Morgunblaðið - 31.08.1986, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1986
V estur-Þýskaland:
Jafnaðarmenn binda
vonir sínar við Rau
— eftir Önnu Bjarnadóttur
JAFNAÐARMENN í Vestur-Þýskalandi tóku ósigrinum í síðustu
þingkosningum með jafnaðargeði. Fijálslyndir demókratar brugðust
þeim í stjórnarsamstarfinu árið 1982 og Helmut Schmidt, kanslari,
átti ekki annarra kosta völ en að segja af sér fyrir hönd flokks síns
fyrir lok kjörtímabilsins. Kristilegir demókratar, með Helmut Kohl
í broddi fylkingar, komust til valda eftir þrettán ára stjómarand-
stöðu. Kohl vann kosningarnar 1983 með 48,8% atkvæða og sam-
steypustjóm kristilegra og fijálslyndra demókrata hélt starfi sínu
áfram. Jafnaðarmenn litu raunsætt á stöðuna. Peter Glotz, einn
helsti hugmyndafræðingur þeirra, sagði að það hefði verið óum-
flýjanlegt að Kohl yrði við völd
lýkur árið 1987,“ sagði Glotz.
Nú eru aðeins tæpir fímm mán-
uðir fram að næstu þingkosningum,
þær verða haldnar 25. janúar 1987,
en jafnaðarmenn eru síður en svo
öruggir um sigur. Flest bendir til
að „söngur" Kohls og Martins
Bangemann, formanns ftjálslyndra,
haldi áfram að kosningunum lokn-
um. Stjómarflokkamir hafa 51%
fylgi samanlagt samkvæmt nýjustu
skoðanakönnunum. Jafnaðarmenn
hafa þó ekki gefist upp. Þeir vita
að baráttan framundan er hörð og
tóku því höndum saman á nýaf-
stöðnum landsfundi flokksins í
NÚmberg og kusu Johannes Rau,
forsætisráðherra Nordrhein-West-
falen, kanslaraefni flokksins með
425 atkvæðum gegn 1. Þeir binda
nú allar vonir sínar við Rau. Hann
á að feta í fótspor Willys Brandt
og Schmidts í Bonn.
Atkvæðakonungur
jafnaðarmanna
Johannes Rau óskaði sjálfur eftir
leynilegri atkvæðagreiðslu um út-
i heilt kjörtímabil. „En söng hans
nefningu sína sem kanslaraefni
flokksins. Hann er íhaldssamari í
skoðunum en þeir sem hafa haft
hæst í Jafnaðarmannaflokknum að
undanfömu og kjörorð hans „sættir
í stað klofnings" á ekki upp á pall-
borðið hjá öllum. En jafnaðarmenn
gera sér grein fyrir að framtíð
flokksins er undir því komin að
hann hljóti stuðning íhaldssamari
kjósenda, sem eru ekki allsendis
ánægðir með stjómarflokkana og
frambjóðendur þeirra, til viðbótar
við fastafylgi sitt. Græningjar hlutu
ekki nema 5,6% atkvæða í síðustu
þingkosningum og hafa nú um 7%
fylgi í skoðanakönnunum. Lausa-
fylgið sem jafnaðarmenn geta náð
af þeim á vinstri væng stjómmál-
anna er því takmarkað. Flokkurinn
hefur þar af leiðandi ákveðið að
halda á mið fhaldssamari kjósenda
og Rau er kjörinn leiðtogi til þess.
Hann er 55 ára gamall, guð-
hræddur, hress og vingjamlegur.
Hann var piparsveinn til 51 árs ald-
urs en giftist þá bamabami Gustavs
Heinemann, fv. forseta V-Þýska-
lands. Þau hjónin eiga tvö böm.
Rau var vinur og samstarfsmaður
Heinemanns og var félagi í friðar-
sinnaflokki hans á sjötta áratugn-
um. Þeir gengu saman í Jafnaðar-
mannafíokkinn árið 1957. Hann
varð viðskiptaráðherra Nordrhein-
Westfalen árið 1970 og gegndi því
embætti þangað til hann var kjörinn
forsætisráðherra árið 1978. Stjóm-
málabaráttan í stærsta landi
Vestur-Þýskalands er oft hörð en
Rau hefur tekist að halda vináttu
þeirra sem hann hefur sigrað í inn-
anflokksbaráttu jafnaðarmanna og
flokknum hefur vegnað vel undir
hans stjóm. Hann hefur hlotið
meirihluta atkvæða í öllum kosning-
um í Nordrhein-Westfalen síðan
1980.
Það er helst haft á móti Rau að
hann sé frekar litlaus p>ólitíkus,
þyki linur og helst til samningslipur
og hann er sagður eiga erfitt með
að taka ákvarðanir. Hann tilheyrir
hægri væng Jafnaðarmannaflokks-
ins og segir stjómarsamstarf með
Græningjum ekki koma til greina.
Hann er framfarasinni en laus við
róttækni og á margt meira sameig-
inlegt með kristilegum demókrötum
en sósíalistum sem ávarpa hann
„bróðir Jóhannes" á flokksvett-
vangi. Ýmsir frammámenn í flokkn-
um, eins og Oskar Lafontaine sem
starfar með Græningjum í sljóm
Saar, em mun róttækari en Rau.
Reynslan hefur sýnt að Rau gengur
' Johannes Rau fagnar eftir að hafa verið kjörinn kanslaraefni jafnað-
armanna. Fremstur á myndinni er Willy Brandt, sem var endurkjör-
inn flokksformaður.
betur í kosningum en þeim og þeir
verða að viðurkenna, eins og La-
fontaine gerði nýlega í viðtali við
vikutímaritið Spiegel, að skoðanir
hans og stefna hafí áhrif á vinsæld-
ir hans.
Banna kjarnorkuver
og fjarlægja
kjarnorkuvopn
Rau talaði í tæpar tvær klukku-
stundir á landsfundi jafnaðar-
manna. Hann þótti sýna nokkra
mælskulist og var fagnað lengi og
innilega að ræðu lokinni. Hann lagði
megináherslu á atvinnumál og kvað
Kohl-stjómina hafa bmgðist at-
vinnulausum á kjörtímabilinu.
Ástandið í efnahagsmálum í Vest-
ur-Þýskalandi er yfirleitt gott en
atvinnuleysi hefur aukist á undan-
fömum ámm og er nú 8%. Rau
sagði að umbóta væri þörf í at-
vinnulífinu og lagði meðal annars
til að nýr 5% skattur á hina tekju-
hæstu yrði notaður til að skapa
atvinnu fyrir ungt fólk sem er að
koma út í atvinnulífið í fyrsta sinn.
II
SKIPTIBÓKAMARKAÐUR
- sumarlaunin þín endast lengur
Pú þarft ekki að fletta lengi í stærðfræðibókinni þinni frá í
fyrra til að reikna út, að það getur borgað sig að skipta við
Skiptibókamarkað Eymundsson í Austurstræti. Fjörugan
markað með notaðar kennslubækur.
Viðskiptumst á.
ÍSLENSKA
Islensk málfrœðl II / Krístján Árnason
- 2. útg. 1983.
fslentk málfrœðl / Björn Guðfinnsson -1985
fslensk setnlngarfrœðl / Björn Guöfinnsson,
2. útg.
fslenskar bókmenntlr til 1550 / Baldur
Jönsson
Stafsetningarorðabök - 3. útg. 1980
DANSKA
Dönsk-islensk orðabók - Isafold 1973
fslensk-dönsk orðabók - isafold 1976
Gyldendals ordbog tor skole og hjem
Nu-Dansk Ordbog etblndsudgave
Nu-Dansk Ordbog 12. udgave
Zappa
Nár snerlen Blomstrer
Kesses Krig
Ned med nakken
Tændstlkieg
Som de vil ha’ dig
ENSKA
Ensk-fslensk orðabók - Isafold 1976
fslensk-ensk orðabók - Isafold 1983
Longmans Contemporary English
Dictlonary
Oxford Advanced Leamers Dlct. ot
Current Engllsh (revised and regularly
updated).
Exploring English Book 3, lesbók
Thinking English Book 4, lesbók
Z for Zacharla
First Certiflcate Skllls, lesbók
Longman Advanced English
New proficiency English Book 2
Tales of Mystery & Imaglnatlon
Twontleth Century Engllsh short storles
The Secret Dlary of Adrian Mole
The Evil of Mr. Happlness
Hotel (einfölduð)
Background to U.S.A.
Meanlng Into words (rauð), lesbók
Now Read On
Being There
The woman who dlsappeared
Trlstan and Isold
The World Ahead
Mother Nlght
Streamllne, Destinatlons, lesbök
Streamllne, Dlrectlons, lesbók
The Growing Pains of Adrlan Mole
Perll at End House
Modern short storles f. students of Engllsh
Reading Llterature
Across the Barrlcades
Liar
A Remedial English Grammar
Twelfth Night
And then there were none
Practice in the use of English
Frankensteln’s Aunt
Background to Britain
Basic Worklng Grammar, workbook
Grammar In Context
ÞÝSKA
Pýsk-fslensk orðabók - isafold 1982
Pýska fyrir framhaldsskóla, lesbók
Deutsch fúr junge Leute, lesbók
Schúlerduden, Bedeutungswörterbuch
Deutsch Sprechen Im Alltag
Kontakt mlt der Zelt
Elnfach Gesagt
Wle kommt das Salz in Meer
Der Tod In Rom
Deutsch Aktlv, lesbók
Wir kinder vom Bahnhof Zoo
Angst essen seele auf
FRANSKA
Ágrip af franskrl málfræðl / Herdís
Vigfúsdóttir
Islensk-frönsk orðabók - Isafold 1950
Le Micro Robert
Le Petit Prlnce
Huls close
C’est Ca 1, lesbók
Les vacances du petit Nicolas
Le nouveau Pecherelle (rauöar sagnir)
LATÍNA
Latnesk lestrarbók / Kristinn Ármannsson - 2 pr. 1971
Latnesk málfræðl / Kristinn Armannsson -3. útg. 1971
SAGA
Frá elnveldi tll lýðveldls / Heimir Porleifsson - AB 1981
Frá samfélagsmyndun tll sjálfstæðisbar-
áttu / Lýður Björnsson - AB 1983
Pættlr úr sögu nýaldar / Helgi Skúli
Kjarlansson - Isafold 1976
ANNAÐ
Eðllsfræðl 1b - 2c / Staffanson o.fl.
Lfffræðl / Colin Clegg - 1985
þú GFÆ&/X.
nuUDmdfALL
Þú grceðir HUNDRAÐKALL á f?ví að kaupa reikningsbœkurnar
og stílabœkurnar hjá okkur.
Tveir 5 stykkja pakkar eru 100 krónum ódýrari en almennt gerist.
Láttu sjá þig. Sumarlaunin þín endast lengur, látirðu stærðfræði-
bókina þína frá í fyrra vísa þér veginn - í Austurstrætið:
EYMUNDSSON
Tryggur fylginautur skólafólks í meiren lOOár