Morgunblaðið - 28.11.1986, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 28.11.1986, Qupperneq 54
 SjalMnn: Ingimar ráð- inn eina ferðina enn Greinilega ómissandi skemmtikraftur Sem kunnugt er keypti Ólafur Laufdal, skemmtistaðaeigandi með meiru, Sjallann á Akureyri um daginn. Eins og lög gera ráð fyrir var fyrsta verk hins nýja eiganda að sópa út og gera þær breytingar á húsnæði og rekstri sem þurfa þótti. Eitt var það þó, sem ekki kom til greina að breyta eða skipta um. Það var hljómlistarmaðurinn Ingimar Eydal, sem heita má samgróinn akur- eyrsku skemmtanalífi og hætt við að Sjallinn væri hálftómlegur án hans. Það var þvf eitt fyrsta verk Ólafs að endurráða Ingimar og var meðfylgj- andi mynd tekin við það tækifæri. Ingimar hefur leikið fyrir dansi í 23 ár og með þessu áframhaldi verð- ur að telja líklegt að hann eigi að minnsta kosti annað eins eftir. Á meðan stöðvast dansinn ( Sjallanum varla. Geir Agnarsson með viðurkenningarskjal sitt. Keppt í stærðfræðikunnáttu Fæstir mjmdu víst tengja stærðfræði íþróttum, en þó er það svo að flöldi manns stund- ar þessa heilaleikfimi og hefur gaman af. Ekki láta þeir þó við það sitja heldur er einnig keppt í stærðfræðigetu og standa ís- Ienzka stærðfræðifélagið og Félag raungreinakennara í framhalds- skólum fyrir henni. Keppninni er skipt í tvö stig, hið neðra fyrir nemendur í tveimur fyrri beklcjum framhaldsskólanna, en hið efra fyrir hina tvo. í ár kepptu 511 nemendur í keppninni, 275 í hinu neðra, en 236 í efra. Af þeim voru tuttugu efstu menn af efra stigi og fímm af neðra valdir til þess að taka þátt í úrslitakeppninni, sem fara fram í mars á næsta ári. Hinir efstu munu síðan taka þátt í Norð- urlandakeppninni, en lið hverrar þjóðar keppir heima hjá sér. Hinn fimmta til sextánda júlí verða síðan Stærðfræðiólympíuleikamir haldnir í Havana á Kúbu. Þess má geta að til þess að halda mönn- um við efnið verða æfingadæmi send til þeirra reglulega. í fyrra hluta stærðfræðikeppn- innar varð Geir Agnarsson efstur á efra stigi, en hann er í sjötta bekk Menntaskólans I Reykjavík. í öðru sæti varð Sverrir Óm Þor- valdsson og í hinu þriðja Matthías Magnússon, en báðir eru þeir í Menntaskólanum í eins og Geir. í efsta sæti neðra stigs varð hins vegar Akureyringurinn Guðbjöm Freyr Jónsson, en hann sigraði félaga sína með algerum yfírburð- um. Tuttugu efstu keppendum á hvom stigi vom afhent verðlauna- skjöl á Hátíðasal Menntaskólans í Reykjavík og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. Þessi mynd var tekin árið 1974, þegar Theodorakis kom heim til Grikklands úr útlegð, eftir faU herforingjastjómarinnar. Myndin úr The Economist. „Fóminni“ vel tekið em kunnugt er fékk rússneski ^ leikstiórinn Andrei Tarkovsky, íslensku leikkonuna Guðrúnu Gísladóttur til þess að leika völvu í síðustu mynd sinni, Fóminni. Myndin fjallar um heimsslit og dag- inn eftir, en völvan spáir einmitt fyrir um þau — einskonar völuspá. í sfðasta hefti tímaritsins The Economist var m.a. Jjallað um mynd Tarkovskys og mjög lofsamlegum orðum farið um hana. Er t.d. sagt að myndin sé „eitt af þessum stór- Súkkulaðiterta af Akranesi á boðstólum hjá Long John Silver? Matreiðslumenn fyrirtækisins baksa við að baka eftir upp- skrift Rannveigar Böðvarson Súkkulaðiterta húsmóður á Akranesi gæti orðið réttur á matseðli Long John Silver veitinga- húsanna í Bandaríkjunum innan skamms. Fyrirtækið hefur um ára- bil selt á fjölmörgum veitingastöð- um sínum rétti úr íslenskum fiski frá Coldwater Seafood, dótturfyrir- tæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna. Kökuuppskriftin er nú í athugun hjá matreiðslumönnum fyrirtækisins, en þrátt fyrir ítrekað- ar tilraunir hefur þeim ekki tekist að baka tertuna rétt. Það er Rannveig Böðvarson, ekkja Sturlaugs Böðvarson og móð- ir Haraldar Sturlaugssonar for- stjóra H. Böðvarson & co. á Akranesi sem á heiðurinn að þess- ari eftirsóttu tertu. Hún hefur jafnan tekið á móti fulltrúum Long John Silver f mat þegar þeir hafa heimsótt verksmiðjuna á Akranesi í viðskiptaerindum. í haust snæddi forstjóri fyrirtækisins hádegisverð hjá Rannveigu. Hafði hann orð á því hvort súkkulaðitertan yrði ekki í eftirrétt. Kom upp úr kafinu að fyrri matargestir Rannveigar höfðu sagt honum frá tertunni gómsætu. Skömmu eftir heimsókn forstjórans var Rannveig beðin um að senda GILDIHF ásamt söngkonunni Ernu Gunnarsdóttur sjá um dansstuðið öll föstudags- og laugardagskvöld eftir að skemmtidagskrá lýkur. félk í fréttum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.