Morgunblaðið - 28.11.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.11.1986, Blaðsíða 22
22- MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 . Landssamband íslenskra vélsleðamanna: Opnar sýningn á bún- aði til vetraríþrótta LANSSAMBAND íslenskra vél- sleðamanna opnaði í gærkvöldi sýningu á búnaði til iðkunar vetr- arfþrótta, að Fosshálsi 1. Að sögn Sigurjóns Péturssonar, form- anns, taka á þriðja tug fyrirtækja þátt í sýningunni. Þar getur að líta nýjustu gerðir vélsleða, „fjór- hjól“, skíði, viðlegubúnað, fatn- að, talstöðvar, farsíma, loran-miðunartæki, áttavita og kort svo fátt eitt sé nefnt. Sýn- endur eru úr hópi innflytjenda en einnig eru innlendir framleið- endur hlífðarfatnaðar meðal þeirra. „Undirbúningur að sýningunni heftir staðið undanfama þrjá mán- uði,“ sagði Sigurjón. „Þetta er fyrsta stóra „vetrarlífssýningin", og við vonum að allir áhugamenn um útiveru geti fundið eitthvað við sitt hæfi." Sigiujón sagði að markmiðið með sýningunni væri að kynna það nýjasta í vetraríþróttum. Þær nytu vaxandi vinsælda, og höfðuðu í auknum mæli til flölskyldunnar, sem vildi sameinast um að njóta hollrar og skemmtilegrar útiveru. í Landssambandi íslenskra vél- sleðamanna eru um 500 meðlimir. í kvöld verður haldin árshátíð sam- bandsins, sem var stofnað fyrir þremur árum. „Að Fosshálsi höfum við einnig til sýnis brot úr sögu vetraríþrótta á Islandi. Meðal þess sem þar er að sjá eru leifamar af fyrsta vélsleðanum á íslandi, sem smíðaður var upp úr flaki flugvél- ar,“ sagði Siguijón. Sýningin verður opin í dag og um helgina frá kl. 10.00-21.00. Fundur um nútíma- bókmenntir FUNDUR á vegum Félags áhug- manna um bókmenntir verður haldinn laugardaginn 29. nóv- ember. Fundarefni er íslenskar nútímabókmenntir, staða þeirra og eðli. Þar munu fjórir fyrirles- arar flytja erindi sem jafnt tengjast íjóða- og skáldsagna- gerð. Fyrirlesaramir eru Eysteinn Þor- valdsson, Elísabet Þorgeirsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson og Ein- ar Már Guðmundsson. Fundarstjóri verður Silja Aðalsteinsdóttir. Fundurinn verður haldinn í Odda, næsta húsi við Norræna húsið og hefst kl. 14.00. Allir eru velkomnir. Ný hljómplata Halldórs Haraldssonar með verkum Chopins og Liszts: Þýðir ekki að ég sé hætt- ur að spila nútímatónlist HLJÓMPLÖTUR með einleik íslenskra píanóleikara eru ekki algengar en nú er komin út hjá bókaútgáfunni Emi og Örlygi hljómplata þar sem Halldór Har- aldsson píanóleikari leikur verk eftir Frédéric Chopin og Franz Liszt. Þó Halldór hafi haldið fjölda einleikstónleika hér og erlendis í yfir 20 ár, auk tónleika með öðmm, er þetta fyrsta ein- leiksplata Halldórs en hann hefur áður leikið inn á plötu með Gísla Magnússyni, útsetningu á Vorblóti eftir Stravinski fyrir tvö pianó, og síðan inn á plötu með Guðnýju Guðmundsóttur fiðlu- leikara. „Ég bytjaði að gera drög að plöt- unni sumarið 1985,“ sagði Halldór þegar Morgunblaðið hitti hann að máli vegna útkomu hljómplötunn- ar.„Þetta sumar var ég síðan önnum kaflnn við önnur störf og hafði engan tíma til æflnga. Ég tók svo frá júlímánuð í sumar til að ljúka þessu verkefni." „Ég er að mörgu leyti ánægður með eigin frammistöðu á þessari plötu þó okkur hljóðfæraleikurum fínnist við alltaf geta gert betur." segir Halldór aðspurður. „Plötuupp- taka er mikill brennipunktur og brýnir okkur, auk þess sem við lærum margt af þessu. Við heyrum alltaf eitthvað sem betur má fara þegar hlustað er á upptökur og margt breytist frá fyrstu töku til þeirrar seinustu. Ég reyndi þó að hafa allt á plötunni í sem mestri heild og hvergi voru settar inn nót- ur eftir á eins og hægt er að gera.“ Á plötunni leikur Halldór verk eftir Chopin og Liszt. Hversvegna valdi hann þetta efni? „Ég veit að það eru margir hissa á þessu verkefnavali, þar sem ég hef aðallega fengist við að spila nútímatónlist. Þetta þýðir þó alls ekki að ég sé hættur því. Én í ár eru 100 ár liðin frá dauða Franz Liszt og þess hefur víða verið minnst í heiminum. Hann og Chop- in voru persónulegir vinir og saman lögðu þeir grunninn að píanótækni síðari tíma. Þessi plata er mitt til- legg til minningar þeirra. Auk þess vildi ég vera með aðgengileg verk á plötunni sem fólk hefur gaman af að hlusta á en eru jafnframt vönduð." Halldór er yfírkennari píanó- deildar Tónlistarskólans í Reykjavík og hefur mikið að gera við kennsl- una. Hafa tónlistarmenn næg tækifæri til að sinna listssköpun við slíkar aðstæður? „íslenskir tónlistarmenn fylgjast mjög vel með. Hingað koma heims- þekktir listamenn og innlendir listamenn reyna að komast til út- landa reglulega. Það er mjög blómlegt tónlistarlíf hér á landi og hér virðist fólk vera mjög opið fyr- ir nýjungum. Það mætti hinsvegar vera betra skipulag á tónleikahaldi og tónleikaferðum. Ég, Guðný Guð- mundsdottir og Gunnar Kvaran höfum leikið saman sem tríó í hálft ár og haldið tónleika úti á landi. Það eru yfír 60 tónlistarskólar í landinu og því víða góð aðstaða úti á landsbyggðinni en aðsóknin á tónleika er ekki í samræmi við t.d. aðsókn að tónlistarskólum. Fólk hefur ekki enn lært að meðtaka tónlistina. Menntamálaráðuneytið hefur að vísu veitt okkur styrk til þessarar starfsemi en það þyrfti að gera meira átak í að skipuleggja tónlistarferðir út á land.“ Halldór var loks spurður hvort fleiri plötur væru væntanlegar frá honum. Um það vildi hann engu spá en þó kæmi hugsanlega plata með tríóinu fyrmefnda. Það færi síðan mikið eftir viðtökum nýju plötunnar hvert framhaldið yrði. Sú plata var tekin upp í Hlégarði og var Halldór Víkingsson upptökustjóri. Verkin sem Halldór leikur á plötunni eru RÁÐGJAFARÞJÓNUSTA fyrir námsmenn eftir stúdentspróf er eitt helsta stefnumál nýkjörins formanns Bandalags háskóla- manna, en ársþing bandalagsins var haldið um síðustu helgi. „Það er ljóst að námsmenn dæma sig oft sjálfkrafa í útlegð með náms- Halldór Haraldsson við píanóið Fantaisie-Impromptu, noktúma í cís-moll og scherzi nr. 2 og 3 eftir Chopin, og Funérailles, Konsert- vali sínu,“ sagði Grétar Olafsson yfírlæknir og nýkjörinn formaður BHM í samtali við Morgunblaðið. „Það má taka sem dæmi offjölgun íækna. Nú eru um 300 íslenskir læknar erlendis og óvíst hvort þeir komast nokkum tímann heim, þar sem hér er litla vinnu að hafa. Vegna þessa er nauðsynlegt að kanna möguleikana á að koma upp ráðgjafarþjónustu á vegum BHM þar sem námsmenn geti fengið upplýsingar um tekju- og starfs- möguleika einstakra námsgreina." Grétar sagðist ekki eiga von á því að starfsemi BHM tæki miklum breytingum á næstu árum. Þó að á þinginu hafi komið fram tillaga frá Félagi viðskipta- og hagfræð- Morgunblaðið/Árni Sæberg etýða nr. 2, Étude s’Exécution Transcendante nr. 10 og Rigoletto- Paraphrase eftir Liszt. inga um að félagsgjöld til BHM yrðu lækkuð og reksturinn dreginn saman hefði nást gott samkomulag að lokun sem fólst í því að félags- gjöld þeirra aðildarfélaga sem reka sjálf skrifstofur voru lækkuð og önnur félagsgjöld hækkuðu lítið að raungildi milli ára. 27 félög eiga aðild að BHM. Grétar sagði að á starfsáætlun nýrrar stjómar BHM væri að efla samstöðu og samvinnu milli há- skólamanna; að gæta sameiging- legra hagsmuna félagsmanna og standa með Háskóla íslands því hann þurfi á stuðningi að halda eftir að framlög til hans voru stór- lega skorin niður á síðustu fjárlög- um. Bandalag háskólamannna: Stefnt að ráðgjafaþjón- ustu fyrir nýstúdenta - Grétar Ólafsson læknir kj örinn formaður BHM Góð bók Grænland kristalsheimur Franskur landkönnuð ur, Louis Rey, fjallar um sögu, náttúru og íbúa Grænlands. Lyftir hulunni af mörg um leyndardómi, sem hvílt hefur yfir þessu Louís Rey 8* ^
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.