Morgunblaðið - 28.11.1986, Síða 63
MÖRGUNBLAÐÍÐ, 'fÖSTUDÁGUR 28. NÓVEMBER’l986
Þær bandarísku
burstuðu íslenska
kvennalandsliðið
ÞRÁTT fyrir stórleik Kolbrúnar
Jóhannsdóttur f íslenska markinu
tókst kvennalandsliðinu ekki að
vinna bandaríska landsliðið í
fyrsta leik liðanna sem fram fór
að Varmá í gærkvöldi. Bandaríska
liðið burstaði það fslenska gjör-
samlega og munaði þar mest um
slakan kafla f sfðari hálfleik. Loka-
tölur urðu 18:26 eftir að staðan
f leikhléi hafði verið 10:12.
Það var rétt fyrstu mínútur leiks-
ins sem íslenska liðið stóð í þeim
bandarísku. Þær bandarísku
komust í 5:8 eftir 17 mínútna leik
og þá hafði Guðríður Guðjóns-
dóttir skorað öll mörkin fyrir ísland.
Góður kafli gerði það aö verkum
að stelpunum tókst að jafna leik-
inn, 9:9, en þá sýndi hin stór-
skemmtilega Sam Jones (nr. 13)
hvernig kvenfólk getur skotið.
Skoraði fallegt mark með firna-
föstu skoti sem Kolbrún réði ekkert
við.
Guðríður jafnaði metin en síðan
komu tvö bandarísk mörk og stað-
an í leikhléi 10:12.
íslandi tókst að jafna 14:14 eftir
10 mínútur en síðan kom herfileg-
ur kafli hjá liðinu. I heilar tíu
mínútur tókst þeim ekki að skora
en á meðan gerðu þær bandarísku
átta mörk!
Staöan orðin 14:22 og aðeins
tíu mínútur til leiksloka. Næst skor-
aði íslenska liöið fjögur mörk gegn
einu bandarísku og staðan því
18:23 en síðan ekki söguna meir.
Bandaríska liðiö skoraði síðustu
þrjú mörkin og unnu stóran, allt
of stóran, sigur á því íslenska.
Skemmtilegur hand-
bolti
Bandaríska liðið lók vel í þessum
leik. Sóknarlotur þeirra voru ef til
vill of bundnar í leikkerfum á stund-
um. Nokkrar stúlkur í liðinu eru
geysilega skemmtiulegar. Fyrsta
skal þar telja Sam Jones sem lék
áður sem atvinnumaður hjá
Leverkusen í Þýskalandi. Mjög
skotföst og skemmtileg hand-
boltakona.
Sandra de la Rive (nr. 7) lék
einnig mjög vel og heldur uppi
góðum hraða í sókninni. Hún dreif-
ir spilinu vel og er sífellt ógnandi.
Greinilegt að hún er í góðu formi
enda leikur hún sem atvinnumaður
í handknattleik í Sviss um þessar
mundir.
Enn eina verður aö nefna en það
er hin eldfljóta Maureen Latterner
(nr. 11) sem skoraði fjögur mörk
hvert öðru skemmtilegra. Þrjú úr
glæsilegum shraðaupphlaupum
og eitt meö því að snúa knettinum
framhjá Kolbrúnu í markinu er hún
fór inn úr horninu.
Meg Gallagher (nr. 3) er geysi-
lega sterk og skemmtileg bæði í
sókn og þó sérstaklega vörn.
íslenska liðið
íslenska liðið lék illa mestan
hluta þessa leiks. Of mikið var um
ótímabær skot sem varnarveggur-
inn varði og síðan brunuðu þær
bandarísku í hraðaupphlaup og
skoruðu en þannig gerðu þær sjö
mörk.
Best í gær var án efa Kolbrún
Jóhannsdóttir í markinu. Hún varði
19 skot í þessum leik og flest
þeirra úr erfiðri aðstöðu. Skemmti-
legur markvörður sem sýnir mikla
yfirvegun í markinu.
Guríður Guðjónsdóttir var at-
kvæðamikil í þessum leik og lék
nokkuð vel, bæði í vörn og sókn.
Erla Rafnsdóttir, sem leikur á
línunni hjá landsliðinu þó hún sé
útileikmaður með Stjörnunnr, stóð
sig einnig mjög vel og skoraði
falleg mörk.
Erna Lúðvíksdóttir var ekki í
stuði í gær. Varnarleikur hennar
var ekki nógu ákveöinn og í sókn-
inni var hún slök nema síðari hluta
leiksins eftir að hún hafði fengið
að hvíla í nokkurn tíma.
Katrín Friðriksen lók vel í fyrri
hálfleik er hún var í hægra horninu
og skoraði falleg mörk þaðan. í
síðari hálfeik lék hún hægra megin
í sókninni og þá náði hún sér ekki
á strik, átti nokkur ótímabær skot.
Ingunn Bernótusdóttir átti einn-
ig frekar slakan dag og getur gert
mun betur en hún gerði í gær.
Arna Steinsen lék þokkalega, gerði
lítið af mistökum en ógnaði allt of
lítið í vinstra horninu.
Eiríka Ásgrímsdóttir lék ekki
mikið með en eftir að hún kom í
hægra hornið minnkaði ógnunin
þar nokkuð.
Aðrar stúlkur léku ekki mikið
með en stóðu sig þó allar þokka-
lega. Reyndu að vísu ekki mikið,
heldur létu knöttinn ganga og létu
hinar reyndari stúlkur um að reyna
markskot. Ef til vill hefði þeim
verið nær að reyna meira sjálfar.
Mörk ÍSLANDS: Guörlður Guðjónsdóttir
9/6, Erla Rafnsdóttir 5, Katrín Friðriksen
2, Ema Lúðvíksdóttir 2.
Mörk Bandaríkjanna: Meg Gallagher 5,
Cindy Stinger 5/3, Maureen Latterner 4,
Sam Jones 4, Sandra de la Rive 4, Portia
Lack 2, Kim Clarke 1, Laura Coenen 1.
-sus.
Morgunblaðið/RAX
Erta Rafnsdóttir skorar hér eitt marka sinna úr hraðaupphlaupi.
1. deild kvenna í körfu:
Stórleikur Lindu
og KR vann stórt
„LINDA Jónsdóttir var f sérflokki
og gaf leikmönnum f úrvalsdeild-
Eirfka Ásgrfmsdóttir reynlr hér skot gegn sterkri vöm Bandarfkjanna.
Morgunblaðið/RAX
inni ekkert eftir,“ sagði Pálmar
Sigurðsson, þjálfari kvennaliðs
Hauka f 1. deild f körfu, eftir stór-
sigur KR í Hafnarfirði f gærkvöldi.
KR vann 60:36 eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 34:17. Linda
skoraði 26 stig fyrir KR og bar af
f leiknum.
Mikill hraði var í leiknum og
varnarleikur beggja liða nokkuð
góður, en KR-stúlkurnar voru mun
sneggri og ákveðnari í sóknarleikn-
um. Haukastúlkurnar réðu ekkert
við Lindu í fyrri hálfleik, en þá skor-
aði hún 18 stig.
Haukastúlkurnar léku maður á
mann vörn í seinni hálfleik og
heppnaðist sú leikaðferð vel, en
sóknarleikurinn var ekki nógu góð-
ur og KR-stúlkurnar skoruðu mörg
stig úr hraöaupphlaupum.
Haukaliðið var frekar jafnt. Sig-—
rún Skarphéðinsdóttir og Sólveig
Pálsdóttir skoruðu 11 stig hvor,
en Guðbjörg Noröfjörð 6 stig.
Linda Jónsdóttir var best hjá KR,
en Cora Barker og Kristjana Hrafn-
kelsdóttir léku einnig vel og
skoruðu 8 stig hvor.
KR og ÍS eru nú efst ( deildinni
með 12 stig eftir 7 leiki.
IR vann UMFG
- Grindavík enn án stiga
ÍR vann UMFG 54:36 f 1. deild
kvenna f körfubolta f Grindavík f
gær eftir að hafa haft 9 stiga for-
ystu f hálfleik. Þetta var þriðji
sigur (R f deildinni, en Grindavfk
hefur ekki enn unnið leik.
Leikurinn var frekar jafn fyrsta
stundarfjórðunginn og skiptust lið-
in á að skora. Þá kom góður kafli
hjá ÍR-stúlkunum og í hálfleik var
staðan 28:19 þeim í vil.
( seinni hálfleik jókst munurinn
jafnt og þétt og ÍR-stúlkurnar sigr-
uðu með miklum yfirburðum,
54:35.
Marta Guðmundsdóttir var best
hjá Grindavík og skoraði 14 stig.
Stefanía Jónsdóttir skoraði 10 stig.
Liö ÍR var frekar jafnt, en Dag-
björt Leifsdóttir var einna best.
Hún skoraði 9 stig í leiknum, en
María Leifsdóttir og Harpa Guð-
brandsdóttir skoruðu 8 stig hvor.
Suðurnesja-
slagur
UMFN og ÍBK, efstu liðin í úrvals-
deildinni í körfubolta, leika f
Njarðvfk í kvöld og hefst leikurínn
klukkan 20.
Að honum loknum leika UMFN
og ÍS í 1. deild kvenna, en UBK
og UMFT leika í 1. deild karla og
byrjar sá leikur í Kópavogi klukkan
20.