Morgunblaðið - 28.11.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
17
sjáifsagt rétt vera. En harmleikur-
inn sem þau §alla um er fyrst og
fremst lífíð sjálft. Lífíð er ekki ann-
að en óskiljanleg og tilgangslaus
bið í tómum heimi, þar sem sömu
hlutimir og atburðimar endurtaka
sig hvað eftir annað, endalaust. Að
lifa, það er að snúast hring eftir
hring um sjálfan sig, án nokkurrar
ástæðu. Harmleikurinn er ekki að
eiga dauðann í vændum, heldur að
bíða endalaust eftir því að deyja.
Og engan er hægt að áska. Heimur
Becketts er guðlaus heimur. Godot
kemur ekki, sama hversu lengi er
beðið.
Það furðulegasta er, að Beckett
hefur tekist, einkum í leikritum
sínum, að gefa grimmdinni og þján-
ingunni skoplegt yfirbragð. Þján-
ingunni er svo ítarlega lýst og af
þvílíkri nákvæmni að hún verður
hlægileg. Nöfnin em skrýtin, kring-
umstæðumar kostulegar, málið
furðulegt og sviðsetningin óvenju-
leg, svo oft minnir á sirkus. En í
síðari verkum Becketts verður hlát-
urinn sífellt bitrari, stundum
hæðnishlátur. Persónumar neyða
sig til að vera kátar og látast vera
hamingjusamar mitt í eymdinni.
Það eina jákvæða er umhyggjan
sem þær bera hvor fyrir annarri,
og merkja má til dæmis hjá Vladim-
ir og Estragon enda þótt þeir séu
stöðugt að rífast. Áhorfendur hafa
því samúð með persónunum og vor-
kenna þeim, enda kunna þær betur
en nokkrir heimspekingar að koma
til skila angistinni sem fylgir því
að vera til.
Verk Becketts hafa oft vakið
deilur. Sumum þykja þau alltof
framúrstefnuleg, aðrir fella sig ekki
við bölsýni hans og vonleysi. Enn
aðrir gagnrýna að hann minnist
aldrei á samfélagið í þeim, sýni ein-
staklinginn án nokkurs sambands
við umhverfí sitt og tíma. En flest-
ir eru þó sammála um að Beckett
er einn mesti leikritahöfundur vorra
tíma. Persónur hans eru engu síður
eftirminnilegri en persónur Kafka,
með þeim mismun þó að Kafka
lætur söguhetjumar sínar vita hvað
þær vilja og beijast í heimi fárán-
leika, í stað þess að hjá Beckett
bíða þær og þjást án þess að vita
hvers vegna. Og Beckett sýnir okk-
ur ef til vill á sinn sérstæða hátt
með úrhrökunum sem hann setur á
svið að það er ekki hægt að gera
manninn að engu, aldrei hægt að
þagga niður í honum að fullu og
öllu né vama honum þess að hugsa,
jafnvel þótt þjáning hans og niður-
læging sé alger, hversu illa sem
hann kann að vera farinn.
(Byggtá bókmenntatímaritinu
franska Magazine littéraire.júní-
heftí 1986, sem tileinkað er
Samúel Beckett).
Rey ðarfj örður:
Kvenfélagið
70 ára
Reyðarfirði.
KVENFÉLAG Reyðarfjarðar er
70 ára um þessar mundir. Þess-
ara tímamóta verður minnst með
afmælishófi 29. nóvember.
Kvenfélagið hefur alla tíð sinnt
menningar og líknarmálum í
hreppnum, jólatrésskemmtanir á
vegum þess hafa verið haldnar
síðan 1920 og liggur mikið og óeig-
ingjamt starf í þeirri ómissandi
skemmtun sem er jólagjöf félagsins
til bæjarbúa. Félagið hefur einnig
um árabil haldið spilakvöld reglu-
lega á vetuma og auk þess grímu-
böll, bingó, basar og fleira sem
ekki verður talið hér.
Gréta
TJöfóar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!
Af starfsheiðri rit-
stjóra Helgarpóstsins
eftir Ragnar
Kjartansson
í stuttri grein í Morgunblaðinu
sl. miðvikudag undir fyrirsögninni
„Jón eða séra Jón“ gagnrýni ég
Ingólf Margeirsson, ritstjóra
Helgarpóstsins, fyrir ógeðfellda
tvöfeldni.
í blaði hans í síðustu viku er
ráðist að saklausu fólki í texta
og með myndbirtingu og því gefíð
að sök að hafa fengið niðurfelld
flutningsgjöld hjá Hafskip hf. af
búslóðarflutningum. Ég upplýsti
að Ingólfur hefði tvívegis fengið
sambærilega niðurfellingu flutn-
ingsgjalda, af búslóðarflutningum
og siðar af flutningi bifreiðar.
í gær, fimmtudag, staðfesti
Ingólfur að þessi gagnrýni mín
um ógeðfellda tvöfeldni hans hefði
verið rétt og að hann hefði notið
sömu fyrirgreiðslu og fólkið sem
blað hans sá ástæðu til að ráðast
á í vikunni á undan.
Ekki ætla ég að heíja opinberar
ritdeilur við fagmanninn Ingólf
Margeirsson, út af skýringum
hans, sem hann sjálfur veit að eru
að hluta rangar, en vek aðeins
athygli á eftirfarandi:
Hvað hefði gerst ef Helgarpóst-
urinn hefði talið sig komast að
því að t.d. Seðlabankastjóri,
Rannsóknarlögreglustjóri eða al-
þingismaður, sem ekki væri í
náðinni, hefði fengið fengið ámóta
niðurfellingu flutningsgjlda að
upphæð allt að kr. 100.000 á
núvirði?
Er ekki fullvíst að málinu hefði
verið slegið upp, rannsóknar kraf-
ist og að viðkomandi segði af sér
og skattrannsóknarstjóri ranns-
akaði hvort „gjöfín" hefði verið
talin fram til skatts?
í sjálfu sér geri ég ekkert með
þetta mál ritstjóra Helgarpóstsins
annað en að tvöfeldnin er þeim
félögum til háðungar.
Höfundur er fyrrverandi stjórn-
arformaður Hafskips hf.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
WANG
WANG
WANG
/. í» tumudmi"" t'xnr-v. '»*«i ímm»
Heimilistæki hf
tölvudeild
heldur stórkostlega tölvusýningu I dag
. nóvember, frá kl. 10—17.
TiL SYNIS VERÐUR:
PC-hugbúnaður frá
fenskri forritunarþróun og T
RV/.VLfrf APC 1-4 skjá
Softver (stýrikerfi Xenix)
frá Proco. Wang VS rltvin
(einn skjár vinnur sem fjórir
ur. Bílakerfi.
WANG
Með þægindi notand-
ans í fyrirrúmi
Heimilistæki hf tölvudeild
SÆTÚNI8- S: 27500