Morgunblaðið - 28.11.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
3
Olympíuskákmótið:
Islendingar í sjötta
sæti eftir stórsig-
ur gegn Indónesíu
_ _ Handoko — Margeir, svartur lék
___ Skak biðleik.
Bragi Kristjánsson
íslendingar voru í miklum bar-
áttuham í 11. umferð Ólympíu-
skákmótsins í Dubai í gær.
Indónesíumenn höfðu staðið sig
vel á mótinu til þessa, m.a. unnið
V-Þjóðverja og náð ÍV2 vinningi
af Júgóslövum. íslendingar tefla
gegn Bandaríkjamönnum í 12. og
3. síðustu umferð mótsins í dag.
Staða efstu þjóða eftir 11 um-
ferðir (af 14): 1. Bandaríkin 31
v., 2. England 29V2 v. og 1 bið,
3. Sovétríkin 29V2 v., 4. Ungveija-
land 28V2 v., 5. Spánn 28 v., 6.
ísland 27 v. og 1 bið, 7.-8. Búlg-
aría og Pólland 27 v., 9,—13.
Júgóslavía, Tékkóslóvakía, Chile,
Kína og Brasilía 26V2 v.
ísland — Indónesía 3—0
Jóhann — Ardiansjah 1—0
Jón L. — Adianto 1—0
Margeir — Handoko biðskák
Karl — Sitanggang 1—0
Helgi fékk frí vegna biðskákar-
innar við Nogueiras, svo að
Jóhann hafði svart á 1. borði.
Andstæðingurinn var Ardiansjah,
er fyrr á mótinu hafði sigrað
Ljubojevic á mjög sannfærandi
hátt. Jóhann tefldi vel að vanda
og náði fljótt betri stöðu. Hann
vann peð og þegar Indónesíumað-
urinn fór að sprikla til að reyna
að rugla hann, herti Jóhann tökin.
Þegar Indónesíumaðurinn gafst
upp eftir 28 leiki átti hann aðeins
drottninguna eftir gegn tveim
hrókum, riddara og biskupi Jó-
hanns.
Jón tefldi við góðkunningja
okkar frá Reykjavíkurskákmótinu
í vetur, Utut Adianto. Jón lagði
strax til atlögu og fómaði tveim
peðum og síðan hrók. Utut mátti
ekki taka hrókinn en kóngurinn
var fastur á miðborðinu og varð
Adianto að gefast upp í 22. leik.
Margeiri gekk erfiðlega að ná
betra tafli, en með sterkum leikj-
um eftir fyrstu tímamörkin náði
hann vinningsstöðu. Góðu leikim-
ir kostuðu mikinn tíma og Margeir
tefldi ekki nógu nákvæmt í tíma-
hrakinu. Líklega verður erfitt
fyrir Margeiráð vinna biðstöðuna,
sem er þannig:
Andstæðingur Karls var eini
Indónesíumaðurinn sem fékk ein-
hver færi á spríkli í þessari
umferð. Hann greip tækifærið
fegins hendi, enda em Indónesíu-
menn frægir fyrir djarfa sóknar-
taflmennsku. Karl lét mannsfóm
andstæðingsins ekki setja sig úr
jafnvægi og varðist af öryggi.
Sitanggang gafst upp eftir tæpa
40 leiki, þegar ljóst var að fómin
stóðst ekki. í gærmorgun tefldu
Helgi og Jóhann áfram biðskákir
sínar við Kúbu og Pólland. Helgi
vann og Jóhann gerði jafntefli.
Islenska sveitin fékk þvf U/2 vinn-
ing í gær og hefur skotist upp í
6. sæti.
Úrslit í 9. umferð: ísland —
Pólland 2—2; 10. umferð: ísland
- Kúba 2V2-IV2. Af öðmm bið-
skákum er það helst að segja að
Seirawan vann Portisch, Banda-
ríkin — Ungveijaland 3—1;
Sovétríkin — Rúmenía 2V2— IV*
(Kasparov — Suba V2).
Hvítt: Jón L. Ámason
Svart: Utut Adianto, Caro-
Kann:
1. e4 - c6, 2. d4 - d5, 3. Rd2
- dxe4, 4. Rxe4 - Bf5, 5. Rg3
- Bg6, 6. h4 - h6, 7. f4 - e6,
8. Rf3 - Bd6, 9. Re5 - Bxe5,
10. fxe5 - Re7, 11. h5 - Bh7,
12. c3 - c5, 13. Dg4 - Hg8,
14. Bc4 — cxd4, 15. 0-0 — Dc7,
16. b3 — dxc3, 17. Ba3 — Rbc6,
18. Hxf7! - Dxe5, 19. Bxe6 -
c2, 20. Hafl - Bd3, 21. Bd7 -
Kd8, 22. Bxc6 og svartur gaf.
Önnur úrslit: Bandaríkin —
Spánn 3—1; Sovétríkin — Búlg-
aría 2V2— IV2; England —
Rúmenía 2V2—V2 og 1 bið.
Vatnsvemdimarfélag
skiptir mestu máli
- segir framkvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum
„FLESTUM áhyggjum okkar yrði aflétt ef stofnað yrði vatnsvemdun-
arfélag á Suðurnesjum, sem hefði það hlutverk að stjóraa vatnsupp-
töku, friðun vatnsbóla og mengunarvöraum. Víðtæk samstaða um
þetta félag skiptir meira máli en sameiginleg vatnsveita sem sæi
um allan ferskvatnsbúskapinn á Reykjanesi, og raunar gæti Vatns-
veita Suðurnesja haft þetta sem aðalhlutverk en sveitarfélögin gætu
sjálf séð um eigin dreifikerfi ef þau vilja,“ sagði Eiríkur Alexanders-
son framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðuraesjum i
samtali við Morgunblaðið, en í blaðinu hefur komið fram að bæjar-
fulltrúar Grindavíkur hafi ekki hug á að afsala bæjarfélaginu neinum
þeim vatnsrettindum sem það
Grindavík er langstærsta sveitar-
félagið á Suðurnesjum, og nærri
lætur að það nái yfir jafn stórt
svæði og hin sveitarfélögin til sam-
ans. „Það segir sig því sjálft að á
landi þess safnast mesta vatnið
saman. Hinsvegar er hægt að draga
þetta vatn til og frá og það verður
að stýra vatnstöku á svæðinu svo
hver dragi ekki frá öðrum. En það
er ljóst að samvinna um vatnsveitu-
mál á Suðumesjum er lítils virði
ef Grindavík tekur ekki þátt í henni.
Það liggur þó ekkert fyrir um að
neitt slíkt standi til hjá Grindvíking-
um,“ sagði Eiríkur.
Mikil ásókn fiskeldisstöðva í
landsvæði og jafnframt ferskvatn á
Suðumesjum veldur því að vatns-
yfir að ráða.
veitumál em þar mjög í deiglunni.
Að sögn Eiríks er verið að undirbúa
fund með öllum sveitarstjómar-
mönnum á Suðumesjum til að
kynna þessi mál fyrir þeim, en um
60% af sveitarstjómarmönnunum
hafa ekki setið í sveitarstjómum
áður. „Með þessum fundi í desem-
ber ætlum við að komast nær
heildarákvörðun," sagði Eiríkur.
„Þetta er mál sem menn verða að
setja sig vel inn í. Við höfum yfír
miklum auðlindum að ráða á
Reykjanesi og við viljum auðvitað
nýta þessar auðlindir okkar sem
best. En það þarf ekki mikið útaf
að bera til að slys verði sem hefði
áhrif á allt vatnskerfi Reykjaness-
ins.“
la chaussure
des manogets douioudbui
'WmAPPEL/fí
Axr/S'
mW/75T/7/7
Les Verreries du Gier
iParaöísto
La France
á Mikligarður
Sa chanteuse de rues,
son café de Paris et sa
place de boutques.
Franskir dagar í Miklagaröi
27. nóv-6. des
í samvinnu við
Franska sendiráðið.
Kynntar verða franskar
vörur m.a. snyrtivörur,
fatnaður, leikföng,
skíðavörur, skór,
gjafavörur og matvæli.
Café de París
Auðvita er að finna í
Miklagarði lítið franskt
kaffihús með góðu kaffi og
ekta frönskum croissants.
Franska söngkonan
Mancho skemmtir með
söng alla dagana og
leikur undir á
lýrukassa.
La France á
/HIKUG4RDUR
BJARNI D /SÍA