Morgunblaðið - 31.08.1986, Side 68
SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
íslenskir verktakar:
Framkvæmd-
ir aukast með
batnandi efna-
hagsástandi
— segir Gunnar Birgis-
son formaður Verk-
takasambandsins
„NOKKUÐ hefur ræst úr
sumrinu fyrir verktakana,“
sagði Gunnar Birgisson for-
maður Verktakasambandsins,
í samtali við Morgunblaðið
nýverið, „það er eins og þjóð-
félagið breytist við niður-
færslu verðbólgunnar og
fjárfesting einkaaðila í fram-
kvæmdum aukist. Auk þess
hefur góða veðrið hjálpað upp
á sakirnar."
Gunnar taldi, að í heildina tekið
hefði orðið samdráttur hjá verk-
tökum frá fyrra ári, en það væri
vitaskuld mismunandi á milli ein-
stakra verktaka. Hins vegar taldi
Gunnar ástandið hafa batnað eftir
því sem á árið hefði liðið.
Ástæður samdráttarins eru að-
allega tvær að sögn Gunnars;
óstjóm í efnahagsmálum og sam-
dráttur í opinberum framkvæmd-
um. Vegaframkvæmdir hafa verið
..skornar niður um helming og
hvorki hjá Vita- og hafnamála-
stjóm né Flugmálastjórn hafa
verið neinar framkvæmdir í sum-
ar.
Coldwater og Iceland Seafood:
í Jökulsárlóni
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Einstök veðurblíða var í Skaftafellssýslum í síðustu viku er
Morgunblaðsmenn áttu leið þar um. Myndin var tekin á Jökuls-
árlóni á Breiðamerkursandi. Þrír ungir menn reka þar bátaleigu
og gefst ferðamönnum kostur á að fara í bátsferðir um lónið.
Þess má til gamans geta að í þessari ferð voru þrír íslending-
ar, tveir Svisslendingar, Svíi og ísraelsmaður.
Þrátt fyrir fyrmefnd atriði er
formaður Verktakasambandsins
nokkuð bjartsýnn á framtíðina,
miðað við þær efnahagsframfarir,
sem átt hafa sér stað undanfarið,
og einnig taldi Gunnar hið nýja
húsnæðislánakerfi hvetjandi fyrir
framkvæmdir. „Eg vona að stjórn-
völd auki fjárframlög til vega- og
hafnaframkvæmda á næstu fjár-
lögum og að þau stuðli einnig að
aukinni hagkvæmni og skipulagn-
ingu við útboð framkvæmda t.d.
í vegaframkvæmdum, en lagning
vegarspotta hér og þar er augljós-
lega afar óhagkvæm fyrir alla
aðila.“
Hægt að selja mun meira
af frystum sjávarafurðum
Ferskf iskmarkaðir taka mikinn hluta af lans til sín
ÍSLENSKU fisksölufyrirtækin í
Bandaríkjunum, Coldwater og
Iceland Seafood, hafa undan-
farið átt í umtalsverðum erfið-
leikum með að sinna óskum
Laugardalslaugin:
Tíð slys á hálum
laugarbakkanum
VESTURBAKKI sundlaugar-
innar í Laugardal hefur reynst
mörgum skeinuhættur eftir að
lagfæringar á lauginni áttu sér
stað fyrr á árinu. A fimmtudag-
inn höfuðkúpubrotnaði þar
kona er var að koma upp úr
lauginni og i sumar hafa orðið
allnokkur smávægileg slys við
það að fólk hefur runnið til á
hálum laugarbakkanum.
„Það er ekki hægt að lýsa því
hversu mikil hætta er þama á
ferðinni, það verður að bregðast
við þessu skjótt áður en fleiri slys
hljótast af,“ sagði Gunnar Guð-
mundur Erlendsson, sundlaugar-
vörður, í samtali við Morgunblað-
ið. Kvað hann verulega hættu
stafa af fínpússuðum laugar-
bakkanum vestan megin við
laugina, þar sem gengið er frá
búningsklefum til laugar, og sagði
hættuna vera sérstaklega mikla
þegar hefði rignt því þá væri
bakkinn glerháll.
„Það má sama sem ekkert útaf
bera til að þama verði slys og á
það hafði verið bent og talað um
að þetta þyrfti að lagfæra. Það
var hins vegar ekki fyrr en eftir
slysið á fimmtudaginn að hlaupið
var til og það svæði sýrubrennt
þar sem flest óhöppin hafa orðið.
Það þarf að sýrubrenna allan
bakkann og gera frekari ráðstaf-
anir til að koma í veg fyrir að
svona lagað geti endurtekið sig
því þarna getur myndast stór-
hætta," sagði Gunnar að lokum.
viðskiptavina sinna um kaup á
frystum sjávarafurðum vegna
þess hversu mikinn liluta aflans
ferskfiskmarkaðir, sérstaklega á
Bretlandi, eru farnir að taka til
sín. Bæði fyrirtækin hefðu getað
selt talsvert meira af frystum
sjávarafurðum hefðu þær verið
fyrir hendi. Þrátt fyrir þetta
hefur verð fyrir frystar sjávaraf-
urðir aldrei verið hærra en um
þessar mundir.
I vikunni voru til ítarlegrar um-
ræðu á stjómarfundi hjá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna framleiðslu-
og markaðsmál með sérstöku tilliti
til vöntunar á vissum fisktegundum,
sérstaklega ýsu og karfa og einnig
var rætt um harðnandi samkeppni
um þorskinn vegna sterkra fersk-
fískmarkaða í Bretlandi um lengri
tíma.
Guðmundur H. Garðarsson
blaðafulltrúi Sölumiðstöð var hrað-
frystihúsanna sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins að
Coldwater fyrirtækið í Banda-
ríkjunum hefði vantað fisk og ekki
getað sinnt eftirspum viðskiptavina
sinna. „Við höfum reynt að standa
við gerða samninga eftir föngum
en ekki fengið allan þann fisk sem
við höfum getað selt. Þrátt fyrir
þetta hefur átt sér stað heildar-
aukning á framleiðslu frystra
sjávarafurða um 14% það sem af
er þessu ári,“ sagði Guðmundur.
Guðjón B. Ólafsson, fráfarandi
forstjóri Iceland Seafood í Banda-
ríkjunum, sagði að mjög mikill
skortur hefði verið á flestum fisk-
tegundum mestan hluta ársins og
hefði hann farið vaxandi eftir því
sem líða hefði tekið á árið. „Þetta
hefur komið niður á sölu hjá fyrir-
tækinu vegna þess að eftirspumin
er meiri og við hefðum hiklaust
getað selt mun meira af frystum
sjávarafurðum hefðu þær verið til,rf
sagði Guðjón. Sagði hann fyrirtæk-
ið vera í vaxandi vanda með að
geta séð viðskiptavinum sínum fyr-
ir vöru og bætti því við að því væri
ekki að leyna að vandinn væri mik-
ill.
Hann lét þess þó getið að fyrir-
tækið væri þó með áframhaldandi
sölu á verksmiðjuframleiddum vör-
um og kvað hann stöðuna á því
sviði býsna sterka, en fyrirtækið
hafði komið sér upp birgðum blokk-
afurða.
Guðmundur H. Garðarsson lét
þess einnig getið að ekki mætti
gína um of yfir ferskfiskmörkuðun-
um, þeir gætu ekki tekið við
endalaust, og það væru markaðim-
ir fyrir frysta fiskinn sem þyrfti að
leggja rækt við því þangað færi
mestur okkar afli. Hann sagði að
þegar væri farið að bera á því að
markaðir í Bretlandi og Japan væru
famir að taka meira til sín af fryst-
um sjávarafurðum, til dæmis hefðu
Japanir keypt í fyn-a um 5.500 tonn
og horfur væm á að þangað færu
nú um 10.000 tonn. „Þama er um
umtalsverða aukningu að ræða og
það er skylda þessara samtaka að
fá besta fáanlegt verð fyrir afurð-
irnar og um leið að viðhalda þeim
mörkuðum sem kaupa hvað mest
af þeim,“ sagði Guðmundur.
Mesta Súlu-
hlaup
í rúm-
an áratug
Náði hámarki í fyrrinótt
MESTA Súluhlaup í rúman áratug
náði hámarki laust eftir miðnætti
i fyrrinótt. Eftir það fór hlaupið
að dvína en í gærmorgpm var þó
enn mikið vatn í ánni, að sögn
Eyjólfs Hannessonar, bónda á
Núpsstað í Hörgslandshreppi.
Nokkrar skemmdir urðu á vega-
görðum, sem veita vatni undir
Núpsvatnabrúna en laust fyrir há-
degi í gær var viðgerð á görðunum
langt komin. Aðrar skemmdir urðu
ekki á vegum eða mannvirkjum af
völdum hlaupsins.