Morgunblaðið - 28.11.1986, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
Björgimarsveitin Víkverji í Vík 1 Mýrdal:
Safnar fyrir snjóbíl
til neyðarþjónustu
eftír Árna Johnsen
Björgunarsveitin Víkvetji í Vík í
Mýrdal vinnur nú að því að eignast
traustan og lipran snjóbíl til þess
að geta sinnt neyðarþjónustu með
slíku tæki á svæðinu austan og
vestan við Vík og reyndar á öllu
Suðurlandi. Björgunarsveitin
Víkveiji hefur veitt mikla og góða
þjónustu þar sem mannslíf hafa
verið í húfi, en oft hefur tilfinnan-
lega vantað fullkominn snjóbíl til
þess að sinna ýmsum neyðartilvik-
um á fjallasvæði sveitarinnar og
láglendinu einnig, því að á undan-
fömum árum hefur nokkrum
sinnum legið við að menn yrðu úti
eftir að hafa yfirgefið bíla sína á
Mýrdalssandi í byljum og ófærð.
Þá er mjög nauðsynlegt að stað-
setja slíkt björgunartæki, sem
snjóbíll er, á ákveðnum stöðum
kringum landið til þess að grípa til
ef slys henda í vondum veðrum og
ófærð, samanber flugslysið í Ljósu-
fjöllum í fyrra. Góður snjóbíll er
tæki sem dugir allt frá fjöru til
fjalls og það er staðreynd að Mýr-
dalur og Mýrdalssandur er það
svæði sem langoftast verður ófært
alla leið frá Höfn til Reykjavikur.
Víkvetji hefur sent allmikinn
fjölda gíróseðla til fólks, félaga og
fyrirtækja á svæðinu frá Djúpavogi
og vestur um allt Suðurlandskjör-
dæmi að Vestmannaeyjum með-
töldum og fengið góðar viðtökur,
en beiðnin um styrk miðar við 300
kr. þótt menn geti hækkað upphæð-
ina ef þeir sjá sér fært. Mikið er
þó ókomið inn af hjálparbeiðnum
og er ástæða til þess að hvetja alla
sem vettlingi geta valdið til þess
að styrkja og standa við bakið á
björgunarsveitarmönnum sem um
allt land hafa sýnt ótrúlega ósér-
hlífni og dugnað í björgunarstörfum
við lífshættulegar aðstæður. Björg-
unarsveitirnar sinna verkefnum og
þjónustu sem ella myndi kosta of-
fjár fyrir þjóðarbúið og við getum
verið stolt af því að ekkert land býr
yfir eins víðtækri neyðarþjónustu á
þessu sviði og ísland. En það er
rriikið átak fyrir björgunarsveit í
litlu byggðarlagi að kaupa neyðar-
tæki sem kostar 2 milljónir króna.
Reikningsnúmer Víkverja í Sam-
vinnubankanum í Vík er nr. 72.
Víkvetjar leggja mikið á sig í þessu
efni, hjálpum þeim sem hjálpa sér
sjálfir til þess að hjálpa öðrum.
Höfundur er alþingismaður.
Birgitta H. Halldórsdóttir
Skáldsaga
eftir Birgittu H.
Halldórsdóttur
Skjaldborg hf. hefur gefið út
fjórðu skáldsögu Birgittu H. Hall-
dórsdóttur, sem heitir í greipum
elds og ótta. •
í fréttatilkynningu frá Skjald-
borg segir m.a.: „Sögusvið þessarar
bókar er við Eyjafjörð. Margar
helstu persónumar em kennarar
við skóla í nágrenni Akureyrar, þar
á meðal Rósa, sem ung að árum
hafði fellt ástir til Halldórs skóla-
bróður síns og átt með honum
soninn Óskar. En þau fengu ekki
lengi að njóta ástar sinnar. Síðar
áttu þó örlögin eftir að leiða þau
saman, en áður hafði mikið vatn
mnnið til sjávar og atburðarásin í
lífi Rósu var bæði hröð og fyölbreyti-
leg. — Hugkvæmni og fjömgt
ímyndunarafl höfundar nýtur sín
með ágætum í þessari bók. Ólíkleg-
ustu atburðir verða hver af öðmm
og frásögnin er þmngin sívaxandi
spennu. Þetta er íslensk ástarsaga,
og afbrotasaga, en umfram allt
íslensk nútímasaga." — Káputeikn-
ingu gerði Auglýsingaskrifstofan
Delfi, Bemharð Steingrímsson.
Snjóbíll eins og sá sem Víkveiji hyggst kaupa.
FJOLSKYLDUSAMKEPPNI
um skemmtilega útfærslu á bama- eða unglingaherbergi
sem öll íjölskyldan getur unnið saman.
Nú gefst þér og Qölskyldu
þinni tækifæri til að taka
þátt í skemmtilegri fjöl-
skyldusamkeppni. Keppnin
felst í því að þið útfærið
BARNA- EÐA UNGLINGA-
HERBERGI, 3x3,50 m að
stærð, með húsgögnum frá
IKEA.
ALLIR MEÐ
Notið nýja IKEA VÖRULIST-
ANN ykkar til að velja IKEA
húsgögn og aðra IKEA hluti
sem þið teiknið inn á
|t»’
grunnmyndimar. Nú er um
að gera að gefa hugmynda-
fluginu lausan tauminn og
„innrétta" herbergið á
skemmtilegan og fmmlegan
hátt.
GLÆSILEG VERÐLAUN
Glæsileg verðlaun em í boði
fyrir þijár skemmtilegustu
tillögumar.
1. Gjafabréf frá IKEA fyrir
kr. 25.000.
2. Gjafabréf frá IKEA fyrir
kr. 15.000.
3. Gjafabréf frá IKEA fyrir
kr. 10.000.
Dómnefndina skipa 2
fulltrúar frá IKEA og 1 frá
tímaritinu Hús og híbýli.
VERÐLAUNATILLAGAN
VERÐUR SETT UPP
Tillagan sem hlýtur fyrstu
verðlaiin verður sett upp
sem SÝNINGARBÁS í verslun
okkar / desember. Tímaritið
HÚS OG HÍBÝLI mim síðan
fjalla um úrslitin í janúar.
SENDIST TIL:
IKEA
Pósthólf 8812
128 Reykjavík
eða skilið tillögunum í
verslun okkar í Kringlunni.
SÍÐASTI SKILADAGUR
er LAUGARDAGINN
29. NÓVEMBER nk.
MUNIÐ að merkja tillög-
umar með NAFNI og SÍMA-
NÚMERI í lokuðu umslagi.
HJÁLPARGÖGN
IKEA VÖRULISTINN ykkar,
blýantur, strokleður, reglu-
strika, litir og rúðustrikað
blað.
F1
■ K
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.