Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986 33 | atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna | MÝVATN Tónlistarskóli Mývatns óskar að ráða skólastjóra. í boði er starf við skóla er starfað hefur 14 ár í samfélagi þar sem tónlistaráhugi er mikill. Starfinu fylgir nýtt einbýlishús í Reykjahlíðarhverfi. Maki væntanlegs skólastjóra, hafi hann tónlistar- kennaramenntun, getur einnig fengið starf við skólann. Auk starfs við skólann kemur til greina starfsemi utan hans svo sem kór- stjórn. Uppl. um störfin veitir undirritaður í símum 96-44263 og heima í síma 96-44158. Sveitarstjóri Skútustaðahrepps. Sérverslun í Hafnarfirði óskar eftir starfst. til framtíðar- starfa. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Vinnutími frá kl. 13-18. Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist augldeild Mbl. fyrir 30. september 1986 merkt: „H - 6627“. Leitið upplýsinga Óskum að ráða nú þegar starfsfólk í áfylling- ardeild. málning Marbakkabraut 21 200 Kópavogi, sími 40460. Fulltrúi — Lögmannsstofa Löglærður fulltrúi óskast á lögmannsstofu í Reykjavík í fullt starf. Æskilegt er að viðkom- andi geti hafið störf í október nk., annars eftir samkomulagi. Góð vinnuaðstaða á góð- um stað í bænum. Umsóknir er greini atriði sem að gagni mega koma við mat á umsækjanda, leggist inn á augld. Mbl. fyrir 25. september nk. merkt: „LF - 1234“. Vantar smiði og verkamenn til vinnu í Kópavogi. Upplýs- ingar í síma 641113 og 641588. íslensk matvæli hf. Hafnarfirði Óskum eftir starfsstúlkum í framleiðslustörf. Framtíðarvinna. Upplýsingar hjá verkstjóra á staðnum á milli kl. 14.00 og 16.00. íslensk matvæli hf. Hvaleyrarbraut 4-6. Ólafsfjörður Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Ólafsfirði. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 62437 og hjá afgreiðslu Mbl. í Reykjavík í síma 91-83033. Seyðisfjörður Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Seyðisfirði. Uppl. hjá umboðsmanni í síma 2129 og hjá afgreiðslunni í Reykjavík í síma 91-83033. Auglýsingateiknarar og sendill Viljum ráða auglýsingateiknara í fullt starf. Hlutastarf gæti verið um að ræða til að byrja með. Einnig sendil 4-6 tíma á dag eftir samkomu- lagi. Tilboð sendist augldeild Mbl. merkt: A-500“. Hafnarfjörður Tölvur Starfskraftur óskast til skráningarstarfa á IBM tölvu. Um er að ræða 50% vinnu. Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist augldeild Mbl. fyrir þriðjudaginn 23. sept. 1986 merkt: „H - 5556“. Starfsfólk óskast Okkur vantar starfsfólk til þjónustustarfa, heilsdagsstarf (vaktavinna) og matreiðslu- menn. Upplýsingar á staðnum milli kl. 16.00 og 20.00 í dag og á morgun. QJPP* nmm Aðstoðarfólk Brauðgerð Mjólkursamsölunnar vantar aðstoðarfólk. Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 17485 eða á staðnum. Mjólkursamsalan — brauðgerð Brautarholti 10, Reykjavík. Skólafólk ath. Óskum eftir að ráða tvo ábyggilega karlmenn eða konur til starfa við eftirlit og uppfyllingu á „mini“-börum hótelsins (ekki yngri en 20 ára). Áætlaður vinnutími er frá kl. 10.00-14.00, 1-3 klst. í senn. Lysthafendur hafi samband við Steinunni Eggertsd. eða Ármann Guðmundss. á skrif- stofu Gildis hf. milli kl. 9.00 og 16.00 í dag og eftir helgi. Gildihf. Hjúkrunarfræðingar Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga við heilsugæslustöðvar eru lausar til umsóknar nú þegar: 1. Heilsugæslustöðin á Patreksfirði. Staða hjúkrunarforstjóra. 2. Heilsugæslustöðin á Þórshöfn. Staða hjúkrunarfræðings eða Ijósmóður. 3. Heilsugæslustöðin í Reykjahlíð, Mý- vatnssveit. Staða hjúkrunarfræðings. 4. Heilsugæslustöðin á Ólafsfirði. Hálf staða hjúkrunarfræðings. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf við hjúkrun sendist Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fyrir 1. október 1986. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 15. september 1986. Starfsfólk óskast í mötuneyti Reykjalundar, Mosfellssveit. Húsnæði getur fylgt á staðnum. Upplýsingar gefur Geir Þorsteinsson í síma 666200. REYKIALUNDUR Vélstjóra vantar á landróðrabáta. Upplýsingar í síma 93-6128. Stakkholt hf., Ólafsvik. Útflutningsráð íslands óskar að ráða markaðsstjóra Verksvið: Aðstoð við fyrirtæki, sem eru í útflutningi eða vilja hefja útflutning, skipulag samstarfs fyrirtækja og útflutningsátak, markaðsathuganir erlendis, hagkvæmnisat- huganir og fyrirlestrahald. Starfssvið: Tæki og tækni tengd fiskveiðum og framleiðslu sjávarafurða, rafmagns- og rafeindatæki, tölvuhugbúnaður, verkefnaút- flutningur, útflutningur tækniþekkingar. Kröfur: Frumkvæði, samstarfshæfileikar og reynsla í atvinnulífinu, málakunnátta og hafa verið búsettur erlendis um tíma. Tækni- menntun með viðskiptalegri reynslu eða viðbótarnámi í markaðsmálum. Skriflegar umsóknir sendist til: Útflutningsráð íslands, Lágmúla 5, P.O. Box 8796, 108 Reykjavík, merktar: „markaðsstjóri", fyrir 3. okt. nk. Útflutningsráð íslands. PÓST- OG SlMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða aðstoðarmenn við tengingar jarðsíma á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Nánari upplýsingar verða veittar í síma 26000.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.