Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 25
24 25 Kamrana þurfti að færa. Fyrst þurfti að grafa djúpa holu, svo lyftu allir kamrinum og færðu hann yfir holuna. Unglingar í sjálfboðavinnu við hreinsun í Landmannalaugum Áður en skáli Ferðafélagsins var kvaddur þurfti að semja texta fyrir gestabókina. í nemendahópnum má sjá Kristján Sigfússon og Þóru Þórarinsdóttur, kennara í Hlíðaskóla. Varla var búið að losa kamarinn frá jörðu er óhemju óp og skrækir heyrðust frá krökkunum og vildu þeir helst losa tak sitt og hlaupast á brott. Bergþór leyfði þeim ekki að komast upp með neinn tepruskap og sagði: „Já, krakkar mínir, þetta er eitt af því sem verður að gera á Qöllurn." Það tók því varla að vera með þessi óhljóð, því þegar svona margir hjálpast að er flutn- ingur eins kamars ekkert mál. Nemendur fengu líka að spreyta sig á girðingavinnu. Fyrirhugað er að reyna að tyrfa tjaldstæðin í Landmannalaugum á næstu árum og hafa því verið gerðir litlir til- raunareitir til að sjá hvernig grasið kemur undan vetri. Þessa reiti varð að girða. Auk þess fengust krakk- arnir við það, sem virðist ætla að verða eilífðarverkefni hér á landi, en það er að tína rusl. Mikið skelfi- lega er leiðinlegt og ljótt að sjá hymur í öllum regnbogans litum Unglingarnir okkar búa yfir ótrúlegri orku. í landi okk.tr bíða ótal verk þess að verða unnin. Fátt er betra til að kynnast fólki en að fara til fjalla. Má ekki sameina þetta allt á einhvern hátt? Síðastliðið vor fórum við kennar- ar í Hlíðaskóla að velta því fyrir okkur hvort við gætum ekki sam- einað þetta á einhvem hátt. Við töldum að það myndi reynast vel í byijun vetrarstarfs að fara með nemendahópinn í ferðalag. Á ferða- lögum kynnast menn oft á annan hátt en í daglegu starfi. Þeir sýna jafnvel á sér nýjar óþekktar hliðar og þar geta mörg ljós skinið, sem sjaldan fá tækifæri tl að skína í daglegu skólastarfi. Krakkamir koma flestir glaðir heim úr slíkum ferðum, þeim fínnst erfitt að kveðj- ast, og þegar árin færast yfir er minningin um skemmtilegt skóla- ferðalag ein af þeim minningum, sem seint gleymist. Við vorum ákveðin í að hafa þessa ferð öðruvísi en þær hefð- bundnu vorferðir sem flestir kannast við: Við ætluðum ekki bara að ferðast, fræðast um landið og njóta útiveru, heldur var eitt aðal- markmiðið, að í þessari ferð skyld- um við gera landinu okkar gagn. Við vissum að verkefnin, sem ungl- ingar geta leyst af hendi em óþijótandi fái þeir örlita leiðsögn og verkstjóm. Því meira sem við ræddum málin því hrifnari urðum við af hugmyndinni um sjálfboða- liðaferð. Staðráðin í að láta drauminn rætast skrifuðum við í minnisbækur undir 1. september — „fara í sjálfboðaliðaferð". Þegar skólastarf hófst á ný fór- um við að ræða draumaferðina. Okkur fannst liggja beinast við að hafa samband við landvernd, minn- ug þess að þegar sum okkar vom yngri vomm við send til að skera mel við Þorlákshöfn og tína lúpínu- fræ í Heiðmörk. Við höfðum samband við þá hjá Landvemd og fengum að vita, að nokkur ár em síðan tekið var að nota vélar við melskurð, en tínsla lúpínufræja væri enn viðhöfð undir umsjón Andrésar Arnalds. Andrés tók málaleitan okkar einstaklega vel og var hrifinn af framtaki okk- ar, en þar sem tíðarfar í sumar var mjög gott vom fræhylki flest spmngin, og því lítið sem ekkert eftir af fræjum til að tína. Hann bauðst hins vegar til að koma til okkar í heimsókn með skyggnu- myndir og fræða nemendur um uppblástur, orsakir hans og afleið- ingar, hvemig mætti reyna að hefta hann og ýmislegt fleira, sem að Nemendur í Hlíðaskóla tína grjót af tjaldstæðinu i Landmannalaugum. Ferðamenn bera gjarnan steina inn á stæðin til að halda tjaldhælunum niðri. Með það í huga, að tjaldstæðin í Landmannalaugum verði tyrft, hafa verið gerðir tilraunareitir til að sjá, hvernig grasið kemur undan vetri. Þessa reiti varð að girða. 4- landvemd sneri. Það boð munum við ömgglega þiggja þegar líður nær vetri, og kunnum við Andrési kærar þakkir fyrir hjálpsemi og velvild. Því næst höfðum við samband við Náttúmvemdarráð og náðum þar tali af Helgu Edwald. Við sögð- um henni frá hreinsunarferð sem hópur ungmenna úr Hlíðaskóla fór fyrir 5 ámm í Landmannalaugar og spurðum hana hvort nokkur 1 möguleiki væri á að endurtaka slíka og öðmm vemduðum svæðum og talaði um nauðsyn þess að allir gengju vel um landið. Þegar inn í Landmannalaugar var komið tóku á móti okkur tveir landverðir Náttúmvemdarráðs, þeir Hlynur Óskarsson og Ólafur Ein- arsson, og tveir skálaverðir Ferða- félags Islands, þau Guðríður Jónsdóttir og Bergþór Njáll Kára- son. Nemendumir drifu allir í að koma farangrinum sínum fyrir og fá sér hádegissnarl. Að því loknu var þeim skipt í hópa og fór hver hópur með yfirmönnum til að vinna sitt verk. Meðal þess sem nemend- umir gerðu var að tína steina af tjaldstæðunum þremur, en ferða- menn bera gjarnan steina inn á tjaldstæðin til að halda tjaldhælun- um niðri. Allt gijót þarf að setja í vörður fýrir veturinn svo að tjalda megi næsta sumar. Kamrana þurfti að færa. Fyrst var grafin stór djúp hola, svo röðuðu allir sér við brúnir kamarsins: „Einn, tveir og lyfta!" liggjandi eins og hráviði út um allt, hvert á land sem farið er. Okkur kennumnum fannst ánægjulegt að sjá og heyra hversu hressilega bæði landverðir og skálaverðir lögðu sig fram við að útskýra allt fýrir hópn- um, hvers vegna verið væri að vinna hvert verk, fýrir utan að segja þeim og sýna hvemig best væri að verk- unum staðið. Áuk þess vom þeir mjög viljugir að benda nemendum á og útskýra mörg þau náttúrufyrir- brigði, sem þama er að finna. Enginn má halda að ferð þessi hafi verið stanslaust púl og vinna. Hópurinn var leystur frá störfum um kl. 17.00 fyrri daginn og hafði þá hver frelsi til hvers sem vildi. Krakkarnir nýttu sér tímann vcl, fóm í fjallgöngur, tíndu ber, gengu inn Grænagil, ærsluðust í lauginni og nutu lífsins. Bergþór gaf skýr fyrirmæli um að ró skyldi komin í skálann á miðnætti. Þó enginn þyrði að óhlýðnast honum áttum við kennararnir von á að það gæti gengið brösuglega, samkvæmt fyrri reynslu. Öllum til mikillar undmnar vom allir sofnaðir um miðnætti, alsælir og þreyttir eftir yndislegan ðag. Á sunnudeginum fengum við svipuð störf. Þegar kom að því að kveðja þennan dásamlega stað og þetta þrælhressa fólk, vom margir sem mölduðu í móinn. „Getum við ekki verið einn dag enn?“ Nei, þvi miður, ekki núna. Nú var bara að drífa sig að þrífa skálann og halda til byggða. Þá kom dálítið annað hljóð í hópinn. Okkur fannst kostu legt og leiðinlegt að verða enn einu sinni vitni að því, að það er sama hversu fúsir unglingarnir er til ýmissa starfa, þá em þeir oftast tregir til að taka til eftir sjálfa sig. Eftir nokkrar fortölur fóm karl- mennimir í hópnum upp að skúra, þótt þeim fyndist það engan veginn „karlmannsverk". Á leiðinni til baka notuðum við tækifærið og skoðuðum ýmsa markverða staði, svo sem Ljótapoll, sem enginn skildi af hvem bæri það nafn, og Hekluhraunið frá 1980. Við komum heim á sunnudags- kvöldi alsæl og ánægð eftir vel heppnaða ferð. Þegar við vomm að kveðjast í rigningunni, spurði einn nemendanna: „Heldurðu að það sé ekki ömgglega sól ennþá í Land- mannalaugum?" Öll vom þau sammála um að þetta hefði verið „æðislega gaman". Þegar við kennararnir hugsum til baka til þessarar ferðar emm við ekki einungis sammála um að þessi ferð sé ein sú skemmtilegasta sem við höfum farið, hún var líka mjög gagnleg. Nemendur kynntust þama landinu sínu á nýjan hátt, fæstir höfðu gert sér grein fyrir hve mörg verk væri að vinna til fjalla og hve mörg þeirra væm til- komin vegna slæmrar umgengni okkar sjálfra. Þeir lærðu ýmis vinnubrögð og fengu heilmikla fræðslu í náttúru- og landafræði. Þess fyrir utan gafst nýjum nem- endum gott tækifæri til að kynnast hópnum og allir nutu útivemnnar í glampandi sól. Verðirnir þökkuðu okkur kærlega fyrir komuna og sögðu að með vinnu okkar hefðum við sparað þeim allt að fimmtán daga verk. Nú stendur til að at- huga, hvort ekki megi gera ferðir sjálfboðaliða frá skólum til ýmissa starfa að árlegum viðburði. Við er- um því mjög hlynnt, og nú sem fyrr tölum við af reynslu. Texti: Þóra Þórarinsdóttir Myndir: Kristján Sigfússon MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986 MORGUNBLAÐIÐ/FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986 ferð. Henni leist strax mjög vel á hugmyndina og eftir nokkrar hring- ingar hingað og þangað var ákveðið að bjóða hópnum í helgarferð í Landmannalaugar. Mikil var gleði og þakklæti nem- enda okkar þegar við sögðum þeim frá fyrirhugaðri ferð. Við tókum það skýrt fram, að þetta væri sjálf- boðaliðaferð og því skyldu þeir aðeins fara sem væm boðnir og búnir að vinna fyrir ferðinni. Nátt- úruverndarráð ætlaði að borga fyrir þá rútugjöld og Ferðafélag Islands að gefa þeim eftir skálagjöld, ef þeir væm fúsir til að vinna fyrir þá í staðinn. Nemendur vom ekki lengi að gangast undir þessi skilyrði, enda vita þeir að útivistin og sam- veran veita mikla gleði og ekki minnkar ánægjan ef þeir gera gagn. Við lögðum af stað með 31 nem- anda ki. 8.30 á laugardagsmorgni, eftir að Helga Edwald hafði komið og gert nemendum grein fyrir hvert þeir væm að fara og til hvers. Hún færði þeim öllum bækling með korti af friðlandinu að fjallabaki og sagði þeim frá starfi Náttúmverndarráðs, Þrátt fyrir að hart væri lagt að sér við vinnuna, var ferðin einnig notuð til að kynnast náttúru landsins. muninum á friðlöndum, þjóðgörðum Hér sést hluti hópsins í nýja Hekluhrauninu. Hryðjuverk í París Hundruð saklausra vegfar- enda, einkum konur og böm, hafa að undanfömu verið fórnarlömb hryðjuverkamanna í París, sem em að reyna að knýja stjórnvöld til að láta nokkra fé- laga sína lausa úr fangelsi. Skoðanakannanir benda til þess, að sjö af hveijum tíu Frökkum séu sammála yfirvöldum um það, að láta ekki undan þessum kröf- um. En hryðjuverkamennirnir halda uppteknum hætti og gera hveija níðingsatlöguna á fætur annarri að óbreyttum borgumm. í París, sem haft hefur á sér ímynd borgar hins áhyggjulausa götulífs, standa nú lögreglu- menn, gráir fyrir jámum nánast á hveiju götuhomi, að sögn fréttaritara Morgunblaðsins. Þetta ástand er vissulega óvið- unandi. Það er hins vegar fljót- fæmisleg og röng ályktun, að allt falli í ljúfa löð ef franska ríkisstjórnin sýnir það „raunsæi" að fallast á kröfur hryðjuverka- mannanna. Reynslan sýnir, að undanlátssemi eflir hryðjuverka- menn frekar en hitt, og öll rök hníga að því, þegar málið er skoð- að í heild, að það sé aðeins öflugt viðnám, sem megni að halda þessum glæpamönnum í skefjum. Því miður er óraunsætt að ímynda sér, að unnt sé að losna við hryðjuverk í eitt skipti fyrir öll. I veröld nútímans em sam- göngur, tækni og fjölmiðlun með þeim hætti, að hryðjuverkamenn eiga auðveldari leik en nokkm sinni fyrr. Það þarf litla fjármuni til að komast. yfir skotvopn og öflugar sprengjur, ferðalög heimsálfa á milli taka stutta stund og með vel skipulögðum hætti er hægt að ná athygli allr- ar heimsbyggðarinnar, eins og dæmin sanna. Lýðræðisskipulag- ið er líka sérlega veikt fyrir árásum hryðjuverkamanna og vert er að minnast þess, að í ein- ræðis- og alræðisríkjum (þar sem ekki ríkir beinlínis stríðsástand) em hryðjuverk að heita má óþekkt. Gegn hryðjuverkum dugir ekk- ert annað en ákveðni og festa. Hryðjuverkamenn eiga hvergi að eiga griðastað og þau ríki, sem hýsa þá, eiga að fá að fínna fyr- ir því. Efla þarf alþjóðlega lögreglusamvinnu og landa- mæraeftirlit. Gera þarf sérstakar ráðstafanir á flugvöllum og í flughöfnum. Ihuga þarf vand- lega, hvort breyta beri eða jafnvel afnema ýmsar undanþágur stjómarerindreka, en dæmi em til þess að þær hafí verið misnot- aðar herfílega. Auðvitað bitnar slíkt einnig á almennum borgur- um, svo sem t.a.m. hin nýja krafa Frakka um vegabréfsáritun er- lendra ferðamanna, en þessi óþægindi em lítilræði í saman- burði við þá skelfíngu, sem úthýsa mætti. Ekkert eftirlit og engar varúðarráðstafanir megna að útiloka hryðjuverk, en án þeirra er hryðjuverkamönnunum beinlínis boðið heim. Þetta em lærdómar, sem ódæðin í París ættu að vekja okkur til vitundar um, hafi önnur hryðjuverk að undanförnu ekki þegar gert það. Enginn veit, hvar þessar haturs- fullu bleyður ber næst niður. Það gæti þess vegna orðið hér á landi, enda skammt síðan Norðurlöndin vom vettvangur hryðjuverka- manna. Á slíkum tímum, sem við nú lifum, er árvekni höfuðdyggð. Óbilgirni Sovét- manna Ovissa ríkir enn um það, hvort Sovétmenn muni standa við fyrirheit sín og kaupa saltsfld af íslendingum, eins og viðskipta- samningur Islands og Sovétríkj- anna gerir ráð fyrir. Á aðalfundi félaga síldarsaltenda á Norður-, Austur- og Suðurlandi í Reykjavík á miðvikudaginn greindi Gunnar Flóvenz, fram- kvæmdastjóri Sfldarútvegsnefnd- ar, frá því, að Sovétmenn hefðu sett fráleit skilyrði fyrir því að standa við samninginn. Meðal annars hefði Prodintorg, hinn sovéski viðsemjandi, krafist þess nýlega, að engir hringormar væm í saltsíldinni. Þetta skilyrði kvað Gunnar óhugsandi að upp- fylla, þar sem síldin fyrir sovéska markaðinn væri heilsöltuð. Al- mennt væri líka út í hött, að reyna að ábyrgjast hríngormaleysi, þar sem það þýddi að gegnumlýsa þyrfti hveija sfld! Morgunblaðið hefur áður greint frá áþekkum kröfum Sov- étmanna vegna síldarsölunnar, m.a. kröfu um umbúðir, sem hvergi er hægt að fá í heiminum! Gunnar Flóvenz nefndi fleiri nýj- ar kröfur Sovétmanna á fyrr- nefndum fundi, þ. á m. um einhliða úrskurðarrétt þeirra ef deilur kæmu upp um gæði vör- unnar. Þessi óbilgimi Sovét- manna bendir til þess eins, að þeir séu að reyna að komast und- an því að standa við viðskipta- samninginn. Aðferðirnar, sem þeir nota, eru ekki geðfelldar. Á hinn bóginn koma þær ekki á óvart og fyrirvaramir geta horfið eins og dögg fyrir sólu verði kippt í spottana í Kreml, þar sem pólitísk sjónarmið ráða meiru en viðskiptaleg. Það er kannski vegna þess, að Islendingar átta sig á hinu óskoraða valdi flokks- ins í Moskvu að þeir em ekki eins reiðir í garð þeirra, sem þar ráða, og hinna, sem fara með völdin í Washington og bera hagi hvala fyrir bijósti? Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulitrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavik Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. ^orbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakiö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.