Morgunblaðið - 19.11.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1986
53
• Margur er knár þött hann só smár. Hér er Gfsli Helgason,
ungur karatemaður úr Gerplunni, í „katau œfingum.
Morgunblaöið/Bjarni
Karatefélög
á íslandi
Karatefélag Reykjavíkur
er elsta karatefélag á íslandi
og hefur á að skipa flestu
keppnisfólki sem er í fremstu
röð á landinu. Má þar nefna
fasta menn í landsliðinu eins
og Atla Erlendsson landsliðs-
þjálfara, Árna Einarsson sem
hefur náð miklum árangri er-
lendis í Kata þ. á m. náð 10.
sæti á EM og 3. sæti á NM,
Jónínu Olesen sem hefur
keppt erlendis nokkrum sinn-
um aðallega á NM, einnig
má nefna Halldór Svavarsson
sem keppti í landskeppninni
við Skota og N-íra og stóð
sig með miklum ágætum og
er greinilega efnilegur. Á ís-
iandsmeistaramótum hafa
KFR-ingar fengið flest verð-
laun og hafa þar verið á
ferðinni ofantaldir einstakl-
ingar.
Karatefélagið Þórshamar
hefur verið eitt mesta keppn-
isfélag við KFR, en hefur enn
sem komið er ekki náð eins
góðum árangri og þeir á ís-
landsmótum, þó þeir hafi
staðið sig vel þar og eigi jafn-
an einn eða tvo íslandsmeist-
ara. í Þórshamri er mikið um
ungt og mjög efnilegt fólk og
á það eftir að láta mikið að
sér kveða í framtíðinni. í báð-
um þessum félögum æfa yfir
100 manns að staðaldri.
Karatedeild Gerplu var
stofnað 1981 og er því orðið
gamalt félag á mælikvarða
karatefélaga. Gerplufólki hef-
ur gengið vel á mörgum
minniháttar mótum s.s. Shot-
okan-meistaramóti o.fl. og í
Gerplu er Kristín Einarsdóttir
sem er íslandsmeistari í kum-
ite kvenna og er nýliði í
landsliði íslands og mun
keppa á NM nú í lok nóvem-
ber.
Karatedeild Stjörnunnar á
ekki neinn einstakling, sem
skarar fram úr á landsmæli-
kvarða, en þeir eiga jafna
einstaklinga og hafa þar af
leiðandi unnið UMSK-mótið
margsinnis, en það er hér-
aðsmót þar sem Gerpla,
Breiðablik og fleiri keppa.
Karatedeild Breiðabliks
stendur og fellur með karate-
kappanum Ævari Þorsteins-
syni sem hefur verið fastur í
landsliðinu síðustu árin og
staðið sig vel bæði heima og
heiman. T.d. náði hann 2.
sæti á opnu móti í Skotlandi
nú í október í kumite. Deildin
sjálf er í mikilli sókn og iðka
þar um 70 manns karate.
Karatedeild UMF Selfoss
hefur verið í mikilli lægð
síðustu misseri og er það
m.a. því að kenna að aðaldrif-
fjöður þeirra, Ágúst 0sterby,
dvelur erlendis um þessar
mundir. Áður fyrr gátu þeir
komið á óvart á mótum. Á
Selfossi þarf að vinna mikið
uppbyggingarstarf á næst-
unni.
Karatedeild Baldurs á
Hvolsvelli er rúmlega eins
árs karatedeild og herma
fréttir að þar sé allöflugt kar-
atelíf og megi búast við því
að þar verði í framtíðinni
sterkt karatefélag.
Karatedeild Þórs í Þor-
lákshöfn er svotil nýstofnuð
deild, en þrátt fyrir það
stunda nú um 40 manns kar-
ate í Þorlákshöfn.
Karatedeild Sindra á Horna-
firði var um tma eitt allra
gróskumesta karatefélag á
landinu með um 100 iðkend-
ur, en undanfarið hefur
starfið lognast niður að
mestu leyti.
Karateskólinn í Reykjavík
var stofnaður fyrir ári síðan
og strax á fyrsta íslands-
meistaramóti þeirra sl. vor
unnu þeir einn íslandsmeist-
aratitil og -var þar á ferðinni
Finnbogi Karlsson, ungur og
efnilegur.
Karatedeild UMF Bessa-
staðahrepps er einnig
nýgræðingur í karate, en þar
æfa nokkrir áhugasamir Álft-
nesingar karate.
Karatedeild í Vogum á
Vatnsleysuströnd. Eins og
áður er sagt, þá er þar ótrú-
leg þátttaka í karatenám-
skeiði sem nýlega fór af stað,
eða ’/3 hluti grunnskólans iðk-
ar nú karate.
•J V
i
íslandsmeistaramótið í Shotokan:
Stórsigur Þórshamars
— Magnús Blöndal og Elín Eva Grímsdóttir
Islandsmeistararar í „kumite“
getrSÍna-
VINNINGAR!
MAGNÚS Blöndal, Þórshamri,
varð íslandsmeistari í „kumite" á
íslandsmeistaramótinu i Shotok-
an, sem fram fór í Hagaskóla í
síðustu viku. Elín Eva Grfmsdótt-
ir, Þórshamri, sigraði f „kumite"
kvenna, en félagar í Þórshamri
stóðu sig áberandi best í mótinu
og sigruðu í öllum greinum nema
í sveitakeppni, þar sem þeir höfn-
uðu f öðru og þriðja sæti.
í „kumite" karla vann Magnús
Blöndal titilinn af Ævari Þorsteins-
syni, en í kvennakeppninni missti
Kristín Einarsdóttir titilinn í hendur
Elínar Evu. Annars var keppnin
jöfn og spennandi og sórstaklega
sveitakeppnin, en þar fengu
Breiðablik og A-sveit Þórshamars
jafnmarga vinninga og varð að telja
skoruð stig til að skera úr um sig-
urvegara.
Félagar í Þórshamri fengu nær
öll verðlaun í „kata“, en Matthías
Friðriksson, Breiðabliki, var valinn
keppandi mótsins af Ólafi Wallevik,
sem var aðaldómari. Úrslit uröu
annars þessi:
„kumite" karla:
Magnús Blöndal Þórshamri
Ævar Þorsteinsson Breiðabliki
Einar Karlsson Breiöabliki
„kumite" kvenna:
Elín Eva Grímsdóttir Þórshamri
Sigrún Guðmundsdóttir Þórshamri
Kristín Einarsdóttir Gerplu
Sveitakeppnl:
Breiðablik
A-sveit Þórshamars
B-sveit Þórshamars
.. Uorgunblaðið/Júlíus
• Orn Gunnarsson, Þórshamri, (til hægri) nær hér að skora stig
gegn Helga Jóhannssyni úr Gerplu.
„kata" ungllnga:
Magnús F. Guðlaugsson, Þórshamri, 10,8
Magnús Eyjólfsson, Gerplu, 10,5
Jóhann Rafnsson, Þórshamri, 10,3
„kata“ kvenna:
Ingibjörg Júlíusdóttir, Þórshamri, 11,1
Kristin Einarsdóttir, Gerplu, 11,0
Elín Eva Grímsdóttir, Þórshamri, 10,8
„kata“ karla:
Sigþór H. Mark, Þórshamri, 11,3
Svanur Eyþórsson, Þórshamri, 11,2
Ásmundur (sak Jónsson, Þórshamri, 10,8
„hópkata“ þriggja manna:
Þórshamar, A-llð^ 11,5
Gerpla, 10,8
Þórahamar, B-lift, 10,6
13. leikvika - 15. nóvember
1986
Vinningsröð: 1 X2-X1 1 - XXX-2 1 2
1. vinningur: 12 réttir, kr. 727a245|a
55323(6/11) 130751(6/11)
2. vinningur: 11 réttir, kr. 8.905,-
10098 47984 58375 56512 129242 206711
10252+ 45658 64556 57138 130561 207621*
13572 45675 64790+ 57760 200856 210193*
20755+ 51422 68353 103195+ 201511 210203
21875 54102 68758+ 125321 201707* 211643
42153 54902+ 68760+ 126266 201852* 211660+
43182 56144 55231 126456 203743 559942
44586 56964* 95324 127548* 205128+
44918+ 57419 96094 127968 205330 * = 2/11
Kœrufrestur er til mánudagsins 8. des. 1986 kl. 12.00 á hádegj.
Kœrur skulu vera skriflegar. Kaarueyðublöð (ást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni I
Reykjavfk. Vinningsuppheaðir geta laakkað, ef kœrur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvisa stofni eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til fslenskra Getrauna fyrir lok kaerufrests.
íslenskar Getraunir, íþróttamidstöðinni v/Sigtún, Reykjavík