Morgunblaðið - 28.11.1986, Page 46

Morgunblaðið - 28.11.1986, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 Um laun sjúkrahús- lækna í Reykjavík Systumar ásamt hjálparmanni að byrja að prenta jólakortin. Stykkishólmur: Litið inn í _ prentsmiðjuna í Stykkishólmi Stykklshólmi. FRETTARITARI Mbl. leit fyrir helgina inn á prentsmiðju þeirra systra í sjúkrahúsinu í Stykkis- hólmi, en þar var í óða önn verið að prenta á jólakortin sem þær syst- ur selja til styrktar starfsemi sinni fyrir jólin. Þetta er árvisst. Þá hafa þær undanfarið vérið að prenta jólabækumar og jólablað, Merki krossins, sem er málgagn kaþólsku kirkjunnar, undir ritstjóm Torfa Ólafssonar. Var allt í fullum gangi og mikið hefír verið að starfa und- anfarið og fjórir starfsmenn. Ég sá bækumar og þótti mikið um allan frágang á þeim og vöndun efnis. Þá er ekki bömunum gleymt. Þama voru fallegar myndabækur, kristilegs eðlis, sem presturinn þeirra og Torfi Ólafsson hafa þýtt en þær prentað. Voru þessar bækur í lit og hinar fegurstu. Ferðamenn sem eiga leið í Hólm- inn koma gjaman við í sjúkrahúsinu og skoða þá prentsmiðjuna og láta í ljósi aðdáun sína og til minja kaupa þeir eitthvað af prentuðu efni til að hafa heim með sér og er þetta sterk auglýsing fyrir Hólminn og systumar. Einnig hafa þær aðra muni til sölu svo sem fallega krossa, mynd- ir af Hólminum o.fl. o.fl. Allt fer þetta til uppb^'ggingar sjúkrahússins sem er þeim til sannr- ar fyrirmyndar. Loks skal það talið sem okkur kemur afar vel og það er að þessi prentsmiðja prentar öll eyðublöð sem fyrirtæki hér og í kring og jafnvel á fjarlægari stöðum þurfa að nota, einnig þakkarávörp og alls kyns tilkynningar og er þetta mikið þakkarefni. Fréttaritara fannst alveg tilvalið að taka myndir og minna á þetta góða starf sem þama er innt af hendi. Árni eftirMagna Jónsson og Atla Dagbjartsson Að undanfömu hefur orðið tals- verð umræða um laun lækna og hafa sjúkrahúslæknar í Reykjavík verið teknir sem dæmi um lækna með sérstaklega há laun og jafnvel látið að því liggja, að þau séu ein aðalorsök mikils kostnaðar við heil- brigðisþjónustuna í landinu. Svipað- ar fullyrðingar hafa heyrst áður frá misjafiilega ábyrgum aðilum, en nú hefur Halldór Asgrímsson sjávarút- vegsráðherra tekið undir þessi sjónarmið. Halldór gegnir einu mik- ilvægasta embætti þjóðarinnar og nýtur virðingar og trausts fyrir störf sín. Ummæli hans nú hljóta að byggjast á ófullnægjandi þekk- ingu á launum þess hóps, sem hann kaus að nefna sérstaklega, og gefa villandi hugmyndir um þau, sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Sá hópur, sem hér um ræðir, er tvískiptur, annars vegar aðstoðar- læknar og hins vegar sérfræðingar, og er rétt að gera grein fyrir hvor- um hópi fyrir sig. Aðstoðarlæknar Aðstoðarlæknar eiga að baki 6—7 ára nám, sem bæði hér og erlendis er talið eitt hið erfiðasta á háskólastigi. Af þessum námstíma eru 2 ár verklegt nám jafnframt bóklegu námi. Algengast er, að aðstoðarlæknar vinni hér heima í 2—3 ár eftir útskrift úr háskóla og haldi síðan utan til framhaldsnáms. Á þessum tíma taka þeir á sig vax- andi ábyrgð við greiningu og meðferð sjúklinga, en eru frá fyrstu tíð oftast fyrstir á vettvang í bráða- tilvikum utan venjuiegs vinnutíma og þurfa að taka fyrstu ákvarðanir um meðferð bæði innan og utan sjúkrahúsa (t.d. á neyðarbíl). Laun þessa hóps má sjá á eftir- farandi töflu, sem skýrir sig sjálf: Mánaðar- Yfirvinna laun pr.klst. 1. stig 43.403,00 434,03 2. stig 45.357,00 453,57 3. stig 47.398,00 473,98 4. stig 49.529,00 495,29 5. stig 51.759,00 517,59 6. stig 54.087,00 540,87 6. stig e. 9 ár 56.521,00 565,21 6. stig e. 18 ár 59.063,00 590,63 Annað stig gildir eftir 6 mánaða starf á sjúkrahúsi, 3. stig eftir 15 mánaða starf og 4. stig eftir 21 mánuð. Laun eru í öllum tilvikum greidd eftir umsaminni launatöflu, engin óunnin yfírvinna er greidd eða hlunnindi utan bifreiðastyrkur, sem einungis er greiddur reyndum aðstoðarlæknum, sem ráðnir eru til 1 árs eða lengur. Auðvelt er að gera sér grein fyrir hvert vinnuálag- ið er til þess að ná 115 þúsund krónum á mánuði: Astoðarlæknir 1. stigs þarf að vinna 160 klst. í yfirvinnu en á 4. stigi nægja 130 stundir. Sérfræðingar Eins og að ofan er getið fara læknar utan til sémáms, sem tekur 4—7 ár eftir sérgreinum. Það hefur einkennt íslenska lækna, að þeir hafa sótt fast að komast að á góð- um stöðum erlendis og lagt hart að sér í námi og getið sér gott orð langt umfram það, sem búast mætti við af læknum frá fámennri þjóð með lítinn og fátækan háskóla. Sémám á betri stöðum þýðir áð öðru jöfnu meiri vinnu og lakari lg'ör á námstímanum. Námslán eru ekki veitt til þessa framhaldsnáms, sem er því þjóðarbúinu að kostnað- arlausu. „Læknar, sem hafa afl- að sér þeirrar þekking- , ar og reynslu og lagt jafn hart að sér og fjöl- skyldum sínum og sérfræðingar hafa gert, gera kröfu um að búa við góð kjör saman- borið við aðrar stéttir þessa Iands.“ Algengast er, að læknar komi heim frá sémámi 35—37 ára gaml- ir og eigi þá að baki a.m.k. tvenna búferlaflutninga milli landa og því margir skuldugir við upphaf ævi- starfs. Ef þeir eru heppnir komast þeir að á sjúkrahúsi, en síðustu 5—6 ár hafa flestir nýir sérfræðingar á Landspítala og Borgarspítala verið ráðnir í hlutastöður og taka laun eftir því. Lítum þá á launatöflu sérfræð- mganna: Mánaðar- Yfirvinna laun pr. klst. 0— 3ára 64.067,00 640,67 4- 6 ára 66.949,00 669,49 7— 9ára 69.963,00 699,63 10-12 ára 73.110,00 731,10 13-15 ára 76.401,00 764,01 16-17 ára 79,838,00 798,38 18 áraogeldri 83.433,00 834,33 Eins og hjá aðstoðarlæknum er ekki um yfírborganir að ræða. Eng- in óunnin yfírvinna er greidd. Sérfræðingar fá greiddan bifreiða- styrk vegna útkalla á vöktum og útkalla milli stofnana. Læknar fá greiddar 7,5 klst. á mánuði fyrir heimavinnu að undir- búningi kennslu fyrir aðrar heil- brigðisstéttir. Til þess að ná 115 þúsund krónum í laun á mánuði þarf því að vinna 30—70 yfirvinnu- stundir (eftir aldursstigi) auk fyrmefndra 7,5 klst. Læknar, sem hafa aflað sér þeirr- ar þekkingar og reynslu og lagt jafn hart að sér og fjölskyldum sínum og sérfræðingar hafa gert, gera kröfú um að búa við góð kjor samanborið við aðrar stéttir þessa lands. Nái heildartekjur 110 þús- undum á mánuði fara 35—50 þúsund í opinber gjöld (400—600 þúsund á ári). Í þjóðfélagi, þar sem komið hafa fram tillögur um lög- bundin 35—40 þúsund króna lágmarkslaun em þetta engin glæsikjör fyrir hóp, sem ekki getur hafið lífsbaráttuna fyrr en undir 40 ára aldur. Vinna á eigin stofum Þá skal vikið að þjónustu sér- fræðinga á eigin stofum utan sjúkrastofnana. Sem betur fer eru ekki allir sjúklingar, sem þurfa á sérfræðiþjónustu að halda, svo veik- ir að þeir verði að vistast á sjúkra- húsi. Með betri aðstöðu til rannsókna getur skoðun og meðferð farið fram utan sjúkrahúsa eða með mjög stuttri sjúkrahúsiegu, ef svo ber undir. Margir sjúklingar þurfa á langtímaeftirliti sérfræðinga að halda vegna eðlis sjúkdóms síns eða ef meðferð er vandasöm og ekki á annarra færi. Þetta hafa sérfræð- ingar gert bæði með vinnu á göngudeildum og með því að halda opnum möguleika á að sinna þess- um sjúklingum á eigin stofu. Á þennan hátt hefur verið unnt að stórbæta þjónustuna við fólkið í landinu, án þess að ijölgað hafi verið almennum sjúkrarúmum í Reykjavík sl. 10 ár. Spamaðurinn, sem þar hefur orðið, gleymist oft- ast í þessari umræðu. Þessi þjónusta verður að veru- legu leyti aðeins veitt af sérfræðing: um, sem starfa á sjúkrahúsum. í flestum sérgreinum þarf sérfræð- ingur að starfa innan veggja sjúkrahúss til þess að halda við kunnáttu sinni og þjálfun. Jafn- framt er honum nauðsynlegt að fylgja sínum sjúklingum eftir utan sjúkrahúss og sjá aðra minna veika sjúklinga til þess að auka eigin yfir- sýn yfir fagið. Sérfræðingur, sem eingöngu vinnur utan sjúkrahúss, verður í mörgum tilvikum faglegri einangrun að bráð, sem kemur nið- ur á þjónustu hans við sjúklinga. Þá eru sumar sérgreinar hér svo fámennar, að óhugsandi er að hafa annars vegar sérfræðinga, sem ein- göngu vinna á sjúkrahúsi, og hins vegar aðra, sem vinna einungis utan sjúkrahúss. Síðast en ekki síst er sú hliðin, sem snýr að sjúklingnum, þ.e. að hann eigi þess kost, að sami sérfræðingur fylgi honum eftir inn- an spítala og utan, ef þess er þörf. Nauðsyn þess, að þessi þjónusta sé veitt og réttur sérfræðinga til að sinna henni er viðurkenndur og raunar bundinn í samningum læknafélaganna við ríki og borg. Fyrir þessa þjónustu er greitt eftir gjaldskrá samkvæmt samningi læknafélaganna og Trygginga- stofnunar ríkisins. Læknisverk eru þar metin eftir því hve þau eru vandasöm og tímafrek og eftir því hve mikinn og dýran tækjakost eða aðstöðu þarf til að vinna þau. Gjald- skráin gerir ráð fyrir að launahiut- fall sé 50% og rekstrarhluti 50% að meðaltali. Fullyrðingar um, að algengar greiðslur TR til sjúkrahúslækna í fullu starfi nemi 200—400 þúsund krónum á mánuði eru rangar. Sann- leikurinn er sá, að af þeim sérfræð- ingum sem taka laun eftir framangreindum launatöflum og eru í fullu starfí hjá ríki og borg, er talsverður hluti (30—40 manns), sem hefur engar eða óverulegar tekjur af stofu. Af hlutfallslegum greiðslum, sem berast í sjóði lækna- félaganna frá Tryggingastofnun- inni, má ráða, að örfáir úr þessum hópi hafi yfir 200 þúsund í heildar- greiðslur á mánuði frá stofnuninni. Algengast er, að þær nemi 30—100 þúsundum á mánuði, ef miðað er við fyrri hluta þessa árs. Af þessum greiðslum greiðir læknir allan kostnað af stofurekstri og er reikn- að með 50% hlutfalli af þessum greiðslum til þess. Launahlutinn stendur þannig í 15—50 þúsundum á mánuði. Af þessari upphæð fara 50—60% í opinber gjöld, þannig að 7—25 þúsund eru til ráðstöfunar fyrir krefjandi ákvæðisvinnu utan dagvinnutíma. Læknar gera strangar faglegar og siðferðilegar kröfur til sjálfra sín og sömu kröfur gera sjúklingar þeirra. Það er okkar markmið að tryggja skjólstæðingum okkar bestu læknisþjónustu sem völ er á og við gerum kröfur til þess að vera til ráðuneytis um, hvemig sú þjónusta er veitt vegna þeirrar sér- þekkingar, sem við höfum á þessum málum. Við gerum ekki kröfur til þess að vera ráðgjafar um skiptingu sjávarafla eða breytta búskapar- hætti og væntum þess, að aðrir sýni okkur sömu tillitssemi. Reykjavík 18. nóv. 1986. Magni Jónsson form. Læknafélags Reykjavíkur, Atli Dagbjartsson gjaldk. Læknafélags Reykjavikur. síma 1 tjöNusm GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA ÍSLENSKRA GETRAUNA Hér eru leikirnir! Leikir 29. nóvember 1986 1 X 2 1 M. Gladbach - F.C. Köln * 2 Aston Villa-Arsenal 3 Leicester - Chelsea 4 Liverpool - Coventry 5 Luton - Charlton 6 Man. City - Everton 7 Newcastle - West Ham (sd.) 8 Norwich - Oxford 9 Q.P.R. - Sheffield Wed. 10 Southampton-Watford 11 Tottenham - Nott’m. Forest 12 Wimbledon - Man. United Hringdu strax! 688-322 föstudaga kl. 9.00-17.00 laugardagakl. 9.00-13.30

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.