Morgunblaðið - 06.09.1986, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
199. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Við héldum að við
yrðum öll drepin
— sagði farþegi í þotu Pan Am, sem hryðjuverkamenn tóku í Pakistan
Fórnarlamb
Sjúkraliðar flytja Kumar Raj-
ish, Bandaríkjamann af
indverskum ættum, í sjúkra-
hús í Karachi. Árásarmenn-
irnir skutu hann og köstuðu
honum helsærðum út úr flug-
vélinni er þeir tóku hana.
Hann lézt síðar í sjúkrahúsi,
og var þvi fyrsta fórnarlamb
Karachi, Pakistan, AP.
„ÞEIR hófu allt í einu tryllings-
lega skothríð. Það greip um sig
mikil skelfing og börnin hágrétu.
Þetta var eins og helför og hélt
ég það biði okkar allra að drep-
ast,“ sagði farþegi í þotu Pan
American, sem fjórir arabískir
hryðjuverkamenn tóku á sitt vald
á flugvellinum i Karachi i Pakist-
an. Eftir 17 stunda umsáturs-
ástand yfirbuguðu her- og
lögreglumenn fjórmenningana,
sem að sögn leyniþjónustumanna
eru Palestinumenn. Að minnsta
kosti 16 biðu bana er fjórmenn-
ingarnir hófu skothrið á farþega,
að sögn embættismanna, og einn
er þeir réðust inn í þotuna.
Hjúkrunarfólk og önnur vitni á
flugvellinum sögðu særða og
dauða rúmlega eitthundrað. At-
burðurinn var enn óljós þegar
Morgunblaðið fór til prentunar
í gærkvöldi.
Farþegar, sem sluppu ómeiddir
frá hildarleiknum, sögðu fjórmenn-
ingana hafa byrjað tryllska skothríð
út í loftið þegar ljós fóru af þot-
unni. Virtist sem þeir hefðu orðið
skelkaðir er Ijósin fóru skyndilega
af. Talsmenn Pan Am segja ljósa-
vélina hafa orðið eldsneytislausa. í
sömu mund voru neyðarútgangar
opnaðir og þustu farþegar, sem
voru um 400 talsins, þegar í stað
út um þá.
Víkingasveitir hers og lögreglu
voru í viðbragðsstöðu á flugvellin-
um og nokkrir sveitarlima upp við
þotuna þegar skothríðin hófst.
Óljóst var enn hvort þær hafí lagt
til uppgöngu áður en skothríðin
byrjaði. Farþegar sögðust hafa
heyrt hávaða utan flugvélarinnar
rétt áður en skothríðin hófst. Af
opinberri hálfu var hins vegar sagt
að hún hafí byijað er lögreglusveit,
sem reyna átti að semja við fjór-
menningana, nálgaðist þotuna rétt
eftir að ljósin slokknuðu. Fyrst hafí
handsprengju verið varpað á lög-
reglumennina og skothríð síðan
hafízt. Réðust víkingasveitir þá til
atlögu og felldu þær tvo af mönnun-
um fjórum en náðu hinum á lífí.
Þegar þeir voru leiddir á brott hróp-
aði annar þeirra að hann væri
Palestínumaður og frá Líbanon.
Tugum sjúkrabifreiða var ekið
að þotunni þegar farþegar
streymdu út úr henni og lögð
áherzla á að koma hinum særðu
sem skjótast undir læknishendur.
Hermt er að reynt hafí verið að
villa um fyrir árásarmönnunum með
að flugmenn væru á leið frá Vest-
ur-Þýzkalandi til að fljúga þotunni
á brott. Þegar þotan var tekin kom-
ust flugmenn og flugvélstjóri undan
um neyðarlúgu. Arásarmennimir
hugðust halda til Kýpur. Þeir voru
ýmist sagðir í samtökum, sem
sæktu stuðningtil írans eða Líbýu.
Sjá ennfremur fréttir tengdar
töku flugvélarinnar á bls. 21.
Hvetja til samstöðu
gegn hryðjuverkum
Flugmóöurskip í viðbragðsstöðu
Washington, London, Napoii, AP.
GEORGE SHULTZ, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að
Bandaríkjamenn muni í engu hvika frá afstöðu sinni til hryðju-
verka. „Við munum ekki fara að kröfum hryðjuverkamanna né
heldur munum við hvetja utanaðkomandi aðila til þess“ sagði í til-
kynningu utanríkisráðuneytisins. Shultz sagði í ræðu í gær að
hryðjuverk væru „ákveðið form siðleysis og villimennsku", sem enn
hefði ekki tekist að bijóta á bak aftur.
Noregur:
Versti hótel-
bruni120 ár
Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morg-
unblaðsins i Noregi, AP.
AÐFARANÓTT sl. föstudags
kom upp eldur í 12 hæða hótel-
byggingu i Kristiansand í
Suður-Noregi, Hótel Caledoni-
en. Eftir margra klukkustunda
baráttu slökkviliðsmanna við
eldinn og leit björgunarmanna
að 140 gestum er á hótelinu
dvöldu, kom i ljós að 14 manns
höfðu látist og flytja þurfti 53
á sjúkrahús.
Eldurinn kom upp á jarðhæð
og breiddust eldur og reykur hratt
út. Erfítt var um vik við slökkvi-
starf og björgunaraðgerðir, þar
sem brunastigar slökkvibifreið-
anna náðu ekki upp að efstu
hæðum hótelsins og var þyrla
notuð til að ná til fólksins þar.
Er þetta í fyrsta sinn sem þyrla
er notuð við slíkar aðstæður í
Noregi og sögðu yfirvöld, að það
hefði ráðið úrslitum, um hversu
margir komust lífs af.
Brunamálastofnun Noregs seg-
ir, að brunavamir á hótelum þar
í landi þurfi að endurskoða, því
reglum sé ekki framfylgt. Einnig
hafi bæklingur verið prentaður
fyrir nokkrum árum, þar sem
hótelgestum var sagt hvemig þeir
ættu að haga sér ef kviknaði í,
en sárafá hótel hefðu séð sóma
sinn í að dreifa honum til gesta
sinna.
Sjá ennfremur Hótelbruni í
Noregi á bls. 20.
Vernon Walters, sendiherra Banda-
ríkjastjómar hjá Sameinuðu þjóðun-
um, sem staddur var í Bretlandi,
sagði árásina á þotuna á flugvellin-
um í Karachi vera skýrt dæmi um
þá öldu hryðjuverka sem nú riði yfír
heimsbyggðina og ríki Evrópu og
Bandaríkjamenn yrðu að sameinast
um að stöðva. Walters hélt til Kan-
ada frá Bretlandi en hann hefur átt
fundi með stjómvöldum í sjö ríkjum
Evrópu um leiðir til að binda enda
á skipulega hryðjuverkastarfsemi.
Í tilkynningu frá breska utanríkis-
ráðuneytinu sagði að ríkisstjómin
væri tilbúin til að taka hertar að-
gerðir gegn Líbýumönnum til
athugunar reyndust þeir bera ábyrgð
á árásinni.
Bandaríska flugmóðurskipið
„Forrestal" lét í gær úr höfn í Nap-
ólí á Ítalíu. Ekki er vitað hvert för
skipsins er heitið en ótilgreindir
bandarískir embættismenn sögðu að
skipinu væri ætlað að vera í við-
bragðsstöðu á Miðjarðarhafi.
Nokkur smærri herskip em i fylgd
með skipinu en ekki er vitað hversu
mörg þau em.
Sömu heimildarmenn sögðu
bandaríska vamarmálaráðuneytið
ekki hafa nein sönnunargögn undir
höndum, sem bentu til þess að Lábýu-
menn hefðu staðið að baki árásinni.