Morgunblaðið - 31.08.1986, Side 66
MQjRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR. 31. ÁGÚST .1986
IÞROTTIR UNGLINGA
UMSJÓN/Vilmar Pétursson
j
Mikill hraði og
glæsileg mörk
— einkenndu bikarúrslitaleik 2. flokks karla
Fimmtudagskvöldið si'ðastliðið
fór fram úrslitaleikurinn í bikar-
keppni 2. flokks pilta og áttust
þar við lið Fram og KR. Lið þessi
hafa sýnt það f sumar að þau eru
að öðrum liðum ólöstuðum þau
bestu í þessum aldursflokki. Það
voru KR-ingar sem fóru með sigur
af hólmi eftir mjög fjörugan leik
en lokatölur leiksins urðu fjögur
mörk gegn tveimur eftir að jafnt
hafði verið í leikhlói, 2:2
KR-ingar byrjuðu leikinn mun
betur og eftir 15 mínútur náðu
þeir forystunni. Markið skoraði fyr-
irliðinn Sigurður Valtýsson með
skalla eftir hornspyrnu.
Um 10 mínútum síðar jók KR
forystu sína með öðru skallamarki
en það geröi Steinar Ingimundar-
son og fór létt með. Hann fékk
boltann eftir aukaspyrnu einn og
óvaldaður á markteig Fram og
skallaði neðst í hornið.
Frammararnir voru þó ekki á því
að gefast upp og það sem eftir lifði
hálfleiksins fóru þeir á kostum.
Geysimikill hraði var í leik þeirra
og náðu þeir að jafna leikinn fyrir
leikhlé.
Fyrra mark þeirra skoraði Þór-
hallur Víkingsson, hann fékk
boltann eftir að hann hafði skolliö
í stöng KR-marksins en í hana
hafði félagi hans Helgi Bjarnason
þrumað honum. Þórhallur sendi
boltann viðstöðulaust uppí þaknet-
iö og var þetta vel að verki staðið
hjá honum. Lúövík Þorgeirsson sá
síðan um að skora síðara mark
Fram og ekki var heldur um neitt
slormark að ræða hjá honum.
Hann sendi boltann beint í metið
úr aukaspyrnu alveg út við hlið-
arlínu. Flestir bjuggust við að
Lúðvík sendi boltann fýrir markið
þar sem færið var mjög þröngt en
Lúðvík sá færið og var fljótur að
nýta sér það. Fleiri urðu mörkin
ekki í hálfleiknum þrátt fyrir mjög
góð færi beggja liða til þess sáu
m.a. markmennirnir Stefán Lúðví-
ksson og Páll Ólafsson en báðir
vörðu þeir sérstaklega glæsilega í
þessum hálfleik.
Síðari hálfleikur var ekki eins
fjörugur og opinn og sá fyrri en
þó þurfti ekki að bíða lengi eftir
marki í honum því það kom strax
á 1. mínútu hans. Markið skorði
Stefán Steinsen fyrir KR með
skalla eftir hornspyrnu. Frammar-
ar reyndu allt hvað þeir gátu að
jafna leikinn og voru mun meira
með boltann en náðu ekki að nýta
nokkur allþokkaleg færi sem þeir
fengu. KR-ingarnir juku síðan for-
ustu sína rétt fyrir leikslok og
hvílíkt mark. Dæmd var auka-
spyrna á Fram rétt utan vítateigs
og framkvæmdi Heimir Guðjóns-
son spyrnunna. Hann gerði sér lítið
fyrir drengurinn sá og þrumaði
boltanum efst í markhornið að
þvílíkum krafti að mannsaugaö
greindi vart boltann fyrr en hann
söng í netinu. Og það voru Því
KR-ingar sem tóku undir söng
knattarins í leikslok og sungu KR-
ingar eru bestir.
Þessi leikur er báðum liðum til
mikils sóma og gleðiefni fyrir unn-
endur góðrar knattspymu. Leik-
menn beggja liða sýndu mjög
skemmtilega og góða knattspyrnu.
Hjá KR bar mest á þeim Stefáni
Steinsen, Sigurði Valtýssyni og
Heimi Guðjójnssyni en atkvæða-
mestir Frammara voru Arnljótur
Davíðasson, Lúðvík Þorgeirsson
og Jónas Björnsson.
Morgunblaðið/VIP
• Vertu ekki svona skjálfhentur maður, þú gætir misst bikarinn, er
eins og fyririiðinn Sigurður Valtýsson só aö segja við fólaga sinn,
Magnús Gytfason. Guðjón Ingason bíður spenntur eftir að röðin komi
að honum að fá að handlelka hinn eftirsótta grip.
Allt á grasi
Sigurður Valtýsson fyrirliði 2.
flokks KR lót vel að líðan sinni
eftir að hann hafði tekið við ís-
landsmeistarabikarnum úr hendi
formanns KSí. „Við höfum ekki
tapað leik f sumar við gerðum
þrjú jafntefli f Reykjarvíkurmótinu
og eitt f íslandsmótinu þannig að
íslandsmót 2. flokks karla:
KR tapaði ekki leik
ÞEGAR KR-ingar gengu til leiks
gegn Vfking f sfðasta leik sínum
í íslandsmóti 2. flokks karla voru
beir þegar búnir að tryggja sór
Islandsmeistaratitilinn. En þeir
voru búnir að gera gott betur þvf
þeir höfðu ekki tapað eínum ein-
asta leik f mótinu þannig að
Vfkingsleikurínn hafði vissuiega
töluverða þýðingu fyrir þá.
í fyrri hálfleik var jafnræði með
liðunum en Víkingarnir voru fyrri
til að skora. Það mark gerði Svein-
björn Jóhannesson með skalla eftir
góðan Víkingssamleik. Þröstur
Bjarnason náði síðan að jafna fyrir
KR áður en dómarinn blés til leik-
hlés.
í siðari hálfleik tóku Vestur-
bæingarnir öll völd í sínar hendur
og sýndu þá knattspyrnu sem skil-
aði þeim íslandsmeistaratitli.
Boltinn gekk hratt og vel milli
manna, breidd vallarins var notuð
á áhrifaríkan hátt og allir leikmenn
liðsins tóku virkan þátt í leiknum.
Mörkin létu ekki heldur á sér
standa og þegar upp var staðið
var staðan orðin 4:1 fyrir KR. Mörk
KR í síðari hálfleik gerðu þeir Sigur-
steinn Gíslason, Stefán Steinsen
og Þorsteinn Halldórsson.
Þorsteinn Halldórsson og
Magnús Gylfason áttu mjög góðan
leik á miðjunni hjá KR en hjá Víking-
um átti miðjumaðurinn Guðmund-
ur bestan leik en þeir eiga einnig
góðu liði á að skipa sem er til
margs líklegt í framtíðinni.
manni getur ekki liðið öðrvfsi en
vel.“
Sjö leikmenn í þessu sigursæla
KR-liði eru á yngsta ári og árangur
þessara stráka á síðustu árum er
hreint ótrúlegur. Þeir hafa ekki
tapað leik á Islandsmóti seinustu
4 árin. j£i-
„Það er margt sem hjálpast að
til að gera þennan árangur svona
góðan, samheldnin og liðsandinn
í hópnum er frábær, við höfum
fengið mjög góða þjálfara og í
sumar hefur verið gert mjög v(ej
við okkur frá hendi stjórnarinnar
því við höfum fengið allar æfingar,
og leiki á grasi, sem hefur mjög'
mikið að segja," sagði Sigurðun
Á seinni hluta keppnistímabils-
ins hafa ýmsir leikmenn 2. flokks-
ins verið aö banka á dyr
meistaraflokks KR en aö sögn Sig-
urðar hefur það ekki komiö niður
á 2. flokki. „En þaö má búast við
að á næsta keppnistímabili verði
nokkrir úr þessum hópi í meistarg-
flokksliðinu þannig að róðurinn
næsta sumar gæti orðið þyngri,"
bætti hann við.
2. flokkur: *
-------------- m
íslands- S
og bikar- ;
meistarar
KR
• KR sigraði með miklum yfir-
burðum í Islandsmóti 2. flokks
f knattspyrnu 1986, sem lauk
fyrir skömmu og á fimmtudag-
inn urðu ( þeir bikarmeistarar.
Sigursælir strákar. Myndin er
af íslands- og bikarmeisturun-
um. Fremri röð frá vinstri:
Guðjón Ingvason, Rúnar Krist-
insson, Þormóður Egilsson, Páll
Ólafsson, Sigurður Valtýsson
fyrirllði, Ingi Guðmundsson,
Ingólfur Garðarsson, Þröstur
Bjarnason og Sigursteinn Gísla-
son. Aftari röð frá vinstri: Gfsli
Jón Magnússon, Tryggvi Haf-
stein aðstoöarþjálfari, Þor-
steinn Halldórsson, Magnús
Gylfason, Guðni Grétarsson,
Heimir Guðjónsson, Stefán
Steinsen, Þorsteinn Guðjóns-
son, Steinar Ingimundarson,
Birgir Guðjónsson liðsstjóri og
Lúðvfk Georgsson stjórnarmað-
ur. Á myndina vantar Hilmar
Björnsson og Kára Konráðsson.
Morgunblaöiö/Július