Morgunblaðið - 28.11.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
Spá um útbreiðslu alnæmis:
Áttatíu með sjúkdóm-
inn á lokastigi 1990
Haraldur Briem, læknir
SAMKVÆMT spá sem Haraldur
Briem hefur gert um þróun al-
næmis hér á landi á næstu árum,
er búist við að um 80 manns verði
með sjúkdóminn á lokastigi 1990.
Átak er nú gert til að reyna að
draga úr útbreiðslu sjúkdómsins,
og segir Haraldur að menn
þyrftu að taka upp nýja lifnaðar-
hætti til að sporna við áfram-
haldandi þrótm.
Spá Haraldar er byggð á fjölda
þeirra sjúklinga sem þegar eru
sýktir. Hann gerir ráð fýrir að um
næstu áramót verði 5-6 manns með
sjúkdóminn á lokastigi. í ok árs
1987 verði þeir orðnir 10- 24, í
árslok ’88 20-80, og í árslok ’89
40-160. „Meðalspáin myndi þá vera
sú að 6 sjúklingar væru sýktir um
næstu áramót, 20 fyrir árélok ’87,
40 fyrir árslok ’88 og 80 fyrir árs-
lok ’89.“
Nú er í undirbúningi fræðsluher-
ferð og sagði Haraldur að verið
væri að útbúa fræðslubæklinga fyr-
ir ungt fólk á aldrinum 18-24 ára,
þar sem sagt er frá sjúkdómnum
og hvemig best sé að veijast hon-
um. Þá ætla nokkrir iæknar að
hafa samband við fræðslustjóra í
öllum landsfjórðungum og kynna
fræðsluefni sem kennt verður í skól-
unum. Annar bæklingur verður
gefínn út og verður honum dreift
til allra heimila á landinu um ára-
mótin, og að öllum líkindum verða
haldin námskeið fyrir líffræðikenn-
ara skólanna.
Haraldur sagði að engin lyf væm
í sjónmáli sem gætu læknað al-
næmi. Á markaðinn er þó komið lyf
sem getur lengt líf sjúklinganna og
dregið úr sjúkdómseinkennum, en
það hefur talsverðar aukaverkanir,
dregur m.a. úr blóðmergsmyndun.
„Lyfíð AZT og skyld lyf hamla
ákveðnu ensými sem gerir veimnni
kleift að fjölga sér. Þegar sjúkling-
amir fá lyfíð er veimnni haldið
niðri, hún liggur þá í dvala og verð-
ur ekki starfhæf. Svo virðist sem
ónæmiskerfíð rétti við sér og menn
fá ekki fylgisýkingar sem fer verst
með þá. En gallinn við þessi lyf er
að þeim fylgja talsverðar aukaverk-
anir, hafa slæm áhrif á beinmerg
og valda blóðmissi. Menn hafa þó
verið að koma fram með hugmynd-
ir um svipuð lyf með minni auka-
verkunum," sagði Haraldur.
Hann sagði að franskir vísinda-
menn hefðu uppgötvað nýjan
veimstofn í Portúgal, og mætti
rekja stofninn til vesturstranda
Afríku, þetta afbrigði sagði hann
skyldara apaveimnni en alnæmis-
veimnni, en er þó samskonar veira
og veldur líka alnæmi í mönnum,
og hefur breiðst út til Evrópu.
Bandarílqamenn hafa einnig fundið
veimstofn í fólki á vesturströnd
Bandaríkjanna, en hann virðist ekki
valda einkennum. „Við verðum að
bíða og sjá hvað úr þessum stofni
verður, en hinn stofninn sem Frakk-
amir fíindu veldur alnæmi og þau
próf sem við emm með nú í sam-
bandi við alnæmi em ekki áreiðan-
leg gagnvart þessum stofni."
Haraldur sagði að það þyrfti að
kenna fólki að lifa öðmvísi en það
hefur gert „eina sem við getum
gert er að reka áróður fyrir öryggi
í kynferðismálum og fólk misnoti
ekki sprautu eða stungulyf."
Vitid þid að í gaml
7 útvarps- og hljómtækjaverslanir
5 raftækjaverslanir
15 vefnaðar- og hannyrðaverslanir
4 apótek
7 blómaverslanir
5 bakarí
7 hljómplötuverslanir
38 veitinga- og kaffihús
og margt, margt fleira.
miðbænum eru:
93 fata- og tískuverslanir
14 barnafataverslanir
31 bóka- og ritfangaverslanir
15 gjafavöruverslanir
10 gleraugnaverslanir
11 matvöruverslanir
20 skóverslanir
27 úra- og skartgripaverslanir
25 snyrtivöruverslanir
velkomin
Nú verður flör í
Gamla miðbænum
— miðbæ allra
landsmanna
GAMLIMIÐBÆRINN
SKÓLAHUÓMSVEIT
KÓPAVOGS
leikur á
HLEMMI KL 14,
NÝJA LAUGAVEGINUM KL 15
OG í AUSTURSTRÆTI KL 16
Stjómandi
morgun Björn Guðjónsson
laugardag-----------------------------
Verslanir í Gamla miðbænum verða almennt
opnar til kl. 16.00 e.h á morgun