Morgunblaðið - 28.11.1986, Side 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
„ og pd sagfci ég. „ þab urðu algertiiwx-
rnól í kv'ermabaráttunnl pegcxr ei'r\-
hv/er náongi. fenn upp Sjálfskiptir^una"
Fuglakornið, sem Sólskríkjusjóðurinn hefur árlega sent i marga skóla landsins, er væntanlegt. Vonandi
fá sem flestir smáfuglarnir að njóta þess og í leiðinni að lífga upp á tiiveru okkar mannfólksins.
-<jW3
. . . ad sigla á sama
háti.
TM Reg. U.S. Pat. Oft.—all rights reserved
©1984 Los Angeles Times Syndicate
• r.
En mamma, ég stend á
hundraðkalli.
FUGLAKORNIÐ KEMUR
Sólskríkjusjóðurinn, sem ég hef
veitt forstöðu í 25 ár, hefur árlega
keypt fóðurkom handa smáfuglum
og sent í flesta bamaskóla lands-
ins, aðallega þó um norðanvert
landið. Oftast nær hef ég sent kom-
sekkina fyrir eða um miðjan
Mig langar til þess að þakka fyr-
ir afar vel heppnaða ferð, sem ég
fór í til Mallorca um mánaðamótin
okt./nóv. sl. á vegum Ferðaskrif-
stofunnar Atlantik. Var dvalið á 2
hótelum og dvaldi ég á Hotel Jard-
in del Mar, yndislegu íbúðahóteli á
Santa Ponsa.
Verð ég að segja að ég er afar
hrifín og þakklát eftir þessa ferð.
íbúðirnar á Hotel Jardin del Mar
eru vistlegar og hreinlæti til fyrir-
myndar. Starfsfólkið reyndist eins
og best verður á kosið, þjónusta
hreint frábær.
nóvember. Að þessu sinni hefur það
dregist og fara þeir (sekkimir)
sennilega ekki af stað fyrr en um
miðjan desember. Þessi dráttur
stafar af því að fyrirtækið, sem ég
er vanur að fá fuglakomið frá, hef-
ur af tæknilegum ástæðum ekki
Ég hef aldrei fyrr farið á „sólar-
strönd" og veit ég að ég mæli fyrir
munn margra úr mínum hópi á
Hotel Jardin del Mar, þegar ég
þakka Ferðaskrifstofunni Atlantik,
Andreu fararstjóra, sem sá um okk-
ur á Jardin del Mar, innilega fyrir
góða og vel skipulagða ferð. Eins
vil ég þakka Hljómsveit Ingimars
Eydal, sem var með í för, fyrir
þeirra þátt í hversu vel tókst til.
Það er alveg víst að ég á eftir
að fara aftur til Mallorca og þá v'l
ég búa á Hotel Jardin del Mar.
Erla Höskuldsdóttir
getað framleitt það nú. Orðið hefur
að panta það frá útlöndum. Þetta
er maís og þarf hann að vera í
hæfilegri komastærð fyrir smáfugl-
ana.
Vonandi kemur maísinn sam-
kvæmt áætlun þann 10. desember
og verður nothæfur. Ég bið Velvak-
anda vinsamlegast að bera bestu
kveðjur til bamaskólanna og ann-
arra sem fengið hafa fuglafóður frá
Sólskríkjusjóðnum undanfarin ár.
Flugleiðir og Amarflug hafa góð-
fúslega flutt sekkina ókeypis fyrir
okkur á liðnum ámm og er það
ómetanleg hjálp.
Mér þætti vænt um ef viðtakend-
ur sendu mér línu við tækifæri og
létu vita hvort komið hefði borist
þeim og hvemig birgðum er varið.
Þó margir kannist við Sólskríkju-
sjóðinn sakar máski ekki að geta
þess að móðir mín, Guðrún J. Erl-
ings, stofnaði hann árið 1948 í
minningu manns síns, Þorsteins
Erlingssonar skálds, og færði hann
Dýraverndunarfélagi íslands að
gjöf.
Erlingur Þorsteinsson læknir
Þakkarbréf til Ferða-
skrifstofunnar Atlantik
HÖGNI HREKKVtSI
Víkverji skrifar
Nú er hann Molotov okkar allur
eins og kunnugt er af fréttum.
Við hér á Morgunblaðinu minnt-
umst hans meðal annars með mynd
frá útförinni í síðastliðinni viku.
Athöfnin sú fór samt ekki fram
með líkt því eins mikilli viðhöfn og
ef forsætis- og utanríkisráðherrann
fyrrverandi hefði gefið upp andann
þá vegur hans var mestur. Molotov
var jarðsettur í Novodevichy-kirkju-
garðinum í Moskvu og hafði það
því hvorki í Kremlarmúrinn né und-
ir hann eins og þjóðhetjur Rússans;
og þar að auki borgaði ríkið víst
ekki einu sinni undir hann síðasta
spölinn, hvað einhvem tíma hefði
þótt saga til næsta bæjar. En þegar
fyrrum valdsmaður á í hlut merkir
svona sinnuleysi sem kunnugt er á
táknmáli þarlendra að sá látni hafi
dáið í ónáð eða að minnsta kosti í
lítilli náð.
XXX
Samt var hann ámm saman
hægri hönd Stalíns og nátengd-
ur öllum gerðum hans. Hann var
til dæmis utanríkisráðherra ein-
valdsins þegar Sovétstjórnin gerði
griðasáttmálann við Hitler, en þá
brá svo kynlega við að allir vestræn-
ir kommúnistar gerðust á einni
nóttu stækir friðarsinnar — eða allt
þar til slitnaði upp úr vinskap þess-
ara dánumanna og vestrænu
kommúnistamir gerðust á einni
nóttu hatrammir stríðsjaxlar. Hér
uppi á íslandi lýsti þessi hringsún-
ingur sér einkanlega í því að eftir
griðasáttmálann jaðraði Bretavinn-
an svokallaða við landráð en eftir
að Hitler hafði ráðist á Sovétríkin
hét hún að sjálfsögðu eitthvað það
ágætasta sem menn gátu tekið sér
fyrir hendur.
xxx
Molotov var fyrir löngu gleymd-
ur og grafinn þegar hann
kvaddi þennan vanþakkláta heim,
féll í ónáð fljótlega eftir andlát
Stalíns, var hreinlega troðinn undir
í valdabaráttunni eins og títt er á
þessum slóðum. Hann slapp samt
betur en Beria starfsbróðir hans,
yfirmaður leynilögreglunnar og
umsjónarmaður Gúlagsins. Beria
var leiddur út og skotinn.
Þeir sem voru komnir til vits og
ára á þessum umbrotatímum muna
Vyacheslav M. Molotov vitanlega
glögglega, en hinirgera vísast fæst-
ir betur en að kannast við nafnið í
mesta lagi. Kannski þekkja þeir
samt „kokteilinn" sem frændur
okkar Finnar kenndu við hann. Sú
blanda var samt ekki af sovéskum
uppmna. Finnamir brugguðu Mol-
otov-kokteilinn sjálfir og helltu
honum á flöskur sem þeir vörpuðu
að skriðdrekum Sovétmanna í Vetr-
arstríðinu svokallaða. Uppistaðan
var víst bensín og nafnið að sjálf-
sögðu Molotov til háðungar, en sem
málpípa Stalíns féll það á hans herð-
ar að útbreiða þann nýstárlega
boðskap að það hefði alls ekki ver-
ið Sovétherinn sem réðist á Finn-
land heldur þvert á móti sá finnski
sem réðst á Sovétríkin. Og áttu
menn sem sagt að gleypa það hrátt
að Finnar hefðu ætlað að hremma
þennan nágranna sinn.
Skrýtinn ferill, lífshlaup Mol-
otovs. Náði tindinum og steyptist
þá fram af honum. Og hefur verið
þurrkaður út af spjöldum sögunnar
í föðurlandi sínu og tórir kannski
helst í minningu manna hér vestra
sem valdsmaðurinn sem alþjóðlega
nafnið á „heimasmíðuðu" drápstóli
er komið af.
XXX
Að lokum ein spuming af öðrum
toga og nær okkur íslending-
um: Er það ekki hámark fáránleik-
ans að ef þú hefur efni á því að
skjótast í þriggja daga „innkaupa-
ferð“ til Glasgow eins og það heitir
í auglýsingunum, þá ertu verðlaun-
aður með því við heimkomuna að
mega eignast kassa af „áfengum"
bjór sem þú getur glatt þig við yfir
hátíðarnar? En ef þú hefur ekki
efni á svona ferðalagi (eða að
minnsta kosti hvorki tímann né vilj-
ann) þá er þér refsað með því að
þér er harðbannað að eignast þetta
glundur að viðlagðri refsingu.
„pVÍ /rUÐOR'.j pAP Bg. APEINS LEyFT Ap
VEIE>A /MS'S HINU/VI MEGIN SÖTUMMAR.'/