Morgunblaðið - 31.08.1986, Side 40

Morgunblaðið - 31.08.1986, Side 40
MOfiGUNBLAÐIÐ, SUNtyUDAGUR 31. ÁGÚST .1936 40 sem haldið var á Víðivöllum í Reykjavík. Þótti umsjónarmanni „Hesta“ þá bera vel í veiði og voru þeir Björn og Hrímnir fengnir til að „sitja fyrir" í fögru umhverfí Rauðhólanna. langur svanaháls- inn, vel settur höfuðburður, mikill og rúmur fótaburður ásamt lip- urri reiðmennsku Björns gerir þetta að slíku augnayndi að engan samjöfnuð þolir. Er hann ekki fegurstur gæðinga? ________Hestar Valdimar Kristinsson Lengst af hafa hesta- menn ekki verið sammála um hvaða hestur sé best kom- inn að þessum titli því smekkur manna er misjafn og ekki hvað síst þegar hestar eiga hlut að máli. Sumarið 1980 fór að kvisast suður yfir heiðar að á Varmalæk í Skagafirði væri í uppsiglingu ungur hestursem þætti með af- brigðum glæsilegur. Hafði hann verið sýndur í bæjarkeppni (sbr. fírmakeppni) á Vindheimamelum, og hafnað þar í þriðja sæti. í ágústbyijun var þetta „undur" sýnt á gæðingakeppni á sama stað og sigraði hann þar í keppni klár- hesta með tölti með nokkru m yfírburðum. Þama fékkst stað- festing á að fram væri kominn hesturinn sem bæri af fyrir feg- urð og glæsileika, hestur sem átti engan sinn líka meðal íslenskra hesta. Hesturinn sem hér um ræðir er Hrimnir frá Hrafnagili, en hann átti eftir að koma fram á tveimur mótum í keppni næstu tvö árin og var aldrei neinum vafa bundið hvarsigurinn lenti. Árið 1981 mætti eigandi hestsins, Björn Sveinsson frá Varmalæk, með hann á íslandsmótið á Melgerðis- melum og kepptu þeir í tölti. Árið eftir var það landsmótið á Vind- heimamelum og þar sigraði Hrímnir eftii-minnilega og barst hróður hans út fyrir landsteinana. Upp úr þessu fóru tilboðin að streyma að en Bjöm var fastur á því að hesturinn skyldi áfram í hans eigu þrátt fyrir ævintýraleg boð. Eftir iandsmótið hefur Hrímnir ekki tekið þátt í keppni en þrisvar hefur hestaunnendum gefíst kost- ur á að sjá hestinn á opinberum sýningum. Á „Hestadögum í Garðabæ" sýndi Bjöm hann í hóp- sýningu Félags tamningamanna og einnig kom hann fram í eftir- minnilegu atriði þar sem sýndar voru stjömur liðinna ára. I fyrra kom hann svo fram á Vindheima- melum þar sem komu fram Islandsmeistarar í tölti ’81, ’82, ’83, ’84 og ’85. Nú fyrir skömmu var hann svo sýndur á hliðstæðri sýningu á nýafstöðnu íslandsmóti „Fegurstur gæðiuga"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.