Morgunblaðið - 28.11.1986, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.11.1986, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 Á efstu myndinni er útigangshross handsamað og endurskinsmerkin skulu á sinn stað. Á myndunum hér fyrir ofan og til hliðar sést hvar merkin eru komin á sinn stað. Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson Lögreglan í Borgarnesi: Endurskinsmerki á útigangshross Atta umferðaróhöpp rakin til lausagöngu hrossa Borgarnesi. LOGREGLUMENN úr Borgarnesi merktu 60 útigangshross með endurskinsmerkjum um síðustu helgi. Hafði hrossunum verið smalað saman i rétt við bæinn Höfn í Melasveit. Þetta er í annað sinn sem lögreglan í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu stendur í að- gerðum sem þessum, en byijað var á þessum merkingum í september í fyrra. í fyrra voru hrossin merkt með tveim merkjum. Núna voru hnýtt fjögur endurskinsmerki í hvert hross, eitt í tagl, annað í fax og hin tvö voru sett á fram og aftur- fætur. Merkin sem sett voru á fætur hestanna eru nýjung á mark- aðnum og ætluð á reiðhesta. Er þetta endurskinsborði sem smellt er saman. Lögreglumennimir smíðuðu bás úr niðursöguðum símastaumm í eitt hom réttarinn- ar. Var hann hafður vel traustur því ekki hafði tekist að handsama öll hrossin í fyrra. Reyndist básinn vel og gekk greiðlega að merkja stóðið. Töluverð óhöpp hafa orðið vegna lausagöngu hrossa meðfram veg- um í Borgarfírði. Hættulegasti kaflinn er frá Leirá í suðri að Svignaskarði í norðri. Það sem af er þessu ári hafa orðið átta um- ferðaróhöpp á þessu svæði, sem beint og óbeint má rekja til lausa- göngu hrossa. Mikið eignatjón hefur orðið í þessum óhöppum og meðal annars hafa fimm bifreiðar orðið óökufærar. Nú hefur sýslu- maðurinn í Borgamesi sent oddvit- um hreppsnefndanna í héraðinu bréf þess efnis að embættið hvetji eindregið til að lausaganga hrossa verði bönnuð. Eftirtalin fyrirtæki og stofnanir í Borgamesi studdu lögregluna í þessu verkeftii: Samvinnutrygg- ingar, Póstur og sími og Raf- magnsveitur ríkisins. Síðast en ekki síst studdi fyrirtækið Gnýr sf. í Reykjavík, framleiðandi endur- skinsborðanna, verkefnið með því að gefa helming merkjanna. TKÞ. Morgunblaðið/Amór Svipmynd frá Portoroz-mótinu á Hótel Loftleiðum um sl. helgi. Ragnar Magnússon og Valgarð Blöndal spila gegn Hauki Ingasyni og Sigurði B. Þorsteinssyni. Brids Arnór Ragnarsson Bridsdeild Barðstrend- ingafélagsins Mánudaginn 24. nóvember var spiluð 3. umferð í hraðsveitakeppni félagsins. Staða efstu sveita er þessi: Stig Eggert Einarsson 1639 Vikar Davíðsson 1615 Þorleifur Þórarinsson 1555 JónCarlsson 1549 Þorsteinn Þorsteinsson 1540 Þórarinn Ámason 1539 Sigurður ísaksson 1539 4. umferð verður spiluð mánu- daginn 1. desember. Spilað er í- Ármúla 40 og hefst keppnin kl. 19.30 stundvíslega. Bridsfélag Breiðholts Að loknum níu umferðum af tólf í Butler-tvímenningi félagsins er röð efstu para þessi: A-riðill Anton R. Gunnarsson Stig — Friðjón Þórhallsson Jón I. Bjömsson 143 — Kristján Lilliendahl Helgi Skúlason 135 — Kjartan Kristófersson Höskuldur Gunnarsson 100 — Lárus Pétursson 98 B-riðill Guðlaugur Sveinsson Stig Magnús Sverrisson >Jón I. Ragnarsson 129 *— Burkni Dómaldsson ÍAxel Lárusson 122 — Bergur Ingimundarsson 105 Guðmundur Baldursson — Jóhann Stefánsson 105 Næsta þriðjudag lýkur keppn- inni. Þriðjudaginn 9. desember verður spilað eins kvölds tvímenn- ingur en þriðjudaginn 16. des. verður spiluð létt jólarúberta. Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30 stundvís- lega. Bridsfélag Akureyrar Sex umferðir eru búnar í Akur- eyrarmótinu í sveitakeppni og hefír Sveit Grettis Frímannssonar nokkuð afgerandi forystu í mótinu. Staða efstu sveita: Grettir Frímannsson 131 Stefán Vilhjálmsson 106 ÁmiBjarnason 105 Zarioh Hammadi 105 Gunnlaugur Guðmundsson 103 Haukur Harðarson 96 Símon I. Gunnarsson 96 Þorsteinn Thorlacius 95 Næstu tvær umferðir verða spil- aðar í Félagsborg á þriðjudaginn kemur kl. 19.30. Um helgina verða spilaðir margir leikir í bikarkeppni Norðurlanda en fyrstu umferð á að Ijúka fyrir 6. des. nk. Bridsfélag Hafnarfjarðar Sl. mánudag 24.11. voru spilaðar fimmta og sjötta umferðin í sveita- keppni félagsins og er staðan eftir sex umferðir þannig: Sveit Ólafs Gíslasonar 142 S veit Kristófers Magnússonar 114 Sveit Sigurðar Lárussonar 112 Sveit Kristjáns Haukssonar 112 Hjartans mál Hljómplötur Egill Friðleifsson Fyrir nokkru kom út hjá Emi og Örlygi hljómplata er ber titilinn „Hjartans mál“. Þar syngja þau Sólrún Bragadóttir, sópran, og Bergþór Pálsson, baryton, lög úr ýmsum áttum við undirleik Jónas- ar Ingimundarsonar. Að undan- gengnu tónlistamámi hér heima hafa þau Sólrún og Bergþór lagt stund á listgrein sína við söng- deild háskólans í Indiana í Bandaríkjunum og stefna bæði að masters-stigi. Það er rétt að taka það fram strax að þessi plata kom mér verulega á óvart. Bæði hafa þau náð umtalsverðum þroska í listinni og gera hér marga góð hluti. Ekki man ég nákvæm- lega hvenær það var sem ég heyrði þau á tónleikum í Norræna húsinu en framfarimar eru aug- Ijósar. Sýnilega hafa þau notað tímann vel vestanhafs og árang- urinn lætur ekki á sér standa. Það er ekki annað hægt en að spá vel fyrir þessu unga fólki fái það tækifæri við hæfi og full ástæða að benda forráðamönnum óperu- mála á þssa efnilegu söngvara. Á plötunni er að finna fjórtán lög, sem sjálfsagt flokkast undir svokallaða léttklassísk og rista etv. ekki ýkja djúpt sum hver. Flest eru lögin gamlir kunningjar, sem staðist hafa tímans tönn, „everybodys favourite", sem al- menningur hefur eignað sér fremur en fagmenn. Þama er mikið sungið um ástina, þetta undarlega fyrirbæri sem virðist ætla að halda velli þrátt fyrir ýmsa óáran í órólegum samtíma og er það vel. Varðandi lögin á þessari plötu kemst Halldór Hans- en ágætlega að orði á plötuum- slagi er hann segir: „Það er eitthvað undravert við þá tónlist, sem hefur sungið sig inn í vitund hvers mannsbams og haldið vin- sældum sínum óskertum um allan heim meðal almennings, jafnvel þótt spekingar á sviði tónlistarinn- ar velti vöngum og komi ekki auga á mikilvægið. Því að eðli sínu samkvæmt ættu þessi lög að vera „dægurflugur". Sjálft „undr- ið“ kemur einmitt fram í því, að dægurflugan brýtur sín eigin lög- mál og verður allt í einu „sígild". Páll Bergþórsson þýðir margan textann á þessari plötu af lipurð og vel það, t.d. er textinn við Melodiu Rubeinsteins í F hagan-' lega gerður og fellur mætavel að seið lagsins. Raunar víkur Berg- þór orði við frá skrifuðum texta, því hann syngur í næstsíðustu línu „ ... og einn ég reika hér“ í stað „ ... og einn ég eigra hér“, sem óneitanlega fer betur. En þetta er mál sem þeir feðgar verða að útkljá sín á milli. Sólrún Bragadóttir er glæsileg söngkona. Rödd hennar er bæði mikil og fögur, jöfn um allt tón- sviðið, og með mikilli fyllingu. Túlkun Sólrúnar er sannfærandi og afgerandi og þó henni sé etv. fullmikið niðri fyrir á stundum hefur hún gott vald á röddinni. Hins vegar er framburður ekki nógu skýr og ætti hún að athuga það atriði vandlega. Sömuleiðis stendur Bergþór Pálsson sig með prýði. Rödd hans er karlmannleg Hjartans mál «h. rMIm. og þróttmikil og gæti ég trúað að „Ol’Man River“ ætti eftir að hljóma víða næstu vikumar í ágætri meðferð Bergþórs. Saman syngja þau hjónin nokkur lög listavel. Um þátt píanóleikarans, Jónasar Ingimundarsonar, þarf varla að fjölyrða. Hann lætur ekk- ert frá sér fara, sem ekki stenst nákvæma hlustun. Halldór Víkingsson sá um upptöku og hefur vandað verk sitt eftir föng- um. Plötuumslagið er smekklegt að mínu mati og frágangur allur vandaður. Þegar haft er í hug að þau Sólrún Bragadóttir og Bergþór Pálsson eru enn við nám er ljóst að af þeim má mikils vænta. Söngunnendur eru ekki sviknir af þessari plötu. P.S.: Skömmu eftir að þessi pistill var skrifaður bárust þær fréttir að Sólrúnu Bragadóttur hafi boðist staða við óperuna við Kaiserslautem í Þýskalandi. Þess- ar fréttir ættu raunar ekki að koma svo mjög á óvart þeim, sem hlustað hafa gaumgæfilega á þessa plötu. Það er hins vegar full ástæða að samgleðjast Sólr- únu og óska henni innilega til hamingju með glæsilegan árang- ur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.