu 1981 (en þá hóf hann að sinna þeim) til dauða- dags þeirra árið 1983. Hann hefur einnig staðfest í samtali við mig að það væri af og frá að Cynthia hefði verið haidin óiæknandi krabbameinssj úkdómi. Arthur bar ekki ábyrgðina mínum nánustu, Cynthiu, konu minni þó mest af öllum." Cynthia skrifaði bréf 1. mars þar sem hún greindi frá því að maður sinn mundi ekki heimila sýnistök- una. Arthur gat með naumindum undirritað bréfið óstyrkri hendi. Sama dag fól hún dýralækni umsjá hunds síns, David, sem henni þótti afar vænt um. Kvaðst hún ekki lengur hafa tíma til að sjá um hund- inn, þar sem maður hennar þyrfti á allri sinni aðstoð að halda vegna veikindanna. Ég er handviss um að Cynthia hafí gert upp hug sinn þennan morgun, eða nóttina áður; að iíf hennar yrði bókstafiega óbærilegt án Arthurs. Kveðjubréfið Af hverju getur George Mikes ekki horfst í augu við sannleikann? Kveðjubréf Cynthiu hljóðar reyndar ekki alveg eins og tilvitnun Mikes. í raun sagði hún þetta: „Ég hefði kosið að ljúka frásögninni af starfí mínu fyrir Arthur - það er saga sem hófst þegar leiðir okkur lágu fyrst saman árið 1949. Þrátt fyrir minn innri mátt get ég ekki lifað án Art- hurs.“ Þeir kaflar sem hún hafði þá lok- ið við bera vitni ástarsögu sem á sér enga líka. Nánast frá því hún gerðist ritari hans í hlutastarfí árið 1949 til dauðadags 34 árum síðar leið henni ekki vel nema í návist hans. Samt hafði hún lagt hart að sér við að reyna að fara þegar þau voru ekki saman. Arið 1953 festi hún meira að segja ráð sitt og fór til New York og ætlaði að setjast þar að. Cynt- hia og eiginmaðurinn eyddu þar sex vikum saman. Sá tími hefur varla verið skemmtilegur fyrir eigin- manninn. Þegar við hittumst sagði hann mér að hún hafí nánast ekki talað um annað en Arthur. Ein ástæða er til þess að grein Mikes gerði minningu Cynthiu og Arthurs ógagn: í tilgátunni felst nefnilega að hefði Cjmthia ekki haft krabbamein bæri Arthur ábyrgð á dauða hennar. Þessi ósanngjami áfellisdómur virðist ætla að halda velli þrátt fyrir allar þær sannanir sem liggja fyrir um hið gagnstæða. Ég tel að síðustu dagana fyrir sjálfsmorðið hafi Arthur verið ófær andlega og líkamlega um að telja Cynthiu á eitt eða neitt. Þegar ég hitti þau fímm dögum fyrir endalok- in var Arthur svo óskýr og þvoglu- mæltur að ég óttaðist að hann lifði ekki af nóttina. Cynthia talaði við mig næsta dag og sagði mér að Arthur hefði verið haldinn ofskynj- unum kvöldið sem ég heimsótti þau. Öll rök hníga að því að Koestler- hjónin hafí dáið 1. mars (ekki 2. mars, eins og George Mikes telur). Tveimur dögum áður hafði læknir þeirra farið fram á að tekin yrðu vefjasýni úr nára Arthurs vegna æxlis, sem þar hafði myndast. Læknirinn hefur tekið undir þá skoðun mína að Arthur hafi verið í þannig ásigkomulagi að honum hafí reynst ókleift að þræta við Cynthiu um þá ákvörðun hennar að svipta sig lífi með honum. Arthur hafði ekki gert ráð fyrir þessum möguleika þegar hann skrifaði sjálfsmorðsyfírlýsingu sína níu mánuðum áður en hann gekk skrefið til fulls. Kveðjubréfinu lauk með þessum orðum: „Það sem ger- ir mér þó erfiðara um vik er til- hugsunin um þann sársauka sem ákvörðun mín á eftir að valda Hvers vegna fyrirfór Cynthia Koestler sér? eftir George Mikes „Af hveiju tók hann hana með sér“? — Ég hef spurt sjálf- an mig þessarar spurningar að minnsta kosti hundrað sinnum siðan rithöfundurinn Arthur Koestler og kona hans Cynthia frömdu sjálfsmorð saman. Mér fínnst spumingin vera bæði móðgandi og særandi, því að í henni felst að Cynthia hafi ekki dáið af fúsum og fijálsum vilja. Með öðrum orðum hafí Arth- ur talið hana á að fremja sjálfs- morð með sér vegna þess að hann hafí verið hræddur við að deyja einn, eða vantað ritara fyrir hand- an. Með ólæknandi sjúkdóm Þótt ég hafi hafnað þessari skýringu skildi ég undrun fólks á dauða Cynthiu. Arthur þjáðist af tveimur skæðum sjúkdómum: hvítblæði og Parkinsonsveiki, sem gerir fólk ófært til vinnu á hroll- kaldan hátt. Auk þess hafði aldurinn færst yfír hann: stutt var í 78 ára afmæli hans. Cynthia var aftur á móti rúmum 20 árum yngri og við bestu heilsu, að því er vinir hennar segja. Að mínum dómi var því ekki nema eðlilegt að velta fyrir sér ástæðu þess að hún svipti sig lífí. Enginn veit með vissu hvað þeim hjónum fór í milli dagana fyrir 2. mars 1983, en þá fyrir- fóru þau sér. En ég þekkti þau bæði vel og hef getið mér til um það. Tilgáta mín virðist koma heim og saman við staðreyndir og kynni mín af Cynthiu. Ég held að ég viti sannleikann í málinu og geti útskýrt af hveiju Cynthia Koestler dó. Reyndi að breyta heiminum Við vitum hvað Arthur Koestler gekk til. Láfsferill hans bar því vitni að hann var alla tíð baráttu- maður, sem braut allar brýr að baki sér til að ná markmiði sínu. Ef til vill var hann öðru fremur umbótasinni. Mér sjálfum fínnst ýmislegt í þessum heimi heimsku- legt og svívirðilegt, en ég yppi öxlum og læt lífið hafa sinn vana-, gang. Arthur var öðru vísi manngerð: hann reyndi að breyta heiminum. Hann óttaðist ekkert; þótti ekkert verkefni svo lítilvægt eða ómerkilegt að ekki væri þess virði að takast á við það. Ef við byrjum á hinu smávægi- lega: krossgátuspilinu (Scrabble). Flestir, sem fá áhuga á þessu spili, kaupa sér það, læra reglum- ar og he§a leikinn. Öðru máli gegndi með Arthur. Hann keypti spilið og breytti reglunum að vild. Ef einhver þátttakenda, sem lék með Koestler, dró þijá eins stafí í krossgátuleiknum gat sá hinn sami gefíð frá sér einn staf og dregið annan í staðinn. Það var hrein og bein ósanngimi örlag- anna að láta einhvem draga þijá eins stafi. Því varð að leiðrétta mistökin! Samkvæmt reglunum fær sá sem leggur niður alla sjö stafina 50 aukastig. Þetta nægði Koestler ekki; hann hagaði því svo til að legði einhver niður sex stafí var viðkomandi verðlaunaður með 25 aukastigum. Þetta eru aðeins tvær breytingar af mörgum sem Koestler gerði á krossgátuleikn- um. En það sló mig að Koestler skyldi breyta reglum sem milljón- ir manna færu eftir. Auk þess sem Koestler lék krossgátuspilið eftir eigin höfði var honum umhugað um að betr- umbæta þjóðfélagið, í raun allan heiminn. Og til sanns vegar má færa að honum hafí tekist það að sumu leyti. Skáldverk hans Le Zero et l’Infinie (Myrkur um miðj- an dag) átti t.d. verulegan þátt í því að Frakkar gengu ekki komm- únismanum á vald eftir seinni heimsstyijöld. Og hann afnam (vitaskuld ekki einn síns liðs) dauðarefsingu í heimalandi sínu. Af sama áræði og ákveðni gekk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.