Morgunblaðið - 28.11.1986, Blaðsíða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
Vinstrisósíalist-
ar ræða framboð
UPPI eru hugmyndir innan Sam-
taka vinstrisósíalista um að fara
í framboð fyrir næstu Alþingis-
Fimm fiski-
skip seldu
í Englandi
FIMM íslensk fiskiskip seldu í
Englandi á miðvikudag og i gær,
fimmtudag. Úr einu þeirra
þeirra, Kambaröst SU, var byij-
að að íanda í Hull í gær og seldi
þá 54,2 tonn fyrir 59,91 krónu á
kílóið að meðalverði. t
Á miðvikudag seldi Björgvin EA
í Hull 134,1 tonn fyrir 52,69 krón-
ur á kílóið að meðalverði. Sama dag
seldi Gullver NS í Grimsby 163,7
tonn að meðalverði 56,49 krónur á
kílóið.
í gær, fimmtudag, seldi Steinunn
SH 67,8 tonn í Hull fyrir 47,78
krónur á kílóið að meðalverði. Þá
seldi Hafnarey SU 85,1 tonn í
Grimsby fyrir 65,95 krónur á kílóið
að meðalverði.
kosningar. Ákveðið hefur verið
að efna til ráðstefnu i byijun
janúar þar sem hugsanlegt fram-
boð verður rætt.
„Ef menn ætla sér í framboð, eru
menn að fara í framboð í alvöru.
Við erum ekki að spá í framboð
einungis til að komast í fjölmiðla
og reka áróður heldur til þess að
ná inn þingmanni," sagði Soffía
Sigurðardóttir, stjórnarmaður í
samtökunum.
í samtökunum er fólk sem viðloð-
andi hefur verið Alþýðubandalagið,
æskulýðsfylkingu þess og aðrar
vinstri hreyfíngar, en hefur aldrei
verið flokksbundið í Alþýðubanda-
laginu, að sögn Soffíu.
Hún sagði að Samtök vinstrisó-
síalista hefðu formlega verið stofn-
uð í vor til þess að skipuleggja
starfsemi þessa hóps, en hópurinn
hefði hist af og til undanfarin ár
og starfað að ýmsum málum.
„Stundum höfum við verið kallaðir
munaðarlausir vinstrimenn þar sem
við tilheyrðum engum samtökum,"
sagði Soffía, að lokum.
Kökubasar
og kaffisala
hjá Fíladelfíu
SYSTRAFÉLAG Fíladelfíu held-
ur sinn árlega kökubasar laugar-
daginn 29. nóvember kl. 14.00 í
neðri sal Fíladelfíukirkjunnar,
Hátúni 2.
Fólki gefst kostur á að setjast niður
og spjalla saman yfír kaffibolla og
ijómapönnuköku.
Allur ágóði rennur til starfsemi
Systrafélagsins.
Forval hjá Alþýðu-
bandalaginu í Reykjavík
FORVAL Alþýðubandalagsins í
Reykjavík vegna Alþingiskosn-
inganna 1987, fer fram á
morgun, laugardag, og sunnu-
dag. Kosið verður i Miðgarði,
Hverfisgötu 105, frá kl. 10 til.18
á laugardag og frá kl. 10 til 19
á sunnudag.
Rétt til þátttöku í forvalinu hafa
allir flokksbundnir Alþýðubanda-
lagsmenn í Reykjavík sem skuld-
lausir eru við félagið. Þeir sem gefa
kost á sér eru: Guðrún Helgadóttir,
Haraldur Jóhannsson, Hörður J.
Oddfríðarson, Jóhannes _ Gunnars-
son, Olga Guðrún Ámadóttir,
Pálmar Halldórsson, Steinar Harð-
arson, Svavar Gestsson, Þröstur
Ólafsson, Álfheiður Ingadóttir,
Amór Pétursson, Ásmundur Stef-
ánsson og Guðni Jóhannesson.
Frönsk vika
í Miklagarði
FRÖNSK vika hefst í Miklagarði
í Reykjavík í dag, föstudag, og
stendur hún til 6. desember.
Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Miklagarðs sagði að markmiðið
væri að kynna franskar vömr.
Kynntar verða matvæli, glervörur,
búsáhöld og fleiri franskar vörur.
Þá hefur verið komið upp frönsku
kaffihúsi og frönsk söngkona kem-
ur fram. Kynningin var skipulögð
í samvinnu við franska verslunar-
fulltrúann hér á landi.
Jólamarkaður
Soroptimista
LAUGARDAGINN 29. nóvember
halda Soroptimistar á íslandi
jólamarkað í Hlaðvarpanum við
Vesturgötu og hefst hann kl.
14.00.
Þar verður til sölu margskonar
jólavamingur. Kaffi og vöfflur
verða einnig á boðstólum. Allur
ágóði af fjáröflun Soroptimista
rennur til líknarmála.
Mælsku- og
rökræðukeppni
hjá Málfreyjum
LAUGARDAGINN 29. nóvember
verður mælsku- og rökræðu-
keppni að Hótel Esju kl. 13.30.
Þar mætast í útsláttarkeppni
Málfreyjudeildimar Björkin frá
Reykjavík og Seljur frá Selfossi, en
þessar deildir eru í 3. ráði innan
Landssamtaka Málfreyja á íslandi.
(FréttatUkynning:).
HEILSAÐU UPPÁ
HAMBORG
5 daga ferð 4.-8. desember
Aðeins kr. 16.800.*
|V.^
Wb-
«\e<-
VeSS qQ^ 06ts\o°°^f se^
c\'0°^.
xjeÁv'
QíO
Ferðaskrifstofan SAGA hefur skipulagt 5 daga ferð til Hamborgar. Lagt verður af
stað fimmtudaginn 4. desember og komið heim síðdegis mánudaginn 8. des. Farar-
stjóri verður hinn kunni útvarpsmaður Arthúr Björgvin Bollason, sem þekkir hvern
krók og kima í þessari gömlu og glaðværu Hansaborg.
Hamborg er heimsþekkt fyrir sitt fjölbreytta og fjöruga skemmtanalíf. Þeir sem vilja
fara „út á lífið" geta ekki valið sér betri borg. Menningar- og listalíf er afar fjölskrúð-
ugt og úr ótal mörgu að velja.
Fyrir þá, sem vilja verzla fyrir jólin, er ótrúlegt vöruval í glæsilegum verslunarhverfum
eins og Pöseldorf. Á milli þess sem arkað er í búðirnar, er notalegt að setjast niður
og teyga hinn heimsfræga þýzka bjór.
Gist verður á Hotel Metro Merkur og kostar ferðin með gistingu þar í tvíbýli kr.
16.800, en á Hamburg Plaza í tvíbýli kr. 21.200. Innifalið í verði er flug, gisting í 4
nætur með morgunverði, fararstjórn, flutningur til og frá flugvelli og kynnisferð með
siglingu á sunnudeginum.
Skelltu þór með í skemmtllega ferð
FERÐASKRIFSTOFAN
Tjarnargötu 10, gengið inn frá Vonarstræti.
Símar 28633 og 12367.