Morgunblaðið - 31.08.1986, Side 53

Morgunblaðið - 31.08.1986, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1986 53 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Leikarar, tónlistar- og myndlistarfólk Miðlun hefur um margra ára skeið gefið út mánaðarleg úrklippuhefti um leiklist, tónlist og myndlist. Nú leitum við eftir áhugasömu fólki t.d. leikurum, málurum, hljóðfæraleikur- um eða öðrum sem vel þekkja þessi listasvið, til að selja og kynna þessi hefti. Um er að ræða nokkurs konar umboðsmennsku og verða því viðkomandi algjörlega sjálfráðir um framkvæmd, s.s. vinnutíma og aðferðir. Góð- ir tekjumöguleikar fyrir rétta fólkið. Áhugasamir aðilar eru beðnir um að senda umsókn til augldeild. Mbl. merkt: „L — 8068“ eða til Miðlunar, Ægisgötu 7, fyrir 4. sept. Óskum að ráða blikksmiði og málmiðnaðarmenn. Einnig vantar okkur duglega verkamenn í einangr- unarvinnu í flugstöðina í Keflavík. Upplýsingar hjá verkstjóra. Blikk & Stál hf., Bíldshöfða 12, sími 686666. Skrifstofustarf Við leitum að starfskrafti til almennra skrif- stofustarfa, svo sem vélritun, telex og tölvu- vinnslu. Umsækjandi með þekkingu á ensku og sænsku (Norðurlandamáli) situr fyrir. Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf þarf að berast blaðinu fyrir 4. sept- ember nk. Merkt: „P — 3160“. Tæknivörur: sölumaður Öflugt, deildaskipt þjónustufyrirtæki vill ráða sölumann til starfa. Sölumaðurinn kemur til með að sinna sölu- stjórnun og stefnumörkun, daglegri sölu og innlendum og erlendum viðskiptasambönd- um. Sölumaðurinn þarf að hafa víðtæka og góða reynslu af sölustörfum, stjórnunarhæfileika, geta unnið skipulega og sjálfstætt og eiga gott með samstarf. Tækniþekking æskileg. Gott fyrirtæki með góðum möguleikum fyrir réttan mann. Nánari upplýsingar veitir Holger Torp. Um- sóknir skilist fyrir 8. september nk. Starfsmaður fjárveitinganefndar Alþingis Fjárlaga- og hagsýslustofnun auglýsir lausa til umsóknar stöðu starfsmanns fjárveitinga- nefndar frá 1. október 1986 að telja.Starfs- maður fjárveitinganefndar er ráðinn hjá fjárlaga- og hagsýslustofnun og vinnur að undirbúningi fjárlaga og öðrum verkefnum. Æskilegt er að umsækjandi hafi háskóla- menntun. Umsóknum er greini frá menntun og fyrri störfum umsækjanda skal skilað til fjárlaga- og hagsýslustofnunar Arnarhvoli eigi síðar en 15. sept. nk. Vélaverkfræðingur Við leitum að vélaverkfræðingi til starfa hjá verkfræðistofu. Starfið felst í almennum ráð- gjafastörfum. Starfið krefst sjálfstæðis. Reynsla æskileg. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu okkar og er þar svarað frekari fyrirspurnum. Hannarr RÁÐGJAFAÞJÓNUSTA Síðumúla 1 108 Reykjavik Sími 687311 Rekstrarráðgjöf. Fjárfestingamat. Skipulagvinnustaða. Markaðsráðgjöf. Aætlanagerð. Framleiðslustýrikerfi. Tölvuþjónusta. Launakerfi. Stjórnskipulag o.fl. Höfn í Hornafirði Á Höfn eru lausar eftirtaldar stöður: Hafnar- og Heppuskólar ☆ Almenn kennsla í 0-6. bekk. ☆ íþróttakennsla í 0-9. bekk. ☆ Stuðningskennsla 0-9. bekk. ☆ Enskukennsla í 7-9. bekk. ☆ Félagsráðgjafi. Leikskóli Fóstrur! Kannið málið. Ýmis hlunnindi. Upplýsingar gefa skólastjórar í síma 97-8321 eða 97-8148. Sölustjóri — markaðsstjóri Óskum að ráða mann til að skipuleggja markaðsmál, kynna nýjar vörutegundir og taka þátt í að móta framtíðar sölu- og mark- aðsstefnu fyrirtækisins. Við leitum að manni með mikla reynslu, helst á sviði matvöru- verslunar, góða menntun, viðskiptamenntun og tungumálakunnáttu (ensku), ríkt ímyndun- arafl og góða framkomu, á aldrinum 25 til 40 ára. Einungis harðduglegur maður sem getur starfað undir miklu álagi og er tilbúinn að leggja á sig mikla vinnu kemur til greina. Fyrir slíkan starfskraft eru í boði góð laun, ásamt góðri starfsaðstöðu. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf og meðmælum ósk- ast sendar. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. íslensk—Ameríska hf., Tunguhálsi 11, pósthólf 10200, 130 Reykjavík. Herrahúsið Bankastræti vantarafgreiðslumann strax. Framtíðarstarf. Upplýsingar í Herrahúsinu, Bankastræti 7, sími 29122. Meinatæknir óskast Fjármálaráðuneytið, fjárlaga- og hagsýslustofnun, Arnarhvoli, 26. ágúst 1986. i hálft starf (f. h.) við rannsóknarstofu í ör- verufræði við tannlæknadeild Háskóla íslands. Upplýsingar veitir Peter Holbrook í síma 16587 eða 28688 virka daga f. hádegi. Sölufólk Miðlun er fyrirtæki sem starfar að upplýsinga- þjónustu. Fyrirtækið skiptist í þrjár deildir, útgáfudeild, upplýsingadeild og markaðsdeild. Útgáfudeild Miðlunar er umsvifamikil í útgáfu á upplýsingum fyrir viðskipta- og atvinnulífið. Söfnun, vinnsla og sala blaðaúrklippubóka er meirihluti starfseminnar í dag. Við leitum að sölufólki í útgáfudeild til að selja blaðaefni til fyrirtækja og einstaklinga í gegnum síma og með heimsóknum. Um er aðræða V2 dags störf, sem hentað gætu vel t.d. fyrir háskólafólk. Viðkomandi þurfa að hafa yfir bíl að ráða, hafa góða og eðli- lega framkomu og geta hafið störf strax. Reynsla af sölumennsku er æskileg, en ekki nauðsynleg. Umsókn þarf að berast til augldeild. Mbl. merkt: „Miðlun — 8067“ fyrir 4. sept. Vantar þig vinnu? eða viltu breyta til? ef svo er þá vantar okkur hjá Sláturfélagi Suðurlands duglega og eljusama einstakl- inga af báðum kynjum til ýmissa framtíðar- starfa í fyrirtækinu. Störf þessi eru m.a. við: ★ afgreiðslustörf í S.S. búðunum. ★ Framleiðslustörf í kjötiðnaðardeild. ★ Afgreiðslustörf í söludeild búvara. ★ Móttaka og afhending kjötafurða. ★ Framleiðslustörf í framleiðslueldhúsi. ★ Bifreiðarstjóra með meirapróf í söludeild búvara. ★ Starfsmann á lyftara. Allar nánari upplýsingar um störf þessi veit- ir starfsmannastjóri á skrifstofu félagsins að Frakkastíg 1, Reykjavík. Sláturfélag Suðurlands, starfsmannahald. Reikningsskil — áætlanagerð Maður með víðtæka þekkingu á öllum sviðum nútíma reikningshalds vill taka að sér ábyrgð- arstarf í fyrirtæki þar sem fyrir hendi er skilningur á mikilvægi reikningsskila sem stjórntæki og vilji til að hagnýta þau. Hefur mikla reynslu í uppbyggingu alhliða reikningshalds með tíðum tímanlegum upp- gjörum og skýrslugerðum með hjálp tölva og forrita. Vinsamlegast hafið samband við augld. Mbl. fyrir fimmtudagskvöld merkt: „F — 1917“. Enn er hægt að koma miklu til leiðar fyrir áramót. Fullum trúnaði heitið og óskað. Endurskoðun Endurskoðunarskrifstofa í Reykjavík óskar eftir að ráða viðskiptafræðing útskrifaðan af endurskoðunarkjörsviði. Um er að ræða starf í útibúi skrifstofunnar úti á landi. Við leitum að manni sem áhuga hefur á bók- halds-, uppgjörs- og endurskoðunarstörfum. Æskilegt er að umsækjandi hafi einhverja reynslu af skrifstofustörfum, en það er ekki skilyrði. Umsóknir leggist inn á augldeild Mbl. merktar: „ES — 007“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.