Morgunblaðið - 28.11.1986, Side 64
í
Framhald bókariiuiar
,Stúlkan á bláa hjólinu“
ÍSAFOLD
V V ^ FERÐASKRIFSTOFAN
saga
TJARNARGATA 10 SÍMI:28633
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Margt að skoða
Fjórar vikur eru nú til jóla. í verzlununum getur margt að líta sem heillar ungu kynslóðina og um leið og framboð-
ið eykst vex spenna þeirra yngri. A morgun verða verzlanir víða opnar fram eftir degi.
Samningaviðræður VSÍ og ASÍ:
Ihugaðir möguleikar á
bráðabirgðasamningi
Kvikmynda-
markaður í London:
Tíu íslensk-
ar myndir
seldust
SEX íslenskar fræðslumyndir
og fjórar islenskar bíómyndir
seldust á erlendum kvikmynda-
markaði í London fyrir stuttu,
en slíkur markaður er haldinn
ár hvert og nefnist „London
Multimedia Market". Þetta er í
fyrsta skipti sem islenskir aðU-
ar taka sig saman um að selja
myndir og voru það þeir Jón
Hermannsson, kvikmyndagerð-
armaður, og Ornólfur Árnason,
kvikmyndaframleiðandi, sem
voru f London vegna þessa.
Þeir höfðu með sér níu fræðslu-
-^ayndir og seldust sex þeirra. Þær
eru mynd um fuglalíf við Mývatn
eftir Magnús Magnússon, mynd
um íslenska hestinn eftir Hjálmtý
Heiðdal, mynd um Guðlaug Frið-
þórsson frá Vestmannaeyjum og
ótrúlega björgunarsögu hans eftir
Pál Steingrímsson og einnig
fræðslumynd eftir Pál um þróun
hvalveiða. Þá seldust tvær myndir
Jóns Hermannssonar, önnur um
laxveiði og hin um áfengisvanda-
mál.
—, Jón sagði í samtali við Morgun-
blaðið að flestar fræðslumyndanna
væru keyptar af sjónvarpsstöðvum,
en þó færu sumar á fræðslumynda-
söfn, t.d. hefðu Bandaríkjamenn
keypt myndina um áfengisvanda-
málið fyrir slíkt safn. Tvær mynd-
anna fóru til Kanada, þijár til
Bretlands, þijár til Taiwan, tvær til
Malasíu og ein til Svfþjóðar, Noregs
og Finnlands.
Af bíómyndum seldist Atómstöð-
in, sem byggð er á sögu Halldórs
Laxness. Leikstjóm annaðist Þor-
steinn Jónsson og framleiðandi var
kvikmyndafélagið Óðinn. Kvikmynd-
in „Punktur punktur, komma, strik"
eftir skáldsögu Péturs Gunnarssonar
^ildist einnig, en Þorsteinn leik-
■ stýrði henni einnig. Þá seldist
kvikmynd Egils Eðvarðssonar „Hús-
ið“ sem Saga Film framleiddi.
Kvikmyndimar fara til dreifingar I
Suður-Ameríku. Fjórða kvikmyndin
er „Útlagi" þeirra Ágústs Guð-
mundssonar og Jóns Hermannsson-
ar, sem seldist til Indlands.
Rétt til þátttöku í prófkjöri fram-
sóknarmanna í Reykjavík hafa nú
- yfir 4.200 manns, en fyrir þann 19.
þessa mánaðar vom þeir ekki nema
um 1.900. Talið er að Finnur og
Guðmundur skipti nokkuð jafnt með
sér þeim liðlega 2.300 nýju atkvæð-
um, sem bæst hafa í hópinn, en að
Haraldur Ólafsson alþingismaður
hafí misst af lestinni.
Baráttan í forvali Alþýðubanda-
í sanmingaviðræðunum í gær
vakti Alþýðusambandið máls á
þeim möguleika, hvort unnt væri
að gera bráðabirgðasamning til
stutts tíma, sem innihéldi sér-
stakar launabætur til hinna
lægstlaunuðu. Samningurinn
yrði ekki til lengri tima en
tveggja til þriggja mánaða og sá
lagsins í Reykjavík stendur fyrst
og fremst á milli Guðrúnar Helga-
dóttur alþingismanns og Ásmundar
Stefánssonar forseta ASÍ um annað
sæti listans, en Þröstur Ólafsson
framkvæmdastjóri Dagsbrúnar
blandar sér einnig í þá baráttu og
stefnir á annað sætið eins og þau.
Hjá Alþýðuflokknum í Reykjavík
er baráttan um 4. sæti listans, enda
sjálfkjörið í fyrstu þijú sætin. Þau
tími notaður til þess að vinna að
uppstokkun launakerfanna.
Jafnframt yrði þess farið á leit
við ríkisstjórnina að hún héldi
aftur af verðlagshækkunum og
hafnar yrðu viðræður um rót-
tækar breytingar á skattakerf-
inu.
sem beijast um það sæti eru Björg-
vin Guðmundsson, Lára V. Júlíus-
dóttir og Jón Bragi Bjamason og
er talið að mjótt verði á mununum
á milli þeirra, en margir telja þó
að Jón Bragi beri sigurorð af hinum
frambjóðendunum.
Þá er baráttan um efsta sæti lista
Alþýðuflokksins á Vestfjörðum, á
milli þeirra Karvels Pálmasonar al-
þingismanns og Sighvatar Björg-
vinssonar fyrrverandi alþingis-
manns mjög hatrömm og í jámum.
Sjá nánar fréttaskýringu
„Hvarvetna mikil barátta og
bullandi ólga undir niðri“ á
bls. 26-27.
unblaðsins er hinn möguleikinn að
mati Alþýðusambandsins sá, að
hefja nú viðræður um uppstokkun
launakerfanna, og láta reyna á
hvort einhver leið sé þar fær til
samkomulags. Samninganefndimar
áttu með sér stuttan fund á seinni
timanum í sex í gær og tóku vinnu-
veitendur sér frest til klukkan tvö
í dag til þess að íhuga stöðu samn-
ingamálanna.
Nefnd, sem Qallað hefur um
Morgunblaðið/Bjami \
Hagfræðingum ASIog VSÍ veitir
sjálfsagt ekki af hressingunni í
hita leiksins; Björn Björnsson
t/.) og Vilhjálmur Egilsson.
mundur Stefánsson sést á milli
þeirra.
breytingar á bónuskerfinu, hefur
fundið leið til þess að auka hlutfall
fastakaupsins í bónusvinnu. Nefnd-
in hefur þó ekki rætt um ákveðnar
tölur í þessu sambandi, þar sem
tilfærsla úr bónusnum til fasta-
kaupsins, byggist á þeirri niður-
stöðu sem komist verður að í
sambandi við hækkun lágmarks-
launa.
Fundur samninganefnda ASÍ og
VSÍ átti að hefjast klukkan tvö í
gær, en honum seinkaði um tvær
og hálfa klukkustund vegna fundar
I samninganefnd Alþýðusambands-
ins. Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar og Verka-
mannasambandsins, kom beint á
fundinn af stjómarfundi í Dags-
brún. Að loknum fundunum í gær
svaraði hann þeirri spumingu ját-
andi að hann væri bæði fulltrúi
Dagsbrúnar og Verkamannasam-
bandsins í viðræðunum.
Á sameiginlegum blaðamanna-
fundi ASÍ og VSÍ eftir fundinn í
gær sagði Asmundur Stefánsson,
forseti ASÍ, að það væri engin vissa
fyrir því að það næðist árangur í
samningaviðræðunum, en aðilar
teldu sér skylt að láta á það reyna
hvort samningar væru mögulegir.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði að VSÍ
væri alls ekki búið að gefa upp
vonina um samninga og vildi reyna
til þrautar.
Sjá forystugrein á miðopnu.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
Prófkjör um helgina:
Gífurleg smölun hjá
Framsókn í Reykjavík
PRÓFKJÖRSSLAGURINN hjá AlþýðubandaJaginu, Alþýðuflokknum
og Framsóknarflokknum er nú í algleymingi og er talið að flokkarn-
ir verði meira og minna í sárum að þeim loknum. Mikla athygli
vekur hversu römm átökin hafa verið um efsta sæti framsóknar-
manna í Reykjavík og hversu gríðarleg smölun hefur átt sér stað,
til þess að tryggja stuðningsmönnum þeirra Finns Ingólfssonar og
Guðmundar G. Þórarinssonar þátttökurétt í prófkjörinu um helgina.