Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987 3 Valgarð og Benta Bríem, Vala Thoroddsen, Jóhann Pétur Sveinsson, Davíð Oddsson og Ástríður Thorar- ensen við afhendingu fyrsta styrksins úr Minningarsjóði Gunnars Thoroddsen. Minningarsjóður Gunnars Thoroddsen: Jóhann Pétur Sveinsson hlaut fyrsta styrkinn FYRSTA styrkveiting úr Minn- ingarsjóði Gunnars Thoroddsen fór fram sunnudaginn 3. janúar sl. Sjóðurínn var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarði Bríem 29. desember 1985, þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Sjóðurinn er í vörslu borgarstjórans í Reykjavík, sem ákveður úthlutun úr honum að höfðu samráði við frú Völu Thoroddsen. Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til einstaklinga eða hópa, stofnana eða félaga, eða veita verð- laun eða lán í sambandi við rann- sóknir, tilraunir eða skylda starfsemi á sviði mannúðarmála, heilbrigðismála eða menningar- mála, sem Gunnar Thoroddsen lét sérstaklega til sín taka sem borgar- stjóri. Fyrsti styrkþegi sjóðsins er Jóhann Pétur Sveinsson, lögfræð- ingur, Hátúni 12, Reykjavík. I bréfi borgarstjóra til Jóhanns segir: „Með þrotlausu starfi og óbilandi kjarki hafið þér lokið embættisprófi í lög- fræði frá Háskóla íslands og hafið störf í starfsgrein yðar, m.a. í þágu öryrkja. Sem viðurkenningu fyrir þetta afrek er yður hér með veittur styrkur úr Minningarsjóði Gunnars Thoroddsen. Fjárhæðin nemur kr. 100.000. Er þetta jafnframt í fyrsta sinn, sem úthlutað er úr sjóðnum." Frú Vala Thoroddsen afhenti styrkinn, en athöfnin fór fram á heimili hennar. Vestmannaeyjar: Ihuga kaup á loftpúðaskipi - rúmar 100 farþega og kostar 100 milljónir Vestmannaeyjum. í VESTMANNAEYJUM eru uppi áform um stofnun hlutafé- lags um rekstur loftpúðaskips sem annist áætlunarferðir með farþega stystu leið milli lands og Eyja. Síðastliðinn laugardag boðuðu nokkrír áhugamenn um bættar samgöngur tíl undirbún- ingsfundar að stofnun félags um rekstur svifnökkva. Um 40 manns mættu á fundinn og kos- in var sérstök nefnd til að kanna málið ítarlega frá öllum hliðum. Pálmi Lórensson, einn af forvíg- ismönnum áhugahópsins, sagði í samtali við Morgunblaðið, að nokkrir aðilar hefðu undanfama mánuði verið að kanna möguleik- ana á því að kaupa loftpúðaskip og hefðu þeir tekið sig saman og boðað til fundarins þar sem allar fyrirliggjandi upplýsingar voru kynntar fyrir fundargestum. Sagði Pálmi að menn væru með í huga að kaupa loftpúðaskip sem rúmaði um 100 farþega en slíkt skip væri hægt að fá núna fyrir um 100 milljónir króna. Með slíku skipi tæki ferðin milli lands og Eyja 15-20 mínútur, eftir því hvaða lendingarstaður á ströndinni yrði fyrir valinu. „Það er mikill og vaxandi áhugi fyrir þessu hér í Eyjum og nái þessi hugmynd fram að ganga mun það hafa í för með sér algjöra byltingu í samgöngumálum Vest- mannaeyinga og þeirra sem sækja Eyjamar heim,“ sagði Pálmi Lór- ensson. Hann sagði ennfremur að vart hefði orðið við mikinn áhuga fyrir þessu máli uppi á fastalandinu og fólk þar teldi það skipta miklu máli hvaða lendingarstaður yrði valinn fyrir skipið. Ljóst væri að miklir atvinnumöguleikar fælust í móttöku og þjónustu við farþega. Á fundinum sl. laugardag var kosin undirbúningsnefnd sem er ætlað að kanna allt þetta mál gaumgæfílega frá öllum hliðum og undirbúa stofnun hlutafélags um kaup og rekstur loftpúðaskips reynist þetta hagkvæmur rekstur. Nefndina skipa: Amaldur Bjama- son bæjarstjóri, Páll Zophóníasson tæknifræðingur, Gunnlaugur Ax- elsson framkvæmdastjóri, Páll Helgason ferðamálafrömuður, Pálmi Lórensson veitingamaður og Friðrik Már Sigurðsson bifreiða- stjóri. Fundurinn óskaði einnig eftir því við stjóm Herjólfs hf. að hún tilnefndi mann í nefndina. - hkj. Við erum rétt að Ijúka við að bóna gólfin og setja upp gardínurnar í nýja húsnæð inu okkar og bjóðum upp á eldhressa vetrardagskrá í 2 sölum. Þarerað finna jazzdans, jazzballet, leikfimi og sérstaka barnatíma fyrirþau litlu, allt frá 2ja ára. Nýjasta nýtt er svo SA-þolþjálfunarkerfið okkar, sérhannað fyrir hresst fólk á öllum aldri. f ofanálag bjóðum við upp á frískandi gufu og nuddpott. Láttu ekki vetrardrungann ná tökum á þér. Stigðu rétta sporið! HVERFISGOTU 105 SIMI 13880 r~n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.