Morgunblaðið - 19.09.1986, Page 37

Morgunblaðið - 19.09.1986, Page 37
MORGUNBLAÐJÐ, FQSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986 37 Minning: Guðjón Friðgeirsson skrifstofustjóri Fæddur 13. júní 1929 Dáinn 13. september 1986 Þeim sem umgengust Guðjón að staðaldri fékk ekki dulist að heilsu hans var brugðið. Erfiðar sjúkra- vistir síðustu ára höfðu sett mark sitt á hann, þó lítið væri um það rætt. Engu að síður kom það á óvart þegar það spurðist á laugar- dagskvöldið var að hann væri allur. Fram á síðustu stund gekk Guð- jón til starfa eins og ekkert væri og í allri framkomu og fasi var hann geiglaus eins og sá sem hyggur að hann eigi langt líf fyrir höndum. En ekki efa ég þó að hann hafi vitað að brugðið gat til beggja vona. Það eru um það bil 25 ár síðan ég kynntist Guðjóni fyrst. Þá var hann kaupfélagsstjóri á Fáskrúðs- firði og stýrði jafnframt Hraðfrysti- húsi Fáskrúðsfjarðar. Leiðir okkar lágu þó ekki saman að marki fyrr en hann gerðist starfsmaður Sjáv- arafurðadeildar Sambandsins árið 1971. Þar starfaði hann alla tíð síðan, lengst af sem skrifstofustjóri. Það er vandasamt starf að vera skrifstofustjóri Sjávarafurðadeild- ar. Jafnframt því sem venjulega felst í starfi skrifstofustjóra þarf hann að annast alls konar félagsleg samskipti við framleiðendur, hafa á reiðum höndum upplýsingar fyrir þá, og leggja grundvöllinn að ölíum útreikningum sem réttlát skipting þeirra á milli byggist á. Afköst Guðjóns í starfi voru feiki- leg, ekki síst þegar mikið lá við. Hann var tölvuglöggur maður og átti auðvelt með að fínna kjarna hvers verkefnis, en gjarnan vildi hann fara eigin leiðir. Það kom ekki á sök, því leiðir hans voru oft styttri en aðrar leiðir, sem hægt var að benda á. Guðjón naut mikillar virðingar í starfi, allra þeirra sem við hann höfðu skipti. Guðjón var sá gæfu- maður að njóta vaxandi trausts eftir því sem árin liðu. Hann var kallað- ur til við lausn erfiðustu verkefna, þó þau væru ekki í hans verka- hring. Nafn hans kom ótrúlega oft upp þegar mikið lá við. Stjórn Fé- lags Sambandsfiskframleiðenda hefur beðið mig að flytja honum þakkir að leiðarlokum og votta fjöl- skyldu hans samúð við fráfall hans. Leiðir okkar Guðjóns lágu saman í starfi, en tiltölulega lítið þar fyrir utan. Engu að síður gáfust mörg tækifæri til að kynnast lífsviðhorf- um hans og skoðunum á mönnum og málefnum. Hann hafði ákveðnar skoðanir, en mesta athygli mína vakti það í fari hans hve hreinskipt- inn hann var. Hann sagði jafnan skoðun sína hreint og umbúðalaust þó að sviði undan stundum. Og menn sóttust eftir að heyra skoðan- ir hans. Hér verða ættir Guðjóns ekki raktar og ekki heldur önnur fjöl- skyldutengsl. Ég þykist vita að til þess verði aðrir, sem betur þekkja til. En ég vil votta Ásdísi og börnun- um mína dýpstu sambúð á þessari erfiðu stundu. Árni Benediktsson Haustdagar á íslandi geta verið daga fegurstir. Þá renna stundum saman í eina hljómkviðu mild birtan og fágaðir litir landsins. Þannig var dagurinn, þegar vinur minn og sam- starfsmaður Guðjón Friðgeirsson kvaddi þennan heim. Hann var að búa sig til heimferðar eftir að hafa eytt fögrum haustdegi við skaut náttúrunnar. En það átti ekki fyrir honum að liggja að fá að upplifa haustdaga sinnar eigin ævi. Kallið kom, þegar ævisól hans sjálfs var fyrir nokkru gengin úr hádegisstað og því getum við tekið undir með skáldinu og sagt: skjótt hefur sól brugðið sumri. Guðjón Friðgeirsson, skrifstofu- stjóri, sem í dag er kvaddur hinztu kveðju frá Kópavogskirkju, fæddist 13. júní 1929 á Stöðvarfirði. For- eldrar hans voru Friðgeir Þorsteins- son, útvegsbóndi á Stöðvarfirði og síðar lengi útibússtjóri Samvinnu- bankans á staðnum, og kona hans Elsa Jóna Sveinsdóttir. Var Guðjón elstur af sex börnum þeirra hjóna. Friðgeii1 er á 77. aldursári, búsettur á Stöðvarfirði.og ber aldurinn vel. Fer raunar enn á sjó á bát sínum, þegar svo ber undir. Elsa Jóna lést árið 1978. Guðjón stundaði nám í héraðs- skólunum að Laugai'vatni og Eiðum en settist síðan í Samvinnuskólann og lauk þaðan prófi vorið 1950. Kornungur tók hann að stunda sjó með föður sínum og fyrstu heilu vertíðina réri hann með honum 14 ára gamall. Faðir hans segir mér, að hann hafi ekki misst úr einn einasta róður það sumarið, þótt ungur væri. Þá var Guðjón og skips- maður á strandferðaskipinu Esju í eitt ár undir lok seinna stríðsins. Kunni hann frá ýmsu að segja frá þeim tíma. Námsárin öll vann Guðjón fyrir sér með sjómennskunni en að námi loknu, nánar tiltekið árið 1950, hóf hann störf hjá Kaupfélagi Stöð- firðinga og starfaði þar til hausts 1954. Hann var starfsmaður í fjár- máladeild Sambandsins í Reykjavík frá hausti 1954 til ársloka 1956 og sinnti þá m.a. eftirliti með starfsemi kaupfélaga víðsvegar um landið. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fá- skrúðsfirðinga var hann í 13 ár, frá ársbytjun 1957 til ársloka 1969. Þetta voru ár mikilla umsvifa til lands og sjávar á vegum kaupfé- lagsins. Útgerðin var stórlega efld og búið í haginn fyrir vinnslu aflans í landi. Árið 1970 hóf Guðjón störf í sjávarafurðadeild Sambandsins og þar var starfsvettvangur hans til dauðadags. Lengi framan af var hann aðalbókari deildarinnar en skrifstofustjóri hin síðustu ár. Það var engin tilviljun að allur starfsdagur Guðjóns Friðgeirssonar var helgaður samvinnufélögunum. Samvinnuhugsjónin var óaðskiljan- legur hluti þeiirar lífsskoðunar, sem fylgdi honum til hinztu stundar. Ungur að aldri kynntist hann þýðingu samvinnustarfsins fyrir lífsbaráttu fólksins. Það var bjarg- föst trú hans, að úrræði samvinn- unnar væru bezt til þess fallin að efla hagsæld fólksins í landinu. Ég veit að þessi trú hans var öðrum þræði sprottin af þeirri reynslu, sem hann hafði áunnið sér sem þátttak- andi í lífsbaráttu þjóðarinnar á sjó og landi en að hluta var hún arfur úr föðurgarði. Faðir hans var í ára- tugi stjórnarmaður í Kf. Stöðfírð- inga og einnig langtímum saman stjórnarformaður í Hraðfrystihúsi Stöðfirðinga. Guðjón Friðgeirsson átti miklu fjölskylduláni að fagna. Hinn 29. nóvember 1957 gekk hann að eiga Ásdísi Magnúsdóttur frá Orrustu- stöðum á Síðu, en foreldrar hennar voru Magnús Jón Sigurðsson, bóndi þar, og kona hans Katrín Sigurlaug Pálsdóttir. Þeim Guðjóni og Ásdísi varð sex barna auðið og eru þau, talin í aldursröð: 1. Elsa, húsfreyja á Fáskrúðsflrði. Hennar maður er Jóhannes Vignisson, sjómaður, og eiga þau eina dóttur. 2. Svanhvít, húsfreyja í Reykjavík. Hún er gift Einari Inga Éinarssyni, vélfræð- ingi, og eiga þau tvo syni. 3. Magnús, starfsmaður í Skipadeild Sambandsins í Reykjavík. Hann er kvæntur Helgu Halldórsdóttur og eiga þau einn son. 4. Friðgeir, starfsmaður hjá Flugleiðum í Reykjavík. Unnusta hans er Hrefna Margrét Guðmundsdóttir. 5. Katrín, nemi, búsett í Reykjaví. 6. Guðdís, nemi, búsett í Reykjavík. Fyrir hjónaband eignaðist Guðjón einn son. Hann er Gottskálk Ágúst, sjó- maður, búsettur í Keflavík, kvæntur Margréti Sigurðardóttur, og eiga þau einn son. Ég kynntist Guðjóni fyrst að marki vorið 1975, þegar ég hóf störf í sjávarafurðadeild Sambandsins en allan þann tíma, sem síðan er lið- inn, höfum við verið nánir sam- verkamenn. Mér varð fljótt ljóst, að þar fór maður sem var óvenju- lega vel verki farinn. Hann var einstakt snyrtimenni og þessi snyrtimennska setti mark sitt á öll störf hans og næsta umhverfi. Guð- jón var einstaklega fljótur að vinna og hvert það verk, sem honum var falið, var þannig af hendi leyst að þar varð ekki á betra kosið. Ekki fór á milli mála að reynsla hans sem sjómaður og kaupfélagsstjóri varð honum mjög notadijúg í störfum fyrir sjávarafurðadeild og framleið- endur hennar. Guðjón gat verið mikill málafylgjumaður, þegar því var að skipta, og þess nutu fram- leiðendur okkar í ríkum mæli. Var hann jafnan óþreytandi að ganga erinda þeiira, innan deildar sem utan. Við samstarfsmenn Guðjóns í sjávarafurðadeild eigum honum mikla þakkarskuld að gjalda. Við vissum sem var, að hann gekk ekki heill til skógar hin síðari ár. Þrátt fyrir það gekk hann hvern dag að vinnu sinni glaður og reifur. Honum var áreiðanlega sjálfum ljóst, að líf hans hékk á þeim bláþræði, sem nú hefur slitnað, og oft fannst mér ég skynja, að hann væri þakklátur fyrir hvern þann starfsdag sem for- sjónin færði honum til viðbótar. Kveðja okkar á skilnaðarstund er blandin miklum trega en jafn- framt þrungin miklu þakklæti fyrir öll árin, sem okkur auðnaðist að starfa með honum. Við Inga og samstarfsfólk hans í sjávarafurða- deild sendum konu hans, börnum og öldruðum föður, svo og öllum öðrum ættingjum, hugheilar sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minnig Guðjóns Frið- geirssonar. Hvíli hann í friði. Sigurður Markússon Guðjón Friðgeirsson fæddist á Stöðvarfirði 13. júní 1929, sonur hjónanna Elsu Jónu Sveinsdóttur og Friðgeirs Þorsteinssonar. Stöðvarfjörður er lítið og snyrti- legt byggðarlag í einkar fallegu umhverfí. Þar byggðu menn af- komu sína á því, sem sjór og land gáfu, og jafnvel barnungir piltar hófu sjóróðra með feðmm sínum eða ættingjum. Á Stöðvarflrði rak kaupfélagið einu verslunina á staðnum og flest- ir íbúanna vom ákveðnir samvinnu- menn og skildu vel gildi samvinnu- stefnunnar. I þessu umhverfi ólst Guðjón upp og ekki var hann gamall þegar hann fór sinn fýrsta róður, en 14 ára varð hann fastur háseti á bát föður síns á summm. Á veturna stundaði Guðjón nám, fyrst í heima- byggð, síðan á Laugarvatni og Eiðum. Að loknu landsprófí innritaðist hann í Samvinnuskólann, en hélt svo til framhaldsnáms á Englandi. Eftir þetta naut Samvinnuhreyf- ingin starfskrafta hans alla tíð. Um nokkurt skeið vann hann hjá Kaupfélagi Stöðflrðinga en réðst síðan að endurskoðunardeild Sam- bandsins. Hann var kaupfélags- stjóri á Fáskrúðsfirði í 14 ár, en undanfarin 16 ár hefur hann starf- að hjá sjávarafurðadeild SIS. Guðjón var afar fljótvirkur og ömggur í allri skrifstofuvinnu. Hann hafði mjög góða rithönd og allt sem hann lét frá sér fara var skilmerkilega og vel uppsett. Hann vann af nákvæmni og trúmennsku og ef erfiðlega gekk hjá fyrirtækj- um, sem hann vann við, leið honum illa. Guðjón var sérstakt snyrtimenni og kom það fram í starfí hans og ekki síður heima fyrir. Aldrei sáust staflar óunninna verkefna á borði hans. Hann lauk því, sem hann var að gera, kom hlutunum á sinn stað og tók síðan til við næsta verkefni. Allt sem hann hafði með að gera, hvort sem það var bátur, bíll eða aðrir munir, átti sinn stað og bar natni hans og hirðusemi glöggt vitni. Guðjón var mikils metinn af þeim sem þekktu hann og hjálpsemi og góðvild átti hann í ríkum mæli. Hann hafði mjög ákveðnar skoð- anir og kvað sterkt að orði ef svo bar undir. Sýndarmennsku átti hann ekki til og hann meinti það sem hann sagði. Hann var gefinn fyrir útivist og sund stundaði hann daglega, ef þess var kostur. Hann var áhuga- samur veiðimaður og fór margar veiðiferðir um dagana. Hann var einmitt í einni slíkri ferð og í þann veginn að sýna dóttursonum sínum nýveiddan lax, þegar kallið kom. Árið 1957 kvæntist Guðjón Ás- dísi Magnúsdóttur, öndvegiskonu, sem reyndist honum mjög vel jafnt í blíðu sem stríðu. Þau eignuðust 6 börn, sem nú eru fulltíða. Elsa býr á Fáskrúðsfirði, Magnús, Friðgeir og Katrín eiga heima i Kópavogi, Svanhvít býr í Reykjavík og Guðdís er enn í heimahúsum. Áður hafði Guðjón eignast dreng, Gottskálk, og býr hann í Keflavík. Barnaböm- in eru orðin fímm. Guðjón var einstakur heimilis- faðir og tók ríkan þátt í uppeldi barnanna, sem og öðrum heimilis- störfum. Hann var heimakær og leið hvergi betur en þar. Hjónin voru mjög samhent við að gera vistlegt og hlýlegt í kring- um sig og einu gilti hve margir gengu þar um garða, hvergi sáust þess merki. Heimili þeirra stóð ávallt opið og þangað var gott að koma. Við Guðjón vorum mjög nánir, ekki aðeins bundnir böndum bræðra, heldur gagnkvæmrar vin- áttu og trausts. Við leituðum hvor til annars ef einhvers þurfti með og áttum margar Ijúfar samveru- stundir við veiðar eða aðra dægra- dvöl. Fyrir þytta vil ég þakka um leið og ég þakka bróðurþelið, sem var svo ríkt. Kona mín og dætur þakka vin- áttu og hlýhug gegnum árin. Margir eiga um sárt að binda við fráfaU Guðjóns en sárast er þetta fyrir Ásdísi, börnin og bamabömin svo og aldinn föður. Megi góður Guð gefa þeim styrk og milda sorg þeirra og söknuð. Þórólfur Friðgeirsson Langri baráttu við veikindi er nú lokið. Ég bið góðan Guð að geyma Bjössa og veit ég að honum er vel borgið. Halldór Þ. Þorsteinsson Afi minn er dáinn. Ég hef minnist hans og hann var. Ég man þau skipti er ég fékk að fara með afa og ömmu í sumar- bústað í Olfusborgum, Munaðarnesi og Apavatni, það vom góðir tímar. Við afi fórum saman út á bát að veiða í Apavatni, ég man alltaf eft- ir eltingarleiknum við fisk sem ég síðan náði. Afi átti hesta og leyfði hann mér stundum að koma á hestbak. Við fórum með hestana upp á Vatns- enda þar sem ég fékk að sitja hestinn en Steina frænka hélt í tauminn. Margar ljúfar minningar koma upp í hugann er ég hugsa til afa míns og þeirra stunda sem við átt- um saman. Guð lofi honum að hvíla í friði og styrki ömmu í hennar sorg. Hulda Sumarliðadóttir Guðbjöm Sumarliða- son — Minningarorð Fæddur 30. maí 1920 honum því gjarnan inn á heimilið. Dáinn 13. september 1986 Hinn 13. september sl. barst sú fregn að Bjössi væri dáinn. Veik- indi höfðu hijáð hann lengi og undanfamar vikur lá hann á spítala, stundum þungt haldinn. Nú er veik- indum hans lokið og hefur hann fengið langþráða hvíld. Guðbjörn Sumarliðason var fæddur 30. maí 1920, sonur hjón- anna Sumarliða Eiríkssonar og Tómasínu Oddsdóttur að Meiða- stöðum í Garði. Sumarliði lést fyrir allmörgum árum, en Tómasína lifir mann sinn og býr háöldruð að Meiðastöðum. Guðbjörn var þriðji í röðinni af átta börnum þeirra. Hann hóf vinnu við sjósókn og beitingar að lokinni skólagöngu. Hann hóf vinnu við sjósókn og beitingar að lokinni skólagöngu. Tvítugur að aldri flutti hann til Reykjavíkur og lauk þar vélstjóra- námi. Síðan réðst hann í vinnu hjá Radíóverkstæði Landsímans. Ásamt vinnu sinni þar lauk hann námi í símvirkjun. Vann hann síðan á skipadeild verkstæðisins allt fram til ársins 1980. Tók hann fljótlega við verkstjóm og kenndi jafnframt við Loftskeytaskólann í mörg ár. Eftir 1980 tók hann að sinna lagerstörfum í hálfsdagsstarfl í tvör ár, Jiar til heilsan brast. Á þeim tíma sem Guðbjörn vann á radíóverkstæðinu var það eini aðilinn sem sá um uppsetningar og viðgerðir á talstöðvum íslenskra skipa. Mikill erill fylgdi þeirri vinnu, bæði á vinnustað og heima. Starfið tók hug hans allan og fylgdi vinna, Sumarbústaður sem þau hjónin áttu að Vatnsenda varð þeim gott at- hvarf. Þar undu þau sér gjarna við ræktun og plöntuuppeldi, þegar þörf var fyrir hvíld. Annan júlí 1949 gekk Guðbjöm að eiga eftirlifandi konu sína, Val- gerði Jónsdóttur. Hún er ættuð frá Akranesi, dóttir hjónanna Jóns Pét- urssonar og Guðrúnar Jóhannes- dóttur, sem bjuggu í Sandvík á Akranesi. Guðbjöm og Valgerður stofnuðu heimili í Reykjavík og hafa búið á Birkimel 8 síðastliðin 34 ár. Börnin urðu flmm, fjórir synir og ein dóttir. Þau em Sumar- liði, Birgir og Sævar sem em tvíburar, Jón Pétur og yngst er dóttirin Steinunn. Auk bama þeirra hjóna átti Guð- bjöm einn son, Jón Steinar, sem ólst upp að Borg í Garði. Valgerður á einnig eina dóttur, Önnu Stínu, sem ólst upp hjá foreldmm hennar í Sandvík. Þau hafa alla tíð verið í góðum tengslum við heimilið að Birkimel 8. Bamabömin em nú tólf talsins, svo ekki verður annað sagt en að hjónunum hafi fylgt mikil bama- gæfa. Guðbjöm átti fjórar tengda- dætur og einn tengdason, sem hafa reynst honum mjög vel, ekki síst í veikindum hans. Ég vil þakka velvild og ljúf- mennsku sem mér hefur alltaf mætt á heimili þeirra. Guð styrki móður Bjössa, sem nú hefur misst hið fyrsta af börnum sínum og eiginkonu hans og böm sem nú hafa misst góðan maka og föður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.