Morgunblaðið - 06.09.1986, Síða 16

Morgunblaðið - 06.09.1986, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1986 Garðakobbi Erigeron x hybridus Afbrigðið Foester Liebling er blómsælt mjttg og þrifst hér með ágætum. ÞEGAR líða tekur á sumarið og næturnar kólna, þá fara hin- ar ýmsu síðblómstrandi plöntur að teygja sig fram í sviðsljósið, svo sem Garðakobbinn. En um kynni sín af þeim litfögru fíflum langar þann, sem penn- anum stýrir að þessu sinni, að greina svolítið nánar frá. Garðakobbinn er náskyldur okkar íslenska Jakobsfífli (E. boreale) en afbrigði þau, sem mest eru í ræktun hér, hafa aðal- BLÓM VIKUNNAR 18 Umsjón: Ágústa Björnsdóttir lega komið frá Englandi og Þýskalandi, en jurtin á hinsvegar uppruna sinn í N-Ameríku. For- feður Garðakobbans eru taldir vera E. macranthus og E. specios- us, sem þar eiga heima. Planta þessi gerir ekki sérstakar kröfur um jarðveg, nema hvað góð garð- möl, vel framræst, er vel þegin. Henni líkar á hinn bóginn illa að vera sett skuggamegin við aðrar hærri plöntur og fái hún fullnægt kröfunni um að vera sett sólar- megin í garðinum, þá launar hún það ævinlega með ríkulegu blóm- skrúði á tímabilinu ágúst/sept- ember. Litir Garðakobbans eru ævinlega bleikir og fjólubláir, en með ótal blæbrigðum frá þessum litum bæði í ljósu og dökku. Hvirf- ilblómin eru hinsvegar alltaf hreingul. Mjög athyglisvert er fyllta afbrigðið með sínum lýsandi ljósQólubláum blómum. Hæð þessara fífla er á bilinu 30—60 sm og getur því verið freistandi að binda þá upp þegar líða tekur á sumarið, en undirrituðum fínnst ekkert síður aðlaðandi að leyfa þeim að sveigja sig niður að beði sínu, ef þeir hafa þörf fyrir það, en sjá þeir ætíð um að rétta úr sjálfum blómkollunum í átt til sólar. Þegar blómgun er lokið, er plöntunni fyrir bestu að blóm- stönglarnir séu skomir ofan af. Vanti einhvem Erigeron f stein- hæð sína, þá er til ljómandi falleg tegund, Guli-Jakobsfífíll frá Tur- kestan (E. aurantiacus), með rauðgulum blómum eins og nafnið bendir reyndar til. Hann verður um 30 sm hár og talinn harðger hér eins og raunar Garðakobbinn er einnig. Óllum þessum tegund- um er auðvelt að fjölga með skiptingu. Varla þarf að taka fram að Garðakobbinn er hið ákjósanleg- asta blóm til afskurðar og stendur lengi ferskur í vasa, sérstaklega ef viðtakandi man eftir að láta vasann á kaldan stað jrfir nóttina og endumýja vatnið hæfilega oft. Þórhaliur Jónsson Myndlistaskólinn í Reykjavík Tryggvagötu 15, 6. hæö, sími 11990 Kennsla hefst mánudaginn 29. september. Kennt verður í eftirtöldum deildum á haustönn. BARNADEILDIR: Börn 6—10 ára mánud. og miðvikud. kl. 10—11.30. Börn 8—11 ára þriðjud. og fimmtud. kl. 9.—10.30. Börn 8—11 ára þriðjud. og fimmtud. kl. 16—17.30. Börn 11—13 ára mánud. og miðvikud. kl. 16—17.30. Börn 11—13 ára þriðjud. og fimmtud. kl. 18—19.30. Unglingar 14—16 ára mánud. og miðvikud. kl. 18—19.30. TEIKNIDEILDIR: Teiknun fyrir byrjendur Teiknun I mánud. og miðvikud. kl. 17.30—19.45. Teiknun I mánud. og miövikud. kl. 20—22.15. Teiknun I þriðjud. og fimmtud. kl. 17.30—19.45. Teiknun I laugard. 9.—13.30. Módelteiknun I mánud. og miðvikud. kl. 17.30—19.45. Módelteiknun I þriðjud. og fimmtud. kl. 17.30—19.45. Módelteiknun I þriöjud. kl. 20—22.15. Eingöngu fyrir nemend- ur í öðrum deildum skólans. Módelteiknun I föstud. kl. 17—19.15. Eingöngu fyrir nemend- ur í öðrum deildum skólans. Teiknun framhald Teiknun II þriðjud. og fimmtud. kl. 20—22.15. Teiknun III laugard. kl. 9—13.30. Módelteiknun II laugard. kl. 9—13.30. Módelteiknun II miðvikud. kl. 20—22.15. Módelteiknun II mánud. og fimmtud. kl. 20—22.15. MÁLARADEILDIR: Málun I þriðjud. kl. 17.30—22.15. OKulitir. Málun II mánud. og fimmtud. kl. 17—19.15. Olíulitir. Málun III miðvikud. kl. 17—19.15. Olíulitir. Framhaldsdeild. Vatnslitir mánud. kl. 20—22.15. Eingöngu ætlað framhalds- nemendum. Grafík Kennsla í skurði og ætingum miðvikud. 20—22.15 og föstud. 17—19.15. Eingöngu ætlað framhaldsnemendum. Mótunardeildir Mótun I þriðjud. og fimmtud. kl. 17—20. Módelteiknun miðvikud. kl. 17—20. Kennsla í rennslu leirmuna. Framhaldsdeild. Mótun II laugard. kl. 9—13.30. Teiknun mánud. 20—22.15. Kennsla í rennslu leirmuna. Framhaldsdeild. Fyrirlestrar í listasögu eru á laugardögum ætlaðir öllum nemendum skólans. Innritun hefst mánudag 8. september Innritað er kl. 13—19 mánudaga til föstudaga í húsnæði skólans, Tryggvagötu 15, 6. hæð, sími 11990. Bakaðar kartöflur og meðlæti. Kartöflu-„lúxus“ Heimiíishora Bergljót Ingólfsdóttir LÁNIÐ leikur við okkur neyt- endur í kartöflumálum þessa dagana, fáanlega eru nýjar íslenskar kartöflur og hægt er að velja sér tegund og stærð í flestum verslunum. Engar kartöflur eru betri og bestar eru þær eins og þær koma fyr- ir, rétt mátulega soðnar. En jafnframt þeim íslensku eru einnig á boðstólum stórar erlendar bökunarkartöflur, sem mörgun finnst hið mesta sælgæti og hafa óspart verið keyptar til að setja á útigrillin í sumar. En stórar kartöflur bakaðar í ofni eru ekki síðri og reyndar má matbúa mjölmiklar kartöflur á marga vegu, hafa þær sem með- læti með öðru eða í aðalhlutverk- inu, aðalréttinn. Kartöflur eru ágætur C-vítamíngjafi og hitaeiningamar í einni meðalkartöflu, bakaðri eða soðinni, eru 100, jafn margar og í einum banana, einu meðalstóru epli og appelsínu. Meðlæti með bökuðum kartöflum Sveppir og laukur Tveir hlutar af sveppum (mag- nið að eigin vild) og einn af lauk. Sveppir og laukur brytjað og brugðið í smjör á pönnu, látið krauma við vægan straum, krydd- að með salti og pipar. Borið fram heitt með bökuðum kartöflum. Kotasæla Kotasælan hrærð til að mýkja hana, kryddjurtum bætt saman við, má einnig setja í blandara eða hræra í vél. Kryddjurtimar geta verið t.d. basil-lauf, timian, gras- laukur eða dili, að ógleymdu smjöri eða sýrðum rjóma. Kartöflubakstur Mjöimiklar kartöflur eru af- hýddar og skomar í sneiðar, sneiðamar lagðar í smurt, ofnfast fat, rifnum osti, salti og rósmarín stráð yfir hvert lag og efst eru settir smjörbitar að auki. Bakað í 40—50 mínútur við 225° C. Ofnbakaðar kartöflur með beikoni 5—6 meðalstórar mjölmiklar kart- öflur 1 meðalstór iaukur 75—100 gr beikon salt, pipar 50 gr. rifinn mildur ostur IV2 dl mjólk Kartöflumar afhýddar og skomar í sneiðar, laukurinn brytj- aður smátt. Beikonið skorið í bita og brúnað á pönnu. I smurt ofn- fast fat eru kartöflusneiðar iagðar í lög, laukur, beikon og rifínn osturinn, krydd sett yfír hvert lag, mjólkinni hellt yfír. Bakað í ca. 45 mín. við 200° C. Álpappír settur yfir í lokin svo kartöflumar verði ekki of dökkar og þurrar. Gratineraðar kartöflur 500 gr mjölmiklar kartöflur 1 di soð (súputen. og vatn) salt, pipar ca 100 gr rifínn ostur Kartöflumar afhýddar, skomar í sneiðar og svo teninga, soðnar í vatni í ca 5 mín., vatnið látið síga vel af. Kartöflumar settar í smurt ofnfast fat, salti og pipar stráð yfir ásamt örlitlu af ostinum. Að lokum er soðinu hellt yfir og ostinum, sem eftir er. Bakað í ofni við 200° C þar til kartöflum- ar eru orðnar meyrar og osturinn búinn að fá lit. '/‘r"r SÍMANÚMER HIMU IVI t r>lilíljlIFMlfíT 1-00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.