Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1086 15 Hvað eru lögleg- ir leigubílar? eftir Ingólf Ingólfsson Löglegir leigubílar eru bílar sem merktir eru sem slíkir (TAXA- merki á þaki), því samkvæmt lögum má enginn merkja bifreið sína þann- ig nema uppfylla ákveðin skilyrði. En þau eru t.d. opinbert leyfí frá samgönguráðuneyti, sem fer með öll samgöngumál (á landi, sjó og loffci) um að manninum sé heimilt að eiga og reka leigubifreið til mannflutninga. Að bifreiðin sé með löggiltan gjaldmæli (merki í fram- rúðu). Að bifreiðin sé tryggð til mannflutninga gegn gjaldi. Skoðun og samþykkt af heilbrigðiseftirliti. Furðufrétt Því ráku menn upp stór augu þegar birtist í Morgunblaðinu 14. sept. 1986 frétt með fyrirsögn, „Fólksflutningar leyfast með sendi- ferðabifreiðum“. Menn sem til þekktu voru þó ekki lengi undr- andi, því í greininni var getið um Sigurð Sigutjónsson stjórnarfor- mann Sendibíla hf., sem heimildar- mann að fréttinni. Ég aftur á móti var undrandi á því hvernig Sigurði hafði tekist að koma þessari frétt athugasemdar- laust í jafn virt dagblað og Morgunblaðið án þess að leitað væri umsagnar ábyrgra aðila. Stað- reyndin er nefnilega sú að fréttin er útúrsnúningur á bréfi frá sam- gönguráðuneytinu til Ronalds Kristjánssonar, sem svar við fyrir- spurn frá honum. Þessum útúr- snúningi er síðan komið sem frétt í blað eingöngu til að blekkja fólk. Við skulum nú aðeins skoða þessa furðufrétt. Fyrirsögnin er: „Fólksflutningar leyfast með sendi- ferðabifreiðum". Hvernig hægt er að lesa slíka fullyrðingu út úr bréfi samgönguráðuneytisins er mér hul- in ráðgáta. Forsaga þessa máls er sú að maður nokkur, Ronald Krist- jánsson, skrifar bréf til ráðuneytis- ins og biður um svar við því hvort honum sé fijálst að ferðast með sendiferðabifreið eða vörubifreið eða öðru farartæki sem ekur frá viðurkenndri stöð gegn gjaldi og hvort honum sé bannað að nota leigubifreið sem ætluð er til fólks- flutninga og ekur frá slíkri stöð til þess að sendast með vörur. Ráðuneytið svarar því til að það líti svo á að manninum persónulega sé frjálst og refsilaust að ferðast með hvaða löglegu farartæki sem honum þóknist og greiði gjald fyrir. Lengra virðist Sigurður Sigur- jónsson ekki hafa lesið í bréfinu frá ráðuneytinu, enda er það alkunnur siður manna sem vilja blekkja fólk að sleppa úr því sem ekki passar þeirra iðju. Framhaldið á bréfinu er nefni- lega þannig orðétt: „Ráðuneytið vill aftur á móti benda yður á að í gildi eru lög um leigubifreiðir nr. 36 frá 1970, sem fjalla um leigubif- reiðir til fólksflutninga, sendibif- reiðaakstur og vöruflutninga. Þá hafa reglugerðir verið settar sam- kvæmt þessum lögum.Þessar réttarheimildir kveða á um rétt og skyldur þeirra aðila sem und- ir lögin falla án tillits til áður- nefndra sjónarmiða er yðar varðar í þessum efnum.“ (Leturbreyting höf.) Nú sjá náttúrlega allir að þetta er kjarni málsins. Farþegi sem er í bifreið, þar sem bílstjórinn brýtur af sér, ekur til dæmis of hratt, er ekki sóttur til saka, heldur bílstjór- inn. Alveg sama er með fólk sem sendibílstjóri býðst til að aka og ekur gegn gjaldi, það eru ekki far- þegarnir sem sóttir eru til saka heldur bílstjórinn, því hann er að Ingólfur Ingólfsson brjóta landslög, lög frá Alþingi nr. 36 frá 1970. Bílstjórinn þarf nefnilega að hafa opinbert leyfi yfirvalda til að aka fólki gegn gjaldi. Hann þarf að vera á löglega útbúnum bíl til slíkra hluta, t.d. tryggður til mannflutn- inga gegn gjaldi. Bílstjórinn þarf að uppfylla ákveðin skilyrði sem Sigurður Sigurjónsson hefur ekki getað uppfyllt og vill þess vegna fá að aka fólki í sendiferðabíl. Hafa skal það sem sannara reynist Ég taldi mér ekki fært að fara fram á birtingu bréfsins frá ráðu- neytinu í heild, nema með leyfí ráðuneytisins og skrifaði því ráð- herra, Matthíasi Bjarnasyni, þar að lútandi. Svar barst um hæl, þar sem fram kemur að mér sé frjálst að birta bréf ráðuneytisins, eins og stendur í bréfinu, til „að eyða þeim misskilningi sem umrædd frétt kann að hafa skapað“. Ekki tel ég ástæðu til að hafa fleiri orð þar um. Með þessari grein birti ég því bréfið sem olli öllum þessum „misskilningi" hjá Sigurði Sigurjónssyni. Næst verður fyrir manni í um- ræddri frétt Morgunblaðsins þessi klausa: „Tilefni þessarar fyrir- spurnar til ráðuneytisins var það að deilur hafa staðið yfir um tals- vert skeið milli leigubílstjóra og sendibílstjóra um starfsvettvang þessara aðila.“ Ég kannast ekki við deilu á milli Bifreiðastjórafélagsins Frama og Trausta, félags sendibílstjóra. Eins og sjá má á meðfylgjandi yfirlýs- ingu. Hið sanna er að lögreglan hefur átt í brösum við nokkra bílstjóra hjá Sendibílum hf., sem ekki hafa viljað fara að lögum. Þykir mér að heldur séu þeir farnir að færa sig upp á skaftið þegar þeir opinberlega eru farnir að snúa út úr bréfum frá ráðuneytum. Hvað kemur næst? Líkist það helst ör- væntingu um málstaðinn. En hver er þá málstaðurinn? Jú, hann er að „í öllum löndum sem vilja hafa samgöngu- mál í sem bestu lagi, eru strangar reglur um leigubíla sem og aðra þætti samgangna. A Norðurlöndunum eru mjög ströng lög um leigubifreiðir og í stað- inn fyrir að láta sér detta í hug að slaka á þeim kröfum sem gerð- ar eru til leigubílsijóra eru þær hertar.“ afnema skuli öll lög og reglur um leigubílaakstur. Þá mætti spyija í framhaldi af því: Af hveiju bara leigubílaakstur? Af hveiju ekki sérleyfislögin? Af hveiju ekki einkarétt strætisvagna? Til hvers er verið að veita flugfélög- um ákveðin svæði til að fljúga á? Svarið er mjög einfalt. Þetta er gert til að veita og tryggja almenn- ingi sem besta og öruggasta þjónustu. Aukið traust á leigubílum í Helgarpóstinum 14. ágúst sl. er tekið til umfjöllunar innköllun á atvinnuleyfi Sigurðar Siguijónsson- ar sem ekki hafði farið eftir þeim reglum scm í gildi eru um leigubif- reiðaakstur. Og gat ekki sætt sig við að þurfa að hlíta slíkum reglum sem þar gilda, heldur virðist vilja hafa sínar eigin reglur og þá helst þannig að þær séu breytanlegar frá degi til dags. Nú er það staðreynd að í flestum stéttarfélögum eru til menn sem ekki vilja eða telja sig ekki þurfa að fara eftir lögum og reglum sem aðrir félagsmenn. Sum- ir þessara manna eru þeirrar gerðar að þeir fara gjaman í blöð og gefa sig út sem píslarvotta og reyna að afla sér samúðar fólks. Þá er stund- um undir hælinn lagt hvort hallað er réttu máli eða hvort fjallað er um staðreyndir. I fyrrnefndri grein í Helgarpóstinum kemur það glöggt fram að umræddur maður vill helst bijóta niður öll þau lög sem ráða- menn þjóðarinnar (Alþingi) hafa sett um leigubifrciðir og síðari reglugerðir sem settar hafa verið til að tryggja réttlæti og almenn- ingi öruggari þjónustu leigubíla. í öllum löndum sem vilja hafa sam- göngumál í sem bestu lagi, eru strangar reglur um leigubíla sem og aðra þætti samgangna. Á Norð- urlöndunum eru mjög ströng lög um leigubifreiðir og í staðinn fyrir að láta sét detta í hug að slaka á þeim kröfum sem gerðar eru til leigubílstjóra eru þær hertar. T.d. 17. september, 1986 Tnqdr deiíiir eru uþpi milli Bifreiðdstjórdféldqsins I rdmii oq.Trdustd féldqs sendib i f reiðdst jórd . Aftur «i moti luirm.i b<rði félöqin frdmferði noKkurd mdnnd hjú Sendibílum h/f Hdfruirstræti ?, sem skdpd leiðindi inndn b e q q j «i féldqdnnd. f.h. TrdusUÍ téldqs sendibi f rí»+I>pst jór.i f.h. Bifreiðdstjórdféldqsins Frdmd Yfirlýsing formanna Trausta, félags sendibifreiðastjóra og Bifreida- stjórafélagsins Frama. samcOncurAduneytid 2. S€pt fi66 Hr. Ronald Krlstjánsson Hrlngbraut 46 107 Reyjavík S/223.0 29. ágúst 1986 VÍsað er tll erlndis yöar, dags. 19. þ.M.tþar se* þér ósklð a.a. svara vlð þeln spurningun hvort það sé iúlkun sangönguráðuneytislns að þér sé ekki frjálst að ferðast »eÖ sendi- eða vörubifreið eða öðru fararteki wm ekur frá viðurkenndrl stöð gegn gjaldi og hvort þér sé hannað að nota lelgublfreið se« ctluð er til fólksflutnlnga og ekur frá slíkri stöð til þess að sendast fyrir yður mco vörur. Varöandi fyrri spurnlngu yðar tekur ráöuneytið fra* að þaö lítur svo á að þér persónulega sé frjálst og refsilaust aö feröast ncl hvaða löglegu farartcki sen yður þóknast og freiða gjald fyrir. Varöandi seinni spurnlngunarer það að segja aö ráðuneytlð hefur ekki bannað yðaoreða öðruoi að nota leigubifreiðir, se« ctiaðar eru tll fólksflutninga og aka frá viðurkenndum stöðvuw, til að send- ast roeö vörur. Ráöuneytið vill aftur á wStl benda yður á að í gildi eru lög um leigubifrelðar nr. 36/frá 1970 se« fjalla u* leigubifreiðar til fólkáflutninga, sendlbifreiðaaksturs og vöruflutninga. Þá hafa og reglugerðir verið settar samkvant þein lögun. Þessar réttarheimildir kveða á um rétt og skyldur þeirra aölla sem undir lögin falla án tllllts til áðurnefndra sjónanoiöa er yðoo varða í þcssum efnum. Bréf samgönguráðuneytisins til Ronalds Kristjánssonar. í Svíþjóð er verið að herða reglur um þá menn sem fá leyfi til að aka leigubílum í afleysingum og er ætl- unin að menn verði að taka sérstök námskeið til þess. Augljóst er að ekki eru Svíar á þeim buxunum að leyfa hveijum sem er að hlaupa til og fara að aka leigubíl. Á nýaf- stöðnu Taxaráðsþingi Norðurlanda, sem haldið var í Helsinki dagana 18.—22. ágúst komu þessi mál mik- ið til umræðu og voru menn mjög á einu máli um það að á tímum mjög vaxandi fíkniefnavandamála og allra handa vandræða þeim fylgjandi, ættu yfirvöld að stuðla að því að vandað væri enn frekar val á mönnum í þjónustugreinar eins og leigubílaakstur. Samgöngu- málaráðherra Finnlands sem flutti ávarp á þinginu tók mjög undir þetta og taldi nauðsynlegt að taka þessi mál upp í viðeigandi ráðuneyt- um Norðurlandanna. Fram kom að menn hræðast að fíkniefnasalar muni sækja fast að koma sölumönn- um í raðir leigubílstjóra, því beri að leita allra ráða til að láta ekki ráðast af tilviljun hveijir veljast í svo þýðingarmikið þjónustustarf. Þetta ættu þeir menn, sem telja að best sé að gefa sem flest ftjálst, aðeins að íhuga. Margir eru þeir sem telja að tak- mörkunarlögin um leigubíla séu sett eingöngu fyrir leigubílstjóra. Þessir menn fara mjög villu vegar. Staðreyndin nefnilega sú, að þau eru engu síður fyrir neytendur því þau tryggja að enginn fær að eiga og reka leigubíl nema hann hafí áður unnið sér inn tíma við akstur sem launþegi hjá leyfishafa, oftast í 4—5 ár, og svo lengi á enginn að endast, nema hann hafi sýnt að hann sé heiðarlegur og sé trausts verður. Og þótt engin regla sé án undantekninga, þá hefur þetta kerfi gjörbreytt því ástandi sem var hér áður fyrr, þegar einu kröfumar voru, að maðurinn hefði meirapróf og hefði bíl til umráða. Það fólk sem komið er yfir miðjan aldur, man þá tíð, þegar konur þorðu ekki einar í leigubíl, hvað þá að fólk þyrði að senda böm eða unglinga í leigubíl að kvöldi eða nóttu. Þetta em stað- reyndir sem menn ættu að íhuga. Nú em komin 30 ár síðan takmörk- unarlögin tóku gildi og nú er viðhorfið gjörbreytt. Nú telja allir sig ömgga þegar þeir em komnir í leigubíl og svoleiðis á þetta að vera. Menn gera sér oft ekki í fljótu bragði ljóst hveð mikið öryggi það er fyrir borgarana að vita fyrir víst, að þegar þeir eða börn þeirra em komin í merkta leigubifreið (Taxa- merki á þaki) að þar eru atvinnu- menn að starfí sem má fyllilega treysta og em á löglega útbúnum bifreiðum fyrir atvinnuakstur. Ég skil það vel að ýmsir menn skuli vilja komast fram hjá öllum reglum og komast í þessa atvinnu- grein hvað sem lögum líður. En ég skil ekki að yfirvöld skuli láta það líðast að brotin séu lög og allar reglur um þessi mál eins og átt hefur sér stað í litlum sendibílum hér í borg, þar sem mönnum hefur líðst að fylla litla sendibíla af sætum og aka fólki eins og ekkert sé sjálf- sagðara. Ovíst er hvort þessir bílar em tryggðir fyrir gjaldtöku í fólks- flutningum, óvíst hvort mennirnir séu með meirapróf, hvað þá að þeir uppfylli þau skilyrði að hafa þurft að sanna með starfi að þeim sé treystandi í leigubílaakstur. Ég tel að yfírvöld ættu að hrista af sér slenið og framfylgja lögum í þessu máli áður en slys hljótast af. Það væri stórt skref afturábak ef tilvilj- un á að ráða hvaða menn ráðast í þetta starf. Það er nefnilega svo, að það reynir oft á heiðarleika og alla framkomu þessara manna við fólk í ýmiskonar ástandi, því er nefnilega ekki að neita að oft er fólk í því ástandi að það þarf frek- ar að passa það en það geti gætt sín sjálft. Afar sjaldgæft er að leigubílstjóri sé kærður fyrir mis- ferli í starfí enda slík mál tekin föstum tökum. Oft er talað um að Frami, stéttar- félag leigubílstjóra, ráði hve margir leigubílar séu í starfí. Þetta er mik- ill misskilningur. í nýjustu reglu- gerð um leigubifreiðir, sem sett var af samgönguráðuneytinu 1985, er umsjónamefnd leigubifreiða skipuð fímm mönnum. Formaður nefndar- innar er frá ráðuneytinu, annar er frá Reykjavíkurborg, sá þriðji frá Seltjarnarnesi, Kópavogi, Mosfells- sveit og Hafnarfírði, sá fjórði frá Frama og fímmti frá þeim mönnum sem eru að vinna sér inn tíma til atvinnuleyfis. Það sjá því allir að hagsmunir borgaranna ættu að vera í fyrirrúmi, en ekki einhveijir annarlegir hagsmunir. Nú eru hér samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofu íslands 131.953 íbúar á stór Reykjavíkursvæðinu, en 615 leigu- bílar, eða 214 íbúar á bak við hvern leigubíl. En hvernig er þessu varið í næstu höfuðborgum. I Stokkhólmi og Osló eru 1.000 íbúar á bak við hvern leigubíl og í Kaupmannahöfn cru 625 íbúar á bak við hvern leigubíl. Áf þessu má sjá að vel er séð fyrir fjölda leigubíla hér á landi, þrátt fyrir að einkabflaeign á Is- fandi er með því hæsta sem þekkist. Enda reka útlendingar upp stór augu og undrast slíkan fjíilda leigu- bíla sem hér er miðað við fólks- Qölda. Þegar menn skoða þessi mál öll í réttu ljósi, þá ætti það því að vera augljöst að hvergi má gefa eftir á þeím lögum og reglum sem gilda um þessa þjónustegrein, þannig er best hægt að tryggja almenningi örugga og trausta þjónustu. Höfundur er formaður Bifreiða- stjórafélagsins Frama.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.