Morgunblaðið - 06.09.1986, Qupperneq 36
36
MÓRGUIÍÖLAbÍÐ, LAUGARDÁGUR 6. SÉPTEMBER 1086
Minning:
Sveinn Guðmunds-
son garðyrkjubóndi
Fæddur 7. júní 1924
Dáinn 27. ágúst 1986
í dag kl. 13.30, laugardaginn 6.
september 1986, verður útför
Sveins Guðmundssonar gerð frá
Lágafellskirkju í Mosfellssveit.
Hann lést í Borgarspítalanum í
Reykjavík þ. 27. ágúst sl. eftir
hetjulega baráttu við blóðsjúkdóm
í nokkur ár. Félagar úr Karlakór
Reykjavíkur heiðra minningu þessa
látna söngbróður með söng sínum
á kveðjustund.
Hann fæddist á Óðinsgötu 10 í
Reykjavík en fluttist tveggja ára
með foreldrum sínum að Reykjum
í Mosfellssveit og átti þar heima til
æviloka. Móðir Sveins var Ingibjörg
Pétursdóttir ættuð úr Breiðaijarð-
areyjum og faðir hans Guðmundur
Jónsson skipstjóri ættaður úr
Reykjavík.
Þann 4. desember 1948 kvæntist
Sveinn Þuríði Sigurjónsdóttur ætt-
aðri úr Garði í Gerðahreppi. Þau
hófu búskap á Bjargi sem er starfs-
mannabústaður frá Garðyrkjustöð-
inni á Reykjum. Þeirra hjónaband
hefur verið hamingjuríkt í nær 38
ár og eiga þau 6 böm öll uppkom-
in: Jón Eiríkur tölvufræðingur,
Sveinn bormaður Orkustofnunar,
Sigríður húsmóðir í Mosfellssveit,
Vigdís við nám í Danmörku, Guð-
mundur Ingi bormaður Orkustofn-
unar og Kristinn Már fiskræktar-
maður.
Arið 1940 byrjaði Sveinn að
syngja 2. tenór í karlakór aðeins
15 ára gamall en þá var Stefnir í
Mosfellssveit nýstofnaður og með
þeim kór söng hann til 1980 eða
þangað til hann hætti öllum kór-
söng vegna lasleika. Hann söng
einnig í kirkjukór Lágafellssóknar
og þegar Sigurður Birkis söng-
málastjóri Þjóðkirkjunnar kom til
að þjálfa þennan kirkjukór hreifst
hann svo af bjartri tenórrödd unga
garðyrkjumannsins frá Reykjum að
hann benti Sigurði Þórðarsyni söng-
stjóra á að prófa hann inn í Karlakór
Reykjavfkur. Eftir nokkrar
símhringingar ftá Sigurði fór.
Sveinn í söngprófun og reyndi sig
á laginu „Lorelei" eða „Ég veit
ekki af hvers konar völdum", hann
var samstundis bókaður inn í 1 ten-
ór.
Sveinn var hraustmenni mikið
bæði til líkama og sálar, alltaf glað-
ur og hress og tráustur félagi.
Hann var tónviss og hafði hljóm-
mikia kórrödd sem óhætt var að
treysta fyrir háu nótunum. Fyrir
tæpum tuttugu árum ferðaðist
Karlakór Reykjavíkur með
skemmtiferðaskipinu Baltika um
Miðjarðarhaf og víðar. Þá voru í
kórnum §órir menn sem hétu
Sveinn og var einn úr hverri rödd.
Til gamans og tilbreytingar var
stofnaður Sveinakvartettinn.
Raddæfð voru §ögur lög á tveimur
stuttum æfingum og sungið á
næstu kvöldvöku um borð svo sem
„Sveinar kátir syngið", og einnig
„Nú er hlátur nývakinn, nú er grát-
ur tregur. Nú er ég kátur nafni
minn, nú er ég mátulegur."
Eins og áður er getið söng Sveinn
með Karlakómum Stefni og kirkju-
kómum í heimasveitinni þau 20 ár
sem hann var í Karlakór Reykjavík-
ur og eftir að hann hætti að sækja
æfingar þar var hann sífellt að
styrkja tenórinn í mörgum öðmm
kómm og má þar til nefna: Pólýfón-
kórinn, Óratóríukórinn, Fílharm-
óníukórinn, Ámesingakórinn og
Skagfirsku söngsveitina í Reykjavík
auk fleiri smásönghópa.
Frá liðnum ámm em margar
góðar endurminningar frá kórstarfi
sem tengjast Sveini frá Reykjum,
þær verða ekki raktar í þessum fáu
kveðjuorðum en hans er minnst með
þökk og virðingu af söngbræðmm
hans. Samúðarkveðjur sendum við
félagar Karlakórs Reykjavíkur
bræðmm hins látna þeim Jóni
Magnúsi bónda og fyrrverandi odd-
vita í Mosfellssveit, Andrési lyfsala
í Reykjavík, Þórði vélstjóra hjá
Hitaveitu Reykjavíkur og Qölskyld-
um þeirra svo og eftirlifandi eigin-
konu og afkomendum þeirra og
biðjum Guð að styrkja þau í sökn-
uði þeirra og að ljós björtu minning-
anna lýsi þeim í framtíðinni.
Blessuð sé minning hans.
F.h. Karlakórs Reykjavíkur,
Sveinn S. Pálmason.
Enn á ný er brandi bmgðið. Fá-
menna byggðin í Reykjahverfínu
hefur goldið ótrúlegt afhroð á fáum
mánuðum. I þetta sinn var það
Sveinn okkar á Reykjum, næst-
yngsti sonur merkishjónanna
Ingibjargar Pétursdóttur og Guð-
mundar Jónssonar, sem hrifinn var
burt í blóma lífsins.
Þegar ég kom hér í sveitina fyr-
ir rúmlega 40 ámm var það mjög
áberandi hve sterkan svip þeir
Reykjabræður settu á byggðarlag-
ið. Þar átti ekki sfst hlut að máli
Sveinn sá sem nú er allur. Gjörvi-
leiki hans og prúðmannleg fram-
koma vakti athygli og Sveinn var
frábær söngmaður, söng sig inn í
hvers manns hjarta, enda talinn
með bestu kórtenómm sinnar tíðar.
Lengst af var hann meðlimur Karla-
kórs Reykjavíkur en söng með fleiri
kómm. Minnisstæðastur mun okkur
sveitungum söngur hans í kirkjukór
sóknarinnar um áratuga skeið.
Það var ekki aðeins með söngn-
um og viðmótinu sem Sveinn hafði
áhrif á ungviðið og umhverfið.
Hann hafði einnig brennandi áhuga
á íþróttum, var þar leiðandi á viss-
um sviðum og um skeið formaður
Ungmennafélagsins Afitureldingar.
Ævistarf Sveins var blómarækt.
Garðyrlquna lærði hann hér og er-
lendis. Við blómaræktina naut sín
natni hans og nákvæmni og meðan
heilsa hans entist hafði hann árang-
ur sem erfíði.
Fyrir tæpum áratug kenndi
Sveinn sjúkdóms þess er varð hon-
um að bana.
Þegar sýnt þótti að fyrra starf
hentaði honum ekki fékk hann
vinnu á Reykjalundi. Þar starfaði
hann síðustu æviárin og þrátt fyrir
þverrandi mátt var hann í fullu
starfi þar til aðeins tveir dagar lifðu
ævinnar.
Sveinn var kværttur Þuríði Sigur-
jónsdóttur sem lengi hafði verið
vistmaður á Reykjalundi. Þeim
hjónum varð sex bama auðið. Þau
eru nú öll uppkomin.
Þótt ómar söngsins hljómi ekki
lengur um Reylqabyggð á björtum
vomóttum mun þó minningin um
þær dýrðarstundir lifa enn um hríð.
Reykjalundur, SÍBS og við hjón-
um sendum Þuríði, bömunum og
öðmm ættingjum innilegar samúð-
arkveðjur. 0ddur ó|afgson
Þá er Svenni frændi farinn. Það
lá svo sem að; hann hafði verið svo
lítilfjörlegur síðustu misseri. Þrátt
fyrir erfiðan sjúkdóm hafði hann
þó fótaferð allt til hinstu stundar.
Það var vel því það hefði verið þung-
bært fyrir hann, ofan á allt annað,
að verða rúmfastur.
Sveinn Guðmundsson fæddist í
Reykjavík 7. júní 1924, einn fimm
sona þeirra Ingibjargar Pétursdótt-
ur og Guðmundar Jónssonar,
skipstjóra og bónda að Reykjum
Mosfellssveit. Þar ólst hann upp í
stómm og glaðværum hópi bræðra,
uppeldis- og frændsystkina. Að
skólagöngu lokinni, m.a. í garð-
yrkju, settist hann að á þeim hluta
föðurleifðarinnar, sem ylræktin var
og stundaði garðyrkjuna lengstum
starfsævinnar. Hann var jafnframt,
ásamt mörgu öðm, fjármeistari
Reykjabúsins, en þeir Jón bóndi
þar, bróðir hans, áttu nokkurt sauð-
fé í sameiningu sem Svenni hafði
veg og vanda af.
Það var margt sem maður í æsku
dáði og undraðist í fari þessa-
manns. Eitt fannst mér alveg yfir-
skilvitlegt; hvemig hann fór að því
að þekkja kindumar í sundur sem
mér fannst allar hafa sama sauða-
svipinn. Og þegar ég spurði hann
út í þetta fullur aðdáunar, þá smá-
hló hann og brosti með öllu andlit-
inu eins og honum einum var lagið
og ekki orð um það meir. Dæmi-
gerður Svenni. Eyddi óðar öllum
umræðum um eigið ágæti og vildi
ekkert um það tala. Hann sóttist
ekki eftir frama á opinberum vett-
vangi, en náði honum í ríkum mæli
í hugum samferðamanna sinna. Það
líkaði honum betur. Menn vissu að
þeim var ekki í kot vísað hjá Sveini
Guðmundssyni. Hann var óðar til-
búinn til aðstoðar í stóru sem smáu
svo um munaði, án þess að hafa
þyrfti orð um það.
Svenni giftist Þuríði Siguijóns-
dóttur hinn 4. desember 1948 og
systkinin á Bjargi urðu sex: Jón
Eiríkur, Sveinn, Sigríður, Vigdís,
Guðmundur Ingi og Kristinn Már.
Þannig háttaði til að við systkinin
á Reykjum vorum á sama reki og
fímm þau yngstu á Bjargi. Þar var
maður á mann og þau sjálfkrafa
leikfélagar og vinir hvert í sínum
aldurshópi. Það fór því ekki hjá
því, að maður ætti margar stundir
að Bjargi og var ekki síst löngum
að dingla með Svenna í hveiju því
sem hann tók sér fyrir hendur.
Hann hafði alltaf af nógu að miðla
sem var ekki svo lítils virði fyrir
ungan dreng sem þarfnaðist at-
hygli og tíma hinna fullorðnu.
Svenni hafði hljómmikla og afar
fallega tenórrödd og var eftirsóttur
til söngs í kórum. Alltaf fannst mér
ég heyra hreina og tæra tóninn
hans svífa yfir þegar ég hlustaði á
kórana sem hann söng með. Hann
hefði örugglega náð langt sem ein-
söngvari, en sóttist ekki eftir því.
Ekki hef ég tölu á öllum þeim kór-
um sem hann söng með um ævina
en þeir voru ærið margir, enda var
söngurinn hans líf og yndi. í smala-
mennskum kom röddin hans í góðar
þarfir, þegar hafa þurfti stjóm á
krakkakjánum, sem sífellt voru að
hlaupa í vitlausar áttir. Þegar hann
hóf upp raust sína hljómaði hún um
allt Reykjaflallið og maður horfði
ráðvilltur á hann í ljarska, baðandi
út höndunum við að reyna að koma
okkur á rétt spor, stundum allreiður
áð mér fannst. Þegar niður var
komið og maður beið kvíðafullur
eftir skammagusunni, brosti Svenni
bara og gerði góðlátlegt grín að
öllu saman. Allt var samstundis
gleymt. Þannig var hann; með ólg-
andi skapið sitt en ailtaf svo hlýr
og mannlegur.
Síðustu árin hittumst við ekki
oft. Allt of sjaldan finnst mér nú
eftir að hann er farinn og kemur
ekki aftur. En svona getur það ver-
ið. Svenni var einn af þessum föstuv
punktum I tilverunni og hafði verið
frá því ég man eftir mér. Einhvem
veginn datt mér ekki annað í hug
en að hann yrði alltaf samferða,
rétt eins og verið hafði alla tíð. En
svo hverfur hann allt í einu. Maður
hrekkur upp með andfælum og star-
ir fullur trega og saknaðar í eyðuna.
Með tímanum fyllir þó upp í hana
með minningunni um elskulegan
frænda og góðan dreng; minningu
sem verður dýrmætur fömnautur
og fyrirmynd í lífi og starfí.
Ég bið góðan guð að blessa og
geyma minningu okkar um Svein
Guðmundsson og veita fjölskyld-
unni á Bjargi styrk í söknuði þeirra
og sorg á þessari stundu.
Bjarai Snæbjöra Jónsson
Inn í mildan síðsumardaginn
berst mér ómur af frétt sem sögð
er í nokkurri fjarlægð. Mér heyrist
sagt mannslát, og um muni vera
að ræða Svein Guðmundsson á
Reykjum. Og þegar þetta er orðið
að vissu er tiíveran orðin nokkuð
svo öðruvisi en fyrir stundu. Æsku-
vinur minn og jafnaldri horfinn úr
þessari veröld. Eftir lifa minningar
einar. Gott er nú hversu ljúfar þær
eru allar.
Mér er hugsað rúmlega fjörutíu
ár aftur í tímann. í starfsmanna-
húsi á garðyrkjustöð búa saman
nokkrir ungir menn. Kynni við þá
alla eiga enn þann dag í dag rúm
í huga mínum og fymast ekki. Þeg-
ar gleðskapur ríkti var einn í
hópnum hrókur fagnaðarins. Það
var Sveinn. Þegar sagðar voru sög-
ur af skemmtilegum atvikum var
hann sá sem mest kvað að. Væri á
góðum stundum tekið lagið, sem
oft bar við, komst enginn með tæm-
ar þar sem hann hafði hælana.
Hann hafði fagra og mikla tenór-
rödd sem hann beitti ætíð af
smekkvísi og meðfæddri músík-
gáfu. Máske var þó mest um vert
að þegar deilur risu — sem sjaldan
var — reyndist hann ómetanlegur
sáttasemjari. Hæst ber hann þó í
huga mínum fyrir þann alltof sjald-
gæfa eiginleika að vera ævinlega
skeleggur málsvari þeirra sem
minna máttu sín og undir urðu í
orrahríðum hversdagsins.
Fyrir þetta allt stend ég í óbættri
þakkarskuld við Svein á Reykjum,
og mun ekki einn um það.
radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar |
til sölu
Gott innflutningsfyrirtæki
til sölu. Fyrirtækið hentar mjög vel sam-
hentri fjölskyldu, er með góð umboð fyrir vel
seljanlegar vörur. Þeir sem áhuga hafa, leggi
inn nafn og símanúmer á auglýsingadeild
Morgunblaðsins merkt: „I — 1930“.
Hús til sölu á Egilsstöðum
Kauptilboð óskast í húseignina Lagarás 4,
Egilsstöðum sem er 2ja hæða, samtals 225
fermetrar að stærð. Brunabótamat kr.
6.875.000,-. Húsið verður til sýnis miðviku-
daginn 10. og fimmtudaginn 11. sept. kl.
17.00-19.00 og eru tilboðseyðublöð afhent
á staðnum. Kauptilboð þurfa að berast skrif-
stofu vorri fyrir kl. 11.00 f.h. föstudaginn 19.
sept. nk.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgarluni 7. simi 26844
íbúð til sölu
2ja herb. 65 fm. íbúð í Orrahólum til sölu.
Nafn og símanúmer leggist inn á augld.
Mbl. merkt: „B — 1807“ fyrir kl. 17.00 þriðju-
dag.
Fulltrúaráð í Reykjavík
Almennur fulltrúaráðs-
fundur
Almennur funclur í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verð-
ur haldinn fimtudaginn 11. september kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Dágskrá:
1. Ákvörðun tekin um hvort halda skuli prófkjör vegna komandi al-
þingiskosninga.
2. Ræða Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæðisflokksins.
3. Önnur mál.
Fulltrúaráðsmeölimir eru hvattir til að fjölmenna. Stjórnin.
Aðalfundur
Fylkir FUS á isafirði heldur aðalfund sinn sunnudaginn 7. september
kl. 14.00. Fundurinn fer fram i húsnæði Sjálfstæöisflokksins að •
Hafnarstræti 12, 2. hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Fylkir FUS.
HEIMDALI.UR
f • U S
Sjálfstæðisfólk óskast
Enn á ný eru auglýst laus til umsóknar hin margeftirspuröu emb-
ætti innan skólanefndar Heimdallar. Þar er um að ræöa:
1. Ritstjóra Nýs skóla, framhaldsskólablaös Heimdallar.
2. 3 menn í ritnefnd N.S.
3. Formann skólanefndarinnar.
4. Forseta neðri deildar Valhallar (félagsheimili Heimdallar).
Viö leitum enn sem fyrr aö ungu, áhugasömu, frjóu og framkvæmda-
sömu skólafólki sem er tilbúið til átaka og fórna fyrir sjálfstæðisstefn-
una.
Umsóknum skal skilaö á skrifstofu Heimdallar i Valhöll, Háaleitis-
braut 1, fyrir 13. september. Þar fást einnig nánari upplýsingar í
síma 82900. Skólanefnd Heimdallar.