Morgunblaðið - 19.11.1986, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1986
fclk í
fréttum
Fulltrúi þeirra frá Yzta-
kletti, Halldór Þórðar,
sporðrennir fimmta lund-
anum!
Bjarg’veiði-
menn á lundaballi
V estmannaeyj um.
Bjargveiðimenn í Vestmanna-
eyjum héldu um síðustu helgi
sinn árlega fagnað, sem almennt
gengur undir nafninu lundaballið.
Þessi fagnaður veiðimanna í vertí-
ðarlok lundatímans hefur fyrir
margt löngu fengið á sig orð fyrir
að vera ein flnasta veislan í bænum
í vetrarbytjun og hefur þótt eftir-
sótt að komast á þetta viðfræga
ball. Og vissulega var kátt í Höllini
hjá veiðigörpunum og aðstandend-
um þeirra um helgina. Mikið sungið
og gantast og ófáar misáreiðanlega
veiðisögumar sagðar.
Sú regla gildir hjá bjargveiði-
mönnum að félagar úr hinum ýmsu
úteyjum skipast á um að annast
um allan undirbúning og fram-
kvæmd lundaballsins. Að þessi sinni
féll það í hlut Elliðaeyinga að sjá
um herlegheitin og sem vænta
mátti fórst þeim það vel úr hendi.
Veglega hlaðið veisluborð beið
gesta og þar var að sjálfsögðu í
öndvegi lundi, bæði reyktur og
steiktur, með öllu tilheyrandi með-
læti. Þá var á borðum hangikjöt
og ýmsir aðrir þjóðlegir réttir. Hafði
Hjörleifur Guðnason, Elliðaeyingur,
umsjón með matardeildinni og hlaut
lof fyrir.
Jafnan er mikill rígur (í bróðemi
þó) milli úteyjamanna og þar þykir
hveijum jafnan allt mest og best
hjá sér. Þama á lundaballið voru
mættir Elliðaeyingar og Bjamarey-
ingar, Alseyingar og Suðureyingar,
Brandarar og Helliseyingar, veiði-
menn úr Stórhöfða og úr Yzta-
Kletti. Og líka allir hinir. I
úteyjunum og lundaveiðinni al-
mennt er karlasamfélagið ríkjandi
en á lundaballi er eiginkonum og
unnustum að nokkm endurgreitt
Söngelskir Elliðaeyingar, engum öðrum líkir.
Ljósin.: Sigurg. Jónasson.
Bentina
sýnir nýjustu tískuna
Síðasta laugardag hélt tísku-
verslunin Bentina tískusýningu
á Hótel Borg. Þar var sýndur margs
konar tískufatnaður frá Lundúnum
og víðar.
Það sem helst einkennir tískuna
í ár er að kynin skuli klæða sig í
samræmi við kynferðið, konumar
kvenlega og karlmennimir af karl-
mennsku. Aberandi em „draktir",
ýmist með pilsi eða buxum. Jakk-
amir em bæði síðir, sem og stuttir
og aðsniðnir. Buxumar em með
sígildu sniði og piisin bæði með
Yfirkokkur þeirra Elliðaeyinga leggur siðustu hönd á meistaraverk-
ið; Fullt skip lunda, reyktum og steiktum.
Álseyingar í léttu skapi.
fyrir fjarvistirnar. Ekki er óalgengt
að alíra hörðustu úteyjakarlamir
fómi nær öllu sumarfríinu í úteyja-
lífíð.
Skemmtidagskrá lundaballsins
ber gjaman þessa góðlátlega rígs
nokkur merki því skotin fljúga
ótæpilega milli eyja. Á lundaböllum
er alltaf mikið sungið, sem raunar
er nú einkennandi fyrir Vestmanna-
eyinga þegar þeir koma saman til
skemmtunar, og á lundaballinu á
dögunum var vissulega mikið sung-
ið. Ámi Johnsen alþingismaður og
Bjamareyingur stjórnaði fagnaðin-
um af sínum alkunna skörungskap
og var ekki að n.erkja á framgöngu
hans í því ati að hann hafði skömmu
áður orðið að lúta í lægra haldi
fyrir Eggert Haukdal í pólitísku
ati. Raunar fékk Ámi mörg skotin
að gefnu þessu tilefni, en því tók
hann létt og svaraði fyrir sig að sið
bjargveiðimanna.
Eftir að gestir höfðu snætt og
Tóti í Geisla var búinn að vaska
upp var drifinn upp dúndrandi dans
og dansað lengur en lög leyfa.
Hvað um það, lundaball er ekki
nema einu sinni á ári rétt eins og
jólin.
hkj.