Morgunblaðið - 31.08.1986, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1986
49
Eldhuskrókurinn
Lax á ýmsa vegfu
Lax með eplum
Fyrir 4.
750 gr lax, 1 laukur, saxaður, 8
hvít piparkom, 50 gr smjör, 2
epli, 2 dl. þurr Vermouth, 2 dl.
ijómi, salt+pipar, sítrónusafi.
Roðflettið og beinhreinsið lax-
inn. Roð og bein síðan soðin í 20
mínútur í 'A lítra af vatni ásamt
piparkomum og saxaða lauknum.
Þegar þetta er soðið er það sigtað.
Laxinn skorinn í 4 stykki,
kryddaður með salti og pipar, og
steiktur í 2 mínútur á hvorri hlið
í smjöri á pönnu. Síðan tekinn af
pönnunni.
Eplin skræld og skorin í þunna
báta og bitamir látnir á pönnuna
til að krauma þar smástund. Þá
er fisksoðinu, Vermouth og ijóm-
anum hellt yfir og allt látið
smá-sjóða þar til magnið hefur
minnkað um sem næst helming.
Sósan síðan krydduð eftir smekk
með salti, pipar og dálitlum
sítrónusafa. Laxastykkin sett of-
an á sósuna og síðan borið fram
með soðnum kartöflum sem stráð
hefur verið yfir steinselju.
Perú:
Arásir á
ráðuneyti
Lima, Perú, AP.
VINSTRISINNAÐIR skæruliðar
gerðu sprengjuárásir á þrjú
ráðuneyti í Lima, höfuðborg
Perú, á miðvikudag. Enginn sias-
aðist í þessum árásum. Skæru-
liðahreyfing, sem hlynnt er
Kúbumönnum, hefur lýst á hend-
ur sér ábyrgð á árásunum.
Tilkynnt var í gær að 20 manns
hefur fallið í átökum í hálendi Perú
undanfarið. Af þessum 20 féllu 12
skæruliðar í hreyfingunni Hin
bjarta leið í átökum við lögreglu.
Sú hreyfíng aðhyllist hugmyndir
Maós.
Mexíkó fær
1,6 milljarða
Washington, AP.
Bandaríkjastjórn tilkynnti sl.
miðvikudag að hún samþykkti
fyrir sitt leyti að Mexíkóstjóm
fengi 1,6 milljarða dollara lán til
þess að brúa bil uns frekari lán
fengjust.
Talið er að Mexíkanar skuldi nú
um 97,7 milljarða dollara og eru
árlegar vaxtagreiðslur þeim mjög
erfiðar. Art Siddon, talsmaður
bandaríska Qármálaráðuneytisins,
sagði, að bandarísk stjómvöld
myndu leggja fram 545 milljónir
dollara í hinu nýja láni. 15 önnur
ríki myndu leggja fram 555 milljón-
ir og einkabankar um 500 milljónir.
Grillsteiktur lax
með agúrkusósu
Fyrir 4.
4 fallegar sneiðar af nýjum laxi
eru penslaðar með olíu og krydd-
aðar með salti og dilli. Svo grillað-
ar, annaðhvort í ofni eða á
útigrillinu.
Sósan: 1 skræld, meðalstór
agúrka.skoriníþunnars-
neiðNOJar.21/ dl. hvítvín, 1. dl
fisksoð
(teningur), allt sett í pott með 50
gr. af smjöri. Látið smásjóða,
kryddað með salti og pipar, og
jafnvel meira af hvítvíni.
Látið sjóða þar til það er orðið
þykkt. Sósan látin á diskana og
grilluð laxastykkin ofan á, sbr.
mynd.
Laxasalat
Fyrir 4.
Reyktur lax, um 200 gr, þunnt
sneiddur, 1 agúrka, 4 harðsoðin
egg, 1 búnt dill.
Sósan: 3 matsk. majónsósa, 3
matsk. ijómi, 1 tesk. piparrót, 1
matsk. sítrónusafni, aðeins salt+
pipar.
Agúrkan skorin í þunnar sneið-
ar og skipt á 4 diska. Þar ofan á
laxasneiðamar. Hvert egg skorið
í tvennt eftir lengdinni og tveir
helmingar settir á hvem disk.
Dill þvegið og smávegis tekið frá
til skrauts, hitt saxað smátt. Öllu
efni í sósuna blandað saman og
sett í skál og saxaða dillinu bætt
út í síðast. Sósunni hellt yfír salat-
ið á diskunum og skreytt með
dill-greinum.
Borið fram með snittubrauði
og smjöri.
Laxa-stappa
Fyrir 4.
200 gr soðinn lax, beinlaus,
salt og pipar, 1 matsk. sherry,
25 gr smjör, 2 matsk. hveiti, 3
dl. mjólk, 3 matsk. sýrður rjómi,
íssalat í skreytingu.
Tætið laxinn í sundur með
gaffli og dreifíð yfír salti, pipar
og sherryi.
Bakið upp sósu úr smjörinu,
hveitinu og mjólkinni. Látið fisk-
inn út í sósuna og hrærið í
hrærivél þar til stappan er vel
blönduð. Þá er sýrða ijómanum
blandað út í.
Jafnað í 4 litlar skálar og látið
standa í kætiskáp í minnst 30
mínútur. Skreytt með smátt
skomu íssalati (iceberg) eða eftir
smekk.
Borðað með grófu brauði og
smjöri, og eitthvað kalt og gott
dmkkið með.