Morgunblaðið - 06.09.1986, Síða 3

Morgunblaðið - 06.09.1986, Síða 3
Ræktun á angórakanínum MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1986 3 30% dýranna eru góð — að mati þýsks kanínubónda sem leið- beinir við ræktunina hér 30% af angórakanínum lands- manna eru mjög góðar, 50% allgóðar en um 20% í slæmu ástandí að mati Herberts Dau, vestur-þýsks kanínubónda, sem ferðast hefur á milli kanínu- bænda í mánuð á vegum Kanínu- ræktarfélags Suðurlands og leiðbeint þeim í kanínuræktinni. Dau hefur áður komið til landsins til að leiðbeina kanínubændum og fylgst með framforum í ræktun angórakanínanna. Hann varar bændur við að ætla sér að gera kanínuræktina að aðalbúgrein, tel- ur það allt of áhættusamt. I lok heimsóknarinnar nú afhenti Herbert Dau Inga Tryggvasyni for- manni Stéttarsambands bænda skjöld að gjöf frá borgarstjóranum í heimabæ sínum, Diedorf í Vestur- Þýskalandi. Um þessar mundir er mikil óvissa í sölumálum kanínuhársins. Álafoss hætti að taka við angórahárinu vegna þess að ekki hefur tekist að framleiða seljanlega vöru úr því. Landssamband kanínubænda og Álafoss eru nú að athuga möguleik- ana á því að kaupa til landsins verksmiðju til að vinna band og fatnað úr angórahárinu. Jón Eiríks- son ritari sambandsins telur að sölumálin verði aldrei í almennilegu lagi fyrr en tekst að vinna úr henni hér. Þýski kanínubóndinn Herbert Dau afhenti Inga Tryggvasyni skjöld frá borgarstjóranum í heimabæ sinum. Stúlka rænd á Lækjatorgi VESKI var rænt af lítilli stúlku á Lækjartorgi um kl. 15.00 í gær. Stúlkan, sem er 13 ára, var að passa barn með vinkonu sinni. Hópur stráka vék sér að og gerði hróp að þeim. Þær báðu þá um að hætta áreitni sinni, en þeir létu ekki segjast. Einn drengj- anna seildist þá í vasa stúlkunar og tók veski hennar. Hann hvarf á braut ásamt vini sinum og sást siðast stiga um borð í leið 3-A á leið i Vesturbæinn. Ef einhver vitni voru að atvikinu eru þau beðin um að láta lögregl- una í miðbæjarstöð vita. Drengimir voru 12-14 ára gamlir, annar skol- hærður í blárri „Millet-úlpu“, hinn dökkhærður og í dökkblárri úlpu með gráum ermum. í veskinu voru öll skilríki stúlkunnar og laun henn- ar sem hún hafði fengið útborguð þennan dag. Vonumst til að hafa Feng lengur — segir Kristján Ar- mannsson, fram- kvæmdastjóri Sæbliks hf. á Kópaskeri FENGUR, _ skip Þróunarsam- vinnusjóðs Islands, kom úr sinni fyrstu veiðiferð sl. fimmtudag með 14 tonn af rækju eftir að Sæblik hf. á Kópaskeri tók skip- ið á leigu. Hjól rækjuvinnslunnar eru þá farin að snúast á nýjan leik eftir u.þ.b. árshvíld sökum hráefnisskorts. Hjá Sæbliki hf. leggur einnig að hluta upp- Stakfell, togari Þórs- hafnarbúa, og þrír aðrir bátar, Eyvindur Vopni frá Vopnafírði, Fagranes frá Þórshöfn og Ver frá Bakkafirði. Afla Eyvinds Vopna er ekið landleiðina frá Vopnafírði til Kópaskers. Kristján Ármannsson, framkvæmdastjóri Sæbliks hf., sagði í samtali við Morgunblaðið að heldur væri nú farið að birta yfir rekstri fyrirtækisins, en fyrr í sumar var Sæblik hf. auglýst til sölu eða leigu. „Það komu tvær fyrirspumir um sölu á fyrirtækinu, en þá tókum við þá ákvörðun að heldur vildum við leigja en selja fyrirtækið úr höndum okkar, þótt útlitið væri ekki bjart, en engin fyrirspum kom um leigu á rækju- vinnslunni." Sæblik hf. hefur Feng á leigu þangað til í lok október, en að sögn Kristjáns vonuðust menn til að fá að hafa skipið lengur. „Mér vitandi em engin fyrirliggjandi verkefni fyrir skipið við þróunaraðstoð enn- þá. Auðvitað emm við alltaf að leita að skipi til að kaupa, en það er alls ekki um auðugan garð að gresja í þeim efnum," sagði Kristján. FIAT-umboðið á íslandi Skeifunni 8. S. 688850 PÁV Prentsmiðja Arna Valdemarssonar hl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.