Morgunblaðið - 19.09.1986, Qupperneq 23
•'‘MOKGUNBLAfilÐ, FÖSTUDAGtJR 19.' SEPTEMBER 1S86
Ársskýrsla Alþj óðagj aldey rissj óðsins:
Dragbíturinn er
lítill hagröxtur í
Bandaríkjunum
Skuldir þriðja heims ríkja aldrei meiri en nú
Washington, AP.
í ÁRSSKÝRSLU Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem birt var i fyrradag,
er litlum hagvexti í Bandarikjunum kennt um mörg þau mein, sem
lirjá efnahagslífið í heiminum.
„Menn þóttust sjá fyrir, að þensl-
an myndi minnka nokkuð en að
hagvöxtur í Bandaríkjunum færi
úr 6,5% árið 1984 í 2,75% árið
1985 var meiri samdráttur en búist
hafði verið við,“ segir í ársskýrsl-
unni. Bandaríska fjármálaráðu-
neytið gerir ráð fyrir, að
hagvöxturinn verði aðeins meiri á
þessu ári eða 2,9%.
Höfundar skýrslunnar segja, að
minni hagvöxtur hafi valdið verð-
falli á hráefnum, sem eru helsta
útflutningsvara margra fátækra
þjóða. Á árinu 1984 lækkuðu er-
lendar skuldir þessara þjóða nokkuð
en vegna sölutregðunnar í fyrra
hafi þær aftur aukist og séu nú
meiri en nokkru sinni fyrr. Alþjóð-
bankinn, sem er systurstofnun
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, telur, að
skuldir þriðja heims ríkja nemi nú
einum billjarði, 1.000.000.000.000,
dollara.
Afganistan:
Meðaltekjur í fátæktarríkjunum
jukust nokkuð á árinu 1984 en
mjög lítið í fyrra. í flestum ríkjum
Rómönsku Ameríku og Afríku
lækkuðu þær. Þá segir í skýrsl-
unni, að fjárstreymi frá ríkum
þjóðum til fátækra hafi ekkert auk-
ist á síðasta ári. Nettóútlán banka
lækkuðu úr 52 milljörðum dollara
árið 1982 í 14 milljarða árið 1984
og í fyrra voru þau aðeins þrír millj-
arðar dollara.
Afborganir og vextir af lánum
til þriðja heims ríkja jukust hins
vegar á þessum tíma úr aðeins
þremur milljörðum dollara í 129
milljarða.
Aðildarríki Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins eru 151 en fimm þeirra eru
í svo miklum vanskilum með lán,
að þau eru ekki lengur lánshæf.
Er þar um að ræða Víetnam, Guy-
ana, Súdan, Líberíu og Perú og
önnur fjögur, sem ekki voru nefnd,
Hermenn skáru
þorpsbúa á háls
Nikósíu, AP.
HIN opinbera fréttastofa írans, IRNA, heldur því fram að sovézkir
og afganskir hermenn hafi hálshöggvið 42 Afgani, þ. á m. konur,
börn og gamalmenni, í vesturhluta liéraðsins Herat.
Að sögn IRNA átti atburðurinn
sér stað fyrir tveimur vikum í þorp-
inu Maqi Abad, sem er skammt
austur af Herat-borg, sem er höfuð-
borg samnefnds héraðs. Hafi
þorpsbúar verið hálshöggnir í
hefndarskyni fyrir ósigur sovézka
innrásarliðsins og afganska stjóm-
arhersins í átökum við afgönsku
frelsissveitirnar. Þorpið er skammt
frá landamærum Irans.
Vestrænir stjórnarerindrekar í
Afganistan hafa skýrt frá hörðum
bardögum í Herat að undanfömu
og að stríðsaðilar hafi þrisvar skipst
á yfirráðum í eldri hverfum höfuð-
borgarinnar á tveimur vikum. Að
sögn IRNA féllu rúmlega hundrað
sovézkir hermenn og 50 teknir til
fanga í bardögunum í Herat. Hermt
er að þangað hafi verið stefnt
20.000 manna herliði síðustu vik-
urnar til stórsóknar gegn frelsis-
sveitunum.
eiga líka í miklum erfiðleikum.
Vanskilaskuldir við sjóðinn eru nú
743 milljónir dollara en útistand-
andi lán eru rúmur 41 milljarður
dollara.
Góðu fréttirnar í skýrslunni eru
af verðbólgunni, sem hefur minnkað
jafnt í fátækum ríkjum sem auðug-
um. Framleiðsla hefur einnig aukist
til jafnaðar um 3% og vextir lækkað
verulega.
í skýrslunni er Bandaríkjastjórn
hrósað fyrir það, sem hún hefur
gert og ætlar að gera til að lækka
fjárlagahallann, fyrir að hafa lækk-
að vexti og fyrir þá áherslu, sem
hún leggur á, að markaðsöflin fái
að ráða. Vestur-þýsku stjórninni
var einnig gefin mjög góð einkunn
fyrir að stórlækka ríkisskuldirnar
og fagnað var áætlunum hennar
um skattalækkun.
Sovésk
flaug
fór af
leið
Moskvu, AP.
EMBÆTTISMAÐUR í
Kreml staðfesti í gær fregn-
ir þess efnis að sovésk
eldflaug hefði farið út af
braut sinni við æfingar.
Hann sagði að flaugin hefði
Ient á sovésku landsvæði, en
ekki kínversku eins og hald-
ið hafði verið fram.
V amarmálaráðuneyti
Bandaríkjanna skýrði frá þvi
á mánudag að eldflaug sem
skotið var frá sovéskum kaf-
báti 11. september síðastliðinn
í æfíngarskyni hefði farið út
af braut sinni um meira en
2.200 kílómetra. Eldflauginni
var skotið frá Norðurheims-
skautsvæðinu.
Frank Sinatra væntanlegur til Ítalíu:
24 ár liðin frá síðustu
tónleikum söngvarans
Mílanó, AP.
ÍTÖLUM mun brátt gefast tækifæri til að hlýða á hina hljóm-
fögru rödd bandariska söngvarans Frank Sinatra en 24 ár eru
liðin frá því hann hóf siðast upp raust sína þar. Þetta mun hafa
nokkur fjárútlát í för með sér fyrir aðdáendur söngvarans því
miði í bestu sæti mun kosta þá 500.000 lírur (um 15.000 kr. ísl.).
Sinatra mun halda tónleika í
Genúa þann 27. þessa mánaðar.
Þeir sem standa að tónleikunum,
vonast til að hagnaðurinn af þeim
muni nema um fimm milljónum
króna. Sinatra og hljómsveit
munu alls þiggja tæpar þijár millj-
ónir króna fyrir viðvikið. Allur
ágóði mun renna til styrktar Dini
Ferrari-stofnuninni, sem fæst við
rannsóknir á vöðvasjúkdómum.
Frank Sinatra kom síðast til
Ítalíu fyrir tveimur árum ásamt
Barböru eiginkonu sinni. Þá
skruppu þau hjónin í hádegismat
til Genúa frá Mónakó.
Sinatra er nú staddur í hljóm-
leikaför um Evrópu. Umboðsmenn
hans segja tilgang hennar m.a.
vera þann að sannfæra Banda-
ríkjamenn um að óhætt sé að
ferðast þangað. Ferðamanna-
straumur frá Bandaríkjunum til
Evrópu hefur dregist mjög saman
að undanfömu sökum ótta við
hryðjuverk og stöðu Bandaríkja-
dollars.
Til þess að fyrirbyggja svarta-
Aðdáendur Frank Sinatra á ít-
alíu geta tekið gleði sína á ný.
markaðsbrask mun hver einstak-
ur aðeins fá keypta tvo
aðgöngumiða. Verðið á aðgöngu-
miðunum er nokkuð hátt en þess
má geta að miði í bestu sæti á
frumsýningarkvöld í La Seala-
óperunni kostar rúmar 20.000
krónur íslenskar.
'23
H^ini^urent
HAUSTLITIRNIR KOMNIR
Bylgjan, Hamraborg 6, Kópavogi.
Ócúlus, Austurstræti 3, Rvk.
Snyrtivörubúðin Laugavegi 76, Rvk.
Josiane Bellini frá París mun kynna YSL-vörurnar í
Ócúlus, föstudaginn 19. september frá 12—18.
yýE^AINl^URENT
í óiftfíu %b
íW
og
V
5 á?a
á
bessa
ið UPP U fransUn^°Sstrag°n:
..qcjlcr-
ARNARHOLL"