Morgunblaðið - 31.08.1986, Page 38
38__________ MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDÁGÚR 31. ÁdÚST 1986 ~\
Mjólkurbikarinn — bikarkeppni KSI
Þetta verður góður
— segir Guðmundur Steinsson, fyrirliði Fram
„ÉG ER sannfærður um að þetta
verður góður leikur tveggja létt-
leikandi liða,“ sagði Guðmundur
Steinsson, fyrirliði Fram, sem
leikur sinn sjötta bikarúrslitaleik
á sunnudaginn. Guðmundur er
26 ára og á að baki 172 leiki með
meistaraflokki Fram og hefur
leikið 11 landsleiki.
„Leikurinn leggst vel í mig. Það
*Ver alltaf ákveðin stemmning í
kringum bikarúrslitaleik," sagöi
Guðmundur.
— Nú hafa Skagamenn verið
að sækja f sig veðrið í deildar-
keppninni, hver er helsti styrk-
leiki þeirra nú?
„Skagamenn eru með gott lið
og reynda leikmenn. Ég hef ekki
séð Skagaliðið leika síðan Pétur
kom til liðsins en hann hefur greini-
lega breytt liðinu til hins betra. Við
töpuðum fyrir ÍA eftir framlengingu
í bikarúrslitaleiknum 1984, 2:1, og
eigum því harma að hefna núna.“
— Vill fyrirliðinn spá um úrslit
leiksins?
„Nei ég vil ekki spá neinum
tölum en ég gæti trúað að það
yrði mikið skorað og við stefnum
að sjálfsögðu á að skora meira en
þeir.“
— Nú hefur gengi ykkar ekki
verið mjög gott i deildinni að
undanförnu, þið hafið tapað niður
sjö stiga forskoti sem þið höfðuð
á tímabili. Er liðið að ná sér upp
aftur?
„Já, ég held það. Við áttum góð-
an leik gegn ÍBK í bikarkeppninni
og svo var leikurinn í Eyjum í deild-
inni um síðustu helgi góður. Við
reynum bara að spila okkar bolta
og ef það tekst er ég hvergi smeyk-
ur.“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Afram Framarar!!
• Starfsfólk IBM er staðráðið í að fjölmenna á völlinn í dag og styðja við bakið á Bikarmeísturum
Fram þannig að liðið tryggi sér sigur í keppninni eins og f fyrra. Hluti þeirra sem ætlar á leikinn
skellti sér út í góða veðrið fyrir Morgunblaðið og skreytti sig réttum litum, hvrtu og bláu og setti
jafnvel upp húfur. Áfram Framll
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áfram Skagamenn!!
• Starfsfólk Arnarflugs ætlar á úrslftaleikinn í Bíkarnum og styðja sfna menn sem að sjálfsögðu
er það lið sem hefur merki fyrirtækisins á brjóstinu, Skagamenn. Þessi mynd var tekin fyrir utan
skrifstofu Arnarflugs þegar hluti starfsfólksins var að gera sig klárt á völlinn. Áfram Akranesl!
• Guðmundur Steinsson var markakóngur 1. deildar fyrír 2 árum
• Sigurður Lárusson hefur leikið 242 meistaraflokksleiki
Sigurður Lárusson fyrirliði ÍA:
Verðum að
ná toppleik
til að vinna
„ÞETTA verður mjög opinn og
skemmtilegur leikur. Yfirleitt hafa
þessi lið leikið léttan bolta og
hafa á að skipa leikreyndum
mönnum. Ef aðstæður verða góð-
ar verður þetta toppleikur,“ sagði
Sigurður Lárusson, fyrirliði IA,
um bikarúrslitaleikinn á sunnu-
daginn.
Sigurður er 32 ára og hefur lengi
verið í eldlínunni. Hann hóf knatt-
spyrnuferil sinn hjá Þór á Akureyri
en fluttist upp á Akranes 1979 og
hefur leikið með þeim síðan. Hann
hefur leikið 242 leiki fyrir ÍA og
skorað alls 27 mörk.
„Stemmningin yfir bikarúrslita-
leik er alltaf mikil. Þessi leikur er
alltaf púrraður upp og bikarinn
stendur á borði við völlinn, heið-
ursgestur heilsar leikmönnum sem
gerir þetta allt mjög skemmtilegt
og sumir leikmenn fá svona smá
skjálfta."
— Hefur tilkoma Péturs breytt
miklu í liði ykkar?
„Já, Pétur er góður leikmaður
og spilar mjög vel og það er mjög
gott að spila með honum. Hann
og Karl Þórðarson eru skemmti-
legustu leikmenn sem ég hef
spilað með. Það þarf þó alltaf 11
leikmenn til að vinna leik.“
— Hver er helsti styrkleiki
Framliðsins að þínu mati?
„Guðmundarnir eru erfiðir en
vandamálin eru til að leysa þau.
Það er hægt. Pétur Ormslev og
Gauti Laxdal eru einnig mjög sterk-
ir miðjuleikmenn og svo er Ormarr
Örlygsson mjög skynsamur spilari.
Við þurfum að ná toppleik til að
vinna þá."
— Vill fyrirliðinn spá um úrslit
leiksins?
„Nei, engar tölur. Framarar eru
erfiðustu andstæðingar sem við
gátum fengið í úrslitaleik."