Morgunblaðið - 19.11.1986, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1986
55
Bayern
tapaði
Frá Sigurði Björnssyni, fréttarítara Morg-
unblaðsins í V-Þýskalandi.
TVEIR leikir fóru fram í 3. umferð
bikarkeppninnar i knattspyrnu í
Vestur-Þýskalandi í gærkvöldi.
Deildar- og bikarmeistarar Bay-
ern Miinchen fengu stóran skell
í Diisseldorf, töpuðu fyrir Fortuna
3:0. Þá vann Eintracht Frankfurt
Wattenscheid 3:1 á útivelli.
Leikmenn Bayern voru heppnir
að tapa ekki með meiri mun, því
yfirburðir Diisseldorf voru miklir.
Fyrsta markið kom samt ekki fyrr
en á 70. mínútu, en þá skoraði
Dusend. Preeps bætti öðru við
tveimur mínútum fyrir leikslok og
Bockenfeld innsiglaði góðan sigur
á 90. mínútu. Jean-Marie Pfaff lék
ekki í marki Bayern vegna leiks
Belgíu og Búlgaríu í Evrópukeppni
landsliða í kvöld, en Bobby De-
keyser, sem lék sinn fyrsta leik í
marki Bayern, verður ekki sakaður
um mörkin.
Porterfield
til Aberdeen
Frá Bob Hennessy, fróttarítara Morguit-
blaðsins á Englandi.
IAN Porterfield hefur verið boðin
framkvæmdastjórastaðan hjá
skoska knattspyrnuliðinu
Aberdeen og er talið líklegt að
hann taki boðinu í dag og að
gengið verði frá ráðningunni á
morgun.
Sem kunnugt- er tók Alex
Ferguson, fyrrum framkvæmda-
stjóri Aberdeen, við stjórninni hjá
Manchester United fyrir skömmu,
en Porterfield var rekinn frá
Sheffield United í mars eftir tæp-
lega fimm ára dvöl hjá félaginu.
Hann er 40 ára, en vakti mikla
athygli árið 1973 í úrslitaleik Sund-
erland og Leeds United í bikar-
keppninni á Wembley, þegar hann
skoraði eina mark leiksins og
tryggði Sunderland sigur.
John Blackley, framkvæmda-
stjóri Hibernian undanfarin tvö ár,
var rekinn í gær. Hibernian er í
þriðja neðsta sæti í skosku úrvals-
deildinni með 13 stig eftir 18 leiki,
en leikur gegn efsta liðinu, Celtic,
í kvöld og mun Tommy Craig, að-
stoöarþjálfari stjórna liðinu.
• Dæmigerð mynd frá leiknum í gærkvöldi: Jón Þórir Jónsson hefur stungið leikmenn Fram af f hraðaupphlaupi og skorar framhjá hinum
ágæta markverði Fram, Óskari Friðbjörnssyni.
” Morgunblaðiö/Þorkell
Breiðablik með fuílt
hús eftir 4 leiki
Vann Fram 21:19 í gær og hefur tveggja stiga forystu 11. deild
„Þetta var alveg rosalega sætur
sigur“, sagði Björn Jónsson, fyrir-
liði Blikanna, kampakátur í
búningsklefa þeirra í Laugardals-
höllinni eftir leikinn við Fram í
gærkvöldi. „Sérstaklega vegna
þess að með þvf að vinna Fram
þá sýndum við að við erum ekk-
ert „bólu“ lið sem er í þann mund
að springa. Það var mikill þrýst-
ingur á okkur fyrir leikinn, vegna
þess að margir virðast hafa beð-
ið eftir því að við misstum flugið",
sagði Björn.
Það var gaman í Höllinni í gær-
kvöldi. Þar voru fleiri áhorfendur
en áður á leik í 1. deild í vetur, eða
um 400, og mikil stemmning, enda
leikurinn hörkuspennandi og
skemmtilegur á að horfa. Fram og
Breiðablik komu úr annarri deild í
vor, en hafa sýnt í vetur að þar
fara tvö af bestu liðum íslensks
handbolta um þessar mundir.
í gærkvöldi léku bæði liöin hratt
og af miklum krafti í sókninni og í
vörnum beggja liða var tekið
hressilega á. Leikurinn var jafn frá
upphafi til enda og munurinn yfir-
leitt eitt eða tvö mörk. Bæði lið
voru staðráðin í að sigra alveg þar
til á síðustu mínútu. Og það var
einmitt ekki fyrr en um 20 sekúnd-
ur voru til leiksloka að úrslit réðust
í leiknum. Þegar tvær mínútur voru
eftir var jafnt, 19:19, og Fram með
boltann. En þeir skutu yfir úr
þokkalegu færi í horninu og næstu
sókn Blikanna lauk með marki Sig-
þórs Jóhannessonar af línunni
þegar 1.20 mínúta var til leiksloka.
Fram hóf sókn en komst ekkert í
námunda við mark Blika og þegar
20 sekúndur voru eftir komst Jón
Þórir inn í sendingu, brunaði upp
og skoraði.
Jón Þórir hlýtur að vera okkar
skæðasti hraðaupphlaupsmaður í
dag ásamt Guðmundi Guðmunds-
syni. Hann skoraði átta mörk í
þessum leik og að minnsta kosti
fimm þeirra með því að bruna upp
endilangan völlinn á eldingarhraða
Norski handknattleikurinn:
Stavanger að
stinga af
— Steinar skoraði 8 mörk
Frá Bjama Jóhannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins f Noregi.
STAVANGER er með fullt hús
eftir átta umferðir í 1. deild
norska handknattleiksins og er
með fjögurra stiga forskot á
Urædd, sem er f 2. sæti.
Stavanger vann Bækkeslaget
27:25 í 8. umferð. Jakob Jónsson
virðist vera búinn aö ná sér eftir
meiðslin, en samt sem áður hefur
hann Iftið fengið að leika.
Steinar Birgisson var enn at-
kvæðamestur hjá Kristiansand,
þegar liöiö vann Herluf 26:22, en
Steinar skoraði 8 mörk og er Krist-
iansand nú í 6. sæti með 9 stig.
FSB/SKI hefur ekki gengið of
vel síðustu vikurnar og er greini-
legt að liðiö má illa við að vera án
landsliðsmannanna tveggja, sem
eiga við meiðsli að stríða. Um helg-
ina tapaði liðið 23:21 fyrir Kragero
og er í 7. sæti með 8 stig.
FSB/SKI er komið í undanúrslit
í bikarkeppninni og að sögn Helga
Ragnarssonar, þjálfara, hefur
stefnan verið sett á að vinna bikar-
inn.
• Tony Cottee
Tveirleikir íkvöld
TVEIR leikir verða í 1. deild karla
í handknattleik i kvöld og fara
þeir báðir fram í Laugardalshöll-
inni. Leikur Vfkings og Stjörnunn-
ar hefst klukkan 20.15, en KR og
Valur byrja klukkan 21.30.
Víkingur og Stjarnan standa í
ströngu þessa dagana. Evrópuleik-
irnir um helgina sitja vafalaust í
leikmönnunum og stutt er í seinni
leikina. Stjarnan leikur gegn júgó-
slavneska liðinu Dinos Slovan í
Höllinni á föstudagskvöldið, en
Víkingur gegn St. Otmar í St. Gal-
len á sunnudeginn. Víkingur er
með 6 stig eftir 4 leiki, en Stjarnan
4 stig eftir 3 leiki.
Seinni leikurinn verður á milli
KR og Vals. Valsmenn hafa 4 stig
eftir 4 leiki, en KR-ingar 2 stig.
Oxford
úr leik
Frá Bob Hennessy, fréttaritara Morgun-
blaðsins á Englandi.
MJÓLKURBIKARMEISTARAR Ox-
ford töpuðu 1:0 fyrir West Ham
f gærkvöldi í Littlewoods-bikarn-
um, eins og keppnin nú heitir, og
eru þar með úr leik. Tony Cottee
skoraði eina mark leiksins úr víta-
spyrnu sjö mfnútum fyrir leikslok.
Þrír aðrir leikir voru í keppninni
í gærkvöldi. Arsenal vann Charlton
2:0 og skoraði Niall Quinn bæði
mörkin. Bernard McNally skoraði
sigurmark Shrewsbury gegn Card-
iff á 89. mínútu og Southampton
vann Aston Villa 2:1 í hörkuleik.
Jimmy Case og Colin Clarke skor-
uðu fyrir heimamenn, en Allan
Evans, fyrirliði Aston Villa, skoraði
fyrir gestina úr vítaspyrnu. Fimm
leikmenn voru bókaðir og þrír rekn-
ir af velli í leiknum.
og kasta sér langleiðina í netið
með bolta og öl!u saman. En
Breiðablik á fleiri góða leikmenn.
Bræðurnir Björn og Aðalsteinn
Jónssynir eru stórar og öflugar
skyttur og ágætir spilarar, sérstak-
lega Björn fyrirliði. Og í markinu
er Guðmundur Hrafnkelsson í
banastuði þessa dagana og eitt
mesta efni okkar í handboltanum,
aðeins tuttugu og eins árs gamall.
Hann varði 17 skot gegn Fram í
gærkvöldi.
Leikmenn Fram eru að sjálf-
sögðu óánægðir með tapið, en
þeir geta varla verið óánægðir með
leik sinn fyrstu 55 mínúturnar. Þá
var feiknagóð barátta í liðinu og
vörnin með Per Skaarup í miðjunni
erekki árennileg. Framararnir voru
hinsvegar óheppnir í skotum
sínum, sérstaklega Birgir Sigurðs-
son línumaður, sem fékk fjölda
góðra færa en skoraði bara eitt
mark. Markvarslan hjá Fram var
ágæt - Óskar Friðbjörnsson varði
mjög vel þar til hann var borinn
útaf um miðjan síðari hálfieik eftir
slæmt samstuð við samherja - og
Guðmundur A. Jónsson stóð fyrir
sínu á síðustu mínútunum.
MÖRK UBKdón Þórir Jónsson 8/2, Aðal-
steinn jónsson 4,Björn Jónsson 4, Sigþór
Jóhannesson 2, Kristján Halldórsson 1,
Elvar Erlingsson 1.
MÖRK FRAM:Per Skaarup 6/1, Egill Jó-
hannesson 4, Jón Árni Rúnarsson 3,
Agnar Sigurðsson 2, Hermann Björnsson
2, Birgir Sigurðsson 1, óskar Þorstainsson
1/1.
Texti: Guðjón Arngrímsson
Staðan
STAÐAN f 1.
handknattleik
Fram
UBK
Víkingur
Valur
FH
Stjarnan
KA
KR
Haukar
Ármann
deild
er nú
3
3
3
2
2
2
2
1
1
0
karla í
þessi:
101: 76 6
73: 61 6
90: 85 6
104:100 4
99: 95
84: 80
89: 97
73: 87
88:104
86:102