Morgunblaðið - 28.11.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
Kampútsea:
Pol Pot með
krabbamein
Bangkok.Aranyaprathet, Tailandi, Reuter.
POL Pot, leiðtogi Rauðu Khme-
ranna, í Kampútseu, er sagður
haldinn krabbameini og eiga
skammt eftir ólifað. Hann er nú
í Kína og er ekki búist við að
Pol Pot
hann snúi aftur heim. Er talið
að það muni auðvelda friðarvið-
ræður i Kampútseu, þar sem
flestum er í fersku minni ógnar-
stjórn Rauðu Khmeranna, undir
hans forystu, á árunum 1975-78.
Þá voru þeir sakaðir um að valda
dauða mörg hundruð þúsunda
Kampútseubúa og leppstjóm Víet-
nama, er nú situr við völd, minnir
landsmenn á ógnarstjómina með
því að halda hátíðlegan „Dag hat-
ursins", 20. maí ár hvert. Vietnam-
ar hafa sett þau skilyrði fyrir
friðarsamningum, að Pol Pot hverfí
af sjónarsviðinu og samtök Rauðu
Khmeranna verði leyst upp. Þau
samtök er stærst þriggja samtaka
er myndað hafa bandalag undir
forystu Norodom Sihanouk, prins,
til að beijast á móti núverandi vald-
höfum í Kampútseu.
Ástandið í landinu hefur verið
óvenju friðsamlegt síðan þurrkatím-
inn hófst nú í ár, en oft hefur sá
tími verið notaður af Vietnömum
til þess að heija á skæruliða.
Heimskirkjuráðið
gagnrýnir Reagan
Larnaka, AP.
KIRKJULEIÐTOGAR á ráð-
stefnu Heimskirkjuráðsins
gagnrýndu vopnasendingar til
Iran og írak í sameiginlegri yfir-
Iýsingu, sem þeir sendu frá sér
í gær. Að sögn bandarískra
presta og kirkjuleiðtoga á ráð-
ERLENT
stefnunni er yfirlýsingin fyrst
og síðast gagnrýni á leynisamn-
inga Reagans Bandarikjaforseta
við írani.
í yfírlýsingu kirkjuleiðtoganna
var þess jafnframt krafízt að Pa-
lestínumenn fengju að stofna sitt
eigið ríki og hvatt til frekari refsiað-
gerða gegn Suður-AfWku.
Richard Butler, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Þjóðarkirlquráðsins í
Bandaríkjunum, sagði yfírlýsing-
una vera m.a. gefna út í nafni allra
þeirra bandarísku kirlqudeilda, sem
aðild ættu að ráðinu. „Það er ekk-
ert nýtt að við gagnrýnum Banda-
ríkjastjóm þegar við teljum að henni
hafí orðið á mistök," sgaði Butler.
Að blása íblöðrur
Derek Santiago, 10 ára piltur frá Boston i Bandaríkjunum, æfir sig í að blása upp blöðrur. Er það
liður í þjálfun sem ahnn verður að gangast undir í kjölfar nær þriggja mánaða lyfjameðferðar
vegna krabbameins í heila.
Zimbabwe:
Töfralæknir segist
geta læknað alnæmi
Harare, Zimbabwe. Godwin Matatu, Observer.
HEIMA í kofanum sínum í þéttbj
Toto Tangwena á ljósbrúnt efni.
hafa tjáð sér, að það megnaði að
Tangwena er tiltölulega vel
menntaður og félagi í Landssam-
tökum þjóðlegra lækna í Zimbabwe.
Hann segist hafa meðhöndlað 35
alnæmissjúklinga, aðallega frá
Norður-Ameríku og Evrópu. Það
er erfítt að festa hendur á sann-
leiksgildi þessarar fullyrðingar
hans, því að hann gat ekki tilgreint
sjúklingana „vegnaþagnarskyldu".
Hann segist hafa kynnst sjúk-
dómnum í New York og þegar hann
hafí komið heim til Zimbabwe aftur
hafí andar forfeðra hans sýnt hon-
um runna, sem unnt væri að nota
til lyfjagerðarinnar. Hann getur
ekki deilt vitneskjunni með öðrum,
því að hún var honum einum ætl-
uð. Hópur lyfjafræðinga frá
Cambridge-háskóla sótti hann ný-
du úthverfi Harare benti Sekuru
Hann kvað anda forfeðra sinna
lækna alnæmi að fullu.
lega heim i Harare, en þeir höfðu
ekki erindi sem erfíði.
Tangwena hafði einnig önnur lyf
í handraðanum. Hann kvað þau
geta læknað sjúkdóma eins og
asma, flogaveiki og húðkrabba-
mein. Þá sagðist hann geta ráðið
bót á getuleysi hjá karlmönnum.
Þegar hann var spurður, hversu
iangan tíma það tæki, svaraði hann
glottandi: „Taki viðkomandi meða-
lið síðdegis, mun sá hinn sami ólga
af kynorku fyrir dagsetur."
Tangwena lýsti því enn fremur
yfír, að hann gæti fært sérhverri
þeirri konu, sem væri í giftingar-
hugleiðingum, „meydóm" sinn á
nýjan leik. Samkvæmt afrískum
hefðum á brúðurin að vera hrein
mey.
Það er mörgum vandkvæðum
háð að leggja vísindalegt mat á
yfírlýsingar Tangwenas eða ann-
arra afrískra töfralækna. En því
verður ekki neitað, að það var
áhrifamikil sjón að sjá hann í skikkj-
unni sinni og með kórónu úr strúts-
fjöðrum á höfði.
Hvað sem öllu líður þá er til fólk,
sem trúir á lækningamátt Tang-
wenas. Fyrir utan kofann hans
stóðu um 30 manns í biðröð. Einn
þeirra sagði fullur trúnaðartrausts:
„Ég hef verið á sífelldum þeytingi
á milli spítala, án árangurs, en hér
fæ égþá meðhöndlun, sem dugir."
Ef til vill er einhver hjálp í með-
ferð Tangwenas, en hvort sem
gagnsemin er mikil eða lítil, er hún
áreiðanlega eins mikið næmum
mannskilningi hans að þakka og
hinum sérkennilega lækninga-
mætti.
A ystu nöf
Átján ára sveitadrengur kemur til Los Angeles í fyrsta sinn. Á
flugvellinum tekur bróðir hans á móti honum. Af misgáningi
taka þeir ranga tösku. Afleiðingarnar verða hrikalegri en nokk-
urn óraði fyrir.
Hörkuspennandi, glæný bandarísk spennumynd í sérflokki.
Anthony Michael Hall (The Breakfast Club), leikur Daryl, 18
ára sveitadreng frá lowa, sem kemst í kast við harðsvíruð-
ustu glæpamenn stórborgarinnar.
Jenny Wright (St. Elmos Fire) leikur Dizz, veraldarvana stór-
borgarstúlku, sem kemur Daryl til hjálpar.
Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11.
Dolby stereo