Morgunblaðið - 07.01.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
Morgu nblaðið/Rax
Alfar og aðrar verur á þrettándagleði
ÁLFAR og undarlegar verur sáust á ferli í Vesturbænum í gærkveldi. Stigu þeir dans við brennu eina á horni Sólvallagötu og
Framnesvegar og tóku margir sporið með þeim.
Astæður þess að til álfanna og félaga þeirra sást var sú, að í gær var haldin þrettándagleði Ibúasamtaka Vesturbæjar. Söfnuðust Vesturbæ-
ingar og gestir þeirra saman við brennuna, sungu, dönsuðu, hlýddu á ýmsan fróðleik og sáu skemmtiatriði. Davíð Oddsson borgarstjóri tók
fyrstu skóflustunguna að nýjum Vesturbæjarskóla við brennuna, Ámi Bjömsson þjóðháttafræðingur talaði og Ragnhildur Gísladóttir söng.
Fóm síðan álfar og aðrir til síns heima, ánægðir eftir kvöldið.
Lítið miðar í kjara-
samningrim sjómanna
HLÉ var gert á samningaviðræð-
um í kjaradeilum fiskimanna og
farmanna um kvöldmatarleytið í
gær. Fundir með fiskimönnum
hefjast að nýju nú árdegis og
með farmönnum klukkan 14.00.
Forystumenn yfirmanna, Skip-
stjóra- og stýrmannafélagsins
Bylgjunnar og Alþýðusambands
Vestfjarða voru þó hjá sáttasemj-
ara í gærkvöldi til að reyna að
finna lausn á máli rækjuskipsins
Hafþórs. Sjómenn telja að skipið
hafi haldið til veiða í blóra við
verkfall og krefjast þess að það
komi þegar í land, en skipstjór-
inn hefur komið þeim skilaboð-
um frá sér, að hann sé ekki á
landleið.
Talið er að náist ekki lausn á
þessu máli, standi það verulega í
vegi fyrir áframhaldandi samninga-
viðræðum. Á hinn bóginn er lausn
málsins • talin greiða mjög fyrir
samningum og fínnist hún, mun
sáttasemjari líklega ræða við Óskar
Vigfússon, formann Sjómannasam-
bands íslands, og æskja þess að
Sjómannasambandið taki á ný þátt
í viðræðunum.
Á samningafundinum með fiski-
mönnum í gær var meðal annars
rætt nokkuð um tillögu útvegs-
manna um breytt fyrirkomulag á
skiptingu aflaverðmæta við sölu
erlendis úr gámum. Niðurstaða í
því máli fékkst ekki og niðurstaða
liggur heldur ekki fyrir hvað varðar
breytingu á skiptingu afla milli sjó-
manna og útgerðarmanna. Sjó-
mannasambandið hefur ákveðið að
senda fulltrúa sinn utan á fimmtu-
dag eða föstudag til viðræðna við
fulltrúa Alþjóðasambands flutn-
ingaverkamanna. Ákvörðun um
löndunarbann hefur enn ékki verið
tekin.
Lítið sem ekkert miðaði í gær í
samkomulagsátt í deilu farmanna
og útgerða kaupskipa og hafa
fyrstu skipin þegar stöðvazt af völd-
um verkfallsins.
Strandferðaskip Skipaútgerðar
ríkisins stöðvuðust öll þijú í gær
og Ljósafoss mun koma til Hafnar-
ijarðar í dag og stöðvast þar. Sex
skip Eimskipafélagsins til viðbótar
munu stöðvast í næstu viku, verði
verkfallið ekki leyst þá. Þau eru:
Eyrarfoss, Laxfoss, Skeiðsfoss,
Skógarfoss, Urriðafoss og Detti-
foss. Hvassafell, skip skipadeildar
Sambandsins, mun stöðvast í byijun
næstu viku og síðan eitt af öðru.
Ummæli Steingríms Hermannssonar í Keflavík:
Hlýt að lýsa undrun minni
á að Finnur skuli leggja
fram sjálfstætt frumvarp
í FRÉTTATÍMA á Stöð 2 í
gærkvöldi sagði Finnur Ing-
ólfsson að Steingrímur Her-
mannsson hefði tjáð sér að
Morgunblaðið hefði rangt eftir
sér í baksíðufrétt í gær, þar
sem vitnað er til ummæla hans
á fundi í Keflavík á mánudag.
Fyrirsögn fréttarinnar var
„Forsætisráðherra: Lýsir yfir
furðu sinni á vinnubrögðum
Finns“.
Af því tilefni snéri Morgun-
blaðið sér til Steingríms Her-
mannssonar og spurði hann hvort
rangt væri eftir honum haft. „Ég
sagði suðurfrá að ég hefði orðið
undrandi á að heyra að Finnur
hefði komið þarna með sérstaka
tillögu. Og við það stend ég og
ég hef sagt það við Finn. Það var
ekki gert í samráði við mig og
kom mér algerlega á óvart. í frétt-
inni var hins vegar sagt að ég
hefði lýst yfir furðu minni. Það
er kannski ekki munur á.“
Finnur Ingólfsson kvaðst í sam-
tali við Morgunblaðið telja að
forsætisráðherra hefði lýst undr-
un sinni yfír að ekki var haft
samband við hann en vildi ekki
tjá sig frekar um málið. Hann
hafði samband við Morgunblaðið
skömmu síðar og sagði:
„Steingrímur sagði orðrétt á fund-
inum, „Ég vissi ekki um þessar
tillögur og því varð ég undrandi
á að heyra þær“, en ekki að hann
hafí orðið undrandi á vinnubrögð-
unum.“
Haft var samband við forsætis-
ráðherra á ný og hann samsinnti
þá ummælum Finns um það sem
fram fór á fundinum. Þegar hann
var spurður um hvort hann hefði
furðað sig á vinnubrögðum Finns
sagði hann: „Ég tók nú ekki eftir
þessu orði í fréttinni enda nær
það yfir svo margt.“
Fundurinn í Keflavík var hljóð-
ritaður og fer hér á eftir sá hluti
hans sem um er rætt. í svari við
fyrirspum sagði Steingrímur: „Þú
spyrð að því hvort Finnur sé
studdur. Það er rétt hjá þér að
Finnur er fulltrúi kannski mín
fyrst ojg fremst persónulega í
þessu. Eg bað hann að fara f þetta
fyrir mig. Ég verð hins vegar að
segja alveg eins og er að ég sá
það eins og menntamálaráðherra
fyrst í fréttum um helgina að
hann hefði lagt fram aðrar tillög-
ur hjá lánasjóðnum. Og ég hef
kvatt hann á minn fund í fyrra-
málið. Hann var að hringja í mig
áðan og var að panta tíma og ég
vil fá að vita hvað hefur gerst.
Vitanlega er þetta mál ákaflega
viðkvæmt." Síðar segir: „Ég hlýt
að lýsa undrun minni á því að
Finnur skuli leggja þama fram
sjálfstætt frumvarp án þess að
hafa rætt um það við nokkum
mann.“
Sameiginleg skoðun
samvinnunefndar:
„Komið mjög
til móts við
sjónarmið
námsmanna“
„ÞAÐ er sameiginleg skoðun
samvinnunefndarinnar að í
þessum viðræðum við náms-
menn hafi verulegur árangur
náðst og hafi nefndin komið
mjög til móts við sjónarmið
námsmanna þó að ekki hafi
nást endanlegt samkomulag.
Nefndin telur að ef ganga
eigi lengra í viðræðum við
námsmenn þá sé það hér á
eftir á valdi ráðherra.“
Þetta segir orðrétt í bréfi
samvinnunefndar stjórnarflokk-
anna um málefni lánasjóðs
námsmanna til Sverris Her-
mannssonar menntamálaráð-
herra hinn 4. desember sl. Bréfið
er undirritað af öllum íjórum
nefndarmönnum, þar á meðal
af Finni Ingólfssyni.
í bréfinu segir ennfremur:
„Nefndin telur að æskilegt sé
að ráðherra taki tillit til þeirra
breytingatillagna sem sam-
vinnunefndin varð sammála um
að gerðar yrðu á frumvarps-
drögunum (sjá drög 1). Þá er
nauðsynlegt að gerðir verði nýir
útreikningar sem byggja á
breyttum forsendum og nýjum
tölum ...
Nefndin telur nú framlengdu
hlutverki hennar lokið og er
framvinda málsins hér eftir í
höndum ráðherra."
Fr i ð r
J.L ~ Æ—.
Haraldur Olatsson alþm.
Sophusson a1þm.
L«mfki
Tryggvi Agnafs
V[UU(
son nd1.
Finnur lngólfsson aðstm. rh.
Undirskriftir nefndarmanna
í bréfinu til ráðherra 4. des-
ember.
Lánasjóður íslenskra
námsmanna:
Eng’in niður-
staða á rík-
isstjórn-
arfundi
„NIÐURSTAÐAN er ekki kom-
in,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra
þegar hann var spurður hvort
tekin hefði verið afstaða til
greinargerðar Finns Ingólfsson-
ar um Lánasjóð íslenskra
námsmanna, sem lögð var fram
á ríkissljórnarfundi í gær.
„Það er með þetta eins og önnur
mál, það verður að reyna að ná
sáttum og samkomulagi," sagði
Steingrímur. Hann sagðist ekkert
vilja segja til um hvort Framsóknar-
flokkurinn mundi styðja frumvarp
Finns, eða frumvarp það sem samið
var af fulltrúum stjórnarflokkanna
ásamt Finni. „Finnur var að vinna
fyrir menntamálaráðherra," sagði
Steingrímur. „Ég tek enga mál-
efnalega afstöðu."
„Hann sagði að hún hefði varpað
nýju ljósi á málið,“ sagði Finnur
Ingólfsson þegar hann var spurður
um viðbrögð forsætisráðherra við
greinargerð hans um Lánasjóð
íslenskra námsmanna eftir fund
þeirra í gær.